Dagur - 22.10.1982, Side 12
í Smiðju um helgina: Föstudagskvöld: Einkasamkvæmi.
Laugardagskvöld: Enn tii borð í fyrri tímanum.
Sunnudagur í hádeginu:
Endurtökum okkar vinsæla danska hádegisverðarborð, sem er úrval kaldra
rétta ásamt einum heitum rétti.
Verð kr. 180, 'k verð fyrir 7-12 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.
Þorvaldur Hallgrímsson lelkur fyrlr matargestl (hádeginu á sunnudag og á kvöldln.
Háskólinn fær raf eindaheila
4. janúar. Bankaráð Framkvæmdabankans sem um
þessar mundir á 10 ára afmæli, afhenti Háskólanum að
gjöf 2.8 millj. króna til kaupa á rafeindaheila. Rafeinda
heilinn kemur til landsins næsta haust. Tahð er að margar
stofnanir muni í framtíðinni njóta góðs af þessu mikilvirka
tæki, auk Háskólans sjálfs.
Hegðun unglinga ábótavant
12. febrúar. í fyrrakvöld fóru stórir hópar unglinga á
aldrinum 12 til 15 ára um bæinn, sumir piltanna vopnaðir
spýtum, og var hegðun þeirra ábótavant. Þeir trufluðu
umferð, voru hávaðasamir og skemmdu eitthvað lóða-
girðingar. Sennilegt er að fyrirmyndir þessa só að finna í
kvikmyndahúsunum og góða verðið á einnig sinn þátt í
fjölmennri útivist. Hinsvegar afsakar það ekki skripalæti
unglinganna.
Hættu að reykja á Snæfellinu
7. mars. Blaðinu hefur borist frétt af því að allir skipverj-
ar á hinu gamalkunna fiskiskipi, Snæfelli á Akureyri, hafi
hætt að reykja eftir áramótin síðustu. Ber að fagna því og
taka til fyrirmyndar fyrir þá sem treysta sér til.
Baldur kom óskotinn til baka
8. apríl. Baldurbóndi Baldvinssoná ÓfeigsstöðumiKinn
er nýlega kominn heim úr nokkurra vikna boðsferð til
Þýskalands. Hann sagðist hafa farið með Gullfoss báðar
leiðir og þótti harla gott. Sex borgir heimsótti hann í
Vestur-Þýskalandi og ferðaðist nokkuð um landið. Auk
þess skrapp hann austur fyrir „tjald" og kom þaðan óskot-
inn. Þar eru minnismerki um marga þeirra sem reyndu að
komast yfir en komust ekki og voru skotnir á staðnum.
Skaut aligæs
9. maí. Sl. laugardagskvöld kærði Snorri bóndi Péturs-
son á Lóni til lögreglunnar á Akureyri tvo menn sem kom-
ið höfðu heim undir bæ sinn, skotið þar aligæs og ekið síð-
an burt. Lýsti Snorri bílnum og sat lögreglan fyrir „veiði-
mönnunum" þegar þeir komu í bæinn með feng sinn.
Viðurkenndi annar þeirra að hafa skotið gæsina. Það er
engu likara en að sumir bæjarbúar líti svo á að þeim só
leyfilegt að nota skotvopn leyfislaust í löndum bænda og
að friðunarlögin þurfi ekki að taka hátíðlega.
Keisaraskurður sem heppnaðist vel
13. júní. Á Laufási í Kelduhverfi varð sá atburður í vor að
„keisaraskurður" var af heimafólki gerður á gamalli á sem
ekki gat borið lambi sínu og var ánni bjargað. Það var Kári
Þórarinsson sem aðgerðina framkvæmdi og notaði hann
lyf til svæfingar og sótthreinsunar. Var lambið dautt fyrir
mörgum dögum og snúið upp á legið. Þegar Bleikja gamla,
en svo heitir ærin sem er niu vetra, „vaknaði'* hafði hún
lyst á góðri tuggu og nú er hún fyrir nokkru komin á fja.ll
vel gróin sára sinna og hin sprækasta.
Ætlaði að aka á konur
11. júlí. Aðfaranótt sl. föstudags gengu tvær konur eftir
gangstóttinni norðan Strandgötu. í þeim svifum bar þar
að bifreið sem tvivegis ók upp á gangstóttina að konunum
og í seinna skiptið króaðist önnur konan af upp við
húsvegg. Ekki hlutust meiðsli af þessu ógætilega tiltæki
ökumanns og má það kallast sérstakt lán. Sjónarvottar
kærðu atburðinn til lögreglunnar en stuttu síðar gaf öku-
maðurinn sig fram. Var hann í mjög æstu skapi en ekki ölv-
aður. Málið er i rannsókn.
„Mtm meiri áhersla
er nu lögð á
frjálsa tjánlngu
— segir Ingvar Ingvarsson handmennta-
kennari við Lundarskóla
66
Þegar þeir sem nú eru á miðj-
um aldri voru í skóla á sínum
tíma sóttu þeir tíma í teikningu
og handavinnu eins og þessar
kennslugreinar voru kallaðar.
Ekki er hægt að segja að mikill-
ar fjölbreytni hafi gætt í þessari
kennslu, handavinnan fór
þannig fram að stúlkurnar
fengu að prjóna eða hekla og
strákarnir smíðuðu sér einfalda
hluti eins og báta, blómagrind-
ur og fleira þess háttar. Teikni-
kennslan var nær eingöngu í því
fólgin að teikna með blýanti og
lita síðan með vaxlitum.
En þessi kennsla hefur tekið
stökkbreytingum á síðari árum,
og reyndar heita þessar greinar
ekki lengur handavinna og teikn-
ing, heldur mynd- og handmennt
og þeir sem kenna hana mynd- og
handmenntakennarar. Mikillar
fjölbreytni gætir nú við kennslu í
handmennt og við spurðum
Ingvar Ingvarsson sem starfar
sem handmenntakennari við
Lundarskóla á Akureyri í hverju
þessi breyting sem á hefur orðið
væri aðallega fólgin.
„Það er lögð mun meiri áhersla
á frjálsa tjáningu en áður var, og
leitast við að láta nemendur vinna
með hin ólíkustu efni. Það má
segja að stökkbreyting hafi orðið
á þessari kennslu er umræðan um
grunnskólalögin stóð sem hæst.
Eftir það færðist kennslan niður í
yngstu bekkina og farið var að
halda námskeið fyrir kennara sem
leiddi af sér að fleiri kennarar sem
höfðu góða menntun komu til
starfa.
Krakkarnir hafa tekið þessari
breytingu mjög vel, enda eru þeir
mjög opnir fyrir nýjungum og
óhræddir við að reyna þær.
Krakkarnir eru einnig mjög frjáls-
legir í allri framkomu og ófeimnir
við að takast á við nýja hluti.“
Ingvar Ingvarsson er Húnvetn-
ingur að ætt en ólst upp á Akra-
nesi. Eftir að hann lauk kennara-
prófi 1968 starfaði hann í tvö ár
sem æskulýðs- og íþróttafulltrúa á
Akranesi, síðan var hann sveit-
arstjóri í Hrísey í tvö ár en hefur
kennt við Lundarskóla frá því
hann tók til starfa og kennir nú
handmennt og eðlisfræði.
„Mér finnst mjög gaman að
vinna með krökkunum sem eru
eins og ég sagði áðan bæði frjáls-
leg og ófeimin. Því er hinsvegar
ekki að neita að stundum verð ég
þreyttur, enda fylgir því hversu
frjáls og ófeimin krakkarnir eru
að það getur verið erfitt að stjóma
þeim. En þegar allt kemur til alls
er ekki hægt að segja en að þetta
sé mjög skemmtilegt starf og það
er alltaf verið að fást við nýja og
nýja hluti.“
Ingvar Ingvarsson.
!
i
Schiesser®
collection Sporting
Merkið
sem tryggir
7æðin
f