Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 8
TONLIST Soffía Guðmundsdóttir Fallegur söngur Páll Jóhannesson. Þaö var ánægjuleg stund, sem tónleikagestir áttu í Borgarbíó sl. laugardag er Páll Jóhannes- son tenór efndi til sinna fyrstu einsöngstónleika. Jónas Ingi- mundarson lék með á píanó. Páll stundar nú söngnám á Ítalíu og hefur stigiö stór skref fram á við eftir þessum tónleik- um að dæma. Ekki verður betur séð og heyrt en Páll sé þegar kominn með staðgóða söngtækni, sem af því má marka, að þetta rennur allt saman fram áreynslulaust rétt eins og ekkert sé sjálfsagð- ara. Röddin er gullfalleg, hljóm- mikil, björt og blæbrigðarík og ótrúlega jöfn á tónsviðinu eins og það leggur sig. Túlkun öll er einlæg og látlaus, fjarri allri sýndarmennsku. Þá er textaframburður til fyrirmyndar, og textarnir eru vel sagðir fram um leið og þeir eru sungnir. Þennan eilífa vanda milli texta og tónlistar hefur margur söngvarinn, þótt góður sé, mátt stríða við um langa hríð, en hann virðist ekki valda Páli teljandi vandræðum. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt alkunn íslensk lög svo prýðilega flutt sem að þessu sinni og upp á nýjan ferskan máta, blátt áfram og innilegan. Mér fannst ég eiginlega heyra hin ljúfulög Eyþórs Stefánssona Lindina og Mánáskinið í fyrsta sinn að ógleymdum Bikamum eftir sama höfund. Það var ris- mikill flutningur og stór í sniðum. Sama má segja um Heimi eftir Kaldalóns. ítölsku aríurnar, þessar skín- andi perlur, samdar á sautjándu, átjándu og nítjándu öld, voru hver annarri fallegri, og eru þær þó ekki auðveldar í meðförum, en Páll ratar svo beina og ein- falda leið, og það er ekki lítill galdur. Mig langar til að færa þeim Páli og undirleikara hans Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara bestu þakkir fyrir þessa tón- leika. Þeir verða mér minnis- stæðir. Að lokum Páll: Til lukku með þenna fallega söng og gangi þér vel. Soffía Guðmundsdóttir. Þjóðarátak krabbameini - Qáröflunardagur 30. október Landsráð gegn krabbameini var stofnað 4. maí 1982. Fé- lagar landsráðsins eru 60 sam- tök vinnumarkaðarins, íþrótta, atvinnulífs og lista. Stofnfundurinn samþykkti einum rómi að gangast fyrir þjóðarátaki sem geri Krabba- meinsfélagi Islands fært að ráðast í ný og stærri verkefni en hingað til hefur verið fært s.s. leitarþjónustu gegn leg- hálskrabbameini, fjöldaleit að brjóstkrabbameini, leit að krabbameini í körlum, rann- sóknir á orsökum krabba- meins og áhrifum umhverfís, atvinnu og erfða og eflingu krabbameinsskrár. Landsráðið er stofnað fyrir forgöngu forseta Islands, forsæt- isráðherra og biskupsins yfir ís- landi og voru þau á stofnfundi kjörin í heiðursráð þess, en framkvæmdastjóri fram- kvæmdanefndar er Eggert Ás- geirsson, áður framkvæmda- stjóri Rauða kross íslands. Hinn 30. þ.m. er ákveðið að fram fari allsherjar fjársöfnun um land allt framangreindum málum til eflingar. Hefur land- inu verið skipt í söfnunarum- dæmi og umdæmunum í smærri söfnunareindir og samkvæmt beiðni framkvæmdanefndar hafa Bragi Sigurjónsson og séra Pálmi Matthíasson tekið að sér að hafa yfirumsjón með söfnun á Akureyri og í nágrannahrepp- um. Hafa mörg félög og samtök brugðist mjög vel við því að að- stoða við söfnun þessa, en hún er hugsuð sem söfnun í eitt skipti (ekki árleg) og vonast til, að hún skili miklum árangri, verði raun- verulegt þjóðarátak gegn krabbameini. Framlög yfir 100 kr. eru frádráttarbær til skatts. Söfnunin verður þannig skipu- lögð á Akureyri og í nágranna- hreppum, að29. okt. (föstudag) verður vitjað framlaga fyrir- tækja og stofnana, en 30. okt. (laugardag) ganga söfnunaraðil- ar í hús, væntanlega á bilinu kl. 10-18. Reynt verður að gæta þess, að hvergi verði tvívitjað framlags og sérgerðar kvittanir verða gefnar fyrir hverju fram- lagi með áprentun Þjóðarátaks gegn krabbameini. Mikilsvert er fyrir söfnunaraðila, að menn hafi framlög sín handbær, svo söfnun gangi fljótt og vel, en söfnunarfé þarf að skila um- dæmisráði í síðasta lagi kl. 21 að kvöldi söfnunardags uppi í lög- reglustöðinni á Akureyri að sunnanverðu, en þar mun um- dæmisráð (Bragi og séra Pálmi) vera til móttöku kl. 13-21 og sími þeirra þar 25733. Söfnunar- upphæðir frá öllum umdæmum á landinu verða tilkynntar í sjón- varpi kl. 23.30 þennan dag. Tekið skal fram, að ávísanir, sem inn koma verða ekki inn- leystar fyrr en eftir mánaðamót. DA GD VELJA Bragi V. Bergmann Brandarar: „Mamma, ég hef magaverk," sagði Sigga litla 6 ára. „Það er bara af þvl að þú vildir ekki borða matinn þinn. Maginn er tómurl" Skömmu slðar kom pabbinn heim og kvartaði sáran yfir þvt að hann hefði haft höfuðverk allan daginn. Þá gall I Siggu litlu: „Það er bara af þvl að höfuðið er tómt!“ ☆ ☆* Svenni litli hafði séð nýfædda kettlinga hjá nágrannanum, sem hann var mjög hrifinn af. Hanneyddiöllumfrístundum sínum þar, en dag nokkúrn kom hann hágrátandi heim og sagði mömmu sinni að nágranninn hefði drekkt kettl- ingunum, öllum nema einum. Mamman reyndi að skýra út fyrir syni sínum að ekki væri hægt að láta öll af- kvæmin lifa, þá yrði einfaldlega alltof margir kettir. Stráksi þurrkaði tárin, leit á mömmu sínaog sagði: „Heyrðu, mikið var ég heppinn. Hvað vorum við eiginlega mörg?“ „Ungi maður," sagði móðirin, - það voru tvær kökusneiðar hér I ofninum I morgun. Getur þú sagt mér af hverju það er bara ein núna?“ „Það hlýtur að hafa verið svona dimmt, aðég hefekkiséð hina." ☆■☆☆■ „Hlauptu inn og þvoðu þér í framan, drengur. Pabbi þinn er að hugsa um að bjóða þér í bílferð með sér.“ „Er ekki rétt að vita vissu sína áður?“ ☆ ☆☆ Árni spurði mömmu sína hvernig hann hefði orðið til: „ Þú lást (maganum á mér og stækkað- ir þar,“ útskýrði mamman. „Fékk ég mat þarna inni?“ „Já, já, á hverjum degi.“ „En mamma, hvernig í ósköpunum gastu komið diskunum þangað inn?“ ☆ ☆☆ „Pabbi, snýst jörðin I hringi?" „Hver djöfullinn er þetta strákur, hef- urðu nú stolist I brennivtnið rétt einu sinni?" ☆ ☆☆ „Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?“ spurði frændinn litla drenginn. „Prestur." „Já, sko, strax kominn með áhuga á andans málefnum." „Fjandinn hafi þau. En þetta er eina starfið þar sem bara þarf að vinna á sunnudögum, og þá er ekkert varið í sjónvarpið hvort sem er.“ ☆ ☆☆ Litli óþekktarpúkinn á heimilinu, hann Siggi sem var sex ára var búinn að sitja lengi, þögull og hugsi. Svo snéri hann sér að mömmu sinni: „Mamma, er það ekki Guð, sem gefur okkur daglegt brauð?" „Jú, auðvitað, væni minn.“ „Og kemur ekki jólasveinninn með jóla gjafirnar?" „Vitanlega.“ „Og kom ekki storkurinn með mig og litlu systur?" „Jú, jú, auðvitað var það storkurinn." „En til hvers höfum við þá eiginlega hann pabba...?“ ☆ ☆☆ - Hvað ætlar þú að gera þegar þú verður stór, Siggi minn? - Safna skeggi, svo ég þurfi ekki að þvo andlitið á mér... ☆ ☆☆ Gvendur litli er alltaf að spyrja föður sinn hvernig hann hafi orðið til. Faðir- inn færist alltaf undan, en Gvendur spyr því ákafar, þangað til faðirinn segir: - Ég tók tvö fræ og gróf þau úti í garði og hvolfdi blómapott yfir. Og þegar ég lyfti pottinum upp nokkrum dögum síðar, fann ég þig undir honum! Gvendur litli hugsaði málið og einsetti sér að gera tilraun sjálfur. En þegar hann lyfti blómapottinum, var ekkert undir honum nema stór ánamaðkur. Þá segir stráksi í bræði: - Sko, ef ég væri ekki hann pabbi þinn, skyldi ég drepa þig ófétið þitt! ☆ ☆☆ - Stóra systir mln notar sltrónusafa sem andlitsnæringul - Nú, já. Þess vegna er hún alltaf svona súr á svipinn ... ☆ ☆☆ (fíTH! £R GR£ifjfi£MunuR 'A bkí/jfJun o& skfihíjétuin). — ; / JÍ jfl 8 1 1 * BAot- HfcTTU FR'etta TÍHK- AltLrR STottA SAMÞVKKr SkogT FRUMA uLtim'' fíWAf G-LATA J / / /•***> m ^KAMM! v i'&m Rf&LU' BuUCitJi 'asu'att < r* i'W* G-ÖSLA s HrTTi OKA SAURW IPKA to- IAus a TAur LauaJ L V TRAfJAfc KEIt)!' HLióE> » LEÐJa FU&L SEaJd r 'A BRoTt VÍ«AM FjöRD SKIfJNXÐ V y RÖKKUí STUUMfi TUNWu T ► v— &AMAL- í>Ac,c, sj v / SÖM&L æða ; ► # Skagafj. Í-MÚL.S pOFWA OrlST L : 8 - DAGUR,- QktófcM; 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.