Dagur - 04.01.1983, Qupperneq 1
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 4. janúar 1983
1. tölublað
Húsbrot og I íkamsárás
fimm manna á ung hjón
Fimm ungir menn frá Húsavík
hafa verið kærðir fyrir húsbrot
og líkamsárás á ung hjón sem
búa í Saltvík, sem er skammt
sunnan Húsavíkur. Atburður-
inn gerðist kvöldið fyrir gaml-
ársdag. . , ...
b Auk ungu hjonanna
voru stödd í húsinu móðir
mannsins og 15 ára gömul systir
hans og urðu þær vitni að átök-
unum. Ungu mennirnir fimm
forðuðu sér þegar þær mæðgur
hringdu í lögregluna á Húsavík
og húsbóndinn á heimilinu
hafði hótað að sækja hagla-
byssu. Þeir voru farnir þegar
lögreglan kom á vettvang, en
náðust fljótlega og voru settir í
gæsluvarðhald uns skýrslutöku
var lokið, á gamlársdag. Menn-
irnir munu hafa verið ölvaðir
en ekki er að fullu ljóst hver
ástæðan var fyrir þessum
verknaði, að sögn Adolfs
Adolfssonar, sýslufulltrúa á
Húsavík.
Við skýrslutöku hjá lögregl-
unni á Húsavík sagðist húsráð-
endum og gestum þeirra svo frá,
að um klukkan ellefu um kvöldið
hafi stór bíll rennt í hlað , á tíma
þegar ekki var von neinna gesta.
Tveir menn komu upp að húsinu
og þegar opnað var ruddust þeir
inn með dólgslátum, hávaða og
dónaskap. Síðan bættust hinir
þrír í hópinn, en einhverjir urðu
eftir úti í bíl.
Skipti engum togum að þrír
hinna óvelkomnu gesta hófu að
berja á hjónunum. Þegar móðir
mannsins kom fram til að aðgæta
hvað væri á seyði lá tengdadóttir
hennar í gólfinu en sonurinn var í
ryskingum við mennina. Hún
kallaði þegar á dóttur sína 15 ára
sem einnig var gestkomandi, eins
og fyrr sagði, og bað hana að
hringja í lögregluna. Það var búið
að slá gleraugu af konunni og
brjótra þau, auk þess sem hún
hafði hlotið áverka í andliti, og
einnig var búið að slá gleraugu af
syni hennar. Hann hótaði að
sækja haglabyssu og Iíklega hefur
sú hótun, ásamt því að hringt var í
lögregluna nægt til þess að menn-
irnir höfðu sig á brott.
Eins og áður sagði voru þeir
settir inn en sleppt á gamlársdag
eftir að skýrslur höfðu verið tekn-
ar af þeim. Áður en þeim var
sleppt höfðu þeir orð á því að
kæra húsráðandann fyrir að hafa
hótað þeim að sækja byssuna.
Slík kæra hafði ekki komið fram í
gær.
Ungu hjónin lentu í því meðan
þau bjuggu á Húsavík, að brugg
tók að leka niður í íbúð þeirra úr
íbúðinni fyrir ofan. Hátalarar
eyðilögðust og málið var kært. Sá
sem bruggið átti var bróðir eins
fimmmenninganna og kann þetta
að hafa verið upphaf málsins að
einhverju leyti.
Enn er
heitu
vatni
stolið
Einn aðili var á milli jóla og ný-
árs kærður af Hitaveitu Akur-
eyrar fyrir stuld á heitu vatni.
Daníel Snorrason rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri tjáði
Degi að slík mál kæmu alltaf upp
af og til. Þannig hefðu í desember
borist fjórar eða fimm kærur frá
Hitaveitunni vegna stulds á heitu
vatni, en slíkar kærur eru orðnar
margar frá því þær fyrstu komu
upp. Hitaveitan leggur hinsvegar
áherslu á að reyna að koma í veg
fyrir slíkt athæfi og fylgist vel með
að slíkt sé ekki stundað.
Kærði
sjálfa sig
Kona nokkur í Glerárhverfi
hringdi nýlega til Hitaveitu Ak-
ureyrar og kvartaði yfír því að
lítill hiti væri á ofnunum hjá
sér. Hafði verið mikill kuldi í
íbúð hennar og sýndi inntaks-
mælirinn lágt hitastig. En þrátt
fyrir kvörtun hennar og beiðni
um að viðgerðarmenn kæmu á
vettvang létu þeir bíða eftir sér.
En konan dó ekki ráðalaus.
Hún tók sig til, hringdi í Hitaveit-
una og kærði stuld á heitu vatni.
Tiltók hún heimilisfang vatns-
þjófsins, en það var hennar eigið
heimilisfang! Eftir það þurfti hún
ekki að bíða nema í nokkrar mín-
útur, þá voru menn frá Hitaveit-
unni mættir til að koma upp um
þjófnaðinn.
Konan sagði þeim hinsvegar frá
bragði sínu og bað þá vinsamleg-
ast að lagfæra hitakerfi sitt til þess
að hún gæti fengið eðlilegan hita í
íbúðinni. Urðu hitaveitumenn
fúslega við þeirri ósk.
Margrét Þorsteinsdóttir með „nýársbarnið“ á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri.
Fyrsta barn
ársins
á Akureyri
Kl. 11.29 á nýársdagsmorgun
fæddist fyrsta barn ársins á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri og var það drengur. For-
eldrar hans eru Margrét Þor-
steinsdóttir, hjúkrunarkona á
sjúkrahúsinu og Guðmundur
Víðir Gunnlaugsson, yfir-
kennari við Barnaskóla Akur-
eyrar.
Margrét tjáði Degi að sam-
kvæmt „áætlun“ hefði barnið átt
að fæðast á 2. dag jóla. „Það dróst
hinsvegar og það var orðið ansi
spennandi síðustu dagana að sjá
hvort það fæddist fyrir áramótin
eða ekki,“ sagði hún.
Drengurinn nýfæddi, sem var
14 merkur við fæðingu, er annað
barn þeirra hjóna en fyrir áttu þau
stúlku sem verður þriggja ára í
apríl. Margrét og syninum unga
heilsast vel og sá nýfæddi „sat
fyrir“ eins og hann hefði aldrei
gert annað er mynd var tekin af
honum í gær ásamt móður sinni.
Mynd: H.Sv.