Dagur - 14.12.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 14.12.1982, Blaðsíða 9
Þórsarar sigruðu IS Þórsarar sigruðu lið IS í 1. deildinni í körfuknattleik um helgina en leikið var í Iþrótta- skemmunni. Lokatölur leiks- ins urðu 76:72, Þór í vil. Mikl- ar sveiflur voru í leik liðanna sem skiptust á um að hafa forustuna og var það ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiks- ins að Þórsarar tryggðu sér sigur. Ekki byrjaði þessi leikur björgulega. Klukka tímavarðar vildi ekki af stað og eftir að leik- urinn hafði verið stöðvaður af þeim sökum og hafði byrjað aftur skall einn leikmanna IS í gólfið og rotaðist. Varð að gera hlé á leiknum aftur meðan beðið var eftir sjúkrabifreið til að flytja hann í burtu. Mikið jafnræði var með liðun- um allann fyrri hálfleikinn. Bæði liðin beittu svæðisvörn, Þórsarar í þeim tilgangi fyrst og fremst að geta haft tvöfaldar gætur á risan- um Pat Bock en ÍS-menn tóku Robert McField mjög utarlega. Segja má að þessi harði varnar- leikur liðanna hafi kostað það að leikurinn var ekki mjög skemmtilegur á að horfa, enda sóknarmistök talsverð á báða. Staðan í hálfleik jöfn 34:34. Sami barningunnn var áfram í síðari hálfleiknum og jafnt á mörgum tölum. Pó komst Þór fimm stig yfir þegar fimm mínút- ur voru til leiksloka 64:59 en ÍS skoraði næstu 6 stig og leiddi 65:64. Síðan var jafnt 68:68, 70:70 og 72:72. Þegar 15 sek. voru til leiksloka fékk Þór tvö vítaskot sem Robert McField skoraði úr. ÍS-menn hófu sókn en Valdimar Júlíusson stal bolt- anum af þeim, fór upp völlinn og gaf á Eirík Sigúrðsson sem skor- aði um leið og leiktíminn rann út. Lokatölur því 76:72 Þór í vil og dýrmæt stig í höfn. Segja má að leikur Þórs hafi skipst í tvö horn, vörnin oftast mjög sterk og að samvinna þar góð en sóknarleikurinn slakur og mikið um mistök. Að venju bar mikið á McField en hann var óvenju mistækur í skotum sínum og kvartaði mikið undan körfunum í Skemmunni. Jón Héðinsson var geysisterkur í vörninni sem og fleiri og yfir höf- uð má segja að varnarlega séð hafi allir leikmenn komið vel út. Staða efstu liðanna í deildinni er þannig að Haukar eru taplausir, Þór hefur tapað fjórum stigum og á eftir þrjá leiki gegn Hauk- um og tvo leiki gegn ÍS sem hef- ur tapað 6 stigum. Stig Þórs gerðu McField 39, Jón Héðinsson 13, Eiríkur Sig- urðsson 9, Björn Sveinsson 5, Konráð Óskarsson 5 og Jóhann Sigurðsson 5. Stigahæsstir hjá ÍS voru Pat Bock með 29 og Eirík- ur Jóhannesson með 16. Tvö gull - eitt silfur Jón Héðinsson fer sér að engu óðslega og skorar með góðu skoti Ljósm.: KGA. Norðurlandamót unglinga í lyftingum var haldið dagana 4. og 5. desember í H.C. Andersen hótelinu í Odense. Þrír Akureyringar voru þar með þátttakendur og hlutu tvenn gullverðlaun og ein silf- urverðlaun. Haraldur Ólafsson keppti í fl. 82.5 kg. Hann snaraði 130 kg og jafnhattaði 165 samtals 295 kg. Þetta er þriðja árið í röð sem Haraldur hlýtur gullverðlaun á norðurlandamóti unglinga. Tvö undanfarin ár hefur Haraldur keppt í 75 kg þyngdarflokki. Garðar Gíslason keppti í 90 kg flokki og hlaut þar silfurverð- laun. Garðar snaraði 137,5 kg og jafnhattaði 170 kg samtaís 307,5 kg. Sigurvegarinn í 90 kg fl. lyfti sömu þyngd og Garðar en reyndist hins vegar vera um 500 gr léttari og hlaut því gullið. Sama staða kom upp á norður- landamótinu í fyrra er Garðar hlaut þar silfurverðlaun. Gylfi Gíslason hlaut gullverð- laun í 100 kg fl. annað árið í röð. Hann snaraði 132,5 kg og jafn- hattaði 170 kg. Þeir félagar áttu allir mjög góðar tilraunir við að setja ný ís- lands- og norðurlandamet á mótinu. KA vann UMFA en tapaði fyrir Haukum Um helgina lék KA tvo leiki í annarri deild karla. Fyrri leik- urinn var að Varmá gegn Aftureldingu og sá síðari gegn Haukum í Hafnarfírði. Þessir leikir eru þeir síðustu fyrir áramót en leikir í deildinni hefjast ekki aftur fyrr en í febrúar. Leikurinn við Aftureldingu var KA nokkuð auðveldur og sigur KA aldrei í hættu. í hálf- leik hafði KA náð 5 marka mun og í leikslok var markamunur- inn einnig fimm mörk, eða 26 gegn 21. Bestu menn KA í þess- um leik voru þeir Erlendur, sem nú lék aftur með liðinu, og Jak- ob Jónsson, en þeir ásamt Guðmundi voru markhæstir með 5 mörk. Friðjón gerði 4, Flemming og Erlingur 3 hvor og Kjeldl. Síðari leikurinn var erfiður enda úrvalsleikmenn í liði Hauka. Að sögn KA-manna voru þeir lélegir í þessum leik og áttu nánast aldrei möguleika gegn frískum Haukunum. Fyrri hálfleikur var mjög jafn en í hálfleik hafði KA eins marks forustu, 13 gegn 12. Haukar náðu strax forustu í síðari hálfleik og héldu henni til leiksloka en lokatölur urðu 27 gegn 23. Á síðustu mínútunum reyndu KA-menn að leika maður á mann en sú leikaðferð dugði ekki gegn andstæðingun- um og Haukarnir sigruðu eins og áður segir. Magnús Birgisson var bestur KA-manna í þesum leik og skoraði hann 4 mörk. Er- lendur gerði 5, Guðmundur 4, Kjeld og Jakob 3 hver, Erlingur 2, Kristján og Friðjón eitt hvor. Þórsarar sterkir Um helgina fór fram á Akur- eyri ein umferð í íslandsmóti yngri flokka, Norðurlands- riðli. Það var Handknattleiksráð Akureyrar sem sá um keppnina og var leikið í íþróttaskemm- unni. Það voru Þórsarar sem voru sterkastir í þessari umferð en þeir töpuðu aðeins einu stigi. Annars fóru leikar sem hér segir: 5. flokkur: Þór - Dalvík 11-0 S. flokkur: KA - Dalvík 9-3 5. flokkur: Þór - KA 18-6 4. flokkur: KA - Þór 5-5 3. flokkur karia: Þór - KA 16-15 3. flokkur karla: Þór - Völs. 19-8 3. flokkur karla: KA - Völs. 29-14 3. flokkur kvenna: Þór - Völs. 11-2 2. flokkur kvenna: Þór - Völs. 10-7 Æft í Höllinni Nú í þessari viku flytjast allar æfíngar íþróttafélaganna í höllina. Þá verður þar líf og fjör allt frá því snemma á morgnana og fram eftir kvöldi. Nánast allar greinar keppnis- íþróttanna verða þarna iðkaðar en von er á nýjum körfum fyrir keppendur í körfubolta nú á næstunni. Smám saman verða því ný tæki að koma og nýjar vistaverur verða teknar í notkun jafnóðum og þær klárast. 14rdesö.mþe;r 1982 - DAGUR-9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.