Dagur - 30.07.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 30.07.1982, Blaðsíða 5
IÞROTTIR Gylfi Kristjánsson Nú má segja að vertíð golfleik- ara hér á landi sé í hámarki og vart líður sú helgi að ekki séu haldin fjölmörg mót víða um landið. Norðlendingar láta ekki sitt eftir liggja og hjá golfklúbb- unum í þeim landshluta hefur hvert stórmótið rekið annað að undanförnu. Meistaramót klúbbanna voru háð fyrr í mánuðinum sem nú er að kveðja og kom fram að mikil fjölgun hefur orðið á iðkendum í slíkan völl. Völlurinn var form- lega tekinn í notkun í ágúst og því ekki mikið spilað á honum á , si. ári. Tíðarfar í vor og framan af sumri var mjög óhagstætt fyrir gróður þannig að golfvellir á Norðurlandi voru mjög seinir til. Reyndar er sennilegt að al- menningur átti sig betur á því hvernig ástandið var, ef þess er gætt að grasvöllur knattspyrnu- manna á Akureyri var ekki til- búinn til notkunar fyrr en langt var liðið á júní. þessari ört vaxandi íþróttagrein. En það var ekki það sem aðal- lega átti að gera að umræðuefni hér heldur vallarmálin. Eins og menn rekur minni til var í fyrra tekinn í notkun nýr 18 holu golfvöllur á Akureyri og var fyrir þann tíma aðeins einn 18 holu völlur á landinu, völlur- inn í Grafarholti. Var því ekki nema von að Akureyringar væru stoltir af því að geta boðið upp á Með hliðsjón af því er ekki erfitt að gera sér í hugarlund erf- iðleika þeirra sem eiga að sjá um að koma golfvöllum í gott stand. Strax og kemur fram á vor þyrp- ast kylfingar á velli sína og þeir vilja góða teiga, góðar brautir og enn betri flatir við holurnar. Slíkt er auðvitað erfitt að upp- fylla við þau veðurskilyrði sem voru hér í vor og framan af sumri en menn láta sér ekki segjast. Gott dæmi um þetta eru fjölmargir keppendur sem tóku þátt í Unglingameistaramóti ís- lands á Akureyri um síðustu mánaðamót. Heimtufrekja þeirra og kröfuharka var svo yfirgengileg að manni hreinlega blöskraði. Kom fyrir ekki þótt þeim væri gert það ljóst að varla hefði komið dropi úr lofti allan júnímánuð og að kalt hefði verið í veðri. Það var ekki hlustað á slíkt, bara þusað og þrasað og jafnvel hótað að fara heim. Hefði varla verið mikil eftirsjá í þeim er hæst „sungu“. En sem betur fer eru þeir margir sem nú gera sér grein fyrir þeim sannleika hvar við búum á jarðkringlunni og sætta sig við vallarskilyrðin eins og þau eru hverju sinni. Þeir eru nefnilega ekki öfundsverðir sem starfa við það að gera golfvelli sem best úr garði á Norðurlandi. Á sumum stöðum er það starf unnið í sjálf- boðavinnu að langmestu leyti eins og t.d. á Húsavík. Þar hefur fámennur hópur unnið krafta- verk á velli sínum sem tekur miklum framförum með hverju árinu sem líður og þar er alltaf unnið að framkvæmdum. En Húsvíkingar sem héldu opið mót um síðustu helgi sluppu heldur ekki við gagnrýnisraddir, nöldrað var út af flötum og öðru slíku og það jafnvel af mönnum sem starfa við golfvelli á öðrum stöðum. Um helgina fer fram eitt mesta golfmót sem haldið er á Norðurlandi á hverju ári, Jað- arsmótið á Akureyri. Mótið er jafnframt stigamót og því von á fremstu kylfingum landsins í tugatali til að reyna að krækja sér í landsliðsstig. Að sjálfsögðu eiga eftir að heyrast þar gagn- rýnisraddir og menn eiga eftir að kenna skilyrðum um ef illa gengur. Þeir keppendur sem þessar línur lesa ættu þó að hugsa málið örlítið, síðari 9 holurnar á Jaðarsvellinum voru fyrst teknar í notkun á síðasta ári eins og fyrr segir og eru ekki orðnar eins góðar og þær eiga eftir að verða þegar fram líða stundir. En. - Þeir sem starfa við golf- vellina og þeir sem þar stjórna framkvæmdum eiga ekki að vera svo hátt settir að þeir þoli ekki gagnrýni á störf þeirra sé hún sett fram á sanngjarnan hátt og rökstudd. Slík gagnrýni getur einungis verið til bóta og af allt óðrum toga spunnin en hið hvimleiða nöldur og þras út af hlutum sem ekki er hægt að ráða við. Frá vígslu 18 holu vallarins á Akureyri á síðasta sumri. ÖÐRUM TIL FYRIRMYNDAR Opel Kadett er óskabíll þeirra sem ferðast vilja ódýrt án þess að gera það á kostnað afls, öryggis, og þæginda. Opel Kadett er aflmikill, þægilegur og rúmgóður jafnt fyrir fólk sem farangur. Opel Kadett er spar- neytinn og öryggisbúnaður allur fyrsta flokks. Þegar þú hefur kynnst kostum Opel Kadett kemur verðið þér á óvart. Vekur Opel áhuga þinn? Reiðubúinn í reynsluakstur? Hringdu og pantaðu tíma. VÉLADEILD Ármúla3 0 38900 30: |ÚI11982 - ÐAGUR - S OCTAVO 09.05

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.