Dagur - 24.08.1982, Qupperneq 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMHDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 24. ágúst 1982
91. tölublað
Lávið
að
stjórnin
spryngi
„Það var alveg að því komið að
stjórnin spryngi á Iaugardag,
því er ekki að leyna,“ sagði Ing-
var Gíslason, menntamálaráð-
herra, í viðtali við Dag, en eins
og kunnugt er náðist samkomu-
lag í ríkisstjórninni seint á laug-
ardagskvöld um bráðabirgða-
lög til bjargar efnahagsvandan-
um og jafnframt var samþykkt
yfirlýsing vegna aðgerða I efna-
hagsmálum.
„Ég tel að þessar ráðstafanir
séu viðunandi eftir atvikum en
hins vegar hefur dregist allt of
lengi að komast að niðurstöðu.
Með þessum ráðstöfunum verður
dregið úr verðbólguþróuninni,
sem var orðin háskaleg og hefði
riðið atvinnulífinu að fullu ef ekki
hefði verið að gert. Ég vænti þess
að samstarfið eigi eftir að ganga
all vel í framhaldi af þessu þótt
mjótt hafi verið á munum að
stjórnin spryngi,“ sagði Ingvar.
Viðskiptin ganga etlaust munbetur undir bláum himni.
Ljósmynd: KGA
Kanínurækt
í Bárðardal
„Ég er nýbúinn að fá hingað 5
angórakanínur og þetta eru 2
karldýr og 3 kvendýr. Ég fékk
þessi dýr frá Þýskalandi en þær
eru ættaðar frá Tíbet,“ sagði
Jón Aðalsteinn Hermannsson I
Hlíðskógum í Bárðardal er
Dagur ræddi við hann í fyrra-
dag.
Ullin af þessum dýrum er í
mjög háu verði erlendis. Það er
enn meiri eftirspurn en framboð
og verðið hefur því ekkert
lækkað. Ef vel tekst til á að vera
hægt að klippa ullina af þeim fjór-
um sinnum á ári og hvert dýr ætti
þá að geta gefið um 4,5 kg árlega.
Hvert kg selst í dag á um 500
krónur þannig að hvert dýr gæti
hugsanlega gefið af sér ull fyrir
2.500 kr. á ári.
„Ef vel tekst til geta komið allt
að 10 ungar frá hverri kanínu í
hvert skipti og þær geta átt unga
þrisvar á ári. Þær eru því ekki
lengi að fjölga sér,“ sagði Jón
Aðalsteinn. „Þetta er hinsvegar
hálfgerð tilraunastarfsemi ennþá,
við kunnum ekki allt of vel á þetta
ennþá og verðum að styðjast við
bækur á meðan við erum að prófa
okkur áfram og öðlast reynslu.
Það er ekki hægt að svara því
fyrr en eftir um það bil ár hvað ég
kem til með að verða með mörg
dýr. Það verður að koma í ljós
hvernig þetta gengur þegar af stað
er komið. Það sem ræður ekki
hvað síst er hvort það er hægt að
láta þær lifa svo til eingöngu á
heyi. Okkur líst vel á þetta allt
saman, þær éta hey með góðri lyst
og markmiðið er að fá dýr sem
geta lifað af heyinu eingöngu eða
að langmestu leyti.
Ég geri ráð fyrir því að þetta
verði aldrei aðalbúgrein hjá mér,
heldur er þetta fremur hugsað
sem stuðningur og hliðarbúgrein,
en annars er ómögulegt að segja
til um það. Okkur líst ákaflega vel
á dýrin, þau eru skemmtileg og nú
er bara að sjá hvernig til tekst,“
sagði Jón Aðalsteinn.
Hagkvæmniathugun vegna álvers:
Dysnes
og Voga-
stapi efst
á blaði
I framhaldi af frumathugun
staöarvalsnefndar á því hvar
hugsanlegt er að staðsetja álver
hefur veríð ákveðið að gera
nákvæma hagkvæmniathugun
á hugsanlegum álverum á Vog-
astapa og á Dysnesi í Arnarnes-
hreppi við Eyjafjörð.
Bragi Guðbrandsson, ritari
staðarvalsnefndar sagði í samtali
við Dag, að þó þessi ákvörðun
hefði verið tekin væri ekki búið að
loka neinum dyrum varðandi ál-
ver á hinum stöðunum sem til
greina koma. Frekar mætti segja
að Vogastapi og Dysnes væru eins
konar fulltrúar svæðanna sem um
væri að ræða.
Bragi sagði að það væri ljóst að
fjárhagslega óhagkvæmara væri
að reisa álver við Eyjafjörð held-
ur en á Suðvesturlandi. Önnur
sjónarmið kæmu hins vegar til at-
hugunar þ.á.m. byggða-og
atvinnusj ónarmið.
Hann sagði að frá upphafi hafi
verið gert ráð fyrir því að ef til
þess kæmi að reisa álver við Eyja-
fjörð yrði það með fullkomnasta
hreinsibúnaði sem völ væri á. Því
mætti segja að um mengunarfrían
iðnað yrði að ræða og allt annars
konar iðjuver en álverið í
Straumsvík.
Gert ráð fyrir að hagkvæmni-
rannsóknum vegna álvera á
Vogastapa og Dysnesi Ijúki um
áramót.
Hagkvæmari
lán til
skipasmíða
- En engin verkefni framundan
Sú breyting hefur nú verið gerð
á lánakerfi til skipasmíða
innanlands að skipasmíöaiðn-
aðurinn mun njóta sömu lána-
fyrirgreiðslu og ullar- og
skinnaiðnaðurinn fengu á sl. ári
vegna rekstarerfiðleika.
A blaðamannafundi með
forráðamönnum Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri sl. fimmtudag sagði
Gunnar Ragnars forstjóri stöðv-
arinnar að þessi breyting ylli því
að hægt væri að smíða skip á um
20% lægra verði en áður.
Það kom hinsvegar einnig fram
á fundinum að Fiskveiðasjóður
hefur synjað um lánafyrirgreiðslu
til nýsmíða á fiskiskipum innan-
lands, þannig að eins og málið lít-
ur út í dag kemur hin nýja lánafyr-
irgreiðsla til skipasmíðastöðva
innanlands að engu gagni.
Sjá nánar á bls. 6 og 7
Bílasalar á Akureyri:
„Peningaleysi er áberandi“
„Jú, það er mun meira lánað
núna í bflaviðskiptum en verið
hefur, útborgun er þá í flestum
tilfellum lægrí og mánaðar-
greiðslurnar heldur hærri,“
sagði Hjörleifur Gíslason sem
rekur bflasöluna Stórholt á Ak-
ureyri er við spjölluðum við
hann um ástandið í bflasölu-
málunum í dag.
„Það er mikið framboð á not-
uðum bílum en þótt mikið sé
skoðað og greinilegt að fólk vill
vera að hreyfa sig og skipta um
bíla, þá er erfiðara en oft áður að
koma saman sölum vegna þess að
peningaleysi er áberandi," sagði
Hjörleifur.
- Hvernig líst þér á næstu mán-
uði og næstu ár í þessum efnum?
„Mér líst ekki vel á þá mánuði
sem eftir eru af þessu ári en ég er
hræddur um að á næsta ári verði
mikil sala. Það er búið að flytja
svo mikið af bílum inn í landið og
sá innflutningur hlýtur að
minnka. Þetta er árviss þróun og
við getum tekið árið 1974 sem
dæmi. Þá var flutt inn óhemju-
mikið magn af bílum og síðan lítið
1975 og 1976. Þessi mikli innflutn-
ingur hlýtur að stöðvast,“ sagði
Hjörleifur.
„Við höfum greinilega orðið
varir við það að fólk hefur minni
pening á milli handanna en áður.
Sala á notuðum bílum var lang-
mest í mars, apríl og maí, greini-
legt að fólk vildi kaupa áður en
það fengi yfir sig gengisfellingu.
Sumarmánuðirnir júní og júlí,
sem oft hafa verið bestu mánuðir
ársins í bílasölu, voru ansi daufir
og í dag er ákaflega lítil sala bæði í
nýjum og notuðum bílum,“ sagði
Eyjólfur Ágústsson hjá Höldi sf.
er við ræddum við hann.