Dagur - 28.09.1982, Síða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Þorskgengi og
iðnaðurínn
í grein sem Guðmundur Bjarnason, alþingis-
maður, skrifaði í Dag meðan enn var ekki út-
séð með deilu útvegsmanna og ríkisstjórnar-
innar og skipin höfðu enn ekki látið úr höfn,
fjallaði hann m.a. um þau áhrif sem aðgerðir til
bjargar sjávarútveginum gætu haft á aðrar
atvinnugreinar í landinu. Greinin bar heitið:
Einnig verði tekið tillit til stöðu iðnaðarins, og í
henni sagði Guðmundur Bjarnason m.a.:
„En erfitt er að gera svo öllum líki og því
miður blasir sú staðreynd við, að þegar ein
atvinnugrein er tekin út úr og til sérstakra að-
gerða gripið hennar vegna, þá er hættan sú að
starfsskilyrði séu gerð mismunandi eða þeim
raskað og aðrar atvinnugreinar verði hart úti.
Gengisskráning okkar hefur ávallt verið mið-
uð við afkomu sjávarútvegsins og iðnaðurinn
því oft og einatt borið skarðan hlut frá borði.
Nú blasir einmitt sú hætta við að lægra olíu-
verð til fiskiskipa og sérstök meðferð á fjár-
magnskostnaði útgerðarinnar þýði röskun á
gengisskráningu, nokkurs konar þorskgengi,
sem verði mjög þungbært fyrir útflutningsiðn-
aðinn, sem síðar gæti haft mjög alvarleg áhrif
á atvinnulífið, einkum hér á Akureyri, sem
ekki má við neinum áföllum.
Hér þurfum við þingmenn að vera vel á verði
og gæta þess að einnig verði tekið tillit til
stöðu iðnaðarins. Að sjálfsögðu hefði verið
best að allt hefði þetta fylgst að í efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar á dögunum og sam-
ræmis gætt milli hinna einstöku atvinnu-
greina. Þá hefði t.d. mátt laga stöðu iðnaðar-
ins með lækkun launaskattsins, en um það
náðist því miður ekki samstaða, enda verður
það víst seint og trúlega aldrei sem öll vanda-
mál verða leyst og þaðan af síður að það gerist
í einum pakka.
Ég harma þau vinnubrögð og þá óbilgirni
sem fram kemur í afstöðu fulltrúa LÍÚ og veit
af samtölum mínum við ýmsa útgerðarmenn í
okkar kjördæmi að menn eru alls ekki á eitt
sáttir og sumir mjög óánægðir. Sérstaklega er
óskemmtilegt að Útgerðarfélag Akureyringa
skuli telja sig knúið til slíkra aðgerða í kjölfar
umræðna um alvarlegar horfur í atvinnumál-
um á Akureyri og fundahalda þingmanna kjör-
dæmisins með atvinnumálanefnd og bæjaryf-
irvöldum. Vonandi er að samkomulag náist og
viðunandi lausn fáist allra næstu dag því það
er að sjálfsögðu öllum ljóst hversu gífurlegan
vanda það hefur í för með sér ef sjávarútveg-
urinn er lamaður. “
Félag aldraðra
áAkureyri
stof nað á
sunnudaginn
Sunnudaginn 3. október n.k.
verður haldinn stofnfundur
Félags aldraðra á Akureyri.
Fundurinn hefst klukkan 15
og er búist við fjölmenni. For-
seti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hefur þegið boð um að
koma til fundarins og ávarpa
hann, sömuleiðis Pétur Sig-
urgeirsson biskup íslands og
kona hans frú Sólveig Ás-
geirsdóttir. Þá verður þing-
mönnum kjördæmisins, fél-
agsmálaráðherra og fulltrúum
bæjarstjórnar Akureyrar
boðið tU fundarins.
Auk framsögu og fundar-
starfa vegna sjálfrar félags-
stofnunarinnar verða flutt at-
riði í taU og tónum fundargest-
um til skemmtunar og gleði.
Þá verða reiddar fram léttar
veitingar. Þeim sem ekki eiga
hægt með að sækja fundinn af
eigin rammleik býðst akstur
til og frá fundinum.
Upphaf þessa máls er það, að
á fundi sínum 5. ágúst sl. ákvað
félagsmálaráð Akureyrar að
gangast fyrir stofnfundi samtaka
aldraðra á Akureyri, ef áhugi
reyndist fyrir stofnun slíks
félags. Að nokkru var litið á
þetta sem skerf félagsmálaráðs í
tilefni af ári aldraðra, en þar
fyrir utan hefur ráðið oft saknað
vettvangs, þar sem unnt væri að
ræða við aldraða um ýmsa þjón-
ustu sem opinberir aðilar vilja
veita þeim. Síðan í ágúst hefur
síðan undirbúningsnefnd unnið
að undirbúningi stofnunar sam-
taka þessara. í nefndinni
hafa setið: Erlingur Davíðsson,
Júdit Jónbjörnsdóttir, Jón G.
Sólnes, Ingibjörg Halldórsdótt-
ir, Porleifur Agústsson, Guðrún
Árnadóttir, Gestur Ólafsson og
Steingrímur Eggertsson. Með
nefndinni hafa unnið af hálfu
félagsmálaráðs: Ingimar Eydal,
Heiðrún Steingrímsdóttir,
Helga Frímannsdóttir og Jón
Björnsson, félagsmálastjóri.
Á blaðamannafundi sem
haldinn var af þeim sem að þessu
máli standa kom m.a. fram að
haldinn hafi verið undirbúnings-
fundur þar sem mætt hafi yfir 40
manns. Benti það og ýmislegt
annað til þess að áhugi væri
mikill á stofnun félagsskapar
aldraðra. Erlingur Davíðsson,
rithöfundur, sagði á blaða-
mannafundinum að þörfin fyrir
þetta félag væri mikil, því menn
teldu að þau skilyrði sem aldr-
aðir byggju við í höfuðstað
Norðurlands væru ekki nógu
góð, bæði hvað varðaði fjár-
hagslega og félagslega þætti.
Nefnt hefur verið að úrbóta væri
þörf í skattamálum aldraðra og
þá hefur það verið áhyggjuefni
margra hve aldrað fólk á Akur-
eyri virðist vera einangrað. Þá
væri ljóst að tvö dvalarheimili
fullnægðu ekki eftirspurn enda
væru nú um 260 manns á bið-
lista.
Júdit Jónbjörnsdóttirsem sæti
á í undirbúningsnefnd gat þess
að hún hafi sótt um fyrir þrem
árum og væri nú orðin 98. á bið-
listanum. Steingrímur Eggerts-
son, sem einnig á sæti í undir-
búningsnefndinni og einnig var á
blaðamannafundinum sagði að
þegar hann hafi sótt um í sumar
hafi hann verið 273. í röðinni og
ljóst að hann yrði orðinn roskinn
þegar hann loks kæmist inn, en
Steingrímur er 81 árs. Ræddu
menn um það að hann mætti
eiga von á því að komast að árið
1990.
Varpað var fram þeirri spurn-
ingu hvort mönnum fyndist sem
um of væri reynt að ráðskast
með aldraða án þess að þeir
kæmu sjálfir nærri. Sagði Erl-
ingur að það væri rétt og þetta
félag hefði þann megintilgang að
vera umsagnaraðili fyrir aldrað
fólk gagnvart bæjarstjóm og
ríkisvaldinu. Sagði hann að þeir
sem stæðu að þessu ætluðu fél-
aginu að verða það öflugu að
ekki yrði gengið fram hjá því.
Ætlunin væri að opna skrif-
stofu sem liðsinnti öldraðum í
réttindamálum og fleiru, t.d.
vinnumiðlun. Þá kom einnig
fram að félagið mun beita sér
fyrir félagslífi og skemmtunum
og hugsanlegt er að stofna í
tengslum við félagið byggingar-
samvinnufélag og ferðafélag.
Jón Björnsson félagsmála-
stjóri benti á að þar sem miðað
væri við 60 ára aldurstakmark
mætti búast við að félagið beitti
sér fyrr ýmsum málum sem í dag
teljast ekki beint til öldrunar-
mála. Þannig væri hægt að vinna
fram í tímann fyrirbyggjandi
starf s.s. í húsnæðis- og atvinnu-
málum.
í drögum að lögum félagsins
sem lögð verða fyrir á stofnfund-
inum segir um hlutverk þess, að
það eigi að vinna áð hagsmunum
aldraðra, svo sem kynningu á
réttinum og skyldum þeirra í
samfélaginu, úrbótum í húsnæð-
ismálum, atvinnumálum, félags-
málum og fjármálum og að vera
tengiliður milli hinna öldnu og
þess opinbera og vera umsagn-
araðili um málefni sem þá
snerta.
Rétt til að verða félagsmenn
eiga þeir sem náð hafa 60 ára
aldri eða eftirlaunaaldri sé hann
fyrr. Styrktarfélagar geta orðið
einstaklingar og fyrirtæki. Ár-
gjald félagsmanna verði 50
krónur. Á stofnfundinum verð-
ur kosin bráðabirgðastjórn fram
að aðalfundi þess á næsta ári.
'4 -DAÖÍJb -Íéé.‘séj3ÍérTíbfer:1ð82