Dagur - 17.09.1982, Blaðsíða 5
IÞROTTIR
Gylfi Kristjánsson
Snjall leikmaður
Þorsara
Mark Christensen fyrrum leik-
maður Þórs „treður“ boltanum í
körfuna.
Eins og allir vita sem fylgjast
með. knattspyrnu tókst Þór að
endurheimta sæti sitt í 1. deild
að ári, eftir ársveru í 2. deild-
inni. Voru Þórsarar vel að því
komnir þrátt fyrir að liðið væri
lengi í gang framan af mótinu.
En liðinu fór mikið fram er leið á
mótið, og var orðið besta liðið í
2. deild undir lokin.
Um leið og Þórsurum eru
færðar hamingjuóskir með ár-
angurinn er ástæða til að hvetja
KA-menn sem féllu í 2. deild
eftir mikla baráttu að láta ekki
hugfallast. Litlu mátti muna að
liðið héldi sæti sínu, en það sem
endanlega gerði út um vonir
liðsins var vægast sagt umdeild-
ur vítaspyrnudómur dómarans í
leiknum gegn Breiðablik um
síðustu helgi. Hefði dómarinn
farið eftir línuverði sínum og
dæmt rangstöðu nokkrum «ek-
úndum áður en vítaspyrnan á
KA var dæmd og KA náð marki
í lokin hefði Breiðablik fallið en
ekki KA.
En það er þetta „EF“. Það
þýðir víst lítið að nota það
sífellt, heldur verða KA-menn
nú að sætta sig við það að hafa
hlutverkaskipti við Þórsara. Ég
þykist jafnviss um það að á sama
tíma og Þórsarar eiga að geta
spjarað sig í 1. deildinni að ári
eiga KA-menn eftir að „rusla
til“ í 2. deildinni og koma þaðan
tvíefldir. Takmarkið hlýtur að
vera aö eiga tvö lið í 1. deild
sumarið 1984.
Robert McField til Þórs
Körfuknattleiksmenn Þórs unnu
‘Sér á síðasta vori rétt til að leika í
1. deild í vetur, og hafa þegar
hafið æfingar. Nú um helgina
berst þeim góður liðsauki, en
það er bandaríski blökkumaður-
inn Robert McField sem kemur
þá norður og tekur til við æfing-
ar með liðinu.
McField er fjórði bandariski
leikmaðurinn sem hér dvelur í
körfuknattleiknum, hinir voru
Mark Christensen, Gary
Zchwarts og Roger Berends sem
lék hér tvo mánuði á síðasta
keppnistíabili. Hefur þessum
leikmönnum öllum verið vel
tekið í bænum, enda koma þeir
hingað til þess að vinna upp-
byggingarstarf. En nú ber svo
við að menn láta í ljós áhyggju-
raddir um að þeim sem væntan-
legur er kunni að vera tekið eitt-
hvað verr.
„Hann er svartur og það pass-
ar ekki,“ segja menn kinnroða-
laust. Um leið neita þeir að þeir
séu kynþáttahatarar eða eitt-
hvað í þeim dúr. „Þetta er bara
hugsunarhátturinn,“ segja þeir.
Eg trúi því ekki að svo verði,
og Akureyringar eru minni
menn en ég hefði haldið ef Ro-
bert McField verður verr tekið
en fyrirrennurum hans vegna
þess að hann ber ekki sama hör-
undslit og þeir. Staðreyndin er
nefnilega einföld, það eru Þórs-
arar sem leita eftir kröftum
þessa manns sem er bæði mjög
snjall leikmaður og hefur geysi-
lega góð meðmæli íslendinga
sem til hans þekkja, bæði sem
persónuleiki, þjálfari og leik-
maður. Hvað þarf meira?
Vonandi eru þessar vanga-
veltur óþarfar, en þær hafa
óneitanlega sett í menn ugg samt
sem áður. Það er jú vitað að það
hefur komið fyrir í Reykjavík að
hörundsdökkir körfuknattleiks-
menn sem þar hafa dvalið hafa
sætt aðkasti, t.d. á skemmtistöð-
um, vegna hörundslitar síns en
þeir sem koma þannig fram eru
væntanlega eitthvað brenglaðir
og er þeim vorkunn.
Robert McField hefur leikið
með háskólaliði Indiana State,
og í haust var hann sterklega
orðaður við Harlem Globetrott-
ers þótt ekkert yrði af því að
hann undirritaði þar samning
eins og honum stóð til boða, en
það var af persónulegum ástæð-
um. Hins vegar varð það til þess
að hann gat orðið við óskum
Þórsara um að koma hingað og
hafa Þórsarar fyrir satt að hér
fari snjall leikmaður og þjálfari.
Baráttan hjá Þór í 1. deildinni
í vetur kann að verða erfið, en
þar leika einnig lið UMFG,
Hauka, ÍS, og UMFA. Vitað
er að Haukar tefla fram geysi-
sterku liði sem hefur æft grimmt
undir handleiðslu Einars Bolla-
sonar, og lið ÍS með bandaríska
risann Pat Bock í fararbroddi
verður ekki auðsigrað. En Þórs-
liðið með menn eins og Eirík Sig-
urðsson, Jón Héðinsson og Ro-
bert McField, svo einungis þeir
eldri og reyndari séu nefndir,
getur svo sannarlega bitið frá sér
og ætti að hafa jafna möguleika
á við hin liðin að vinna sæti í
Úrvaldsdeild að ári.
DAGDVELJA
Bragi V. Bergmann
Krossgáta Skákþraut
Hí.WST/1
3Er/i/5
'A(t£T/jk
KoRM
DuRtuA
anEnui-
Leaun
Afá
ÞtR't
rrrru.
fýRsta
MAMS
rríníjítu
koA/A
DRoPA
(BttiJAir
£Kki
ÖLL
STRMbt-
iýiLA
StCYW-
RA UtJ-
HrtF+e
FÉiAG-
ME£>
TÖLU
S OSl
HETju■
D'AÞ
H'Ad
xmÞi
VEIKI
QrÚA
ÞóFJC
selja
sÍFnmj.
Fa/gz
FoAííTfl.
stjír a
NOTHJLF
Só&Al
So
MEIAJ-
SEMD
klFR-
TLDI
O-fr.f.)
Staðsettu 5 skákdrottningar á
borðinu þannig að engin ógni
annarri. (Það eru tveir mögu-
leikar á réttri lausn).
Lausn bls. 11.
Völundarhús
Brand-
arar
Presturinn var aö semja ræðu og
litla dóttir hans var aö horfa á hann.
„Pabbi,“ sagði hún, „segir Guð þér
hvað þú átt að skrifa?"
„Já, auðvitað, barnið mitt,“ ansaði
prestur. „Hvers vegna spyrðu?“
„Af hverju strikarðu þá sumt út af
því aftur?" spurði dóttirin.
☆ ☆☆
- Fyrstfærmaðursérsígarettu, og
úr því byrjar maður að drekka öl og
vín, og áður en maður áttar sig, er
maður farinn að eltast við kvenfólk -
og svo fáum við það hræðilegasta
af öllu: — Syndaflóðið.
- Herra prestur.
- Já, Lárus.
- Hvaða sígarettutegund er
þetta...?“
☆ ☆☆
- Hvers vegna sé ég þig aldrei í
kirkjunni Matthías, sagði prestur-
inn.
- Það eru of margir hræsnarar þar,
prestur minn.
- Hafðu engar áhyggjur af því, það
er alltaf pláss fyrir einn enn ...
☆ ☆ ☆
Hannes var nýorðinn faðir að þrí-
burum. Presturinn hitti hann úti á
götu og óskaði honum til hamingju:
„Kæri Hannes minn,“ sagði hann
hjartanlega, „ég heyrði að storkur-
inn hafi brosaðtil þín.“
,Höh, brosað!" þusaði Hannes,
„hann skellihló að mér.“
17- septpmber 198? - DAGUR - 5