Dagur - 12.08.1982, Síða 8
NYLONHÚÐAÐAR GRJÓTHLÍFAR
FRAMAN Á BÍLA.
Glerárskólinn.
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum, fyrrum skólameistari
M.A. er áttræður í dag.
Nú er verið að gera bronsaf-
steypu af brjóstmynd Gísla Guð-
manns af Steindóri og verður hún
afhjúpuð á lóð Menntaskólans í
haust.
Brjóstmyndin af Steindóri Stein-
dórssy ni sem Gísli Guðmann gerði.
Mynd: H.Sv.
Miklar hafnar-
framkvæmdir
á Akureyri
„Stærsta framkvæmdin sem
unnið hefur verið við að undan-
förnu er löndunarkantur fyrir
togarana sem nú er verið að
Ijúka við. Þetta er 75 metra
langur kantur sem byrjað var á
síðasta haust og framkvæmd-
um á að Ijúka nú í haust,“ sagði
Guðmundur Sigurbjörnsson
hafnarstjóri á Akureyri í sam-
tali við Dag.
„Þetta er stálþilskantur sem
kemur í beinu framhaldi af gömlu
togarabryggjunni við frystihúsið,
og eftir að hann hefur verið tekinn
í notkun batnar öll aðstaða við
löndun úr togurunum verulega.
Við Slippstöðina er í gangi
fjárfrek framkvæmd. Það er verið
að ganga þar frá rafmagnsiögnum
í steypta kassa á bryggjukantin-
um. I þessum kössum eru raf-
magnstenglar og það er verið að
ganga frá þessari tengingu núna.
Þá eru einnig í gangi framkvæmd-
ir við lýsingu á bryggjunni við
Slippstöðina og malbikun.
1 Sandgerðisbótinni á Óseyri er
verið að setja upp löndunarkrana
fyrir trillurnar. Þangað hefur
einnig verið ekið grjóti í viðlegu-
garð, en litlar líkur á að það verði
lagt út í haust. Þarna er aðstaða
fyrir 45 báta og áformað að
stækka þessa aðstöðu verulega.
Þá er einnig unnið að skipulagi
strandlengjunnar. Arkitektar
hafa þegar gert tillögur varðandi
það og þær eru til umræðu í hafn-
arstjórn og verða afgreiddar þar
áður en langt um líður,“ sagði
Guðmundur.
Vindmylla
reist í Grímsey
Aö undanförnu hefur Raunvís-
indastofnun Háskólans í sam-
ráði við Vélsmiðjuna Odda
unnið að smíði vindmyllu fyrir
Grímseyinga. Vindmyllu þess-
ari er ætlað að framleiða hita
með svokallaðri vatnsbremsu
og getur hún í 7 vindstigum
framleitt lh tonn af 70°heitu
vatni á klukkustund.
Grímseyingar hafa í sumar reist
hús undir mylluna, 14 tonna
vatnsgeymi og lagt tvöfaldar
vatnslagnir í tvö syðstu húsin í
bænum. Mastrið sem er 10 metra
hátt og er í smíðum á Vélsmiðj-
unni Odda verður flutt til Gríms-
eyjar með Drangi og er áætlað að
það verði reist þriðjudaginn 17.
ágúst. 18-19. ágúst kemur síðan
vindrellan, bremsubúnaðurinn og
aðrir fylgihlutir s.s. tölva sem
skráir vindhraða og allan gang
myllunnar, til eyjarinnar og verð-
ur fljótlega upp úr því hægt að
hefja tilraunirnar. Fari svo að til-
raunin heppnist og myllan fram-
leiði nóg af heitu vatni fyrir húsin
sem við hana eru tengd verður
væntanlega reist vindmylla sem
getur framleitt heitt vatn handa
öllum Grímseyingum. Einnig
ráða niðurstöður þessarar tilraun-
ar úrslitum um það hvort fleiri
slíkar myllur verði reistar á land-
inu því „ef hún virkar ekki í
Grímsey þá virkar hún hvergi".
Að sögn Hafliða Guðmunds-
sonar í Grímsey hafa eyjarskeggj-
ar sjálfir kostað framkvæmdir við
undirbyggingu mastursins, vatns-
geyminn og lagnirnar í húsin en
annað hefði verið kostað af ríkis-
framlagi.
Hafliði sagði að Grímseyingar
byndu miklar vonir við þessa til-
raun og biðu spenntir eftir niður-
stöðum hennar. Af öðru sem
fréttnæmt mætti teljast úr eynni
væri það helst að almenn ánægja
væri þar með nýja Drang þótt
hann væri ekki mikið fyrir augað.
Með tilkomu hans mætti segja að
bylting hefði orðið í vöruaf-
greiðslumálum til og frá eynni.
Sumarið hefur verið þokkalegt en
aflabrögð með minnsta móti.
G lerár-
skóli
er yfir-
fullur
„Glerárskólinn er orðinn yfir-
fullur og því verðum, við að
grípa til þessa ráðs,“ sagði Páll
Bergsson yfirkennari í Glerár-
skóla á Akureyri er við rædd-
um við hann. Tilefnið var að á
fundi Skólanefndar Akureyrar
þann 20. júlí lagði nefndin til að
börn af svæði Glerárskóla yrðu
látin fara í aðra skóla í bænum.
Um er að ræða að nemendum
sem í haust innritast í 9. bekk
verður gefinn kostur á að sækja
Oddeyrarskóla, nemendum sem
innritast í 7. bekk í Gagnfræða-
skóla Akureyrar og nemendur
sem innritast í 2. og 3. bekk Gler-
árskóla fari í Barnaskóla Akur-
eyrar. Þá er gert ráð fyrir því að
ein bekkjardeild sjö ára barna úr
Síðuhverfi verði í Bamaskóla Ak-
ureyrar og fái þau akstur á milli
sem og börnin í 2. og 3. bekk.
„Það verða nálægt 700 nemend-
ur í Glerárskólanum í vetur og á
milli 40 og 50 sem bættust við ef
við tækjum við öllum sem sækja
hér um. Gengið er út frá því að
unglingarnir sem þurfa að fara
annað verði að nota strætisvagn-
ana.
Ég tel engan vafa á því að það
er eitthvað um það að nemendur
sem vilja vera í Glerárskóla verði
að fara annað, við þurfum að leita
eftir velvilja foreldra í því sam-
bandi. Það verður reynt að hafa
aksturinn á yngstu börnunum sem
bestan og öruggastan. Það hefur
einu sinni áður þurft að keyra eina
heila bekkjardeild f Barnaskóla
Akureyrar og það gekk ljómandi
vel,“ sagði Páll.
- Hönnun á nýju skólahúsnæði
í Síðuhverfi er hafin, en þar til
hann kemst í notkun er fyrirsjáan-
legt að nemendur sem eiga heima
í Glerárþorpi þurfa að sækja
skóla inn í bæ í einhverjum mæli
næstu árin.
5
rij
# Erveturinn
að koma?
Mönnum brá í brún í fyrradag
er þeir vöknuðu og var litið til
fjalla. Ekki þurfti að reisa höf-
uðið meir en svo að sæist upp
á Vaðlaheiði frá Akureyri, þá
blasti það við að orðið er álfð-
ið sumars. Vaðlaheiðin var
nefnilega grá í toppinn sem
og nærliggjandi fjölll Þetta
varð svo ósjálfrátt til þess að
menn leiddu hugann að síð-
asta ári, en þá kom ekkert
haust, heldur reið veturinn í
hlaðið strax þegar komið var
að hausti á almanakinu. Síð-
an kom einn harðasti vetur í
langan tíma og nú er það
spurningin hvort sagan ætlar
að endurtaka sig.
„Hreinsunin“
komin
langt
„Skotastúkugestir“ hafa ver-
ið hvimleitt fyrirbæri, en
„skotar“ eru þeir kallaðir sem
ekki tíma að kaupa sig inn á
knattspyrnuleiki á Akureyri.
Hreiðar Jónsson vallarstarfs-
maður tók slg til í sumar og
hóf að „hreinsa til“ í nær-
liggjandi götum með því að
senda „skotunum" kveðjur á
leikjunum. Hefur þeim nú
fækkað verulega og hefur
heyrst að þessi fyrirbæri
verði orðin útdauð áöur en
langt um Ifður. Er það vel.
@HMÍ
# Meirivinna-
lægri laun
„Það er ekkert vit í að vera á
þessum stóru togurum, vínn-
an er miklu meiri og launin
helmingi minni þrátt fyrir
helmingi meiri afla,“ sagði
háseti á einum stóru togar-
anna hjá ÚA í spjalli við S&S.
Nefndi hann dæmí um laun
háseta í fyrra annars vegar á
Sólbaki og hins vegar Kald-
bakf. Hann fullyrti að hásetar
á Sólbaki hefðu haft tvöfaldan
hlut á við háseta á Kaldbaki,
þrátt fyrir helmingi minni afla
Sólbaks. Þá kæmi til viðbótar
að smærri togararnir fengju
veiðarfærin klár um borð en
skipverjar á stærri togurun-
um stæðu í sífelldum við-
gerðum.
# Ljótu
samningarnir
Hásetinn umræddi sagði að
þetta stafaði fyrst og f remst af
því að yfirmenn væru fieiri á
stóru togurunum, t.d. fjórir í
vél, tveir kokkar, loftskeyta-
maður og svo væru skipstjór-
ar og stýrimenn með hærri
hlut en þeir á litlu togurunum.
f áhöfn stóru togaranna væru
upp ( 24 menn en 15 á þeim
litlu. „Þetta eru Ijótu samning-
arnir sem gerðir hafa verið
fyrir okkur, enda er nú svo
komið að enginn almennileg-
ur maður fæst til að vera á
stóru togurunum fyrir
sunnan."