Dagur - 06.07.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 06.07.1982, Blaðsíða 9
KA átli ekki möguleika gegn Breiðabliksmönnum KA tapaði sínum þriðja leik í röð á laugardaginn, þegar þeir léku við Breiðablik. Svo virt- ist sem eitthvert slen væri í leikmönnum KA, en Blikarn- ir voru alltaf frískari og dug- legri, og þrátt fyrir að þeir sýndu enga sérstaka knatt- spyrnu, unnu þeir KA örugg- lega með tveimur mörkum gegn engu. Fyrsta marktækifærið kom á 12. mín., en þá gaf KA-vörnin Vigni Baldurssyni góðan tíma til að leggja boltann fyrir sig á víta- teigslínunni og hann skoraði með föstu skoti. Blikarnir fengu sitt annað marktækifæri á 32. mín., en þá komst Hákon Gunn- arsson í dauðafæri, en Steini bjargaði með góðu úthlaupi. Á 32. mín. átti Gunnar Gísla- Bikarleikir í kvöld fer fram á Akureyrar- velli leikur Þórs og Breiðabliks í Bikarkeppni KSÍ og hefst hann kl. 20. Telja verður Blikana sig- urstranglegri í þessum leik, en þó gætu Þórsarar komið á óvart ef þeir fá góðan stuðning áhorf- enda. Á fimmtudagskvöld leika svo KA og ísafjörður í Bikar- keppninni á Akureyrarvelli. Báðir leikirnir hefjast kl. 20. son góða rispu í gegnum Blika- vörnina, en á síðustu stundu hirti markmaður þeirra boltann af tánum á Gunnari. í síðari hálfleik lék KA undan golunni og sóttu heldur meira, en gekk illa að skapa sér mark- tækifæri. Blikarnir áttu hins veg- ar hættulegar skyndisóknir og á 10. mín. komst Birgir Teitsson inn fyrir vörnina, en aftur bjarg- aði Steini með úthlaupi. Á 20. mín. átti Ásbjörn við- stöðulaust skot að marki Breiða- bliks eftir fyrirgjöf frá Eyjólfi, en skot hans fór framhjá. Á 23. mín. hljóp Helgi Bentsson af sér KA-vörnina og skoraði auðveld- lega, og kom Blikunum í tvö mörk gegn engu. Ekkert fleira markvert'gerðist í leiknum, en eins og áður segir, olli spil KA áhorfendum von- brigðum. Jóhann Jakobsson gat ekki leikið með KA vegna meiðsla, og ef til vill hefur fjar- vera hans úr liðinu valdið því, að spilið datt niður. Fyrir leik heiðraði stjórn Knattspyrnudeildar KA þrjá leikmenn fyrir að hafa leikið marga leiki. Eyjólfur fékk blóm- vönd og styttu fyrir 150 leiki og Elmar og Gunnar Gíslason fengu sams konar fyrir 100 leiki. Dómari leiksins var Rafn Hjaltalín og Iínuverðir Magnús Jónatansson og Kjartan Tómas- son og stóðu þeir sig með prýði. Markvörður Blikanna hirðir knöttinn af tám Gunnars Gíslasonar á elleftu stundu. Mynd: KGA. íslandsmót unglinga í golfi: Hafþór Helgason afgreiðir boltann örugglega í netið, framhjá úthlaupandi markverði Þróttar. Mynd: KGA. Enn tapar Þór Gylfi varði titilinn Þrátt fyrir aragrúa góöra marktækifæra náðu Þórsarar aðeins jafntefli við efsta lið annarrar deildar, Þrótt, á föstudagskvöldið. Bæði liðin skoruðu tvö mörk og bæði skoruðu mörk úr víti. Ekki hefði verið ósanngjarnt að segja að Þórsarar hefðu átt að vera þrem mörkum yfir, þegar flautað var til hálfleiks, miðað við öll þau marktækifæri sem þeir fengu. Þróttarar höfðu hins- vegar skorað úr öllum sínum tækifærum. Fyrsta marktækifæri leiksins fengu Þróttarar á 10. mín. Þá fengu þeir aukaspyrnu og var skallað rétt yfir þverslá. A 13. mín. kom fyrsta marktækifæri Þórsara. Þá var allt í einu Óskar Gunnarsson á auðum sjó í vít- arteignum eftir misheppnaða rangstöðutaktik Þróttara. Ósk- ari tókst hins vegar ekki að skora úr þessu færi, en laust skot hans fór rétt framhjá. Fyrsta markið kom síðan á 14. mín. Þá fengu Þróttarar auka- spyrnu og gefinn var saklaus bolti inn í vítateiginn, en þar var Úlfar Hauksson sem náði að pota boltanum í netið. þremur mín. síðar jöfnuðu Þórsarar. Þá fékk Hafþór góða stungu innfyrir Þróttarvörnina og af- greiddi boltann örugglega í netið. Á 25. mín. komst Bjarni Sveinbjörnsson í gott færi en skot hans var varið í horn. Á 35. mín. komst síðan Örn í dauða- færi, enn eftir misheppnaða rangstöðutaktik Þróttara, en boltinn vildi ekki í netið og fór rétt framhjá. Markamínútan brást Þróttur- um ekki. Þá var brotið á einum sóknarmanna þeirra og dómar- inn Úlfar Steindórsson dæmdi vafasama vítaspyrnu - sem Þróttarar skoruðu úr. Unglingameistaramót íslands í golfi var haldið á Akureyri um helgina. Þar mættu á milli 40 og 50 ungir og efnilegir kylfingar víðs vegar af landinu til leiks og léku þeir 36 holur á laugardag og aðrar 36 á sunnudaginn. Mikil keppni var í unglinga- flokknum. Þar hafði Gylfi Krist- insson frá Golfklúbbi Suður- stigi í síðari hálfleik náði Þróttur betra valdi á leiknum og áttu þeir mörg góð marktækifæri, en þeim tókst ekki að skora. Á 35. mín. var BjarnaSveinbjörnssyni gróflega brugðið innan víta- teigs og aftur dæmdi Úlfar víta- spyrnu, sem Guðjón skoraði úr. Þegar litið er á leikinn í heild eru. úrslitin sanngjörn, en Þór átti mun fleiri tækifæri í fyrri hálfleik, en Þróttur í þeim síðari. Þórsarar fengu þarna dýrmæt stig í baráttunni um fyrstu deildarsætið, en Þróttarar eru efstir í deildinni. nesja titil að verja frá í fyrra og lengi vel leit út fyrir, að hann myndi gera það átakalaust. En síðari daginn höfðu nokkrir aðr- ir blandað sér í baráttuna og þegar síðustu 9 holurnar voru óleiknar, má segja að fjórir hafi átt raunhæfa sigurmöguleika. Þetta voru þeir Gylfi Kristins- son, Páll Ketilsson, Jón Þór Gunnarsson, GA, og Magnús Jónsson. Gylfi var þó þeirra sterkastur á lokasprettinum og sigraði á 310 höggum, Páll var annar á 314 og Magnús þriðji á 315. Þessir unglingar eru allir úr GS. Hafnfirðingarnir hirtu öll verðlaunin í drengjaflokki. Þar sigraði hinn stórefnilegi Úlfar Jónsson á 311 höggum, Hörður M. Arnarson var annar á 318 og Sigurbjörn Sigfússon þriðji á 323. Þrjár stúikur mættu til leiks í stúlknaflokki og engin í yngri flokkinn. Er þetta vissulega íhugunarefni fyrir forráðamenn klúbbanna, hvað þátttaka stúlkna er lítil. En hvað um það, Sólveig Þorsteinsdóttir, GR, bar sigur úr býtum á 338 höggum, Ásgerður Sverrisdóttir, GR, önnur á 344 höggum og Þórdis Geirsdóttir, GK, þriðja á 357 höggum. 6; júlí 1992 - DAGy$-9,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.