Dagur - 21.12.1982, Síða 7

Dagur - 21.12.1982, Síða 7
BÆKUR Kristján frá Djúpalæk FORN FRÆGÐARSETUR Petta er 4. bindi bókaflokks séra Ágústs Sigurðssonar um forn frægðarsetur í ljósi liðinnar sögu. Ekki veit ég hvort menn gera sér grein fyrir því er menn handfjalla fræðirit eins og þetta hvflík vinna liggur þar að baki. Til að gefa hugmynd um slíkt má geta þess að aftan við þetta bindi er skrá um heimildir og skýring- ar er að baki liggja, hvorki fleiri né færri en um 330 tilvitnanir. Og þó að þetta rit fjalli aðeins um þrjá kirkjustaði, Krossþing í Landeyjum, Borg á Mýrum og Þönglabakka í Fjörðum, er það um 250 blaðsíður að stærð. Klerkurinn á Mælifelli skrifar sem sagt fleira en stólræður. Langlengsti og veigamesti þátturinn er um Krossþing í Landeyjum og ekki að ástæðu- lausu því hér er i>m virkilega fornt frægðarsetur að ræða en þó fyrst og fremst Krossstaður. Flestir hafa heyrt talað um Krossreiðir, sem voru nokkurs konar Sauðafellsfarir, þar sem óvinir ráðast heim á bæ, lim- lesta fólk og drepa húsbændur. pað er vitaskuld útilokað að gera efni þessu nokkur skil í blaðagrein eftir hraðlestur. Það er svo ótrúlega viðamikið enda er hér um marga kirkjustaði að ræða og það virðist alveg með ólíkindum hversu miklar heim- Jón Gísli Högnason leggur hér upp í langa ferð. Þetta er 1. bindi verks sem á að fjalla um þróun- arsögu Kaupfélagsins á Selfossi og Mjólkursamlagsins. Jón Gísli gerir fyrst grein fyrir sjálfum sér og fyrstu for- göngumönnum um stofnun þessara miklu bændasamtaka en það eru Helgi Ágústsson frá Birtingarholti og Egill Thorar- ensen .Höfundur notar þá að- ferð að hann fær stóran hóp mjólkurbflstjóra á Suðurlandi til að segja sögu sína. Það eru ekki ildir eru enn finnanlegar um staði þessa frá fornu fari. Nú vill svo til að einn sögufrægasti bær á íslandi tilheyrir Krossþingum en það er Bergþórshvoll. Þar kem- ur séra Ágúst með athyglisverða söguskýringu. Hann telur það hvorki hafa verið flónsku Njáls né aumingjaskap að láta brenna sig inni heldur hafi það verið „friðþæging fyrir syndir vígfimu kappanna á Bergþórshvoli", sona sinna. Þetta kann nú vel að vera. Ennþá athyglisverðara þykir mér þó að Njáll hafi séð í hendi sér er hann kaus að brenna inni ásamt konu sinni og dóttursyni að þar með hafi hann gert brennuvargana að óalandi og óferjandi níðingum um allar aldir. Flosa var vorkunn að vilja hefna sín á banamönnum Höskuldar Hvítanessgoða. Það var hefnd, hitt morð. Hins vegar þykir mér það hreystiverk að fjalla um sögu Bergþórshvols, eins og gjört hefur verið um aldir, eftir rit- verk Einars Pálssonar, og nýta sér ekki það ljós sem hann hefur varpað á söguna. En þetta er nú kannski útúr- dúr. Kaflinn um Krossþing er svo ótrúlega viðamikill, ættir og atburðir, og ég alls ófær að rök- ræða sanngildi þessara fræða. Hitt þykir mér eftirtektarvert í einvörðungu persónusögur mannanna sjálfra heldur varpa þær mjög skýru Ijósi á fram- kvæmdastjórana, einkum Helga Ágústsson sem var yfirmaður þeirra. Helgi hefur verið ein- stakur maður eins og hann á ætt- ir til. Elja hans og árvekni eru dæmalaus. Hann er eins og hinir fornu konungar er stjórnuðu herförum. Hann gengur fremst- ur í bardaga þegar mest á reynir og hlífir sér hvergi. Hann er harður húsbóndi en fyrirgefst allt því að hann er sanngjarn. Helgi kemur að hinu unga sam- þessu bindi eins og raunar hin- um fyrri hve ákaflega prestar voru fégjarnir, drykkfelldir og kvensamir. Ótrúlega margir misstu kjól og kall um lengri eða skemmri tíma vegna „ótíma- bærra“ barneigna enda segir séra Ágúst einhvers staðar að hefðu prestar ekki verið „endur- reistir" fyrir þær sakir myndi hafa orðð fámennt í stéttinni. Enþað má Ágúst eiga að hann fer mildari höndum um þessa bresti en okrið og yfirganginn. Þátturinn um Borg á Mýrum er að vonum minni í sniðum enda þar fjallað nær eingöngu um einn kirkjustað. Nokkuð löngu máli er eytt í frum- byggjanna, enda engir aukvisar. Egill á þar stóran þátt. Og þá má ekki gleyma sjálfum Snorra. Hér gerir séra Ágúst aðra merki- lega söguiega uppgötvun. Hann heldur því sem sagt fram að Ein- ar skálaglamm sé hinn eiginlegi höfundur Eglu. Og það er vitað mál að þeir Egill áttu margt saman að sælda, m.a. erlendis, og báðir voru skáld og höfðu gaman að hreystisögum. Ágúst hyggur að Einar hafi fest sér þetta allt í minni ásamt ljóðum Egils og búið í glæsilegan munn- legan sagnastíl. En það væri það reyfaraleg tilgáta að Einar hefði getað fært eitthvað af þessu í letur sjálfur? Hann færði Agli eitt sinn skjöld skrifaðan sögum þótt hann fengi Iitlar þakkir fyrir. Rúnir voru nothæft tæki til geymslu hugverka. Það er a.m.k. víst að höfundur Egils- sögu, hver sem hann var, segir Þorgerði Egilsdóttur hafa skorið Sonartorrek á kefli um leið og karl kvað. En saga Borgar var og verður merkileg. vinnufyrirtæki sem bóndi en þetta er verkstjórn og bændur eru vanir aö stjórna. Mannlegir eiginleikar þeirra Helga og Egils gefa bók þessari alveg sérstakan blæ. Saga mjólkurbflstjóranna er margþætt, allt frá því aö keyra yfir venjulegan draug á Hellis- heiði til þess að falla í Ölfusá er brúin hrundi undan einum þeirra. Millispilið eru ofur- mannleg átök á hinni örðugu leið milli Selfoss og Reykjavík- ur. Hellisheiði og Svínahraun eru ekki létt yfirferðar á vetrum Og þá erum við komnir að síð- asta hefðarsetrinu, „Thaungla- bakke yderst mod Ishavet" eins og stjórnarherrar í Kaupmanna- höfn og jafnvel sjálfur konung- urinn kölluðu það: Þönglabakka í Fjörðum. Og þótt Látra- Björgu þætti fagurt í Fjörðum „þá Frelsarinn gefur veðrið blítt“ þá veit hún heldur enga verri sveit „er vetur að oss fer að sveigja“:“Menn og dýr þá deyja“. Eitt er víst að hér verða tíðar prestaskipti en víðast hvar ann- ars staðar. Að Þönglabakka voru jafnvel sendir klerkar sem forbrutu sig á hinum dyggðum prýdda vegi lífsins. Staðurinn þótti svo út úr alfararleið að biskupar sáu sér ekki fært að vísitera þar, jafnvel öldum saman. Ég ætla ekki að reyna að rekja þá sögu alla en þess má geta að einn var sá klerkur er undi þar vel, séra Jón J. Reykj a- lín. Honum þótti Svalbarð verra enda Þislar vandfýsnir mjög á prestinn. Hins vegar var vera hans í Fjörðum einstæður at- burður í mannlífssögu Þöngla- bakka á síðari öldum. Jón er m.a. talinn hafa verið einhver mestur söngmaður á íslandi og gekk sú tóngáfa í erfðir. Merk er einnig saga séra Árna Jóhannes- sonar og má þar vísa til Theo- dors Friðrikssonar. Þetta er mikið verk og mynd- arlegt. Séra Ágúst hefur ekki setið auðum höndum á Mælifelli eða í kóngsins Kaupmannahöfn sl. vetur. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur heldur ekkert til sparað að gera bókina sem best úr garði. í henni er mikill fjöldi ljósmynda og teikninga sem við- fangsefninu tengjast og bókar- kápa er sérlega smekkleg. laldar, að ógleymdum Kömb- unum. Bókaforlag Odds Björns- sonar er að hefja hér útgáfu verks sem ávæútlanlega eftir að verða merkilegt ritstafn. Og höf- undi tekst að gera fræðilegt við- fangsefni að sp:nnandi lesn- ingu. Mikill fjöídi mynda er í bók þessari og nafnaskrá. Hún er 350 bls. aö stærð. Og þá dett- ur mér í hug: Hvenær kemur saga Jónasar Kristjánssonar á Akureyri og bflstjóranna hans? Borgarbíó: Jólainvndin í Borgarbíói að þessu sinni er ensk-banda- ríska myndin „On Golden Pond“ eða Síðsumar, eins og íslenska heiti myndarinnar er. Hér er á ferðinni mjög þekkt kvikmynd með þeim Katharine Hepburn og HemyFonda í aðal- hlutverkum, en þau hlutu bæði Oscar-verðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Jane Fonda, dóttir Henry Fonda, leikur einnig stórt hlutverk í myndinni. Barnamynd Borgarbíós, sem sýnd verður kl. 15 á 2. dag jóla, ber heitið „Söguleg sjóferð“, skemmtileg mynd sem fjallar um harða lífsbaráttu túnfiskveiði- manna. Nýja bíó: Annan í jólum kl. 3 verður sýnd Walt Disney myndin Snati og vinir hans. Kl. 5 og 9 verður Stipes sýnd, en þetta er bráð- skemmtileg ný amerísk gaman- mynd. Þegar sýningum ná Strip- es lýkur verður kvikmyndin Dýragarðsbörn tekin til sýninga. Kvikmyndin Dýragarðsbörn er byggð á metsölubókinni sem kom út hér á landi fyrir síðustu jól. Það sem bókin segir með tæpitungu lýsir kvikmyndin á áhrifamikinn og hispurslausan hátt. Erlendir blaðadómar segja að þetta sé myndin sem allir verði að sjá. Ysjur og austræna enn í dag, hvað þá í árdaga bfla ENN MJKUhN VIÐ FJÖLBREYTNINN K. Jónsson & Co. hf., Akureyri. Nú bjóðum við 9 mismunandi grænmetistegundir Grænar baunir, Gulrætur og grænar baunir, Ameríska grænmetisblöndu, Gulrótarteninga, Maískorn og Rauðrófur. j""oG NÚMA eÍnnIgT ■ X ítölsk grænmetisblanda I SJFrönskgrænmetisblanda KJ grænmeti á hvers manns disk Rauðkál Reynið þessar tegundir með hátíðarmatnum, i salatið, eða bara hvenær sem er. 21. desember 1982- DAGUR - 7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.