Dagur - 17.09.1982, Side 12
Akureyri, föstudagur 177 september 1982
Okkar vinsæli Salatbar fæst alla daga
bæði í hádeginu og á kvöldin á Bautanum.
í Smiðjunni eingöngu á kvöldin og um
helgar.
Strætisvagn á Akureyri
20. júlí. Ákveðið hefur verið að gera tilraun með rekstur
strætisvagns hér á Akureyri, í september. Ljóst er þó að
einn vagn mun ekki fuyllnægja þeirri þörf sem bærinn
hefur. En er þó alltaf byrjunin. Fyrst um sinn verður ekið á
þeim tímum þegar bæjarbúar fara úr og í vinnu, ekinn 6 og
hálfs kílómetra löng leið um bæinn. Aðstæður allar benda
til þess að hægt verði að láta strætisvagnaakstur standa
undir sér hér í bæ.
Ur
sömlum
* j ___ m
Degt
áríð 1955
Akureyringar fá Fálkaorðu
5. janúar. Meðal þeirra sem Forseti íslands sæmdi heið-
ursmerkjum fálkaorðunnar á nýjársdag eru Davíð Stef-
ánsson skáld frá Fagraskógi, og Ólafur Thorarensen
bankastjóri hér í bæ.
Engin kol
19. janúar. Birgðir eru nú á þrötum í kolaverslunum
bæjarins og eru kol skömmtuð. 60 tonn voru fengin frá
Húsavík eftir síðustu helgi og er það dálítil bót þótt
skammt nái. Ástæða kolaleysisins er sú að Pólverjar
kipptu að sér hendinni um afhendingu kola og var þá
keypt frá Rússlandi en þær birgðir eru nú á þrotum.
Fiski misþyrmt
9. febrúar. Togarinn Harðbakur fékk um daginn stóran
þorsk sem var með teygjuband um hausinn og framan-
verðan bolinn, hafði teygjubandið skorist í gegn um roðið
og inn í fiskinn á parti. Hefur nú á seinni árum nokkuð
verið um það að slíkir fiskar væru dregnir úr sjó. Helst er til
getið að unglingar dragi þessa fiska úr sjó við bryggjur,
setji á þá teygjubandið og sleppi aftur. Þegar fiskarnir
vaxa skerst teygjan inn í hold og drepur fiskinn að lokum.
Carlson veiðir mink í Mývatnsasveit
14. apríl. Carlson, hinn kunni minkabani að sunnan kom
til Mývatnssveitar fyrir skömmu að ósk bænda þar, en þeir
höfðu orðið varir við ummerki eftir vágestinn. Carlson
hafði með sér 4 vana hunda, og tókst að veiða einn mink
og átti í höggi við annan og skaut á hann en náði ekki. Það
er algeng aðferð Carlssons við veiðarnar að sprengja
minkaholurnar og koma dýrin þá oftast þjótandi út - beint
í ginið á hundunum.
Fréttir úr Svarfaðardal
7. maí. Hér er jörð að mestu leyti alauð í byggð, en snjór í
fjöllum. Kalt er í veðri og lítill túngróður kominn. Bleyta í
túnum seinkar í voryrkjunni. Lítill afli er á þeim miðum
sem Dalvíkingar sækja á, enda lélegar gæftir.
Flugbraut í Aðaldal
20. júlí. Nú mun ákveðið að efna til flugvallargerðar í
Aðaldalshrauni, vestan þjóðvegarins í landi Laxamýrar
og Núpa. Er gert ráð fyrir að koma með tíð og tíma upp
flugvelli sem hæfur er fyrir miililandaflug, og um 3000
metra langri braut.
Knattspyrnulið Akurnesinga
í heimsókn
17. ágúst. Hinir kunnu knattspymumenn frá Akranesi
heimsóttu Akureyri nú um helgina og léku tvo leiki við
úrvalslið Akureyringa. Lauk þeim fyrri með sigri Akurnes-
inga 1:0, og þann síðari sigruðu þeir einnig 3:1.
Ær bar í siáturhúsinu
12. október. Það var til tíðinda á mánudagsmorguninn
að ær bar í sláturhúsi KEA, rétt áður en átti að slátra
henni. Átti ærin hrútlamb og voru mæðginin flutt heim á
Stórhamar í Eyjafirði.
Nú er hún komin aftur nýja kremlínan
frá ESTEE Einnig vinsælu herravörurnar.
LAUDER. a
Keypti fyrsta
bflinn þegar
ég var 15 ára4í
pJ*Si
I I
iH
sg:
■tWii
w
„Það eru þrjú ár síðan ég byrj-
aði að starfa í Bílaklúbbi Akur-
eyrar, en áhugann á bílum hef
ég haft síðan ég var smápolii,
alveg síðan ég man eftir mér.
Eg keypti mér minn fyrsta bfl
þegar ég var 15 ára, tveimur
árum áður en ég mátti keyra
hann og því varð ég að Iáta mér
nægja að pússa hann og strjúka
í tvö ár.“
Sá er þetta mælit heitir Ingvi
Ingvason, 19 ára piltur sem er
einn félaga í Bílaklúbbi Akureyr-
ar. Óhætt er að segja að sá félags-
skapur sé í mjög örum vexti, og í
sumar hefur félagið séð um
fjöldamargar keppnir, bæði
sandspyrnu, rally-cross og tor-
færukeppni. Um helgina fer fram
torfærukeppni í malarnámi Akur-
eyrarbæjar á Glerárdal og mæta
þar „allir sprækustu jepparnir til
leiks“ eins og þeir Bílaklúbbs-
menn segja. En við spyrjum Ingva
hvaða kostnaður sé á bak við einn
slíkan bíl. Hverju þarf ég t.d. að
kosta til ef ég kaupi „venjulegan“
jeppa og ætla að gera hann kláran
í svona keppni?
„Ef þú ætlar einungis að taka
þátt í keppninni til þess að vera
með getur þú sloppið með 5-10
þúsund krónur, En ef þú ætiar að
útbúa bílinn þannig að hann geti
keppt til sigurs margfaldast sá
kostnaður. Eg get nefnt sem dæmi
að eitt skófludekk kostar um 10
þúsund og gangurinn undir bílinn
því um 40 þúsund. Þar við bætist
ýmislegt og ég myndi segja að bíll
sem væri með topp útbúnað í
svona keppni hafi kostað eiganda
sinn 100-150 þúsund krónur fyrir
utan jeppaverðið sjálft."
- Þá vitum við það að jeppa-
dellan er ekki ódýrasta sport sem
hægt er að ánetjast. Það er nefni-
lega ekki nóg að útbúa bílinn í
eina keppni og láta þar við sitja. í
torfærukeppni er keppt við erfið-
ar aðstæður, í brekkum, móum,
drullu og vatni, og hinir ýmsu
hlutar bílsins sem mikið reynir á
gefa sig að sjálfsögðu.
„ Það er mjög dýrt að kaupa
varahluti í þessa bíla,“ segir
Ingvi. „Það er líka þannig að
þessa varahluti þarf að panta er-
lendis frá, oftast frá Bandaríkjun-
um og þeir eru dýrir auk þess sem
afgreiðslufrestur er afar langur.“
- Hvað eru margir félagar í
Bílaklúbbi Akureyrar?
„Ég held að skráðir félagar séu
um 150 talsins en virkir félagar
eru um 60. í félaginu eru nokkrar
stelpur og þær eru mjög virkar og
gefa okkur strákunum ekkert
eftir,. Þær hafa t.d. keppt í sand-
spyrnu og staðið sig mjög vel.“
- Hvar hafið þið ykkar að-
stöðu?
„Bærinn hefur gefið okkur vel-
yrði fyrir aðstöðu á Glerárdal, og
þar er ætlun okkar að útbúa öll
þau keppnis og æfingasvæði sem
við þurfum á að halda í framtíð-
inni og það verður gaman þegar
öll aðstaða okkar verður komin
þangað á einn stað,“ sagði Ingvi.
Ingvi Ingvason.