Dagur - 14.12.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 14.12.1982, Blaðsíða 1
DEMANTS- HRINGARNIR KOMNIR GULLSMIÐIR i SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 14. desember 1982 Samgöngukerfið nýtist ■ I ■ ■ i segir í skýrsiu um ekki sem skyldi Ncfrðurlandi Á Norðurlandi er fyrir hendi flutningakerfi sem ekki nýtist sem skyldi til almennra sam- gangna. Ljóst er að víkka má út hið almenna fólksflutninga- kerfi með aukinni nýtingu póst- bifreiða og skólabifreiða. Það er Ijóst að tiltölulega auðvelt er að samræma flutninga á pósti almennum fólksflutningum og einnig mætti nota skólabifreið- ar til póstflutninga og almennra farþegaflutninga, þótt það sé ekki jafn einfalt í sniðum. Skólaflutningar á Norðurlandi 1981 kostuðu alls rúmlega 6,8 milljónir króna og á sama tíma greiddi Póst- og símamála- stofnunin tæplega 3 milljónir fyrir póstdreiflngu út frá póst- stöðum á Norðurlandi auk greiðslu til sérleyfísbifreiða og flugvéla. AIls kostuðu þessir flutningar því 9,8 milljónir á ár- inu 1981. Þetta er það há upp- hæð að menn hljóta að staldra við og athuga hvort ekki megi reka samgöngukerfið fyrir lægri fjárhæðir. Segja má að þetta séu megin- niðurstöður nefndar sem sam- gönguráðherra skipaði að tilmæl- um Fjórðungssambands Norð- lendinga til að gera tillögur um samgöngukerfi, skipulag sam- gangna og flutningaþjónustu á Norðurlandi. Áhersla skyldi lögð á að samgöngukerfið stuðlaði að auknum samskiptum milli staða og að aukinni samvinnu milli sam- gönguþátta með eðlilegri verka- skiptingu og með tilliti til hag- kvæmni og félagslegra þarfa. Stuðlað skyldi að uppbyggingu innanhéraðssamgangna m.a. með samhæfingu þeirrar samgöngu- þjónustu sem fyrir er, m.a. með tengingu samgöngukerfisins með flutningamiðlum og samgöngu- miðstöðvum. í tillögum sínum bendir nefnd- in á að nauðsynlegt sé að koma upp flutningamiðstöðvum, skipt í þrjá flokka eftir eðli þjónustunn- ar. í nefndarálitinu kemur einnig fram að vöruflutningar á sjó frá Reykjavík til hafna á Norðurlandi hafi ekki verið nægilega reglu- bundnir og lagt er til að meiri áhersla verði lögð á beina vöru- flutninga frá útlöndum til hafna á Norðurlandi og þá sérstaklega til Akureyrar vegna mikillar vöru- dreifingar þaðan á aðra staði. í út- tekt nefndarinnar er að finna margar gagnlegar upplýsingar um ýmislegt varðandi samgöngurnar, m.a. um arðsemi vega o.fl. Nefndina skipuðu Ólafur Stein- ar Valdimarsson, Áskell Einars- son og Helgi Ólafsson, en með henni störfuðu Benedikt Boga- son, Kristján Kolbeins og Guð- mundur Sigvaldason. Jólasvcinarnir hcimsóttu Akureyri sl. sunnudag. Yngsta kynslóðin kunni vel að meta það sem þeir höfðu fram að færa og söngurinn dunaði í Hafnarstræti. Mynd: áþ 139. tölublað Jólablað Dags kemur út nk. föstudag. Að venju kemur út blað nk. fimmtudag, en síðasta blað fyrir jól kemur út þriðju- daginn 21. desember. Ekkert blað kemur út milli jóla og nýjárs. Fyrsta blað á nýju ári verður gefið út þriðjudaginn 4. janúar. Nýr grunnskóli var formlega vígður á Kópaskeri sl. laugar- dag. Byggingin er 550 fermetr- ar að flatarmáli og tekur við af gömlu skólahúsi, sem byggt var árið 1928 og stendur í rösklega 2ja km. fjarlægð frá þorpinu. Arkitekt og hönnuður skólans var Maggi Jónsson, arkitekt, Reykjavík. Framkvæmdir við skólann hófust haustið 1978, en kennsla hófst í skólanum um miðjan október sl. þrátt fyrir að framkvæmdum væri ekki að fullu lokið. Ingvar Gíslason, menntamála- ráðherra, flutti ávarp og lýsti skólann formlega tekinn í notkun. Byggingarmeistari og umsjónarmaður framkvæmda frá upphafi var Marinó Eggertsson, Kópaskeri. Heildarbyggingar- kostnaður er á núverandi verð- lagi um 8,5 milljónir króna. í skólanum eru í vetur 33 nemend- ur, þar af fimm í forskóla. Kenn- arar skólans eru þrír auk skóla- stjórans, Péturs Þorsteinssonar. P.Þ. Stóraukinn áhugi á refarækt í Svarfaoardal Dalvík, 13. desember. Mikill uppgangur er nú í refa- rækt í Svarfaðardal. Tveir bændur fengu dýr í vetur. Þetta eru bændurnir Hjalti Haralds- son, Ytra-Garðshorni og Ingvi Eiríksson, Þverá. Hjalti fékk 45 læður og 15 karla. Að sögn Hjalta eru þetta allt hvolpar síðan í vor. Dýrin komu frá loð- dýrabúinu Grávöru á Grenivík. Að Þverá komu 40 læður og 15 karldýr frá Loðfeldi á Sauðár- króki. Umræddir bændur höfðu byggt refaskála, Hjalti um 500 fm skála, sem hann taldi geta hýst allt að 90 dýr með góðu skipulagi og hag- ræðingu. Ingvi aftur á móti tók hluta af fjárhúsi undir þessa starf- semi. „Ég bjó áður eingöngu með sauðfé, en hef fækkað því nokkuð. Riða hefur sett strik í reikningin svo þetta er hálfgerð varnaraðferð hjá okkur,“ sagði Hjalti. Hann sagði einnig að flest dýranna væru valin af dönskum sérfræðingi sem var hér á ferð ný- lega við lífdýraflokkun. Eitt refabú í viðbót mun líta dagsins ljós í desember, en það er búið Dalalæðan hf. sem er eign bændanna Hjartar Þórarinssonar á Tjörn, Þorgils Gunnlaugssonar í Sökku, Pórarins Jónssonar á Bakka, Árna Steingrímssonar á Ingvörum, auk Skarphéðins Pét- urssonar á Dalvík, sem jafnframt er framkvæmdastjóri. Skarphéð- inn sagði að þeir fengju 100 læður og 30 karldýr. Pau verða fengin til helminga frá Grávöru á Greni- vík og Sigurði Helgasyni, Ytri Grund í Höfðahverfi. Til að hýsa þau hafa þeir félagar reist mynd- arlega skála fyrir um 150 dýr. í>að var Víkursmiðjan á Dalvík sem smíðaði skálann. Eina reynslan af refarækt í svarfdælskri byggð hefur fengist á mjnkabúinu að Böggvisstöðum. Fyrir einu ári komu þangað 140 læður og 50 karldýr. í ár verða settar á hjá minkabúinu 400 læð- ur og 150 karldýr, sem gefa munu af sér um 2500 til 3000 skinn, sem er áæltuð ársframleiðsla búsins. Þorsteinn Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri, sagöi að rekstur- inn hefði gengið einstaklega vol, frjósemi hefur verið mikil og eru dæmi um að læður hafi átt allt að 21 hvolp í goti, en ;#vegna frosta og byrjunarörðug- leika hafa afföll orðið töluverð. Meðaltalið varð því um 6 hvolpar á hverja læðu, sé tekið tillit til geldra og óparaða dýra. Þorsteinn sagði, eins og hinir væntanlegu refabændur, að hann væri bjart- sýnn þrátt fyrir lækkun á refa- skinnum á uppboði í Finnlandi nýlega. í desember mun Böggvis- staðabúið senda 400 skinn á upp- boð í Danmörku, sem verður haldið í byrjun næsta árs. Það eru fyrstu svarfdælsku refaskinnin sem fara á markað og munu von- andi ylja einhverri tískudrósinni í útlöndum. Og við skulum vona að það verði örlög fleiri „skinna“ úr Svarfaðardal. AG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.