Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 4

Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON, GYLFI KRISTJÁNSSON OG ÞORKELLBJÖRNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Snúum vörn í sókn Tvívegis á þessum vetri hafa landsmenn verið minntir óþyrmilega á það hvar á hnettinum þeir búa. Óveðrið sem gekk yfir landið um helgina olli ófærð um allt land og raskaði verulega öllum jólaundirbúningi. Póstflutningar fóru úr skorðum og hundr- uð manna komust ekki leiðar sinnar þar sem allt innanlandsflug lagðist niður, ein- mitt þegar jólaumferðinn var að hefjast. Ófærð varð á götum flestra bæja og óheyri- legur kostnaður fer í það að ryðja snjó af götum. Sem dæmi má nefna að það kostar milli sjö og átta þúsund krónur á klukku- stund að ryðja snjó af götum Akureyrarbæj- ar þegar öll tiltæk verkfæri eru notuð. Það er dýrt að búa á íslandi. Þetta er eitt dæmi um það en nefna mætti mörg önnur. Margvís- legur kostnaður stafar af því hversu strjálbýlt landið er. Engum dettur þó í hug að ástandið væri betra ef allir landsmenn flyttust til höfuðborgarsvæðisins og ynnu þar við að þjónusta hvern annan. Þannig gengi dæmið einfaldlega ekki upp. Þessi áföll af völdum veðursins í vetur minna okkur á enn önnur áföll sem raunar skipta miklu meira máli fyrir þjóðarbúið þegar til lengri tíma er litið. Þjóðin hefur ekki orðið fyrir jafn alvarlegum skakkaföll- um hvað varðar aflabrögð og sölu afurða, viðskiptajöfnuð og annað það sem ræður hagsæld landsmanna, um margra ára skeið. Sem betur fer hafa allflestir losnað við alvar- leg skakkaföll af völdum óveðranna sem geysað hafa í vetur. Hins vegar er ljóst að verulega mun þrengjast í búi á næstunni vegna þess hversu að kreppir í efnahags- málum þjóðarinnar. íslendingar eru ekki óvanir áföllum af ýmsu tagi, en þeim hefur tekist að hjara í landi sínu vegna þess að þar vilja þeir búa, enda óvíða í heiminum betra að vera þegar á allt er litið. Nú sem fyrr verður samtaka- mátturinn að koma okkur á réttan kjöl á ný. Hann hefur reynst drýgstur til sóknar og varnar á liðinni tíð og nú er vissulega þörf á sameiginlegu átaki. Því miður horfir reynd- ar ekki allt of vænlega í þeim efnum, því mennirnir sem hafa úrslitaáhrif á stjórn landsins búa sig nú undir átök, því kosning- ar til Alþingis eru á næstu grösum. Vonandi kemst þjóðin heil frá þeirri hildi sem framundan er. Við búum í lýðræðis- þjóðfélagi og því eru átök um stefnur sjálfsögð. Þau mega hins vegar ekki ganga út yfir heill þjóðarinnar á örlagatímum. Sameinumst í því að snúa vörn í sókn og virkjum samtakamáttinn. ÍÞRÓTTA- AJMTsTÁLL 1982 Janúar: „Klæðist Gunnar KA-peysunni aftur?“ - sagði í fyrirsögn á fyrstu íþróttasíðu ársins. Að sjálfsögðu var hér átt við Gunnar Gíslason, landsliðsmann í handknattleik og knattspyrnu. í greininni kom fram að Gunnar var ákveðinn að leika með KA í 1. deild knatt- spyrnunnar á komandi sumri, en vafi lék hinsvegar á hvort hann myndi leika með félaginu í hand- knattleik nú í vetur. Eins og menn vita ákvað Gunnar síðan í haust að leika með KR og átti það ekki sístan þátt í ákvörðun hans að hann ætti þá frekar möguleika á sæti í landsliðinu. „Það er nánst ómögulegt að leika með liði á Ak- ureyri og ætla sér að eiga mögu- leika á að komast í landsliðið í handknattleik,“ sagði Gunnar. Þórsarar fengu til liðs við sig bandarískan körfuknattleiks- mann, Roger Berents, 24 ár að aldri. Þess má geta að Berents lék með Þór til loka íslandsmótsins en ekki var ráðist í það að fá hann aftur til landsins. Þótti hann ekki nægilega sterkur leikmaður og ónothæfur sem þjálfari. Akureyringar og Reykvíkingar háðu bæjarkeppni í íshokký fyrir leikmenn 23 ára og yngri og fór leikurinn fram í Reykjavík. Leik- ur liðanna var mjög spennandi en norðanmönnum tókst að hafa sig- ur 5:4. Markvörður Akureyrar, Jón Birgir Guðlaugsson, vann það afrek að verja vítaskot á síð- ustu sek. leiksins en það þykir mikið afrek í þessari íþróttagrein. Knattspyrnumenn voru komnir á knattspyrnuskóna sína og byrj- aðir að æfa úti í snjónum. Bæði Akureyrarliðin höfðu ráðið sér þjálfara strax í upphafi ársins, KA-menn Alex Willoughby og Þórsarar Douglas Reynolds, hvort tveggja menn sem hér höfðu starfað áður. Var mikill hugur í mannskapnum sem von- legt var. „Ég er eins og afi innan um þessa krakka en ætli ég haldi ekki áfram á meðan ég hef gaman af þessu. Annars eigum við mikinn fjölda af efnilegum unglingum og framtíðin er björt,“ sagði Haukur Jóhannsson, skíðakappi, sem skellti sér í baráttuna enn eitt árið, enda hefur hann engu gleymt. Orð hans um unglingana áttu fyililega rétt á sér eins og síðar átti eftir að sannast. Febrúar: Eftir ósigur KA í 1. deild hand- boltans gegn HK spurði íþrótta- fréttamaður Dags í risastórri fyrirsögn: „Er KA fallið í 2. deild?“ Útlitið var orðið slæmt. Á sama tíma var gengið frá því að landsliðsmarkvörðurinn, Árni Stefánsson, myndi þjálfa lið Tindastóls í 3. deild knattspyrn- unnar á komandi keppnistíma- bili. Þarf ekki að orðlengja það að Árni gerði góða hluti á Sauðár- króki, en Tindastólsmenn misstu naumlega af sæti í 2. deild á kom- andi keppnistímabili. Dalvíkingar eignuðust heims- methafa í frjálsum íþróttum. Það var Sigurður Matthíasson, en hann gerði sér lítið fyrir og stökk 1,77 metra í loft upp og yfir rá án þess að nota atrennu. Geysilegur stökkkraftur það. Þórsarar sigruðu lið Ögra í 3. deild handboltans með miklum yfirburðum. Voru þeir þegar hér var komið sögu búnir að tapa fæstum stigum allra liða í deild- inni og gerðu sér góðar vonir um sigur í deildinni. Daninn Jan Larsen kom til Ak- ureyrar og ræddi við forráðamenn Handknattleiksdeildar KA um þjálfarastörf næsta keppnistíma- bil. Svo fór að samningar tókust og þjálfar Jan Larsen nú lið KA. Körfuknattleiksmenn Þórs sátu ekki aðgerðarlausir. Þeir unnu lið Daninn Jan Larsen gerðist þjálfari hjá KA. Tindastóls og ísafjarðar léttilega og voru þegar hér var komið sögu búnir að tryggja sér sæti í úrslita- keppni 2. deildar. Á Unglingameistaramóti ís- lands í lyftingum var Haraldur Ólafsson tvímælalaust maður mótsins. Hann hafði geysilega yfirburði í sínum flokki og setti hvorki fleiri eða færri en 5 ný ís- landsmet. Mars: Þórsarar unnu alla andstæðinga sína í úrslitakeppni 2. deildar í körfuknattleik sem háð var á Ak- ureyri. Þar kepptu lið úr Vest- mannaeyjum, frá Breiðablik í Kópavogi og Austfjörðum og sigraði lið Þórs örugglega og flutt- ist í 1. deild. Á sama tíma vöktu piltar úr Bjarma í Fnjóskadai mikla at- hygli er þeir tryggðu sér silfur í 2. deildinni í blaki og fluttust í 1. deild. Lið UMSE sem hafði leikið í 1. deild hélt sæti sínu þar örugg- lega. Siglfirskir knattspyrnumenn vöktu athygli á íslandsmótinu í knattspyrnu innanhúss. Þar sigr- uðu þeir hvert liðið af öðru og komust loks í úrslit gegn Breiða- blik. Þar létu þeir hinsvegar í minni pokann en ekki fyrr en eftir geysilegan baráttuleik. Islandsmótið í íshokký var háð í þessum mánuði og þar léku Ak- ureyringar og Reykvíkingar. Norðanmenn höfðu mikla yfir- burði eins og við var búist fyrir- fram og unnu 14:5 sigur án erfið- leika. KA kvaddi 1. deild handbolt- ans með stórtapi fyrir KR í íþróttaskemmunni. KA-maður- inn fyrrverandi, Alfreð Gíslason, Rafn Hjaltalín heiðraður, en hann lét af störfum sem dómari í 1. deild í haust, eftir farsælt starf. 4?«D3WÍUR?e8t.4e»»mb<!f tS82

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.