Dagur - 20.08.1982, Page 11
I Ál og tjor a
Melgerðlsmelum
Svokallað Melgerðismót
verður haldið n.k. sunnudag
22. ágúst og hefst kl. 10 f.h.
Að mótinu standa þrjú
hestamannafélög við Eyja-
fjörð, en þau eru Léttir á Ak-
ureyri, Funi í Eyjafirði og
Þráinn í Höfðahverfi og
Grenivík.
Keppt verður bæði í A og B
flokki gæðinga, í 150 metra
skeiði opnum flokki, 250 metra
stökki opnum flokki, og 300
metra brokki.
Eins og fram kemur í dagskrá
er ekki um neina sérstaka ung-
lingakeppni að ræða, en allir
áhugasamir unglingar eru hvatt-
ir til að skrá sig í þær greinar sem
boðið er upp á. Stigahæstu ung-
lingarnir út úr keppninni vinna
til verðlauna.
Einnig er búist við að eitthvað
verði reynt að gera fyrir þá
ungu, jafnvel boðið upp á nagla-
boðreið, grillhátíð eða eitthvað
sem ekki er fyrirfram ákveðið.
Hópreið allra sem vilja vera með
hefst kl. 13 og strax að hópreið-
inni lokinni fer gæðakeppnin
fram og loks verða svo úrslita-
sprettir kappreiða. Hestamót-
taka hefst á Melgerðismelum
föstudaginn kl. 18 og eru hagar
ágætir. Melgerðismótið er síð-
asta hestamannamót Norður-
lands á þessu sumri og því tilval-
ið tækifæri fyrir hestaunnendur
bæði unga sem aldna að njóta
þess að fara á Melgerðismela
annaðhvort ríðandi eða í bíl.
Einnig má minna á að hesta-
mannafélagið Funi heldur sína
árlegu bæjarkeppni laugardag-
inn 21. ágúst kl. 13 og unglinga-
keppni á eftir. Það verður því
mikið um að vera á Melgerðis-
melum um helgina.
Stelnsteypa er ekki allt
— Fáeln orð um OKKAR Á MELLI
Strax í byrjun myndarinnar fær
áhorfandinn sterklega á tilfinn-
inguna að Benjamín Eiríksson
verkfræðingur, sé tæpt kominn
til heilsunnar. Hann er á trimmi
og það er engu líkara en hann sé
að fá hjartaáfall.
Og það kemur í ljós að Benja-
mín hefur hreint ekki „allt á
hreinu“. Hann er nálægt því að
fá „andlegt" hjartaáfall. Sem
verkfræðingur hefur hann verið
önnum kafinn við að skipuleggja
steinsteypu - virkjanir og stór-
virki. Tilveran hefur að öðru
leyti verið sjálfsögð og ekkert
hugsað út í hana. Svo þegar
vinnufélagi Benjamíns deyr -
breytist bara allt í einu í slepju-
legt lík - krakkarnir verkfræð-
ingsins fljúga burt úr hreiðrinu,
sonurinn fer að læra verkfræði
en dótturinn tekur upp á því að
striplast í skólaleikriti. Þá upp-
götvar Benjamín allt í einu að
einhvers staðar hafa krakkarnir
fundið sér tíma til að þroskast og
verða fullorðið fólk.
Benjamín fer að velta lífinu
fyrir sér. Til hvers það sé. Senni-
lega sé það ekki bara til að hlaða
steinsteypuhylkjum utan um
fólk. „Allt sem við skiljum eftir
eru milljón tonn af steinsteypu,"
sagði vinnufélagi Benjamíns.
Merkilegt nokk. Og það er ekki
lífið. Niðurstaða (NB, á tölvu-
skermi): Lífið er til þess að lifa
því. Eins og Benjamín sagði um
Geysi að hann hefði hlaðið á sig
og væri að kafna undir því, hefur
Benjamín sjálfur hlaðið á sig
þessu venjulega dótaríi lífsins og
er að tilfinningalegri köfnun
kominn. Það má kallast fáránleg
hugdetta hjá honum að ætla að
fá Geysi til að gjósa, en „það eru
bara þessar óframkvæmanlegu
hugmyndir sem eru einhvers
virði.“ Og það tókst - Geysir
gaus, losnaði undan þessu fargi
sem var að kæfa hann. Og það
skulum við skoða sem tákn að
Benjamín losnaði undan sínu
fargi.
Hrafni hefur tekist mjög vel
upp. Benjamín finnst eins og
hann hafi „týnt lífinu“ og gerir í
offorsi dauðaleit. Leit sem felst
að mestu í því að finna eigin trú
á lífið; hvort hún er einhver. Og
þessa trú finnur Benjamín í stór-
kostlegum atburði (Geysisgosi),
sem hefði aldrei getað verið
hannaður af verkfræðingi.
Leikurinn í myndinni er yfir-
leitt ágætur, stórgóður hjá Ben-
edikt Árnasyni í hlutverki verk-
fræðingsins. Til hnjóðs er helst
að segja að myndin „keyrir“ of
hratt, mjög stuttar senur (þótt
góðar séu hver um sig) þannig að
mikið er um „hopp“ í sögu-
þræði. Kvikmyndatakan er í
einu orði stórkostleg og klipping
sömuleiðis góð.
Kristján G. Arngrímsson.
Stuðmeim í Sjallanum
„Við ætlum að reyna að koma
við á hverju landshorni áður
en við förum hver í sína átt-
ina,“ sagði Jakob Magnússon
er hann hafði samband við
okkur. Jakob er einn „Stuð-
manna“ en um helgina gera
Stuðmenn innrás í Sjallann á
Akureyri og skemmta þar á
sunnudagskvöldið.
Stuðmenn hafa verið á ferða-
lagi um landið í sumar og unnið
við kvikmyndagerð. Mynd
þeirra, „Allt á hreinu“ verður
væntanlega frumsýnd í lok þessa
árs. í myndinni er mikill fjöldi
nýrra laga Stuðmanna en þeir
munu kynna þessi lög í Sjallan-
um á sunnudagskvöld. Þá munu
þeir að sjálfsögðu ekki gleyma
sínum gömlu aðdáendum og
flytja lög sem þeir gerðu vinsæl
hér á árum áður.
Stuðmenn skipa þeir Jakob
Magnússon, Egill Ólafsson,
Valgeir Guðjónsson, Tómas
Tómasson, Þórður Árnason og
Ásgeir Óskarsson. Fjórir þess-
ara kappa eru einnig liðsmenn
Þursaflokksins. Stuðmenn flytja
eingöngu frumsamin lög og er
ekki að efa að margar góðar
minningar munu fá byr undir
báða á sunnudagskvöld er þeir
taka til hendi í Siallanum.
Reynt að
hefja Akur-
eyrarmótið
tíl vegs og
virðingar
„Við erum að gera tilraun
með að auka áhuga fyrir þessu
móti og höfum í því sambandi
keypt mjög veglegan verð-
launabikar. Með því teljum
við að við gerum það eftir-
sóknarverðara fyrir leikmenn
KA og Þórs að sigra í þessu
móti,“ sagði Marinó Viborg,
formaður Knattspyrnuráðs
Akureyrar, er hann leit við á
ritstjórn Dags og sýndi okkur
nýjan stórglæsilegan verð-
launagrip sem keppt verður
um í Akureyrarmótinu í ár.
Fyrri leik mótsins er lokið og
sigraði Þór þá 3:2 en síðari leik-
urinn verður á þriðjudagskvöld
kl. 18.30 á Akureyrarvelli.
Það hefur viljað brenna við að
forráðamenn liðana tefldu fram
hálfgerðum varaliðum í þessa
leiki' og hefur það orðið til þess
að minnka áhuga fólks á þessari
keppni. Nú vill Knattspyrnuráð
leggja sitt af mörkum til þess að
rífa þessa keppni upp að nýju,
og er þá ástæða til þess að skora
á forráðamenn KÁ og Þórs að
láta ekki sitt eftir liggja. Segja
má að leikurinn í kvöld sé hálf-
gerð prófraun á það hvort tekst
að hefja þetta mót til vegs og
virðingar, en það gerist ekki ef
félögin tefla ekki fram sterkustu
leikmönnum sínum.
Marinó Viborg með hinn nýja verðlaunagrip.
Skátamót í
Leyiungshólum
Skátafélögin á Akureyri ætla að ur á laugardagskvöld.
halda skátamót í Leyningshól- Tjaldbúðir á mótinu verða
um helgina 20.-22. ágúst. Áætl- tvískiptar, skátabúðir annars
að er að um 150 skátar taki þátt í vegar og fjölskyldubúðir hins
mótinu. Ýmislegt verður á dag- vegar. Foreldrar skáta og eldri
skránni s.s. gönguferðir, nátt- skátar eru hvattir til að koma og
úruskoðun, ratleikir og varðeld- dvelja í fjölskyldubúðum.
ar. Aðalvarðeldur mótsins verð-