Dagur - 14.12.1982, Page 8
Frá kjörbúðum KEA'
Við seljum
kjúklingana
enn á gamla verðinu.
Komið og gerið góð
kaup til jólanna.
Orðsending
frá Sjúkrasamlagi Akureyrar
Samkvæmt samningum viö lækna mega lækna-
skipti fara fram í desember ár hvert og gilda frá
áramótum. Skrá yfir lækna liggur frammi í af-
greiðslu samlagsins. Samiagsmenn, sem kynnu
aö óska aö skipta um heimilislækni, skulu snúa sér
þangað og hafa með sér samlagsskírteini sín.
Sjúkrasamlag Akureyrar.
Breytingar á
aðalskipulagi
Meö tilvísun til 17. og 18. gr. laga nr. 19 frá 8. maí
1964 auglýsast hér með breytingar á aöalskipu-
lagi á eftirtöldum svæöum:
1. Sunnan Skógarlundar, á milli Mýrarvegar
og væntanlegrar tengibrautar vestan hans.
2. Vestan Þórunnarstrætis, sunnan Suður-
byggðar og Dvalarheimilisins Hlíðar.
3. Reit, sem markast af Langholti, Miðholti,
Undirhlíð og Krossanesbrautar.
4. Svæði frá Glerárskóla norður að Skarðshlíð
svo og svæði á Neðri Ási, vestan skólans.
Uppdrættir, sem sýna breytingar þessar og voru
ásamt greinargeröum samþykktir í bæjarstjórn 7.
september 1982 liggja frammi almenningi til sýnis
á skrifstofu skipulagsdeildar aö Ráðhústorgi 3, 4.
hæö næstu 6 vikurfrá birtingu þessarar auglýsing-
ar.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa borist
skipulagsdeild innan átta vikna frá birtingu auglýs-
ingar þessarar, þ.e. í síðasta lagi hinn 3. febrúar
1983. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan
þessa frests teljast samþykkir breytingunni.
Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
25% afsláttur
Svalbarðskirkja:
Aðventukvöld
Á miðvikudagskvöld verður
efnt til aðventukvölds í Sval-
barðskirkju á Svalbarðsströnd.
Þar verður fjölbreytt dagskrá.
Fannst
látinn
Um miðjan dag sl. laugardag
fannst maður látinn í Öxnadal
skammt frá Engimýri.
Hér var um Akureyring að
ræða, mann á fimmtugsaldri og
hafði hann verið á rjúpnaveiðum.
Mun maðurinn hafa orðið bráð-
kvaddur því ekkert benti til þess
að neitt óhapp hafi átt sér stað
sem leitt hafði til þess að hann
lést.
Meðal þess sem verður á dag-
skránni er að Haukur Halldórs-
son, bóndi í Sveinbjarnargerði,
flytur hugvekju, kirkjukórinn
syngur jólalög undir stjórn Gígju
Kjartansdóttur, organleikara,
Skúli Torfason, tannlæknir, segir
frá Jórsalaför og sýnir litskugga-
myndir, Hlín Bolladóttir og Gígja
Kjartansdóttir leika saman á
þverflautu og orgel og sóknar-
presturinn, séra Bolli Gústavs-
son, annast helgistund.
Um þessar mundir er verið að
ganga frá vandaðri lýsingu um-
hverfis kirkjuna og fyrir jól verð-
ur komin þar flóðalýsing. Sval-
barðskirkja er 25 ár um þessar
mundir og eru ráðgerðar nokkrar
framkvæmdir nú í vetur til bættrar
félagsaðstöðu í útbyggingu kirkj-
unnar. Verður jafmælisins minnst
að þessum framkvæmdum lokn-
um á næstkomandi vori.
Kostaboð í dýrtíðinni
Sparið krónuna og verslið ódýrt
Dúnvesti
3 litir, st. S - M - L, verð aðeins kr. 550.
Vélsleðagallar
tilvalin jólagjöf
Kappklæðin vinsælu
Allar stærðir.
| Úteatencrí i|i Eyfjörð
T fullum gangi Iwr *£*£»*.****
Egils jólaöl
Okkar vinsæla
jólaöl
verður tíl afgreiðslu
frá og með 18. desember.
Ölumboðið hf.
Hafnarstræti 86 b-Sími 22941
® aef^r Spur
WAPPBLSW Cola MAlTEXTRAKT %
Barnagæsla
í Zíon
Nú, eins og undanfarin ár, verða
unglingadeildir KFUM og K með
barnagæslu í Kristniboðshúsinu
Zíon, Hólabraut 13. Opiðverður
sem hér segir: Föstudagur 17. des.
kl. 14-19. Laugardagur 18. des.
kl. 13-19. Mánudagur 20., mið-
vikudagur22. kl. 13-19. Fimmtu-
dagur23. kl. 13-21. Margtverður
til skemmtunar og börn eru beðin
að hafa með sér nesti. Gjald fyrir
eitt barn á klukkustund er kr. 15.
Ágóðinn rennur til kristniboðs og
húsbyggingarsjóðs félaganna.
Barnagæsla
í Oddeyrar-
skóla
Dagana 18. des. (laugardag) og
23. (Þorláksmessu) bjóða nem-
endur 9. bekkjar Oddeyrarskól-
ans upp á barnapössun í skólan-
um. Opið verður frá kl. 1 báða
dagana en til kl. 22.00 þann 18. og
til 23.00 þann 23.
Föndur, leikur og annað verður
til skemmtunar. Notfærið ykkur
þessa þjónustu og verslið í róleg-
heitunum. Verðf yrri barnið á
tímann er 10 krónur.
Leiðrétting
Af einhverjum ástæðum féllu á
brott nöfn tveggja eignaraðila að
Alþýðuhúsinu þegar fjallað var
um þá í S&S. Þeir aðilar sem hér
um ræðir eru Sjómannafélag
Eyjafjarðar, sem á 4,93% og Bíl-
stjórafélagið Valur, sem á 1,53%.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Bjóðum fullkomna vlðgerðarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum.-steríomögnur-
um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bfl-
taBkjum, talstöðvum, (isklleitartækjum og sigl-
ingartækjum.
Isetning á bfltækjum.
wuómvm
Simi (96) ?3676 Gimá>goiu 3? - Akuityn
Allar
tryggingar!
umboðið hf.
Radhústorgi 1 (2. hæð),
simi 21844, Akureyri.
ar
8 v-DAGUR -14. desember 1982
— frá K Jónsson & Co. hf.
‘ •^gsSSSSb-^^SSSS.