Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 13

Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 13
Nýjar Jbækur Vinjar Valtýr Guðmundsson, Sandi, er höfundir ljóðabókarinnar Vinjar. í Vinjum yrkir hann bæði rím- uð og órímuð ljóð um samtíð og fortíð. Náttúran og nánasta um- hverfi hans er gjöfult yrkisefni, gróandinn, veðrabrigðin og skepnurnar. En Valtýr seilist líka til liðinna tíma, yrkir um Reynistaða- bræður, þunga dóma á Lögbergi, eyðibýli, ömmu sína og afa. Skáldið beinir sjónum sínum að nútímanum í ljóðum um sjónvarp, rauðsokkur og verð- bólguna. Einnig er þar að finna ýmis tækifærisljóð. Valtýr Guðmundsson er djarf- ur í máli og hvass, þegar honum þykir miður, en mjúkmáll og há- stemmdur um það sem hrífur hann. Lífsnautnin og unaður starfsins einkenna kveðskap hans. í Vinjum eru 93 ljóð. Bókin er prentuð og gefin út hjá Bókaforlagi Odds Björns- sonar, Akureyri. 33 spilagaldrar Út er komin bókin Viltu læra 33 spilagaldra eftir Ólaf B. Jónsson, bónda á Steiná í Svartárdal í Húnavatnssýslu. í forspjalli segir höfundur: „Árið 1948 fór ég fyrst að skrifa niður spilagaldra. Þeir eru ættaðir úr öllum áttum, nokkrir frumsamdir. Sumir þeirra eru það margbrotnir að það þarf mikla umhugsun um þá, áður en skilningur á þeim er nægur.“ Galdrarnir heita t.d. Tvö spil færð, Ræningjarnir þrír, Hve margar doppur, Spil í gegnum borð og Sá einfaldi. Höfundur gefur bókina út. ísafoldarprent- smiðja prentaði. Dagbók um veginn Indriði G. Þorsteinsson hefur sent frá sér Ijóðabókina Dagbók um veginn, aðra útgáfu aukna. Útgefandi er Almenna bókafélag- ið. Bókin er myndskreytt af Jón- asi Guðmundssyni. Ljóðin í Dagbók um veginn eru til orðin á löngum tíma - allt frá því Indriði hóf rithöfundarferli sinn og til þessa dags. Alls eru ljóðin 44 talsins og skiptast í fimm flokka sem heita: Hendur feðr- anna, Sögunnar botn er grænn, Marmari öreigans, Ameríka Ameríka og í nauði vinda. Eins og þessi nöfn bera með sér fjalla ljóðin um mjögfjölbreytileg efni, allt frá íslensku bændasam- félagi fyrir tæknibyltinguna til stórborga nútímans hinum megin á hnettinum. Sagnagerð Út er komin á vegum Almenna bókafélagsins bókin Sagnagerð, hugvekjur um fornar bókmenntir eftir Hermann Pálsson, prófessor í Edinborg. Höfundurinn segir í formála: „Eins og heiti bæklings- ins ber með sér, þá er honum ætl- að að vekja athygli á sköpun forn- sagna, og er drepið lauslega á ýmis atriði, sem hvert um sig væri efni í heila bók, ef öllu' væri til skila haldið. Hann er ekki ritaður í því skyni að rifja upp öll þau afrek, sem unnin hafa verið á sviði sagnarannsókna, þótt stundum sé vikið að þeim til glöggvunar, heldur einkum í þeim tilgangi að minna á ýmislegt, sem nú er að gerast í þessum fræðum, og einnig að benda á nýjar leiðir til betri skilnings á íslendingasögum en tfðkast hefur“. Samúelsbók Almenna bókafélagið hefui sent frá sér Samúelsbók eftir sænska höfundinn Sven Delblanc. Þýðandi hennar er Sig- VERÐLAUNABÓH NOROURIANDARÁDS «82 SVEN DEUBLANC rún Astríður tiriksdóttir. Sam- úels bók hlaut bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs 1982. Petta er afar áhrifamikið og hrífandi verk eftir einn af kunnustu nú- tímahöfundum Svía. Meðan lífið yngist Út er komin hjá Almenna bókafélaginu ný skáldsaga eftir Kristján Albertsson. Heiti hennar er Meðan lífið yngist og er sam- kvæmt bókarkynningunni „nú- tímasaga sem gerist að miklu leyti í Reykjavík og á Akureyri. Hún kynnir okkur sérkennilegar per- sónur úr athafnalífi, stjórnmála- lífi og menningarlífi og margt ber á góma í fjörugum viðræðum sem ekki hvað síst snúast um fornt og nýtt í íslensku þjóðlífi MEÐAM LÍFIÐ YNGIST Óvenjuleg örlög óvenjulegs fólks verða uppistaða ástarsögu sem vænta má að ýmsum þyki nokkuð einstæð í íslenskum bók- menntum". Kristján Albertsson hefur nú lifað langa ævi og hefur mörgu og merkilegu kynnst. Má vænta þess að sagan beri nokkur merki þess. „Hér er nægur snjór og mjög gott skíðafæri,“ sagði ívar Sig- mundsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, skíðalandi Akur- eyringa er Dagur spjallaði við hann fyrir helgina. í dag og á morgun er opið í „Fjallinu“ frá kl. 13-16. Lokað verður á Þorláksmessu og um helgina er opið kl. 13-16 á mánu- dag til fimmtudags í næstu viku og einnig mánudaginn 3. janúar 1983. Þess má að lokum geta að sala árskorta í Hlíðarfjall er hafin. Kortin fást hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar og kosta 750 krónur fyrir börn en 1.550 fyrir fullorðna. Opið í Hlíðar- fialli um jólin Úrval myndaramma Opið í hádeginu nonður. mynd LJÓSMYN DASTOFA Sfmi 96-22807 • Pósthólf 464 Slerárgötu 20 602 Akureyri ARNMHHIIA Brúðhjón: Hinn 11. desember voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju Stefanía Mar- grét Stefánsdóttir, húsmóðir og Kristján -Ðergur Árnason, véla- maður. Heimili þeirra verður að Hrísalundi 20a, Akureyri. Hinn 11. desember voru gefin saman í hjónaband á Akureyri Unnur Snorradóttir, húsmóðir og Bjarki Kristinsson, bíLtjóri. Heimili þeirra verður að Þórunn- arstræti 133, Akureyri. Hinn 11. desember voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju Anna Geirþrúður Elís- dóttir, verkakona og Ingimar Marinó Víglundsson, verka- maður. Heimili þeirra verður að Hafnarstræti 23, Akureyri. Samvinnutryggingar hafa nú aukið gildi Hey- og búfjár- tryggingarinnar og bjóða nú nýja samsetta brunatryggingu fyrir bændur í hefðbundnum búgreinum. Hún veitiraukna tryggingavernd og tryggir nú allt í senn: búfé, fóður og tæki (ökutæki þó undanskilin). Kostirnir eru augljósirþví miklir fjármunir eru bundnir í tækjum sem eru mjög oft ótryggð og fást því ekki bætt er tjón verður. IÐGIALDSTAXTINN LÆKKAR AUKIN TRYGGINGAVERND BÆNDAAN IÐGIALDSHÆKKUNAR PODUR EIN TRYGGING1STAD MARGRA Um leið og gildi tryggingarupphæðarinnar eykst lækkar ið- gjaldstaxtinn þannig að útgjaldaaukning verður engin fyrir bóndann. KYNNIÐ YKKUR ÞESSA AUKNU TRYGGINGA VERND HJÁ NÆSTA UMBOÐSMANNI. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SÍMI81411 UMBOÐSMENN UM LANDALLT 21. desember 1982 - DAGUR -13

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.