Dagur - 09.11.1982, Síða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMKMR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 9. nóvember 1982
124. tölublað
Þelameriomleilaii:
Skólastjóri
og kennari
í leyfi
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa verið nokkrar væríngar í
Þelamerkurskóla í Hörgárdal
milli skólastjórans annarsvegar
og hluta kennaraliðsins hins
vegar. Samkvæmt upplýsing-
um blaðsins er búið að gefa ein-
um kennaranum leyfi um
óákveðinn tíma og skólastjór-
inn er einnig í leyfi að eigin ósk.
Málið er í höndum Ingvars
Gíslasonar menntamálaráð-
herra.
Samkvæmt upplýsingum Dags
kom fulltrúi menntamálaráðu-
neytisins norður og í framhaldi af
skýrslu hans sagði skólastjórinn,
Sturla Kristjánsson, upp starfi en
lagði fram skömmu síðar bréf þar
sem hann afturkallaði uppsögn-
ina. Þegar skólanefnd fjallaði um
málið samþykkti hún með fjórum
atkvæðum gegn þremur að taka
uppsögnina til greina, en hafnaði
þar með að taka afturköllunar-
bréfið til greina. Ráðherra hefur
staðfest þessa samþykkt skóla-
nefndarinnar, en hann hefur einn-
ig veitt einum kennaranna, Kjart-
ani Heiðberg, leyfi frá störfum á
meðan málið er í athugun.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma mun Sturla Kristjánsson
láta af skólastjórn um áramótin.
Með öllu er óvíst hver tekur við
starfinu, en ekki mun nauðsynlegt
að auglýsa stöðuna lausa til um-
sóknar í vetur a.m.k. Búið er að
fá forfallakennara í stað Kjartans
og Pétur Þórarinsson, prestur á
Möðruvöllum, gegnir nú starfi
skólastjóra.
Það er með öllu ómögulegt að
rekja þær deilur sem hafa risið á
Þelamörk, enda sýnist sitt hverj-
um í þeim efnum. „Þrátt fyrir
deilurnar virðist skólastarfið
ganga vel. Krakkarnir leiða þær
hjá sér og það skiptir e.t.v. mestu
máli,“ sagði einn viðmælenda
blaðsins í gær.
Mjög hált
í morgun
Klukkan rúmlega átta í morgun
hafði enginn árekstur verið til-
kynntur til lögreglunnar á Akur-
eyri þrátt fyrir mikla hálku á göt-
um bæjarins. Páll Rist lögreglu-
maður sagði að ökumenn hefðu
ekið mjög gætilega, en Ijóst væri
af bílum sem hefðu stöðvast
vegna hálkunnar að fjöldi bfla
værí enn vanbúinn til vetrar-
aksturs. Páll þakkaði það litlum
hraða að ekki var búið að tilkynna
árekstur til lögreglunnar, en hann
sagði jafnframt að búast mætti við
slíkum tilynningum með betri
færð og auknum hraða.
Skátastarf á Akureyri hefúr löngum verið blómlegt og hundruð unglinga hafa sótt í það þrek og þor. Þessir ungu menn
voru á ferðalagi um Vaðlaskóg er Ijósmyndari Dags hitti þá. Þeir sögðu honum jafnframt að þeir hefðu verið að klifra í
klettum og að það hefði gengið ágætlega. Mynd: áþ.
Fisksteikur framleidd-
ar á Dalvík og í Hrísey?
Svo sem kunnugt er af fréttum er hafin framleiðsla á fiskborgurum,
öðru nafni fisksteikum, hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur í samvinnu
við Sjávarafurðadeild SÍS og Iceland seafood Corp. í Bandaríkjun-
um. Þessi tilraunaframleiðsla gæti verið byrjunin á frekari fram-
leiðslu á vegum frystihúsa sem selja í gegnum sjávarafurðadeild-
ina. Framleiðslan á Húsavík lofar góðu og að undanförnu hefur
það verið í athugun að hefja framleiðslu á fisksteikum á Dalvík og
Hrísey.
Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri, sagði að ef ákvörðun yrði
tekin um að hefja framleiðsluna
væri nauðsynlegt að kaupa laus-
frystiklefa og mótunarvélar.
Hann sagði jafnframt að flest
benti til þess að ákveðið yrði ein-
hvern næstu daga að festa kaup á
vélunum og koma framleiðslunni
af stað. „Mikill hluti þess fisks
sem hefur farið í blokk mun fara í
þessar fisksteikur, en auk þess
geta lausfrystiklefarnir nýst fyrir
ýmislegt annað an fisksteikurnar.
í því sambandi má nefna kola- og
karfaflök, en með lausfrystingu á
þessum afurðum má fá hærra verð
fyrir þær en séu þær frystar á hefð-
bundinn hátt.“
Að sjálfsögðu mun markaður-
inn stjórna því hve framleiðslan
verður mikil, en þeir lausfrysti-
klefar sem talað er um að kaupa
geta fryst 500 kg á klst. Fisksteik-
urnar verða mótaðar og lausfryst-
ar hér á landi en verður ekki dýft í
eggjaídýfu eða brauðmylsnu.
Valur sagði að til greina kæmi að
fisksteikurnar hlytu endanlega
meðferð hjá dótturfyrirtæki SÍS í
Bandaríkjunum eða að þær yrðu
seldar beint til stórra kaupenda
sem önnuðust sjálfir endanlega
meðferð.
Búnaðarbankinn:
Gaf 100
þúsund
til Systra-
sels
í tilefni opnunar útibús Búnað-
arbankans í nýju verslunarmið-
stöðinni í Sunnuhlíð á fimmtu-
dag í síðustu viku afhenti
Magnús Jónsson, aðalbanka-
stjórí Búnaðarbankans, Jóni
Kristinssyni fyrir hönd Systra-
sels sparisjóðsbók með 100
þúsund krónum.
Kom fram í ræðu sem Magnús
flutti við opnun útibúsins að Bún-
aðarbankinn hefði ávallt látið
eitthvert fé af hendi rakna til
mannúðar- eða menningarmála
þegar nýtt húsnæði hefur verið
tekið í notkun.
í útibúi Búnaðarbankans í
Sunnuhlíð verða öll innlend
bankaviðskipti. Starfsaðstaða í
nýja útibúinu er mjög góð, en þar
verða þrír starfsmenn til að byrja
með. Utibússtjóri er Ólafur Héð-
insson.
Þess má geta að viðskiptavinir
bankans geta fengið leigð
geymsluhólf undir verðmæti, s.s.
skuldabréf, skartgripi eða annað
sem fólk vill ógjarnan geyma
heima við. Hólfin eru af tveimur
stærðum og er ársleigan 60 og 90
krónur.
Vegagerð
fyrir
400 þús.
8. nóvember.
í sumar vann Vegagerð ríkisins að
vegabótum í Hrísey. Unnið var
fyrir það fé sem skipulagsnefnd
vegamála hafði áætlað fyrir Hrís-
eyjarhrepp tvo samfalíandi ár,
samtals um 400 þúsund krónur.
Vissulega ber að þakka þetta
framtak nýju hreppsnefndarinnar
sem sýnt hefur eldmóð og áhuga í
samgöngumálum Hríseyinga. S.A,
Réttast að byggja nýja
sundlaug hjá þeirri gömlu?
Innan skamms mun Haukur
Berg, sundlaugarstjórí, leggja
fram tillögu þess efnis í íþrótta-
ráði að byggð verði ný sundlaug
sunnan við þá sem fyrir er hjá
Sundlaug Akureyrar. Ef byggð
yrði laug á þessum stað gæti
almenningur komist í sund á
hvaða tíma sem er á veturna, en
eins og málum er háttað í dag
eru skólabörn nær allan daginn
í sundlauginni. Nú er aðstaða
til að taka á móti u.þ.b. 400
manns í búningsklefa S.A. svo
ekki þyrfti að koma til breyting
á þeim ef önnur laug yrði
byggð. Síðar í vetur verður
e.t.v. komið upp Ijósalömpum í
kjallara hússins.
Haukur sagði að í dag mætti
segja að unglingar kæmu oft í veg
fyrir að fullorðið fólk gæti synt.
„Krakkarnir eru að leika sér og
það er erfitt eða ómögulegt að
banna þeim það,“ sagði Haukur,
„en hitt er jafn ljóst að fullorðna
fólkið vill oft synda en getur það
tæpast. Með tveimur laugum yrði
þetta vandamál yfirstigið."
Um þessar mundir er verið að
endurskoða kostnaðaráætlun, en
í fyrra var gert ráð fyrir að ný laug
eins og lagt er til að verði byggð
kostaði um 900 þúsund. „Ég er að
tala um laug sem er 25x11 m.
Fyrstu 15 metrana yrði hún 90 cm
djúp, en þá hef ég látið mér til
hugar koma að kæmi 25 cm dýpi.
Það væri tilvalið að hafa grind-
verk á upphækkuninni til þess að
litlu börnin geti svamlað á grynn-
inu án þess að hætta væri á að þau
færu sér að voða. Ég hef líka látið
mér detta í hug að setja þar tvær
rennibrautir svo krakkarnir geti
rennt sér út í laugina. Ef við fáum
þessa laug ætti að skapast mun
meiri friður fyrir fullorðna í stóru
lauginni.“
„Já, aðstaðan innan dyra nægir
vel fyrir tvær útilaugar. Það er
búið að gera hér breytingar sem
gera það að verkum,“ sagði
Haukur, „en svo erum við líka að
athuga þann möguleika að setja
upp ljósalampa, sem eru mjög
vinsælir í dag. Sömuleiðis erum
við að athuga þann möguleika að
útbúa „mini-golf“ vestan við
húsið. Svona „mini-golf“ nýtur
mikilla vinsælda erlendis og ég
vona að við getum komið því upp
næsta sumar.