Dagur - 28.09.1982, Síða 3
Keilusíða 1-5.
Leiguíbúða-
nefnd afhendir
19 íbúðir
í næsta mánuði munu íbúðir í
ijölbýlishúsinu við Keilusíðu 1-
5 verða afhentar og flutt inn í
þær. Hér er um að ræða 19
íbúðir, en það er Ieiguíbúða-
nefnd Akureyrar sem staðið
hefur að byggingu hússins.
Einhver hluti íbúðanna mun
verða seldur, en meirihluti þeirra
mun þó verða leigður út. íbúðirn-
ar eru í þremur stigahúsum, og
eru fimm íbúðir í norðurenda
hússins en sjö í hvoru hinna stiga-
húsanna. Á jarðhæð allra stiga-
húsanna eru íbúðir sem hannaðar
eru sérstaklega með það fyrir aug-
um að þar búi fatlað fólk, og mun
þetta vera í fyrsta skipti sem slíkar
íbúðir eru hannaðar þannig á Ak-
ureyri.
Blaðamaður Dags skoðaði
íbúðir hússins fyrr helgina, og er
ljóst að ekkert hefur verið til spar-
að að gera þær sem best úr garði.
Hér er um að ræða tveggja og
þriggja herbergja íbúðir og verða
þær afhentar fullfrágengnar.
Teppi eru á öllum gólfum, allar
innréttingar eru vandaðar og
skemmtilegar og lóð utanhúss
verður skilað fullfrágenginni.
Gróf kostnaðaráætlun hefur
verið gerð varðandi söluverð
þeirra íbúða sem seldar verða.
Þar kemur fram að verð á tveggja
herbergja íbúð er um 750 þúsund
krónur, og þriggja herbergja um
1100 þúsund krónur. En það skal
tekið frani að hér er um áætlað
verð að ræða sem getur breyst,
það getur hækkað eða lækkað.
Nýi Drangur
nýtist vel til
þungaflutninga
„Það hefur verið jafnvel meira
að gera fyrir skipið en við gerð-
um ráð fyrir í upphafi. Sérstak-
lega nýtist það vel til hvers kon-
ar þungaflutninga. Það á hins
vegar eftir að sýna sig hvernig
gengur í vetur,“ sagði Jón
Steindórsson, framkvæmda-
stjóri flóabátsins Drangs, en
vetraráætlun Drangs hefst um
miðjan næsta mánuð. Þá verða
tvær ferðir á viku til fastra við-
komustaða skipsins.
Þar sem nýi Drangur býður upp
á þungaflutninga og flutning á
stórum stykkjum hefur verið
mikið um aukaverkefni. Má
nefna flutning á borum fyrir
Orkustofnun frá Hrísey, til og frá
Grímsey og í Flatey. Má segja að
skipið hafi sérstaklega komið eyj-
unum til góða. Þá flutti Drangur
malbikunarvél fra Hafnarfirði til
Húsavíkur og þaðan til Sauðár-
króks og olíumöl frá Reykjavík til
Patreksfjarðar og ísafjarðar. Þá
tók aðeins 2 tíma að lesta 200 tonn
og 3 tíma að losa allt það magn.
í vetur verður allur flutningur í
gámum. Nú er verið að leggja síð-
ustu hönd á innréttingar í far-
þegarými, sem tekur 25-30
manns.
Nýi Drangur.
Anægður
viðskiptavinur
er okkar viðmiðun.
Þess vegna leggjum við
áherslu á vandaðar vörur
á viðráðanlegu verði.
Haustvörurnar
streyma inn Það eru ekki
aðeins fínu fötin
sem þú færð hjá okkur
Kuldaúlpur
Höfum fengið nýju framleiðsluna
frá Duffys í kuldaúlpum.
Gluggat j aldaefni
Við kappkostum að eiga ávallt
mikið úrval af gluggatjaldaefnum.
Þess vegna átt þú erindi til okkar
þegar þig vantar fyrir gluggana.
Kvenkápur
frá Gazella.
Vandaðar og fallegar kápur.
Ný snið - nýir litir.
Eigum nokkrar ullarkápur frá
Gazella á eldra verði.
Við höfum fatnaðinn yst sem
innst. Margir versla hvergi annars
staðar - enda getur þú treyst á
úrvalið hjá okkur.
Nú þegar kólnandi fer bjóðum við
t.d. frakka á frábæru verði.
Herradeild.
Það er þess virði
að koma við í skódeildinni ef þú
ert að athuga skófatnaðinn fyrir
veturinn.
Buxur
Brandtex buxur á mjög góðu
verði. Stærðir nr. 38-52.
Draktir
Fallegar og þægilegar draktir
fjölbreyttu litaúrvali.
Vefnaðarvörudeild.
Flestir sem kaupa
Combiflex
biðja um meira, því með
Combiflex raðhúsgögnunum má
stöðugt bæta einingum inn í.
Frábært verð og góðir
greiðsluskilmálar.
Komið við í Hrísalundi 5,
neðri hæð.
Ath.: Filmumóttaka
Tökum á móti öllum filmum til
framköllunar í sportvörudeildinni
og á neðri hæð í Hrísalundi 5.
28. september 1982 - DAGUR - 3