Dagur - 02.07.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 02.07.1982, Blaðsíða 12
wmm Akureyri, föstudagur 2. júlí 1982 Smiðjan er opin alla daga frá kl. 12.00-14.00 og frá kl. 18.30. Bautinn er opinn alla daga frá kl. 8.00-23.30. gömhun Degi Sjálfsagt finnst einhverjum að við seilumst ekki langt aftur í tímann að þessu sinni. Árið 1966 er ekki svo langt í burtu, segja menn, en tilfellið er að ryk er farið að falla á æði marga markverða atburði, auk þeirra sem teljast ekki ýkja merkilegir. 12. JANÚAR: Ólafsfirði 10. janúar. Kominn er skautaís á vatnið. Snjór rann í sundur í tveggja daga ágætri hláku. Byrj- að er að róa. Guðbjörg fékk sæmilegan afla í sínum fyrsta róðri. Guðbjörg, Anna og Sæþór ætla að róa hér heima. 19.JANUAR: Svonefnd kínalyf eru nú seld af miklu kappi í Reykja- vík. Er þar um að ræða drottningarhunang, sem nátt- úrulækningafólk hefur haft á boðstólum og rótar- seyði. . . Hunangið örvar hárvöxt og frjósemi og rót- arseyðið róar taugarnar, að því er fregnir herma. 5. FEBRÚAR: Hér er fannfergi en orðið gott veður. Stöðugt er unnið í Strákum og jarðgöngin lengjast dag frá degi. Göngin eru orðin rúmlega 160 metra löng og mun láta nærri að verkið gangi eftir áætlun. 19. MARS: Fyrir nokkrum dögum rak ofurlítið af vænum kol- krabba á fjörur Akureyrar. Muna sjómenn þeir, sem blaðið hefur um þetta spurt, ekki eftir því, að slíkt hafi áður gerst á þessum árstíma. 2. APRÍL: Lægsta raforkuverðið er að fá á íslandi, sagði forstjóri Sviss Aluminium eftir að iðnaðarmálaráðherra hafði skrifað undir alúmínsamningana. 6. APRÍL: Heitt vatn úr borholu á Húsavíkurhöfða. Sennilega fjórði hluti af hitaþörf bæjarins. 23. APRÍL: Síðasta vetrardag urðu átök og illindi í Lóni hér í bæ, en að kveldi þess dags héldu iðnnemar bæjarins þar dansleik. Brotnir voru þar stólar, borð og fleira. En sex menn voru kærðir fyrir ölvun og illindi. 4. MAÍ: Gunnarsstöðum 3. maí. Fyrst heyrðist í hrossagauk í austri, þótti það fyrrum harla gott og var þá kallað austgaukur. 2. JÚNÍ í Loftleiðaflugvél þeirri, sem til Akureyrar kom með nemendahóp gagnfræðinga og fleiri úr Noregsför á hvítasunnu, fundu tollverðir 96 flöskur (fleyga) af áfengi og tóku í sína vörslu. 10. ÁGÚST: Minkurinn kominn í Vopnafjörð . . . Það var veiði- maður einn við Selá, sem varð minka var í urð á efsta veiðistað árinnar, við fossinn. 13. ÁGÚST: Líkur fyrir hagnaði af sauðnautum, segir bandarískur vísindamaður, sem hér var . . . Sauðnaut voru flutt til landsins fyrir mörgum árum, en sú tilraun mis- heppnaðist. 17. ÁGÚST: Stálskipið Sigurbjörg ÓF 1 var afhent um síðustu helgi. Þetta er stærsta skipið sem íslendingar hafa smíðað og er mjög vandað, byggt í Slippstöðinni hf. á Akureyri. björguðu málunum6 6 Sl. föstudag opnuðu félagarn- ir Hörður Hafsteinsson og Ás- geir Lórentsson skóvinnu- stofu í kjallaranum að Hafn- arstræti 88, Akureyri. Stof- una kalla þeir Skóvinnustofu Akureyrar og kíkti tíðinda- maður Dags inn til þeirra í vikunni og tók þá tali. „Við gerum víð allt mögulegt, bilaðar barnakerrur, töskur af öllum stærðum og gerðum, við erum með seglaviðgerðir og svo náttúrulega skóviðgerðir og aðra leðurvinnu. Þá ætlum við að reyna að vera með mikið úr- val af sprayvörum, reimum og 20-30 liti af skóáburði. Hérna frammi er svo jafnvel meiningin að versla með öryggisskó. Þeir geta verið nauðsynlegir við ýmis störf og út á þá fæst ódýrari vinnutrygging. Við erum líka að jSSSSagSí . hugsa um að vera með umboð fyrir innlegg í skó fyrir t.d. skakka fætur, ilsig og tábergssig, e.t.v. í samráði við spítalann hérna. Þá er tekið mót af við- komandi fæti og innleggið sniðið eftir því.“ A vinnustofunni eru ýmis tæki og vélar, sem tilheyra faginu og segja þeir félagarnir þetta nokk- uð fullkomnar græjur. „Þessar vélar hafa ekkert breyst í áratugi og standa alltaf fyrir sínu.“ Við spyrjum þá, hvernig við- skiptin gangi, og þeir segjast hafa fengið mun betri viðtökur en þeir áttu von á. „Fólk er þeg- ar farið að koma með bilaða skó handa okkur. Sumir hafa bara komið gagngert til að bjóða okk- ur velkomna. Við erum mjög bjartsýnir á, að þetta blessist hjá okkur. Það hefur verið hálfgerð lágdeyða í skóviðgerðum hér á landi undanfarin ár. En svo komu pinnahælarnir aftur og björguðu málunum. Það er til muna meira að gera í viðgerðum á kvenskóm en karlmannaskóm. Það virðist vera algengt, að fólk fresti að fara með skóna sína í viðgerð, þó svo að kominn sé brestur í þá, þangað til ekki er hægt að nota þá meira. Þetta gerir viðgerðina mun erfiðari og dýrari fyrir vikið, og er rétt að benda fólki á að fresta ekki að koma með bilaða skó.“ Og hvað kostar svo algeng viðgerð á skóm? „Það kostar 61 kr. að Iíma hæl á skó, en getur kostað meira, ef þarf að byggja undir hann fyrst, t.d. þegar gengið hefur verið á þeim, eftir að hælarnir hafa dott- ið af.“ * %í Nú fara sumarfrí í liönci -Allt í útilegruna. &HSJSGD.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.