Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 2

Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 2
LESENDAHORNIÐ Þakkir til Margrétar farið eftir uppskriftunum. Ég vil þakka Margréti fyrir góða þætti og vona að ég eigi eftir að sjá marga í framtíðinni. Dagur mætti líka hafa það í huga að sinna meira neytendamálum. Ekki hef ég neinar tillögur um hvernig á að fara að því, en hug- myndaríkir skríbentar hljóta að eiga einhverjar leiðir í því sam- bandi. Hústæknir hafði samband við blaðið og sagði: Matur er magans áhugamál, sagði einhver sem vissi sínu viti. Ég hef mjög gaman af því að búa til mat og ekki síður að borða hann. Þættir Margrétar Kristins- dóttur í Degi hafa verið mér mjög að skapi og ekki hefur álit mitt á henni dvínað eftir að hafa Úrvalið er meira en orð fá lýst. Sjónersögu rfkari. Skipagötu 5 Akureyri Simi22150 Kona á Brekkunni skrifar: Nú á dögum þegar aliir eru að kvarta í blöðunum undan ýmsu sem þeim finnst ábótavant vil ég snúa blaðinu við og þakka unga lögreglumanninum sem var á lögreglubifhjóli sl. þriðjudag. Þó ók hann framhjá hópi vist- manna á Sólborg. Þeir veifuðu til hans og veifaði hann á móti. Finnst mér að fleiri mættu fylgja hans fordæmi og sýna vinaleg- heit í garð þessara vistmanna í stað þess að vera sífellt að hreyta í þá ónotum eins og allt of oft á sér stað. Fleiri mættu fylgja fordæmi hans Haflð ljósin í góðu lagi Vegfarandi hringdi: Nú þegar er farið að dimma og nauðsynlegt er að ljósin séu í góðu lagi á bílunum. Ég hef veitt því eftirtekt að í hvert einasta skipti sem ég skrepp í bæinn fer aldrei hjá því að ég mæti ekki bíl með ljósin í ólagi. Já ég hef mætt fjórum bílum sem allir voru með biluð ljós í einni slíkri bæjar- ferð. Góðir ökumenn og lög- regla, við skulum öll taka hönd- um saman og gera hvað við get- um til að koma þessum málum í gott horf. Þess er raunverulega þörf. Nokkur or5 um útvarpið ÞGA skrifar: Eftir að hafa hlustað á . .Útvarp D smunn er 24222. * Akureyri" get ég ekki sagt ann- að en það sé með góða þætti, en vonandi líður ekki á löngu þar til skammstöfunin „RÚVAK“ verður lögð niður. Svona skammstöfunarskrípi er hvort tveggja ljótt og bjánalegt og ætti ekki að sjást eða heyrast. Einnig langar mig til að spyrja: Af hverju þarf að byrja nær alla þætti í útvarpi með mús- ikroku? Þegar músik er notuð á undan fréttum kastar fyrst tólf- unum. Að mínu mati er hér bæði verið að misbjóða hljómsveit- inni og þáttunum. Að lokum bið ég „Lesenda- hornið“ fyrir kærar kveðjur til Ingimars Éydal fyrir þáttinn Við Pollinn í dag (14.10). Hann Ingi- mar mætti, á meðan tíðin er svona góð, standa við Pollinn stundarkorn á hverjum degi. Hafðu þökk Ingimar. Veistu svarið?66 Villandi og leið- inlegar spnrningar Sigurður Þórisson á Grænavatni í Mývatnssveit hringdi og vildi koma á framfæri athugasemdum vegna þáttarins „Veistu svarið?“ í útvarpi á sunnudagskvöldum. Sagði hann að spurningarnar væru oft fyrir neðan allar hellur, vitlausar og stundum tvíræðar. Nefndi hann sem dæmi úr síð- asta þætti þegar spurt var um blöð á bláberjalyngi en ekki blóm bláberjalyngsins, sem svarið átti síðan að snúast um. Annað dæmi nefndi hann um Gránufélagið og hvernig það nafn hefði til komið. Félagið hefði dregið nafn af skipinu, burtséð frá því hvort um upp- nefni hefði verið að ræða eða ekki. Þá hafi verið spurt um hve- nær Alþingi hafi síðast verið sett við Öxará á Þingvöllum. Þar hafi þingfundur verið haldinn 1974 en það svar hefði verið metið rangt. Þing hefði einnig verið sett á Þingvöllum árið 1944. Öðru máli gegndi hins vegar um síðasta reglulegt þing við Öxará. Sigurður sagði að það væri fráleitt að hafa tvíræðar spum- ingar. Stjórnendurþáttarins eða sá sem semdi spumingarnar yrði að taka sig á. Þá væm spurning- arnar leiðinlegar auk þess að veravillandi. Svonaþátturþyrfti hins vegar að vera léttur og skemmtilegur. Hvar eru ávextimir? Ég er svolítið þreytt á ávaxtasal- atinu sem fæst í kjörbúðunum. Það er í litium hringlaga dósum, ef einhver skyldi vera í vafa um hverskonar álegg ég er að tala um. Eini gallinn - og hann er stór - er sá að það er illmögulegt að finna ávextina í dósinni, en þar er nóg af uppfyllingarefni sem ekki er hægt að kenna við ávexti. Það getur vel verið að fram- leiðendur þurfi ekki að setja meira en sem nemur tveimur til þremur ávaxtabitum í hverja dós, en mér finnst það heldur lítið. Því mæli ég með að inni- hald dósanna sé endurskoðað með það fyrir augum að setja meira magn af ávöxtum í þær. Svo mikið er víst að ég mun kaupa meira af þessu áleggi ef bót verður ráðin á þessu. Húsmóðir í Ránargötu. Ef sumlr væru víð suma . . . Glúmur hringdi: Einu sinni heyrði ég máltæki sem var svona: Ef sumir væru betri við suma heldur en sumir eru við suma þá væru sumir betri við suma heldur en sumir eru við suma. Sumir mættu taka þetta snjalla máltæki til athugunar, því í heiminum er mikil mann- vonska og lítið um það að sumir séu góðir við suma. Þeir sumir sem vilja að sumir aðrir séu betri við sig ættu því að leggja áherslu á það að vera betri við suma aðra heldur en þeir eru við suma, því þeir hinir sumu mundu þá gjalda það með því að vera enn betri við suma en heldur en sumir eru við suma. Læt ég þetta nægja að sinna. 2 - DAGUR - 22. október 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.