Dagur - 04.11.1982, Blaðsíða 12
Valdimar Pétursson.
Nýtt
skipu-
lag
„Það er rétt að Hagvangur
gerði úttekt á stjórnun og
skipulagi Sjálfsbjargar á Akur-
eyri. Við fengum ákveðna
punkta um það hvernig stjórnin
ætti að vera í Bjargi og nú er
unnið að því að koma á nýju
skipulagi,“ sagði Stefán Arna-
son, varaformaður Sjálfsbjarg-
ar á Akureyri. „Það var nauð-
synlegt að fá fram ákveðnar
breytingar eftir að starfsemin
flutti út í Glerárhverfi. Umsvifln
jukust mikið og það var ástæð-
an fyrir því að við báðum um
þessa úttekt.“
Stefán sagði að í tillögum Hag-
vangs væri t.d. gert ráð fyrir að
ráðinn yrði framkvæmdastjóri
fyrir Sjálfsbjörg og allt það sem
færi fram í húsinu. „Þessi fram-
kvæmdastjóri mun hafa alla
starfsemina í sínum höndum. Við
erum búin að ráða Valdimar Pét-
ursson í starfið og hann byrjar um
áramótin," sagði Stefán og gat
þess um leið að hann teldi ekki
ástæðu til að fjalla nánar um til-
lögur Hagvangs.
„Við eigum eftir að byggja
mikiðenn. ínæsta áfangaersund-
laug og íþróttasalur, þar sem ætl-
unin er að vera með fyrir-
byggjandi meðferð. Ég vona að
framkvæmdir geti hafist næsta
vor.“ Aðspurður sagði Stefán að
töluvert hefði dregið úr fjárfram-
lögum til byggingarinnar, en svo
virðist vera sem einstaka félög
hafi fengið það á tilfinninguna að
byggingarframkvæmdum sé
lokið, sem er síður en svo tilfellið.
Umferð
leyfð
áný
„Þegar framkvæmdum við
Hafnarstræti lýkur, telur
nefndin eðlilegt að umferð
verði leyfð um götuna, þar til
hellulögn hefst,“ segir í sam-
þykkt sem umferðarnefnd
gerði fyrir skömmu. „Verði
tæknideild falið í samráði við
lögreglu að gera nauðsynlegar
ráðstafanir vegna gangandi og
akandi umferðar. Bifreiða-
stæði verði hönnuð í götunni.
Umferð í miðbænum verði að
öðru leyti óbreytt.“
230 lök og 100 sængurver
saumuð í Systraseli
Undanfarna daga hafa konur í
Kvennasambandi Akureyrar
unnið við að sauma rúmfatnað
og handklæði fyrir Systrasel. Ef
að líkum lætur munu þær hafa
lokið saumaskapnum í gær en
vinnan hófst um s.I. helgi.
Þetta er framlag Kvennasam-
bands Akureyrar til „vinnu-
vökunnar“ sem Kvenfélaga-
samband Akureyrar hvatti að-
ildarfélög sín til að taka þátt í.
AU mörg kvenfélög útbjuggu
muni og seldu á basar, en
Kvennasamband Akureyrar
taldi að kraftar meðlimanna
nýttust best við skaumaskap í
Systraseli.
Margrét Kröyer, gjaldkeri
K.S.A, sagði að saumakonurnar
hefðu verið beðnar um að sauma
230 lök 100 sængurver og ótil-
greindan fjölda handklæða. „Við
höfum skipst á um að koma, en
sumar hafa verið alla dagana,“
sagði Margrét er Dagur ræddi við
hana. „Þærkonursemhafakomið
og saumað eru allar í einhverju af
þeim fjórum kvenfélögum sem
starfa á Akureyri, en þau eru svo
aftur aðilar að Kvennasambandi
Akureyrar. Að meðaltali hafa
verið þarna 10 konur á hverjum
degi og stundum 12. Þetta hefur
verið mjög ánægjulegt samstarf,
enda vitum við vel að með því
erum við að gera gagn. Ef við
hefðum ekki tekið þetta að okkur
hefði saumastofa sjúkrahússins
þurft að annast þennan sauma-
skap.“
Margrét sagði að þegar kven-
félagakonurnar hefðu spurt sjálfa
sig hvernig þær gætu best stutt
við bakið á öldruðum, en þangað
átti væntanlegur ágóði af „vinnu-
vökunni" að renna, hefðu þær
valið að sauma í Systraseli. Mar-
grét sagði að það væri með öllu
óvíst hvort basar eða eitthvað
þ.h. hefði gefið nokkuð í aðra
hönd á Akureyri enda væru fjöl-
mörg félög með slíkar uppákom-
ur um helgar.
Það ríkti líf og fjör í saumasaln-
um í Systraseli er ljósmyndari
blaðsins leit við í fyrradag.
Saumavélar suðuðu og á borði í
miðjum salnum voru ágætis klein-
ur. Frammi á gangi voru iðnað-
armenn önnum kafnir enda er ætl-
unin að taka Systrasel f notkun
síðar í þessum mánuði.
Þær voru að sauma er Ijósmyndara Dags bar að garði. F.v.: Droplaug, Laufey, Jónína, Hrefna, Kristjana,
Júdit og Margrét. Mynd:aþ.
.. Nýjabíó:
Ollum sagt upp
Búið er að segja upp öllu starfs-
fólki Nýja bíós frá og með 1.
febrúar 1983. í uppsagnarbréf-
unum kemur fram að ástæðan
er rekstrarerfiðleikar. AIIs
Ný glæsileg brú yfir Svarfaðar-
dalsá við Dalvík hefur verið
tekin í notkun og leysir hún af
hólmi gamla brú sem var að
niðurlotum komin.
Framkvæmdir við nýju brúna
hófust árið 1980 en þá voru ramm-
aðar niður undirstöður. Stöplar
voru steyptir í fyrra og í sumar var
brúin steypt upp og endanlega
starfa 12 manns í Nýja bíói á
tvískiptum vöktum, auk nokk-
urra ræstingakvenna. Bíógest-
um hefur fækkað mikið á
undanförnum mánuðum.
lokið við frágang hennar. Nýja
brúin er um 85 metrar að lengd,
tvær akreinar og auk þess gang-
stígur öðrumegin. Brúin kemur í
boga í beinu framhaldi af vegin-
um og halli er á henni eins og á
veginum sem að henni liggur.
Gamla brúin sem nú fær hvíldina
hefur þjónað sínu hlutverki vel,
en hún var byggð árið 1929.
# Fasteigna-
verð hækkar
I nýútkomnu fréttabréfi Fast-
eignamats ríkisins kemur
fram að fasteignaverð hækk-
aði frá 1. okt. 1981 til sama
tíma þess árs meira en dæmi
eru til um áður. Þetta á við all-
ar gerðir fasteigna þótt hækk-
unin hafi verið breytileg eftir
tegundum og landshlutum.
Byggingarkostnaður hækk-
aði á þessu tímabili um 64,1 %
og hefur hækkunin aldrei ver-
ið meiri á þessu tímabili frá
því Fasteignamatið tók til
starfa 1976. Árin 1977-1981
nam hækkunin nálægt 50%
öll árin. íbúðir í fjölbýlishús-
um hækkuðu hlutfallslega
mest, um 88% yfir árið.
# Hver fermetri
á 10.600
Frá 1978 hefur verð íbúða á
höfuðborgarsvæðinu hækk-
að um nálægt 40% umfram
byggingarkostnað, en utan
þess svæðis hefur íbúðaverð
aftur á móti fylgt hækkun
byggingarkostnaðar nokkuð
vel. í september sl. kostaði
hver fermetri í íbúð í fjölbýlis-
húsi í Reykjavfk 10.600 kr. Þá
er miðað við að íbúðin sé
greidd á einu ári. Samkvæmt
útreikningum Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðar-
ins, sem er grundvöllur vísi-
tölu byggingarkostnaðar,
kostaði fermetrinn 8.900 kr. í
okt. Sameign er sieppt í
báðum tilfellum. Þessar tölur
benda eindregið til þess að
íbúðir í fjölbýlishúsum seijist
nú yfir byggingarkostnaði.
# Rauðahúsið
fjarlægt
Bæjarráði barst á dögunum
bréf frá framkvæmdanefnd
félagsheimilisbyggingar
verkalýðsfélaganna á Akur-
eyri. Þar kemur fram að verka-
lýðsfélögin á Akureyri hafa
fest kaup á húseignunum við
Skipagötu 14 (þvottahúsið)
og hafa ákveðið að hefja þar
byggingu félagsheimilis
næsta vor. Þess varfarið á leit
i bréfinu að ráðstafanir verði
gerðar til þess að flytja
„Rauða húsið“ af lóðinni nr.
16 við Skipagötu svo það
standi ekki í vegi fyrir bygg-
ingarframkvæmdum. Bæjar-
ráð lagði til vegna þessa bréfs
og væntanlegrar gönguleiðar
milli Skipagötu og Hafnar-
strætis að Rauða húsið verði
fjarlægt af lóð sinni og að
leigu á húsinu verði sagt upp
miðað við 1. apríl 1983.
Hér má sjá hreppstjóra Svarfaðardalshrepps, Hjört Þórarinsson og Svein
Brynjólfsson vegavinnuverkstjóra á gangbrautinni yfir hina nýju brú.
Mynd: Rögnv.
Nýbrúá
Svarfaðardalsá