Dagur - 04.11.1982, Síða 8
Minningarorð
Snæbjöm Einarsson,
kennari
Eftir því sem lengra líður á ævina
förum við að finna oftar og sárar til
þess að vinir berast burt með tímans
straumi samkvæmt lögmáli lífsins.
Skyldmenni og vinir, sem okkur
fannst sjálfsagt að fylgdust með okk-
ur alla lífsleiðina, eru allt í einu
óvænt horfnir og í þeirra stað kemur
söknuður og tómleiki. Það er að vísu
sagt að maður komi í manns stað. En
mér hefur oft fundist þegar einhver,
sem var sérstæður og mikilsverður
persónuleiki hverfur úr samfylgd-
inni, að aldrei geti neinn komið full-
komlega í hans stað.
Og núna þegar Snæbjörn Einars-
son frændi minn er horfinn af sjónar-
sviðinu, finnst mér að enginn geti
komið í hans stað.
Fregnin um fráfall hans barst mér
að morgni föstudagsins 22. október í
vikunni sem leið. Ekki kom hún al-
gerlega að óvörum, því að Snæbjörn
hafði um langt árabil kennt van-
heilsu, sem var honum fjötur um fót,
þó að hann lengst af væri líkamlega
hress og andlega væri engan bilbug á
honum að finna.
Snæbjörn fæddist 25. október,
árið 1902, að Garði í Þistilfirði.
Hann skorti því aðeins þrjá daga
til að lifa sitt áttræðisafmæli, sem
hann hafði hugsað sér að yrði gleði-
dagur í hópi nánustu vandamanna og
góðra vina. Foreldrar hans voru Ein-
ar Einrsson og Björg Sigmundsdótt-
ir, ersíðar bjuggu í Garðstungu, sem
kallast mátti nýbýli í landi Garðs.
Árið 1920 andaðist Einar og þá
gerðist sú algenga saga fyrri ára, að
fjölskyldan dreifðist. Systkinin voru
fimm talsins, elstur var Einar, þá
Snæbjörn, sem var þá milli ferming-
ar og tvítugs, en yngri voru, Járnbrá,
Ingvar og Guðmundur. Járnbrá er
nú ein á lífi þeirra systkina.
Snæbjörn einn hleypti heimdrag-
anum að ráði. Hann var við nám í
Menntaskólanum á Akureyri vetur-
Olíuverslun íslands, OLÍS,
hefur opnað nýja verslun í
húsakynnum sínum við
Tryggvabraut. Að sögn Há-
konar Aðalsteinssonar mun
OLÍS hafa þar á boðstólum ým-
isskonar verkfæri og vörur til
bifreiða. Verslunin heitir
OLÍS-búðin.
inn 1921-1922 og lauk prófi úr 2.
bekk.
Á þeim árum voru naumast mögu-
leikar á að stunda framhaldsnám
fyrir aðra en þá, sem áttu kost á fjár-
hagslegum stuðningi frá foreldrum
eða öðrum ættingjum, en í þessu til-
felli var ekki um slíkt að ræða.
Snæbjörn stundaði nú um skeið
verslunarstörf á Akureyri og síðan
algenga vinnu í átthögunum. Vetur-
inn 1926-27 var hann við nám í
íþróttaskóla Jóns Þorsteinssonar.
Eftir það var hann við kennslu í átt-
högunum og hélt leikfiminámskeið á
Þórshöfn, Raufarhöfn og Húsavík.
Þá tók við farkennsla eða skóla-
stjórn og kenndi hann á eftirtöldum
stöðum misjafnlega lengi, Presthóla-
hreppi, Þistilfirði, Húsavík, Bú-
landsskólahéraði, Kaldrananess-
skóla í Strandasýslu og lengst á
Raufarhöfn.
Þar starfaði hann á skrifstofu
Kaupfélagsins um sex ára skeið, en
hóf síðan aftur kennslustörf við
Raufarhafnarskóla.
Árið 1951 kvæntist Snæbjörn
Eriku Stakalies, sem fædd var í
Austur-Prússlandi árið 1923. Börn
þeirra eru, Ingvar Guðmundur, Ein-
ar Friðrik, Fannlaug Svala, Guðjón
Sigurður, og Snæbjörn, sem fórst af
slysförum á barnsaldri. Öll eru þau
manndóms og dugnaðarfólk, og eru
búsett í Hafnarfirði þar sem Snæ-
björn og Eirika hafa búið síðustu
árin.
Snæbirni var margt vel gefið meira
en almennt gerist. Hann var góður
íþróttamaður og mikill áhugamaður
á því sviði. íþróttaandinn fylgdi hon-
um í starfi ævilangt. Hann var gædd-
ur tónlistargáfu og ríkulegum áhuga
í þeirri grein. Þar sem hann var við
kennslu stofnaði hann kóra bæði
barna og fullorðinna, einnig kvart-
etta. Hann var hljóðfæraleikari af lífi
Þar að auki er hægt að fá margs-
konar þakþéttiefni, límbönd,
gaskúta og steinolíuofna svo eitt-
hvað sé nefnt. „Við munum koma
með ýmislegt nýtt í verslunina á
næstu dögum,“ sagði Hákon þeg-
ar rætt var við hann fyrir helgi.
og sál og marga stundina lífgaði hann
tilveruna með söng og hljóðfæraleik
þar sem hann var gestkomandi.
Hann var skáldmæltur vel og gaf
út ljóðabók árið 1955 og nefndist
hún, Ber þú mig, þrá. Þannig hefst
æskuljóð, sem hann orti um þær
mundir, sem hann var við nám í
Reykjavík og túlkar það fyrst og
fremst heimþrá, átthagatryggð og
saknaðarkennd. Þetta ljóð varð
þjóðkunnugt og mikið sungið bæði
af kórum og kvartettum og einnig
almenningi, undir laginu. Old Virg-
inny, eftir James Blond. Öll ljóð
Snæbjarnar bera vott um viðkvæmt
og ákaft tilfinningalíf. Hann bjó
yfir ríkum metnaði og skaphita.
Þess gætti þó ekki mikið í sambúð-
inni við aðra, því að réttlætiskennd
hans og sáttfýsi brást ekki.
Veturinn 1923-24 þegar Snæbjörn
var kennari í Þistilfirði, stóð hann
fyrir því að endurreisa Ungmenna-
félag sveitarinnar. Hann veitti því
síðan forstöðu og gaf út á vegum þess
handskrifað blað.
Snæbjörn var röskur og laginn
Það var árla morguns fimmtudaginn
21. október, að dimmt él gekk yfir
Villingadal, í þann mund sem hús-
bóndinn, Jón Hjálmarsson, var að
búast til brottferðar. Hann hafði
jafnan haft það fyrir venju að taka
daginn snemma, ekki síst þá ferð var
í vændum, en för skyldi aldrei frest-
að þegar skyldan kallaði, þó að él
væru dimmn eða þung færð á vegin-
um. Þessari för varð heldur ekki
frestað. Áður en dagur var á lofti,
var Jón allur.
Við sem höfum þekkt Jón Hjálm-
arsson og haft samskipti við hann allt
frá allra fyrstu bernskudögum,
finnum best, þegar svona snögg um-
skipti hafa orðið, hversu stórt skarð
hann skilur eftir sig.
Gamlir nemendur minnast hans
sem ágæts kennara og hve mikill félagi
hann var í námi og leik. Þá var ekki
venja að kennarar fylgdu nemendum
eftir í frímínútum eða utan skóla-
tíma. Við minnumst hve frímínút-
urnar voru vel notaðar í boltaleikj-
um og ekki síður þegar skautarnir
voru teknir fram eftir skólatíma og
ísinn dunaði af umferð glaðværrar
æsku sem naut hvetjandi foringja.
Jón var um árabil formaður í
Bindindisfélginu „Dalbúinn" í Saur-
bæjarhreppi. Á þeim árum var mikið
líf í þeim félagsskap og undu ung-
lingarnir hag sínu vel - án bíla - í sam-
veru við hest sinn í ríki náttúrunnar í
byggð og til dala. Sumarmorgnarnir
voru vel notaðir þegar tækifæri gafst
frá heyönnum. Jón var bindindis-
maður alla tíð og taldi að sérhver
æskumaður ætti að forðast neyslu á-
fengis og annarra eiturlyfja og einnig
að það væri göfug viðleitni að bind-
ast samtökum sem stuðluðu að vel-
ferð æskulýðsins.
Þegar ungmennafélögin við Eyja-
fjörð felldu bindindisákvæðið úr
samþykktum sínum sagði hann skil-
ið við félagsskapinn í mótmælaskyni
við þá ákvörðun. Hann var alltaf
sjálfum sér samkvæmur, en þrátt
fyrir þetta var hann alltaf talsmaður
hreyfingarinnar og hvetjandi fyrir
málefnum hennar.
Það yrði langt mál að rekja allan
félagsmálaferil Jóns Hjálmarssonar
og verður það ekki gert í þessum
kveðjuorðum, en alltaf var hann
virtur í félagi ogstarfi og jafnan kjör-
inn til ábyrgðar á einn eða annan
hátt. Hann yfirvegaði afstöðu sína til
mála af gaumgæfni og fylgdi þeim
eftir í samræmi við sannfæringu sína
og samvisku.
starfsmaður að hvaða starfi, sem
hann gekk, og samviskusamur í allra
besta lagi.
Sú fjölhæfni, sem hann var gæddur
gerði honum fært að hagnýta svo vel
þá stopulu menntun, sem hann naut,
að einstakt má teljast.
Geta má nærri hvað það hefur
komið sér vel í afskekktum skóla-
hverfum þegar kennarinn gat kennt
bæði söng og leikfimi með öllum öðr-
um námsgreinum. f viðræðum var
Snæbjörn líflegur og kom víða við.
Kímnigáfa hans var næm og ósvik-
in. Allir, sem höfðu af honum kynni
munu viðurkenna að hann var ein-
staklega lífrænn maður, bæði í leik
og starfi. Og þeir, sem þekktu hann
best, munu hafa látið sér skiljast að
hann var heill í gleði og harmi. Þó að
Jón í Villingadal var gæddur góðu
búmannseðli. Hann sagði eitt sinn,
að bóndinn þyrfti að kappkosta
þrennt: Að fara vel með jörðina
sína, að fara vel með skepnurnar
sfnar og fara vel með sjálfan sig.
Tvennt það fyrsta rækti hann með
prýði, en sjálfum sér vildi hann
gieyma. Starfsemi atorkumannsins
ofgerði líkamsþrekinu. Þess vegna
varð hann þreyttur og slitinn fyrir
aldur fram. Á yngri árum var Jón
þrekgóður og fylginn sér svo orð fór
af. Hann sagði - og má telja það kjör-
orð hans - að maður skyldi ganga að
hverju verki og starfi „með oddi og
egg“-
Einn þáttur í ræktunar - og félags-
málastarfi Jóns skal tilgreindur hér.
Þegar skógræktaráhugi endurvakn-
aði upp úr 1950, gerðist Jón virkur
skógræktarmaður og hefur síðan
plantað miklum fjölda trjáa. Þrátt
fyrir það að land hans liggur við efstu
mörk þess sem þykir vænlegt til
skógræktar, þá eru mörg tré á góðu
þroskastigi þar. Það hefur verið
eftirtektarvert, að þar sem ungtrján-
um hefur verið plantað þétt, verður
vöxtur þeirra öruggari. Þetta mætti
skoða sem táknrænt dæmi þess, að
þar sem lífsbaráttan er hörð gildir
náin samstaða. Trén hans Jóns halda
áfram að vaxa og vitna um trú rækt-
unarmannsins á gróðurmátt moldar-
innar.
Jón í Dal - en svo kölluðum við
hann stundum - var góður nágranni,
hollráður og hjálpsamur. Maður átti
hann vísan sem „hauk í horni“.
Hann hafði góða yfirsýn yfir samfé-
lagið, hann mundi sex ættliði og átti
þar ónotað gott hugðarefni til að
vinna úr, ef tími hefði gefist. Ýmsu
kom hann þó til skila af þjóðlegum
fróðleik sem fengur er í.
kynni okkur Snæbjarnar hafi verið
margvfsleg, er mér hann nú á þessari
stundu minnisstæðastur eins og hann
var á æskuárunum, og mér finnst ein-
hvern veginn að hann hafi átt miklu
fleiri æskuár en aðrir, sem ég hefi átt
samleið með. Mér er efst í minni
þegar hann var að koma sem gestur á
æskuheimili mitt, að þá kom hann
ávallt færandi hendi.
Ekki var hann fyrr kominn inn
fyrir dyr, en að hann var sestur við
hljóðfærið og lék og söng ný og
skemmtileg danslög eða aðra
söngva, sem ekki var lítilsvert að
læra, og stundum fylgdu þeim er-
lendir textar.
Hann lék einnig algeng lög, sem
við kunnum, en oft í eigin útsetn-
ingu, sem gæddi þau nýju lífi og
heitri tilfinningu.
Síðan var oft brugðið á leik úti við,
og þá mátti búast við einhverjum
nýjungum í íþróttaiðkun eða öðrum
leikjum.
Að því loknu gátu hafist umræður
í baðstofuni, og þær gátu staðið fram
á nóttina án þess að okkur leiddist.
Ég veit að margir minnast Snæ-
bjarnar með hlýjum huga og þakk-
Iátum.
Ég og fjölskylda mín erum honum
þakklát vegna þeirrar hlýju og
tryggðar, sem hann bar til okkar, og
þeirra góðu minninga sem við eigum
frá samverustundum með honum,
fyrr og síðar. Fjölskyldu hans send-
um við innilegar samúðarkveðjur á
þessum dögum saknaðar og trega.
Einar Kristjánsson.
É1 morgunsins gekk yfir um há-
degi, þá gerði skýjarof, haustsólin
varpaði ljóma sínum á snæviskrýdd
fjöllin: Galtárhnjúk, Leyningsöxl,
Bungur og Tröllshöfða. Það er fögur
sjón fyrir þann, sem gæddur er átt-
hagatryggð. Fyrir ferðalanginn er
heiðríkjan heillandi. Fjarlægðar-
bláminn er kannski bil milli heima -
eða - vísleggjast tilverustigin ef til vill
með aðeins mismunandi bylgju-
tíðni?
Ég og fjölskylda mín þökkum þér,
Jón, að leiðarlokum samfylgdina og
alla vináttu. Við óskum þér góðrar
ferðar til nýrra heimkynna. Við
sendum þér, Hólmfríður, börnum
ykkar, systkinum Jóns og öðrum ætt-
ingjum hans innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að blessa
ykkur minningarnar.
Sigurður Jósefsson.
Jón Hjálmarsson frá Villingadal er
látinn. Það áfall verða ættingjar hans
og vinir að komast yfir. Okkur öllum
sem áttum því láni að fagna að kynn-
ast hógværum mannkostum hans, er
nú harmur í huga. Djúphygli,
drengskapur, gáfur og sá eiginleiki
hans að vinna öllum málum af heil-
um hug öfluðu honum trausts og
virðingar langt umfram flesta sam-
ferðamenn.
Fjölhæfni hans til verka var með
fádæmum. Hvort heldur unnin voru
hin grófustu bústörf, viðkvæm fé-
lagsmál eða sest að skriftum ef tóm
gafst og gömlum sögnum breytt í
skrásettar glitrandi stílperlur - alls
staðar risu hæfileikar hans upp úr því
venjulega.
Dagstund í eldhúsinu hjá Jóni og
Fríðu var oft eins og langur skóli í
því að sjá sjálfan sig sem ábyrgan
þegn í okkar litla samfélagi. Það
jafnvægi hugar og handa sem ríkti á
Villingadalsheimilinu var okkur,
sem getum gengið þar um hús sem
okkar eigin, mikið umhugsunarefni.
Af engum var betra að þiggja ráð
enda oft eftir þeim leitað. Nú er úti
sú tíð.
Kæri vinur, þú er nú horfinn „ann-
að að starfa" en við stöndum eftir
hnípin og hljóð og biðjum þann guð
sem öllu ræður um styrk ástvinum
þínum til handa. í hugum okkar,
sem nutum vináttu þinnar, mun
minningin um glaðværa drenglund
þína lifa uns röðin kemur að okkur,
hverju og einu, að lúta lögmáli alls
þess er lifir.
Pétur Brynjólfsson.
Bókauppboð
Laugardag 6. nóv. kl. T4.00 verður haldið bóka-
uppboð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Uppboðsskrá
liggur frammi í fornbókaversluninni Fróða, Geisla-
götu 1, þarsem bækurnar verða tilsýnis.
Uppboðshaldarar:
Bárður Halldórsson/Jón G. Sólnes.
Þessir munu verða viðskiptavinum innan handar: F.v. Hákon Aðalsteinsson,
Páll Tryggvason og Einar Jónsson. Mynd: áþ.
OLÍS opnar verslun
Minning
Jón Hjálmarsson, Villingadal
;8~t3AGUR-4Ýnóvemfc>er1982