Dagur - 06.08.1982, Page 12
--------BAUTINN - SMIÐJAN AUGLÝSA:-----
Graham Smith og Jónas Þórir skemmta
í Smiðjunni fimmtudag kl. 21.30, föstudag
kl. 20 og 22 og laugardag kl. 20 og 22.
gömlum
MJeín
CJ
Það er best að byrja á að afsaka að síðasa föstudag féll
niður ártalið. En þá vorum við á því herrans ári 1967, og
förum nú tíu ár aftur fyrir það.
Veiðitilraun
23. janúar. Stórmerk þorskveiðitilraun Húsvíkinga fyrir
Norður og Norðausturlandi í vetur. Hagbarður og Hrönn
afla vel. Hagbarður er nú gerður út frá sinni heimahöfn -
Húsavík - og gefst með eindæmum vel.
Ný mjólkurstöð
13. mars. Eyfirskir bændur undirbúa byggingu nýrrar
mjólkurstöðvar á Akureyri. Mjólkurframleiðslan hefur
fjórfaldast á 18 árum.
Hreindýrastofninn í hættu
20. mars. íslenski hreindýrastofninnn í hættu. Fjöldi
hreindýra fallinn úr hor. Haglaust er nú á stórum svæðum
á hinum venjulegu hreindýraslóðum. Dýrin leita því til
byggða og eru hörmulega á sig komin. í undirbúningi eru
ráðstafanir til bjargar.
Síðasta síldin
6. apríl. Síðasta íslenska saltsíldin flutt úr landi. Heildar-
söltun Norðurlandssfldar var 264.533 tn. Sfldaraflinn var
meiri á síðastliðnu ári en nokkru sinni fyrr í sögu sfldveið-
anna hér við land.
Byggt við tunnuverksmiðjuna
15. maí. Byggt verður geymsluskýli við tunnuverksmiðj-
una á Akureyri. Ríkisstjórnin fær heimildtil að taka allt að
5 millj. kr. lán til þessarar byggingar og endurbóta á verk-
smiðjunni.
Svalbarðsstrandakirkja
31. maí. Vönduð kirkja á Svalbarðsströnd var vígð á upp-
stigningardag með mikilli viðhöfn. Biskupin yfir íslandi,
herra Ásmundur Guðmundsson vígði þetta nýja guðshús
að viðstöddu fjölmenni, þar á meðal marga presta.
Gjörnýting
9. október. Verðmæt útflutningsvara unnin úr efnum sem
áður var fleygt. Kjöt- og beinamjöl vegna gjömýtingar
sláturfjárafurða. - Sláturhús KEA ryður brautina.
Hvassafell strand
23. október. Hvassafellið strandaði á Siglufirði síðastliðið
sunnudagskvöld. Ekki var slys á mönnum en skipið er
eitthvað skemmt.
Kísilnám
2. nóvember Botnleðja Mývatns Ótæmandi lísilnáma.
Rannsóknir að auðlindum þessum sanna marga mögu-
leika tfl hagnýtingar.
Aðaldalsflugvöllur
17. desember. Nýr flugvöllur í Aðaldalshrauni. Áætlunar-
ferðir verða vikulega. Völlurinn er talinn mjög góður og
aðflugið er ágætt.
Nýi Drangur
hefur reynst vel
• •
— Rætt við Orlyg Ingólfsson sklpstjóra
Nýi Drangur hefur verið mikið
til umræðu á götuhornum og í
heita pottinum að undanförnu.
Sérstaklega hefur útlit skipsins
verið fólki drjúgt umræðuefni
og hafa þá oft fallið orð á borð
við: „Ljótasta skipið í flotan-
um, járnbrautarlest á sundi,
| flugvélamóðurskip og allt á
öðrum endanum.
En hvernig hefur þetta um-
deilda skip svo reynst? Þessa
spurningu lögðum við fyrir
skipstjóra Drangs, Örlyg Ing-
ólfsson.
„Hann hefur reynst vel sem af
| er. Ég get að vísu ekki sagt um
hvernig hann er í miklum sjó-
]gangi. Það hefur verið svo gott
veður hingað til. Við sóttum á
! honum heila malbikunarstöð til
! Hafnarfjarðar í síðustú viku og
Ihann er mjög góður í svona
; þungaflutninga. Það er mjög
• þægilegt að lesta hann. Maður
I keyrir bara á lyftara um borð auk
] þess sem bóman er einhver sú af-
Ahöfnin á nýja Drangi.
iliIiSlaHi
kastamesta í flotanum með um 56
tn. lyftigetu."
Hvenær er áætlað að hefja fast-
ar ferðir á honum?
„Ja, mér skilst að gamli Drang-
ur hætti í næstu viku þannig að þá
hlýtur sá nýi að eiga að hefja fast-
ar ferðir. Annars er nú verið að
innrétta farþegarýmið og það
verður ekki til strax.“
Hvað verður um gamla Drang?
„Hann hefur verið seldur til
Keflavíkur og verður þar gerður
út á þorskveiðar."
Hefur það færst í aukana að
túrhestar taki sér far með Drangi
til Grímseyjar?
„Já, það hefur orðið aukning
frá því sem áður var en hinsvegar
eru farþegaflutningar frá Siglu-
firði og Ólafsfirði búnir að vera.
Það er ekki nema þegar hvorki er
hægt að komast á landi eða lofti
sem íbúar þessara staða fást til að
fara með okkur.“
t Nú er það samdóma álit flestra
' að nýi Drangur sé ljótasta skip
flotans. Hvað vilt þú segja við
því?
„Hann er alls ekki Ijótur. Þetta
er það byggingarlag sem skip eru
smíðuð í í dag. Það er burðarþol-
ið sem ræður en ekki straumlínu-
lagið.“ “Hann fríkkar með hverj-
um deginum,“ skýtur Einar stýri-
maður inn í.
Að lokum eru svo nokkrar upp-
lýsingar um skipið sem Örlygur
lét dynja á blaðamanni í þann
mund sem hann gekk frá borði:
Drangur er keyptur frá Noregi
en smíðaður í Rúmeníu. Hann er
37 m á lengd og 10'm á breidd og
lestar 250-70 tn. FuUhlaðinn ristir
hann 2.75 m. Hann er knúinn
tveim 300 hestafla Volvo Penta-
vélum og Ijósavélin er af Ford-
gerð. Að sögn skipstjórans er
ganghraðinn ekki mikill og væri
nálægt lagi að hann losaði 8 mílur.
í skipinu eru góðir ballesttankar
sem rúma 340 tn. af sjó og það er
búið öllum venjulegum siglinga-
tækjum.
Sumarlínan ’82
Ný sending af
sokkum, leistum
og sokkabuxum
í öllum regnbogans
litum fyrir alla
aldurshópa
Það besta
er ódýrast