Dagur - 21.12.1982, Blaðsíða 20
Akureyri, þriðjudagur 21. desember 1982
Súlan
landar á
Grenivík
Súlan EA mun leggja upp afla á
Grenivík eftir áramót, eins og
undanfarin ár. Að sögn heima-
manns, er Dagur ræddi við, hef-
ur afli Súlunnar haldið uppi
atvinnu á Grenivík en eins og
venjulega munu stærstu heima-
bátarnir halda suður á vertíð. Súl-
an verður á trolli úti fyrir Norður-
landi.
14 sýna í
Klettageröi
Nú sýna 14 listamenn að
Klettagerði 6 og verður sýning-
in opin til 23. desember frá
klukkan 15-22.
Sýningin er mjög fjölbreytt en
þar er að finna myndverk af öllum
gerðum, s.s. málverk, teikningar,
grafík, eftirprentanir, tréskúlptúra
og einnig bækur, svo eitthvað sé
nefnt. A sýningunni gæti jafnvel
verið að finna hluti sem hentuðu
til jólagjafa.
Næsta blað
keinur út
4. janúar.
Munið eftir
smáfuglunum
Það má enginn fara íjóiaköttinn -
allra síst fuglarnir. Þessi fuglhafði
gnótt matar þegar KGA tók
myndina en þegar það hret er
gengið yfir, sem nú herjar á
landsmenn, verða þeir að muna
eftir smáfuglunum. Korn handa
þeim fæst í verslunum, en þeir
fúlsa ekki heldur við brauðmylsnu
og fleiru álíka góðgæti.
Létu ekki vita er
þeir sneru til baka
— Hjálparsveit skáta greip í tómt er meðlimir sveitarinnar
leituðu bíla sem áttu að vera á Öxnadalsheiði
„Við fengum um það beiðni kl.
3 aðfararnótt sunnudags að
fara tjl aðstoðar tveimur bíluni
á Öxnadalsheiði. Bilarnir
höfðu farið frá Varmahlíð
áleiðis til Akureyrar kl. 10 á
laugardagskvöld og fólkið
hafði tekið það fram að það
myndi láta vita af sér ef það
myndi snúa við“, sagði Þórar-
inn Ágústsson formaður Hjálp-
arsveitar skáta á Akureyri í
samtali við Dag í gær.
Fjórir hjálparsveitarmenn voru
sendir af stað brutust þeir í ofsa-
veðri upp á Öxnadalsheiði þar
sem þeir fundu báða bílana kl. 6
um morguninn og voru bílarnir
báðir mannlausir. Það var svo
ekki fyrr en kl. 7 um morguninn
að fóikið lét vita af sér en það var
þá komið í Varmahlíð aftur.
Hinsvegar gekk illa að koma
skilaboðum til björgunarmanna
því talstöðvar þeirra höfðu blotn-
að og voru óvirkar. Komu björg-
unarmennirnir ekki til Akureyrar
fyrr en kl. 15 á sunnudag.
„Þessir bílar voru mjög illa út-
búnir, á sumardekkjum og keðj-
um og það er furðulegt að fólk
skuli leggja upp þannig útbúið,
ekki síst vegna þess að það hafði
verið varað sérstaklega við því að
vont veður væri og allt kolófært",
sagði Pórarinn. Veðurofsinn var
svo mikill að ganga varð á undan
bíl hjálparsveitarmannanna sem
fóru til leitar.
I gær fóru síðan menn frá
Hjálparsveit skáta á Akureyri á
snjóbíl fram á Hörgárdal og sóttu
þangað sjúkling. Pá aðstoðuðu
skátarnir Félagsmálastofnun við
að koma mat til fólks í bænum
sem fær matarsendingar heim til
sín, auk þess sem lögreglan naut
aðstoðar skátanna. Lögreglan á
Akureyri á aðeins einn fjórhjóla-
drifinn bíl.
Kampavín og laufa-
brauð á Fjöllum
Fyrir nokkrum dögum opnaöi
Ólöf Bjarnadóttir leirmuna-
verkstæði á Grímsstöðum á
Fjöllum. Verkstæöiö er í véla-
geymslu á staðnum og þegar
fyrstu munirnir komu út í síð-
ustu viku fögnuðu íbúar á
Grímsstöðum þessum áfanga í
atvinnusögu Grímsstaða með
kampavinsdrykkju og laufa-
brauðsáti. Ólöf hefur í hyggju
að búa til ýmiskonar listmuni
sem verður þó einnig hægt að
nota á heimilum. Hér er um að
ræða diska, tesett, könnur og
fleira.
„Mig langaði til að fara af stað
með listiðnað", sagði Ólöf þegar
Dagur slá á þráðinn til hennar í
gærmorgun og ræddi við han um
keramikverkstæðið. „Ég tók
fyrstu brennsiuna út úr ofninum í
síðustu viku. Sumir munanna
höfðu heppnast ágætlega“.
Leirinn sem Ólöf notar er inn-
fluttur, en hún sagði að Búðar-
dalsleirinn hentaði ekki vel í list-
muni eins og þá sem búnir verða
til á Grímsstöðum. Ólöf hafði
ekki í hyggju að setja fleiri muni í
ofnin fyrir jól, en á næsta ári mega
Akureyringar og Reykvíkingar
búast við að sjá muni frá Ólöfu í
verslunum. f»ess má geta að Ólöf
nam við Myndlista- og handíða-
skólann í Reykjavík.
# Jólamyndirnar
„endursýndar“
Þess er jafnan beðið með
eftirvæntingu af ákveðnum
hópi fólks hvaða myndir kvik-
myndahúsin bjóði til sýninga
um jól. Bæði kvikmyndahúsin
á Akureyri eru með þekktar
myndir en hætt er við að að-
sókn verði ekki sem skyldi. -
Vitað er að a.m.k. önnur sú
mynd sem sýnd verður í kvik-
myndahúsi á Akureyri sem
jóiamynd hefur verfð sýnd í
kapalsjónvarpi í bænum. Mun
sú sýníng hafa verið ólögleg,
og ekki er erfitt að tmynda sér
hvaða áhrif sú sýning hefur á
aðsókn á myndina í kvik-
myndahúsinu.
# Söluhæstu
bækur
á Akureyri
S&S lék forvitni á að vita hvort
sama munstrið væri í söiu á
bókum á Akureyri og (Reykja-
vík en sem kunnugt er hafa
bóksalar fyrir sunnan gert
sölukannanir af og til núna
fyrir jóiin sem sfðan hafa birst
í blöðum. Hann Aðaisteinn í
Bókval hafði þetta allt á
hreinu þegar við leituðum til
hans og eins og gefur að l(ta
er röðunin nokkuð önnur á
, Akureyri. Ekkert virðist þó fá
haggað veldf Alíster Mac-
Leans sem er (fyrsta sæti yfir
söluhæstu bækur, og heitir
sú Dauðafljótið. í öðru sæti á
listanum hjá Ðókvai er Hverju
svarar læknirinn (Guðsteinn
Þengilsson), í þriðja Ijós-
myndabókin um Akureyri
með myndum Hallgríms Ein-
arssonar, þá koma Aldnir
hafa orðið, i fjórða sæti, 555
gátur í fimmta, Allt um potta-
plöntur í sjötta sæti, Sýnir og
sálfarir í sjöunda, Kvistir f
lífstrénu (áttunda, Afi táning-
ur í níunda sæti og þriðja
bfndi af Landið þitt, (tíunda
sæti. Akureyringarnir á þess-
um Top 10 bókalista á Akur-
eyrí eru því Hallgrímur Ein-
arsson, Erlingur Davíðsson,
Indriði Úlfsson og Steindór
Steindórsson.
• llla búnir bflar
Það er aldrei nógsamlega
brýnt fyrir ökumönnum að
skilja bíia sfna eftir heima ef
færi á götum bæjarins er
slæmt. Nú eins og endranær
við svipaðar aðstæður mátti
sjá vanbúna bíla kolfasta (
sköflum og eigendur þeirra
ráðþrota við stýrið. Ekki að-
eins tefja slíkir bilar fyrir um-
ferðinni heldur koma þeir í
veg fyrir að snjóruðningstæki
geti rutt göturnar. Á hverju ári
eru ökumenn hvattir til að búa
bíla s(na þanníg að þeir séu
tiibúnir til að mæta þæfingi og
hálku, en það er eins og til sé
hópur ökumanna sem neiti
því staðfastiega að það geti
fest snjó á Akureyri, hvað þá
að hann komi f vég fyrir um-
ferð bíla á ónýtum snjódek-
kjum eða sléttum sumar-
dekkjum.