Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 3

Dagur - 22.10.1982, Blaðsíða 3
,,l*etta gefur vel af sér ef inenn leggja sig frain — Spjallað við IJlfar Arason, refabónda á Klöpp á Svalbarðsströnd Úlfar Arason heitir ungur maður sem hefur stofnað ný- býlið Klöpp á Svalbarðs- strönd, og þar stundar hann refarækt af kappi ásamt eigin- konu sinni Elinu Gunnars- dóttur. Úlfar er greinilega ekki aðgerðarlaus ungur maður, hann hefur á stuttum tíma tekið hraustlega til hend- inni, byggt hús fyrir refína og nýtt og glæsilegt einbýlishús er risið ekki fjarri þjóðvegin- um. „Ég ér héðan frá Sólbergi, ólst hér upp og hef alltaf starfað hér nema nokkur ár sem ég var á Akureyri. Ég var á Akureyri þegar þessi refahugmynd kvikn- aði og sótti um leyfi til þess að flytja inn dýr um áramótin 1978- 1979,“ sagði Úlfar er við sóttum hann heim á dögunum. „Þá fékk ég þau svör hjá Landbúnaðarráðuneytinu að ekki yrði um innflutning á þess- um dýrum til landsins að ræða. Það breyttist hinsvegar er kom fram á árið 1979 og þeir létu mig þá vita og ég fékk það ár 50 læð- ur og 17 högna frá Skotlandi. Við vorum fjórir sem fengum dýr á sama tíma. Ég hafði ekkért kynnst þessu áður, hafði ein- ungis fengist við hin hefðbundnu landbúnaðarstörf heima og auk þess unnið á Akureyri. - En hvers vegna refárækt? „Það er með mig eins og svo marga aðra sem alast upp í sveit að ég vil hvergi annarsstaðar vera. Svo var það að pabbi sá í blaði grein þar sem fjallað var um refarækt og það varð til þess að ég fór að velta þessu fyrir mér og svo kom þetta koll af kolli.“ Úlfar fékk sem fyrr sagði 50 læður og 17 högna árið 1979, og út af þessum dýrum fékk hann 240 hvolpa vorið eftir. Þá seldi hann lífdýr og setti á hjá sér 10 læður. Næsta ár urðu hvolparnir 420 og nú er hann með í húsi 95 læður og um 800 hvolpa sem bíða slátrunar í næsta mánuði. „Ég seldi fyrstu skinnin haust- ið 1980 hjá Hudson Bay í Lond- on og fékk ágætt verð. Það var því ljóst að þetta gat gengið vel og í fyrra hækkaði verðið tals- vert og hefur verið gott á þessum markaði síðan.“ - Hvernig ref ert þú með? „Þetta er skoskur stofn og dýrin eru bæði blárefir og svo- kallaðir Shadowrefir. Það hefur gefist vel að fá blendinga af þess- um tegundum, og skinnin af þeim hafa gsfið 10-15% hærra verð. Annars legg ég mesta áherslu á blárefinn, finnst hann öruggari. Stofninn verður því að meginuppistöðu blárefur og Shadow með.“ - Víkjum aðeins að fóðrinu fyrir dýrin, hvað éta þau og hvar færð þú fóðrið? „Við njótum þess hér að hafa úrvalsfóður fyrir þessi dýr, ég vil segja mun betra fóður en völ er á í öðrum löndum. Ég fæ allt mitt fóður fyrir refina frá fyrirtæki á Grenivík sem heitir Kaldbakur, en fæðið samanstendur af fisk- úrgangi, sláturúrgangi, kolvetni og vítamínum. Eini gallinn við þetta er sá að ég þarf að sækja fóðrið sjálfur, en vonandi verð- ur það þannig í framtíðinni ef svo margir verða með refarækt að bíll fer um sveitina með fóðrið. Hann myndi fara um líkt og mjólkurbíll. En fóðrið er mjög gott, enda hafa hvolparnir verið mjög vænir og þeim hefur verið vel gefið. Skinnin hafa líka verið góð og fengið góða dóma þótt auðvitað séu bestu dýrin valin úr sem lífdýr.“ - Getur þú lýst fyrir okkur einu ári í þessari búgrein, hvern- ig reksturinn við refarækt geng- ur fyrir sig? „Ef við byrjum á pöruninni þá hefst hún í lok febrúar og stend- ur yfir fram í maí. Um það leyti er henni lýkur byrjar svo gotið, en meðgöngutími læðanna er ekki nema 52 dagar. Gotinu er svo lokið um miðjan júní. Þá snýst þetta fyrst og fremst um það að ala dýrin vel en hvolpun- um er lógað í byrjun nóvember. Eftir það tekur við verkun skinnanna, það þarf að skafa fit- una úr þeim, „spýta“ þau og þurrka og gera þau sem bestu úr garði. Þessi vinna stendur yfir framundir áramót og þá styttist tíminn þar til næsta umferð byrjar.“ - Og þér líkar þetta vel? „Ég kann mjög vel við þetta. Það má segja að þetta sé létt vinna þannig að á líkamsburði reynir ekki mikið þótt vinnudag- urinn geti orðið langur. Þá hent- ar þetta mjög vel hér, því ekki er maður háður veðurguðunum eins og t.d. þeir sem þurfa að stunda heyskap og þess háttar.“ - Hvað þarf sá að hafa í huga fyrst og fremst sem hyggst ætla Ulfar Arason með einn refa sinna í að ná góðum árangri í þessari búgrein? „Það þarf í fyrsta lagi að hafa gott fóður og að fóðurlistinn sé rétt samansettur, en ég kaupi allt fóður tilbúið frá Kaldbak eins og áður sagði. Þá er hrein- læti ekki svo lítið atriði. Menn halda sennilega margir að það sé hægt að bjóða refum upp á hvað sem er en svo er alls ekki. Fóðrið, hreinlætið, og að húsa- kynnin séu þrifaleg og góð allt spilar þetta saman og þarf að gera það til þess að árangur Úlfar bóndi fyrir framan refabú sitt. fanginu. verði góður.“ Það kom fram hjá Úlfari að hann hyggst auka stofn sinn upp í 150 eldislæður og láta þar við sitja. Hver læða gefur að jafnaði af sér um 8 hvolpa á ári og sölu- verð skinnanna af þeim á mark- aðsverði í dag er um 8 þúsund krónur. En þá er að sjálfsögðu eftir að reikna allan tilkostnað. En er það ekki ljóst að þetta gef- ur vel í aðra hönd? „Jú því er ekki að neita að þetta gefur vel ef menn leggja sig fram. Við höfum verið að berj- ast fyrir því að fá refarækt viður- kennda sem samkeppnisiðnað. Það myndi þýða að niðurfelldur yrði tollur og vörugjald af efni í búrin sem er verulegt atriði og við fengjum söluskattinn upp- safnaðan eins og iðnaðurinn fær. Ég veit ekki betur en að vilyrði hafi verið gefin fyrir því að þetta fáist. Ég lét hafa eftir mér í fyrra að það væri hæpinn rekstrar- grundvöllur fyrir þessari bú- grein, en niðurfelling aðflutn- ingsgjalda af búrefni hefur bætt þetta mikið og eins hefur fóð- urverð lækkað a.m.k. um V3 á hvert framleitt skinn. “ . - Nú munu vera starfandi um 30 refabú í landinu og leyfi hefur verið gefið fyrir 70 til viðbótar. Telur þú að við getum orðið stórir í framleiðslu á refaskinn- um á alþjóðamælikvarða? „Við ættum að eiga alla mögu- leika á því, ég fæ ekki annað séð. En þá kemur óneitanlega einn stór hlutur til sögunnar sem hef- ur virkilega mikið að segja, og hann er sá að það verði til ein- hver þorskur í sjónum. Eins og ég hef áður sagt þá hefur gott fóður ekki hvað minnst að segja í þessu öllu, og þar er fiskurinn undirstaðan.“ - Hvað með markaðshorfur, hljóta þær ekki ávallt að taka mið af svokölluðum tískusveifl- um í heiminum hverju sinni og hvernig erum við undirbúnir að mæta slíku? „Jú, tískan getur að sjálf- sögðu spilað þarna inn í, og satt best að segja erum við frekar illa settir að mæta miklum sveiflum sem þannig geta orðið ef þær koma fljótlega. Menn eru að byggja þetta upp og eru með mikið undir peningalega. Hins- vegar má líka segja að við stönd- um vel að vígi vegna fóðursins og fóðurverðsins. Eg held að við séum ekki verr undir þetta búnir ef á allt er litið en t.d. Finnar sem eru stórir í þessari fram- leiðslu." Það fer ekkert á milli mála er rætt er við Úlfar að þar er ungur maður á ferð sem hugsar fram á við og það ekki svo smátt. Eftir að hafa gengið um refabúið með honum og setið í góða veðrinu og spjallað höldum við á brott, og Anna Karín, þriggja ára dótt- ir þeirra hjónanna hoppar með okkur síðasta spölinn að bílnum. 22. október 1982 - DAQUR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.