Dagur - 09.11.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 09.11.1982, Blaðsíða 9
Tveir stórsigrar Þórs 114:76 Síðari leikurinn var leikinn kl. 11 f.h. á sunnudag vegna rafmagns- leysis eftir hádegið og var ekki annað að sjá en Þórsarar kynnu því ve! að spila á þessum tíma. Nú var allt annar bragur á íeik liðsins en fyrri daginn, vörnin mjög vel á verði og hraðaupphlaupum óspart beitt. Pó var strögl fyrstu 10 mínúturnar en eftir það var um einstefnu að ræða og staðan breyttist úr 14:11 í 30:16 og f'hálf- leik 50:30. Sömu yfirburðirnir voru í síðari háifleiknum og lokatölurnar 114:76 tala sínu máli um Þórsliðið sem lék mjög góðan leik. Þótt McField skoraði 63 af stigum liðs- ins stóðu allir sig vel og skiluðu sínu. Eiríkur skoraði nú 11 stig og þeir Björn Sveinsson, Valdimar Júlíusson og Jóhann Sigurðsson 10 stig hver, Ríkharður Lúðvíks- son 6 og Guðmundur Björnsson 4. Þórsarar geta verið ánægðir með þessi fjögur stig og þá sér- staklega með síðari leikinn sem var besti leikur liðsins á keppnis- tímabilinu. Vörnin mjög góð, hraðaupphlaupin beitt og nýting úr þeim góð. í liðið vantaði Jón Héðinsson og Konráð Óskarsson af fastamönnum liðsins en það kom ekki að sök. Robert McField kom úr þessari ferð með 110 stig og sýnir það hversu snjall leikmaður er hér á ferðinni. Þó er eigingirni hans ekki áberandi, heldur reynir hann að spila menn uppi. En hann tek- ur mörg skot í hverjum leik, og því ekki þar sem nýting hans er mjög góð? Þórsarar hafa nú hlotið 10 stig í 1. deildinni af 14 mögulegum. Liðið hefur tapað fyrir Haukum og ÍS en með góðum leik er greini- legt að bæði þessi lið geta legið fyrir Þór á góðum degi. Næsti leikur Þórs er einmitt hér á Akur- eyri gegn ÍS og verður fróðlegt að fylgjast með þeirri viðureign. Enn um nýju íþróttahöllina Þórsarar gerðu góða ferð til Borgarness um helgina, en þá lék liðið þar tvo leiki í 1. deild- inni í körfuknattleik gegn UMFS. Fyrirfram var talað um tvísýna leiki en raunin varð önnur og Þór vann yfir- burðasigur í báðum leikjun- um. Þórsararnir tóku strax í fyrri leiknum forustuna, komust í 12:4 og höfðu yfir í hálfleik 45:39. Var vörnin höfuðverkur- inn í fyrri hálfleik. Munurinn á liðunum jókst síðan strax í upp- hafi síðari hálfleiksins, sjá mátti tölur eins og 63:47 og 79:59 og rétt fyrir leikslok var staðan 91:67. Þá kom slæmur kafli og Borgnesingarnir náðu að lag- færa stöðuna. Lokatöiur urðu 93:79. McField skoraði langmest fyrir Þórsara, eða 47 stig, Eirík- ur Sigurðsson 18 og Valdimar Júlíusson 11. Komust í 14-6 en töpuðu samt KA lék tvo leiki um helgina í fyrstu deild kvenna í blaki. Andstæðingarnir voru IS, en það er eins og karlaliðið að mestu skipað gömlum nem- endum í MA. Fyrri leikurinn var á föstu- dagskvöldið í íþróttaskemm- unni. Nokkur byrjendabragur var á leik KA-stúlknanna til að byrja með, en þær töpuðu fyrstu hrinunni 15—4. Þær náðu sér hins vegar aðeins á strik í næstu hrinu, en hún fór 15-10. ÍS sigr- aði síðan í þeirri þriðju með 15- 7 og sigraði því í leiknum með þremur hrinum gegn engri. Næsti leikur var síðan á laug- ardaginn, en hann fór fram f íþróttahúsinu í Glerárhverfi. Nú náðu KA-stelpurnar sér á strik og náðu fljótlega yfirburðastöðu í fyrstu hrinunni. Þær komust í 4-0 og síðan í 10-4. Síðan kom- ust þær í 14-6 og vantaði þá að- eins eitt stig til að tryggja sér sig- ur í hrinunni. Það gekk hins veg- ar mjög illa og smám saman söx- uðu IS-stúlkurnar á forskotið og þrátt fyrir það að uppgjafirnar gengju á milli liðanna, náðu KA-stelpurnar ekki að tryggja sér þetta eina stig sem vantaði og ÍS sigraði því með 16-14. Eftir þessa lotu var eins og all- ur vindur væri úr norðanmönn- um, en þær töpuðu næstu hrin- um 15-11 og 15—4. Þrátt fyrir að ÍS sigraði í báðum leikjunum er ekki svo ýkja mikill munur á þessum liðum, en í liði ÍS er t.d. ein þýsk stúlka sem er mjög góð og heldur liði sínu saman. Það sem virðist vanta hjá KA-stúlk- unum er meiri harka í sóknina, en taka vel á móti boltanum og spila honum vel upp, en það vantar herslumuninn, meiri hörku í sóknina. Blaðamaður íþróttasíðunnar hefur verið tíður gestur í íþróttahöllinni hinni nýju, en um helgina hafa sérfræðingar frá Hollandi og Reykjavík verið að vinna við að leggja sérstakt “slitlag“ á gólfið. Það er einnig lagt á baðganginn og áhaldageymslurnar beggja megin salarins. Þessu verki hefur miðað vel áfram og húsið verður glæsilegra og glæsilegra með hverjum deg- inum sem líður. Lýsing er mjög góð, búið að klæða báða stafna, mála veggi salarins svo eitthvað sé nefnt. Ekki er opnunardagur ákveð- inn, en þó er haldið sig við næstu mánaðarmót. Þá standa yfir samningar við HSÍ um landsleik við Dani milli jóla og nýárs og vonandi komast þeir samningar í höfn, þannig að við Akureyr- ingar eygjum langþráðan draum að sjá alvörulandsleik í hand- knattleik hér á Akureyri. Öruggt hjá IS Karla- og kvennalið ÍS gerðu góða ferð norður yfír heiðar um helgina. Karlaliðið keppti fyrst við lið Bjarma í Fnjóska- dal á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram eystra. í fyrstu hrinunni stóðu Fnjóskdælir nokkuð í stúdent- um, en þeirri hrinu lauk með 15 stigum gegn 12. Síðan tóku stú- dentar leikinn í sínar hendur og sigruðu í tveimur næstu hrinum, báðum með 15 gegn 2. Á laugardaginn keppti síðan ÍS við Eyfirðinga og fór leikur- inn fram í íþróttahúsinu í Gler- árhverfi. Eyfirðingar, sem fengu slæma útreið hjá ÍS fyrir sunnan um daginn, hugðust nú hefna harma sinna. UMSE byrjaði vel og komst í 3-0, en stúdentum tókst að jafna og komast yfir og þegar þeir höfðu gert 15 stig hafði UMSE aðeins gert 7. Næsta hrina var nokkuð jöfn lengi vel, en ÍS var sterkara á endasprettinum og sigraði með 15 gegn 9. Stúdentar byrjuðu af fullum krafti í þriðju hrinunni og komust m.a. í 5—0. Eyfirðingum tókst hins vegar að jafna og komast yfir 10-9, en ennþá voru stúdentar sterkari á endasprett- inum og sigruðu með 15—10. Þótt ekki hafi verið mjög mikill munur á stigum liðanna voru stúdentar greinilega betri, en þeir hafa mjög leikreynt lið og leika nánast með sama lið og þeir hafa notað í mörg ár. Hjá UMSE verður alltaf nokkur endurnýjun þar er marg- ir leikmenn þeirra eru nemend- ur í MA, þannig að segja má að þeir ali upp leikmenn fyrir Reykjavíkurliðin sem fá þessa pilta þegar þeir koma til frekari framhaldsnáms í Reykjavík. í liði ÍS voru t.a.m. fimm leik- menn sem voru hér í MA. McField skoraði 110 stíg í Borgamesi um helgina. 9. nóvember 1982 - DAGUR - 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.