Dagur - 22.07.1982, Side 7
Slic-50:
Nýtt
bæti-
efni
fyrir
bíla
Nýlega var kynnt á Akureyri
nýtt bætiefni fyrir bflvélar,
SLIC - 50. Efnið er sett saman
við smurolíu vélarinnar, og
minnkar það slit og auk þess er
það bensínsparandi. í þriðja
lagi er kleift að aka á bfl olíu-
lausum allt að hálfa klukku-
stund, hafi SLIC - 50 verið á.
Það er Hilco sf. í Garðabæ sem
hefur umboð fyrir SLIC - 50 á ís-
landi, og í tilkynningu frá umboð-
inu segir um efnið: „SLIC - 50 er
Teflon-blanda sem sett er saman
við smurolíu vélar. Efnið bland-
ast smurolíunni og húðar alla slit-
fleti vélarinnar og endist húðunin
lífaldur vélarinnar. Ný smurolía
sett á vélina, en 1 lítra látinn vanta
á venjulegt magn, vélin gangsett
og SLIC - 50 bætt saman við og
vélin látin ganga í V2 klst. til þess
að efnið blandist olíunni. - Bland-
an er á vélinni 5000 km akstur,
hreinsar hún þá alla slitfleti og
húðar þá. Þegar skipt er um olíu á
vélinni er húðunin eftir og ver vél-
ina gegn frekara sliti.“
Efnið hefur verið notað á bíla,
vinnuvélar og báta á Suðurnesj-
um síðustu mánuði, og hefur
reynst vel. Pá hefur bandaríska
tímaritið Consumers Digest, sem
er neytendarit, farið mjög lof-
samlegum orðum um SLIC - 50,
og segir m.a. frá þrem bílum sem
voru eknir yfir 100.000 km. Sett
var SLIC - 50 á vélarnar sam-
kvæmt notkunarreglum, og sex
mánuðum seinna var olíunni
tappað af og bílunum ekið olíu-
lausum í hálfa klukkustund. Kæli-
vatnið hitnaði ekkert meðan á
þessu stóð, og vélarnar virtust
jafngóðar á eftir.
Hér á Akureyri var gerð svipuð
tilraun. Olían var tekin af bíl sem
hafði verið ekið 2500 km með
SLIC - 50, og honum ekið olíu-
lausum. Ökuferðin stóð í sjö mín-
útur, áður en vart varð við á gang-
ur vélarinnar fór að þyngjast. En
ekki varð hún að neinu leyti fyrir
varanlegum áföllum af þessari
meðferð. Þá er rétt að ítreka að
bílnum hafði einungis verið ekið á
SLIC - 50, helming tilskildrar
vegalengdar. Fróðir menn segja
hins vegar að undir „venjulegum“
kringumstæðum hefði bíllinn
brætt úr sér eftir einnar mínútu
akstur.
Sölustaður á Akureyri er Þórs-
hamar, og á Húsavík Foss hf.
Verð á SLIC - 50, fyrir venjulega
fólksbifreið, er 400 krónur.
Bílasala
Bílaskipti.
Stór og bjartur
sýningasalur.
Bílasaian Ós,
Akureyri sími 21430.
Áll í stað-
inn fyrir lax
S.l. miðvikudag voru tveir menn
að renna fyrir laxi í Laxá í Aðal-
dal í landi Syðra-Fjalls og urðu
ekki varir frekar en margir aðrir
sem það hafa reynt í sumar.
Koma þeir auga á eitthvert langt
og ljótt kvikindi sem dólar sér þar
undir bakkanum í rólegheitum.
Greip þá annar veiðimaðurinn
háf sinn og mokaði upp skepn-
unni sem þá reyndist vera meters
langur áll. Ekki er vitað til að
þarna hafi veiðst áll áður.
Föstudagur:
Þórskabarettkl. 21.
Opnað fyrir matargesti kl. 19.
Frábær matur á frábærn verði.
Hljómsveitin Geimsteinn skemmtir til kl. 03.
Miðasala fimmtudag kl. 18-20.
Laugardagur:
Flugdagur:
Opið fyrir matargesti í hádeginu
ogveislukaffitilkl. 17.
Opnað fyrirmatargestikl. 19.
Flugmatseðill: Frábærir réttir.
Hljómsveit Steingríms Stefánssonar skemmtir til kl. 03.
Plötukynning: MANSTU EFTIR MÉR.
Ný plata. ERNA, EVA, ERNA verður kynnt.
Sunnudagur:
Prófessorinn. Frumsýning kl. 21.30.
Frábær kabarett með glensi, gríni, brellum og brögðum.-^
Opnað fyrir matargesti kl. 19.30.
Miðasalafrá kl. 18.
Tískusýning frá Vöruhúsi KEA.
Dansaðtilkl. 01.
Tilboð!
15% afsláttur
af öllum vörum út júlímánuð vegna 15 ára af-
mælis Geisla hf. Opið í hádeginu.
Verið velkomin í Kaupang.
AKUREYRARBÆR
Sýning
Arkitektafélags íslands á uppdráttum af húsnæði
fyrir aldraða verður haldin í (þróttaskemmunni
dagana 23. júlí til 30 júlí, að undanskildum mið-
j vikudeginum 28. júlí.
Sýningin hefst kl. 20.30 þann 23. júlí, en verður
síðan opin kl. 14-22 laugardag og sunnudag, en
kl. 17-22 virka daga.
Bæjarstjóri.
' 22! julí 1Ö82-DAGUR-7