Dagur - 30.07.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 30.07.1982, Blaðsíða 12
------------BAUTINN - SMIÐJAN AUGLÝSA:--------------- Graham Smith, fiðluleikari, og Jónas Þórir, hljómborðsleikari, skemmta matargestum Smiðjunnai á hverju kvöldi, (nema 2. og 3. ágúst), tímabilið 30. júlf ti!8.ágúst. Akureyri, föstudagur 30. júlí 1982 Bæjarstjóri 18. janúar. Bjarni Einarsson kosinn bæjarstjóri í gær. Framsóknar- og Alþýðuflokksmenn studdu hann. - Hinir skiluðu auðu. Geimfar 4. febrúar. Geimfar í Þistilfirði. Maður einn í Sauðanes- hreppi keypti sér nýlega vélsleða, sem gárungarnir nefna geimfar. Frosti strandar 8. febrúar. Frosti II strandaði á Innstalandsskerjum á laugardaginn, þegar báturinn var' á leið til Hofsóss í suð- vestan strekkingi og dimmum hríðaréljum. Mönnunum var bjargað yfir í annan bát og Frosti II náðist lítt skemmd- ur af strandstað, morguninn eftir. Atvinnulausir 25. febrúar. Nær 100 atvinnulausir á Akureyri. 24 verka- menn og 75 verkakonur, alls hafa það sem af er árinu verið greiddar í atvinnuleysisbætur 462 þúsund krónur. Atvinnuleysið nú í vetur hefur verið meira á Akureyri en oft áður. KEA félagar 4. márs. í Akureyrardeild KEA eru nú 2589 félagar. Fimbulkuldi 29. mars. íshrafl fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum. Nær allir vegir landsins tepptust vegna snjóa. Víða eru ísjakar á siglingaleiðum en sjást illa eða ekki í ratsjám. Brennur á Grenivík 26. apríl. Símstöðvarhúsið á Grenivík brann til kaldra kola. Stöðvarstjóri bjó einn í húsinu og slapp hann ómeiddur. Þegar slökkvilið Akureyrar mætti á staðinn var húsið að mestu brunnið. Ókunnugt er um eldsupptök. Hafin síldarleit 5. maí. Síldarleit er nú hafin á miðunum norðan og aust- an við landið. Við leitina eru notuð tvö skip og jafnvel bú- ist við að það þriðja verði fengið að auki. Allir úr Flatey? 5. mai. Flytja allir úr Flatey? Þar búa nú um 20 manns og mun það vera of fámennt samfélag. Flateyingar munu hugsa sér til hreyfings úr eynni næsta haust. Kísilverksmiðjan 1. nóvember. Verksmiðja kísiliðjunnar í Bjarnarflagi fullgerð. Var formlega afhent síðastliðinn föstudag. Af- köst verksmiðjunnar eiga að geta orðið 25-27 þúsund tonn á ári. Fyrst um sinn verða um 25 manns í fastri vinnu við verksmiðjuna. Hestar á fleka 2. desember. Fjórum hestum var bjargað á fleka, úr ár- hólma sem var umflotinn djúpu krapi. Eitthvað voru hrossin hvekkt, því með naumindum tókst að fá þau til að koma á flekann. Eitt hrossið varð að skjóta af því ekki var mögulegt að fá það á flekann. í höfnina 13. desember. Ökumaður og bíll fóru í höfnina. Maður- inn slapp en bíllinn er dálítið skemmdur. ísing á stýris- gangi mun orsök þess að bíllinn lét ekki að stjórn, og rann í höfnina. 99 Hver reitur þama uppi er heill heirnur út af fyrir sig“ „Það er óhætt að segja að það opnist nýr heimur fyrir manni þegar upp á Vatnajökul er komið og á svæðin þarna í kring, enda ræð ég ekkert við þá löngun að koma þangað aftur og aftur“ sagði Sigurður Baldursson, en Baldur Sigurðs- son faðir hans, Sigurður og reyndar fjölskyldan öll gengst fyrir ferðum á Vatnajökul. Fyrirtæki fjölskyldunnar ber heitið Jöklaferðir, og í boði hjá því eru helgarferðir. Farið er frá Akureyri á föstudagseftirmiðdag, og haldið í Gæsavötn en þar er gist í tjöldum eða skála. Laugar- dagurinn er notaður til ferða á Jökulinn og sunnudagurinn í ferð í Vonarskarð og Trölladyngju. „Við erum 6 tíma að keyra Grímsvötn en það er vinsælast af þeim sem koma í þessar ferðir að fara þangað," sagði Sigurður. Annars er hver reitur þarna uppi heill heimur út af fyrir sig og þegar ekið er yfir Bárðarbungu sem er annað hæsta fjall landsins sést yfir a.m.k. 2/3 hluta landsins ef skyggni er gott.“ Farartækin sem notuð eru á jöklinum eru „Snjókötturinn" sem tekur 13 manns í sæti og „Bangsi“ sem er með 10 sæti. Þá er jeppi á beltum og einnig erum við með snjósleða og fleiri farar- tæki. Það ermjög vinsælt hjáfóiki að fara á skíði í þessum ferðum, og getur það þá látið draga sig um jökulinn annaðhvort af snjósleð- um eða snjóbílunum. Við erum með skíðaleigu sjálfir og þetta er það sem fólkið sækir mest í.“ Ferðir Jöklaferða standa yfir fram í ágústlok og það er Útsýn á Akureyri sem sér um miðasöluna. Þessar ferðir voru teknar upp á síðasta ári eftir nokkurt hlé og var aðsókn mikil. „Það eru aðallega íslendingar sem koma í þessar ferðir, fólk á öllum aldri og við höfum ekki orðið varir við annað en almenna ánægju hjá fólkinu. Við viðurkennum fúslega að verðið er í hærri kantinum, en höfum við það fyrir sið að láta fólkið ekki borga fyrr en í ferða- lok og þá finnst engum mikið að greiða það sem við setjum upp. Við getum því óhræddir mælt með þessum ferðum sem eru mjög óvenjulegar og ólíkar öðrum sem boðið er upp á“ sagði Sigurður. Sigurður Baldursson. VERSLUNARFOLK! I Óskum ykkur góðrar helgar og ánægjulegrar heimkomu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.