Dagur - 24.08.1982, Page 9

Dagur - 24.08.1982, Page 9
 KA á enn möguleika Bræðurnir . rifu skorkortin Akureyrarmeistarinn í golfi, Héðinn Gunnarsson og bróðir hans, Jón Pór Gunnarsson sem er fyrrverandi Akureyrarmeistari, vöktu heldur betur athygli er Ingi- mundarmótinu var að ljúka á sunnudaginn. Héðinn sem varð í þriðja sæti í mótinu og Jón Þór rifu báðir skorkort sín og hurfu af svæðinu áður en til verðlaunaafhendingar kom. Að vonum vakti þetta mikið umtal og undrun manna, og Siða- nefnd Golfklúbbsins tók málið fyrir á fundi í gærkvöldi. Niðurstöður þess fundar hafa ekki verið gerðar opinberar, en stjórn klúbbsins mun taka málið fyrir á fundi á fimmtudag. Sýnir það vel hvað málið er litið alvar- legum augum af stjórnendum klúbbsins. Verðlaunahafar í Ingimundarmótinu. KA lék á laugardaginn í Vest- mannaeyjum í æsispennandi keppni fyrstu deildar. „Þú mátt skrifa það að KA hafi átt allan leikinn,“ sagði viðmælandi íþróttasíðunnar, þegar hann leitaði frétta af leiknum hjá ein- um áhorfandanum. Þrátt fyrir það að KA hefði verið meira með boltann, voru það Vest- mannaeyingar sem skoruðu fyrstu mörkin. Sigurlás skoraði snemma í fyrri hálfleik. KA fékk möguleika á að jafna metin þeg- ar þeir fengu dæmda vítaspyrnu skömmu síðar, en Eyjólfur lét gömlu kempuna Pál Pálmason verja frá sér skotið. í byrjun síðari hálfleiks bættu Vest- mannaeyingar öðru marki við og staðan ekki glæsileg fyrir KA. Eyjólfur bætti síðan fyrir víta- spyrnumistökin þegar hann skoraði beint úr hornspyrnu skömmu síðar, og minnkaði muninn í eitt gegn tveimur. Friðfinnur Árnason jafnaði síð- an fyrir KA með hörkuskoti af löngu færi. Eins og áður segir sótti KA mun meira, en tvívegis björguðu Vestmanneyingar á línu, og einu sinni skutu þeir í þverslá. í marki KA í þessum leik stóð leikmaður úr þriðja flokki Hermann Haraldsson en hafði lítið að gera. Hann er jafn gamall Sigurði Jónssyni sem leikur með Akurnesingum. í byrjun leiksins skoruðu KA menn mark sem dæmt var af vegna rangstöðu, en þeir voru óhressir með þann dóm. Ennþá er möguleiki á að halda sætinu í deildinni, en ís- firðingar töpuðu í dag og hafa nú jafn mörg stig og KA eftir jafn margaleiki. Næsti leikur KA verður gegn Víkingi hér á Akureyri. Gunnar bestur að Jaðri Alls mættu 61 kylfingur til keppni í Ingimundarmótinu í golfi sem haldið var hjá Golf- klúbbi Akureyrar um helgina, en þetta er eitt af stærstu mót- um klúbbsins og er haldið til minningar um Ingimund Arnason sem var einn af fé- lögum klúbbsins en hann lést fyrir nokkrum árum. Aðstæður á Jaðarsvellinum um helgina voru mjög góðar. Veður var gott og vellinum hef- ur farið mjög fram að undan- förnu. Þó gekk á ýmsu hjá mönnum í baráttunni, og átti það sérstaklega við um síðari keppnisdaginn. Eftir fyrri dag keppninnar var Jón Þór Gunnarsson GA í fyrsta sæti, hafði leikið á 73 höggum. Héðinn Gunnarsson var á 74 höggum og þeir Gunnar Sólnes og Gunnar Þórðarson komu þar skammt á eftir. Þegar fyrri hring var lokið síðari daginn var stað- an hinsvegar orðin þannig að Héðinn Gunnarsson hafð'i tvö högg í forskot, en hinir þrír voru skammt á eftir. Á lokasprettin- um reyndist Gunnar Þórðarson hinsvegar sterkastur og tryggði sér sigurinn, Gunnar Sólnes varð annar, Héðinn þriðji en Jóni Þór voru mjög mislagðar hendur að þessu sinni og náði ekki verðlaunasæti. Lokatölurnar urðu þær að Gunnar Þórðarson var á 159 höggum, Gunnar Sólnes á 160 og Héðinn Gunnarsson á 162. Eins og fram kemur í frétt hér á síðunni tók Héðinn hinsvegar ekki við verðlaununum sínum og féllu þau í hlut Þórhalls Páls- sonar sem lék á 163 höggum. f forgjafarkeppninni sigraði Ólafur Gylfason örugglega, lék á 139 höggum. Þar varð Sverrir Þorvaldsson í öðru sæti á 148 höggum og Jón G. Aðalsteins- son þriðji á sama höggafjölda. Sverrir hlaut hinsvegar annað sætið á betra skori á þremur síð- ustu holunum. Kaupfélag Eyfirðinga gaf geysilega góð verðlaun til keppninnar, en Ingimundur heitinn Árnason var starfsmað- ur KEA. Voru það vöruúttektir í Vöruhúsi KEA, samtals að upphæð 8 þúsund krónur. Fyrir- tækið Vangur í Reykjavík gaf öllum keppendum smágjöf til minja um þátttökuna og einnig glæsileg aukaverðlaun til sig- urvegarans, ferð á Johnny Walker golfmótið í Reykjavík að ári. Þá gaf Tak hf. á Akureyri aukaverðlaun þeim sem voru næstir holu á 18. braut báða keppnisdagana og féllu þau í hlut Gunnars Þórðarsonar og Arnórs Þorgeirssonar. Illútskýranlegur darraðardans í vítateig Einherja. Þórsarar höfðu þó ekkert upp úr krafsinu - eins og sjá ntá hefur markmaður Einherja öruggar hendur á knettinum. Ljósmynd: KGA. Fóru seint ígang en sigmðu samt Þórsarar tryggðu sér tvö stig til viðbótar á laugardaginn þegar þeir sigruðu Einherja frá Vopnafirði. Þeir nálgast nú óðum fyrstu deildina, en eiga ennþá eftir að leika við Fylki, Þrótt R. og Skallagrím, en sá leikur er hér á heimavelli Þórs. Þórsarar fóru vægast sagt seint í gang í þessum leik, en loksins þegar mörkin komu urðu þau þrjú, en áður hafði Einherji skorað tvö, og það urðu lyktir leiksins. Þrátt fyrir það að leika á móti golunni náðu Þórsarar strax nokkurri pressu á mark Ein- herja. Á 4.mín. átti Guðjón hörkuskot sem var varið, og aftur mín. síðar en þá var varið í horn. Þórsarar fengu horn- spyrnu á 12 mín. en þá átti Sigur- björn Viðarsson hörkuskot en það var varið af ágætum mark- manni Einherja. Á 16 mín. kom fyrsta afger- andi sóknin hjá Einherja, og Eiríkur mátti hafa sig allan við að verja. Einherjar áttu síðan skot í þverslá á 22. mín. en síðan kom fyrsta markið. Þá lék Helgi Ásgeirsson á bakvörð Þórs og komst inn í vítateiginn hægra megin og ætlaði að senda boltan fyrir markið, og vel yfir Eirík í markinu. Sendingin var það nálægt markinu að norðán golan feykti boltanum efst í hornið fjær, og varnarmenn og markmaður Þórs stóðu furðulostnir. Á 25 mín. kom annað markið. Þá urðu öftustu varnarmönnum Þórs á mistök er þeir ætluðu að senda boltan á milli sín og Gísli Davíðsson komst inn í sending- una og innfyrir vörnina einn og óvaldaður. Hann tók lífinu með ró, lék laglega á Eirík mark- mann og sendi síðan boltan í autt markið. Þetta voru hroða- leg varnarmistök hjá Þór, en mjög vel að markinu staðið hjá Gísla. í hálfleik var því staðan tvö mörk gegn engu Einherja í vil, og hörðustu Þórsarar að verða vonlausir. Strax á annarri mín. síðari hálfleiks áttu Þórsarar dauða- færi, en þá skallaði Óskar beint í fangið á markmanni Einherja. Á 13 mín. komst Halldór Áskellsson í gegn um varnarmúr Einherja og brunaði að mark- inu. Rétt áður en hann komst inn í vítarteiginn náði varnar- maður hjá Einherja að krækja í fætur Halldórs og fella hann. Þetta var nokkuð gróft brot og dómarinn flautar og hefur efl- aust ætlað að gefa varnarmann- inum gula spjaldið en í millitíð- inni fór Hafþór að kljást við einn Einherjann, og það dró athygli dómarans frá fyrra brotinu, þannig að Hafþór fékk gult spjald en varnarmaðurinn hjá Einherja slapp með skrekkinn. Á18 mín. kom fyrsta markið hjá Þór. Þá tóku Þórsarar sína ell- eftu hornspyrnu og gefinn var sakleysislegur bolti inn í teiginn, en Hafþór náði að krækja í bolt- an og vippaði honum laglega aftur fyrir sig, yfir markmanninn og í markið. Jöfnunarmarkið kom á 28. mín. Þá kom enn ein hornspyrn- an vel fyrir markið og Guðjón skallar í þverslá og inn. Nú var orðið jafnt og allt gat gerst í þessum leik, því þrátt fyrir nær stöðuga sókn Þórsara átti Ein- herji eina og eina skyndisókn sem oft á tíðum voru hættulegar. Það var síðan Nói sem tryggði Þór bæði stigin í þessum leik með hörkuskoti á 34 mín. Hann skaut af löngu færi í gegn um vörnina og þandi út net- möskvana hjá Einherja án þess að markmaður þeirra ætti mögu- leika á að verja. Eftir þetta var sigur Þórs aldrei í hættu, en þeir voru nær því að skora fleiri mörk en Einherji að jafna. Til marks um sóknarþunga Þórs má geta þess að þeir fengu 15 hornspyrn- ur í leiknum en Einherji aðeins þrjár. Þórsliðið barðist vel í síðari hálfleik og uppskar sigur, en bestir hjá Einherja voru markmaðurinn og Helgi Ágústs- son. c•->u; iv«í *\v 'Fji '* ; Ú: águst 1982-DÁGUR - 9

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.