Dagur - 21.09.1982, Page 6

Dagur - 21.09.1982, Page 6
I í. t I ií !< Sigurður Baldursson stefnir til himins. Hann fór heldur harkalega í þessa torfæru, missti bílinn upp í loftið (ef svo má segja), og valt. Slapp með skrekkinn. Ljósmyndir: KGA. A skófludekkjum yfir allt Þá var það „Hellumaðurinn", Bergþór úr Fljótshlíðinni. Hægt, rólega, hávaðalaust, læddist hann upp barðið rétt eins og hann hefði þann starfa dagsdaglega. Létti villísinn með litlu vélinni brást ekki. Svona voru þeir misjafnir, fóru misjafnlega að við að ná sama tak- marki. Akureyringarnir áttu það sammerkt að vera á bílum með ógnar kraftmiklum vélum, þeir gösluðust í torfærurnar, grófu nærstadda áhorfendur næstum í sandi og skít, og bílarnir öskruðu svo að nágrennið nötraði. Þeir sem komu að sunnan voru á létt- um bílum, litlum, og voru ekki eins hávaðasamir, gusuðu ekki eins miklum leir. Tvær aðferðir, það má deila um hvor sé vænlegri til árangurs. Þó sakar ekki að líta á frammistöðu „Hellumannsins" til dæmis. Léttur bíll, lítil vél, hann fór fremur rólega (að minnsta kosti miðað við norðan- mennina) og hávaðalítið, eins og fyrr er getið um baráttu hans við barðið. En hann náði langbestum árangri og er öruggur íslands- meistari. Hann er líka einstaklega laginn og lipur ökumaður, nokk- uð sem hefur mikið að segja í keppni sem þessari. Blaðamaður er ekki mikill bíla- þekkjari og veit ekki muninn á karbúrator og knastás (ekki að vita nema það sé nákvæmlega það sama). Því er erfitt fyrir mig að gerast dómari í bílamálum, en ég beiti því sem ég kann og skálda í skörðin. Og það er einnig svo í málum sem þessu, að myndir segja meira en nokkur orð, og því skulum við skoða þær. Áður en hann geysist af stað rekur hann upp öskur, sem er ekki ólíkt Ijónsöskri. Svo gusar hann upp möl og grjóti og sandi, rýkur með grimmdarurri upp brekkuna án þess að hika. Áhorfendur klöppuðu. Sá næsti horfir íhugandi upp brekkuna, athugar aðstæður og setur sig í startholurnar. Rýkur af stað. Hann stoppar í miðri brekk- unni, misreiknaði eitthvað, renn- ur aftur niður. Upp fer hann í annarri tilraun, með tilheyrandi illindum í vélinni. Og upp brekkuna tíndust þeir allir, hver á eftir öðrum, hver með sinn stíl, sumir með hávaða og sandmokstri, aðrir rólega - næst- um því læddust. Fyrstu torfæruna fóru þeir ailir. Númer tvö var öllu strembnari - vígalegt moldarbarð. Siggi Bald. fór fyrstur, prjónaði og lét illum látum. Varð að gefast upp. Dundi næstur, hægt og rólega, samt með miklum hávaða eins og gefur að skilja, lagði hann í barðið. Upphófst, og hægt og rólega seig hann á afturendann og rúllaði yfrum, endaði með nefið í jörð og spilaði upp hjólunum. Bensínið fossaði úr geyminum, sjálfur brá Dundi ekki svip, þar sem hann hékk í öryggisbeltunum. Þeir komu bílnum á réttan kjöl - og hann hélt áfram keppni. Kom sá og sigraði. Bergþór Guðjónsson - Hellumaðurinn - fer létt og lipurlega gegnum þúfurnar. Á Willys með 4 cyl Volvo vél með afgastúrbínu. 6 - DAGUR - 21. september 1982 - eða næstum allt - A torfærukeppni BA

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.