Dagur - 04.01.1983, Síða 7
tMinning
Hallfríður Gunnarsdottir
Fædd 15. apríl 1907 - Dain 21. nóvember 1982
Að morgni 22. nóvember si. hringdi
síminn og var mér sagt lát Hallfríðar
Gunnarsdóttur. Okkur setti hljóð og
þó hún hefði gengið með hjartasjúk-
dóm í nokkur ár gátum við illa sætt
okkur við það að hún væri horfin yfir
móðuna miklu.
Þegar ég var krakki kom ung skag-
firsk stúlka í nágrenni foreldra
minna að Máná á Tjörnesi. Hún
vakti allsstaðar eftirtekt fyrir glæsi-
leik, einlægni og hjálpsemi, en örlög-
in höguðu því þannig að ekki fengum
við lengi að njóta hennar þar. Hall-
fríður giftist syni hjónanna á Máná,
Aðalgeir Sigurðarsyni, glæsilegum
efnismanni, en missti hann snögg-
lega þegar þau voru í heimsókn í
heimkynnum Hallfríðar að Keflavík
í Hegranesi í Skagafirði.
Aldrei gleymi ég deginum, sem
okkur var sagt lát Alla, þá ríkti mikil
sorg á bænum heima og allir voru
harmi slegnir. Hallfríður var hjúkr-
unarkona og fór að vinna á Sjúkra-
húsinu á Sauðárkrók. Allsstaðar var
hún eftirsótt því að allt lék í höndun-
um á henni, saumaði hún á sauma-
stofu og var mikið leitað til hennar.
Heima þar saumaði hún peysuföt,
upphluti og leysti hvers manns
vanda.
Ég flutti inn í Eyjarfjörð og aftuj
lágu leiðir okkar saman. Þá var hún
búin að stofna heimili með Mikael
Þorfinnssyni, ágætis manni og var
heimili þeirra rómað fyrir myndar-
skap og gestrisni. Þar vantaði aldrei
hlaðið veisluborð af mjög góðum
mat og brauði og húsfreyjan dúkaði
borð og bar fram af einstakri smekk-
vísi. Þótt húsið að Rauðumýri 9 væri
ekki stórt, vantaði aldrei pláss og oft
var þar þétt setið.
Hallfríður var mikill unnandi
móður náttúru og bar blómagarður-
inn hennar vitni um hvað hún unni
gróðri og þá töluðu stofublómin sínu
máli. Hún var borin og barnfædd í
sveit og unni af heilum hug dýrum og
öllu sem leit að búskap. Hallfríður
mun ekki hafa orðið rík á nútíma
mælikvarða, enda sagði hún við mig:
„Ég er svo rík þegar ég á Öldu mína
ogelskulegu barnabömin". í þessum
orðum fellst mikil viska. Alda,
einkabarnið, er bráðmyndarleg og
barnabörnin fjögur svo vel gerð að
unun er að, enda vel vandað að upp-
eldi þeirra. Tengdason sinn, Olaf
Arnarson, dáði Hallfríður og virti.
Hallfríður tók virkan þátt í félags-
málum og má þar nefna hvað hún
vann ötuglega til styrktar byggingu
heilsuhælis Norðurlands. Hún hafði
unnið hjá Jónasi Kristjánssyni lækni
og hreyfst af starfi hans.
Við þökkum Hallfríði alla tryggð
og vináttu og það sem hún hefur fyrir
okkur gert. Við minnumst hennar
með söknuði. Mest hafa þeir misst
sem stóðu henni næst, en bjartar
minningar eiga eftir að verða ljós á
vegi þeirra.
Innilegar samúðarkveðjur til
Mikaels og fjölskyldunnar Birki-
lundi 16 og annarra aðstandenda.
Karólína Gunnarsdóttir.
Minning
Baldur Halldórsson
Fæddur 19. jan. 1916 - Dainn 10. okt. 1982
Baldur Halldórsson var burtu kall-
aður úr þessu lífi hinn 10. október
s.l. Hann var fæddur að Hvamtni,
foreldrar hans voru Guðný Pálsdótt-
ir og Halldór Guðlaugsson bóndi.
Baldur var elstur af 8 börnum
þeirra er upp komust. Hann vinnur
síðan öll almenn sveitastörf á búi for-
eldra sinna er var títt á þeim dögum,
en ungur fer hann á Bændaskólann
að Hvanneyri og útskrifast þaðan 19
ára gamall.
Eftir heimkomu þaðan vann hann
á ýmsum stöðum í Eyjafirði, eða þar
til hann fer að búa félagsbúi með
bræðrum sínum, þeim Snorra og
Guðlaugi. Síðar starfar hann við
Skjaldarvíkurbúið og þar kynnist
hann eftirlifandi konu sinni, Jónu
Sæmundsdóttur. Gengu þau í hjóna-
band 14. maí 1948. Þegar svo Baldur
flytst til Akureyrar, flytja foreldrar
hans einnig með þeim og þau kaupa
húseignina Aðalstræti 28, er var
heimili þeirra æ síðan. Eina dóttur
barna áttu þau, Védísi, sem er gift
Garðari Helgasyni verkstjóra hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa. Börn
þeirra eru átta talsins og sá afi þeirra
ekki sólina fyrir þeim. Einnig dvald-
ist á heimili þeirra meira og minna
Guðbjörg, systurdóttir Jónu, því er
óhætt að segja að Baldur hafi átt gott
fjölskyldulíf og manngæsku þeirra
hjóna má líka sjá á því að á heimilinu
dvöldu mörg gamalmenni er voru
undir þeirra handarjaðri.
Baldur réðist til starfa hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga árið 1955 og starf-
aði þar til dauðadags. Hann var trúr í
starfi og samviskusamur með af-
brigðum, hann var fastur ritari á
fundum K.E.A. og einnig sá hann
um skjalavörslu fyrir þá um árabil.
Baldur starfaði mikið í félagi Versl-
unar- og skrifstofufólks, var í stjórn
þess árin 1960-1964 og upp frá því
gengdi hann hinum ýmsu trúnaðar-
störfum fram á síðari ár. Er félagið
minntist 50 ára afmælis síns var Bald-
ur fenginn til að skrá sögu þess og
tókst honum það verk með prýði. f
upphafi afmælisritsins segir hann:
„Minni okkar er hverfult. Því er það
að á tímamótum viljum við gjarnan
líta til baka um farinn veg, huga að
helstu kennileitum. Hið fyrsta sem
við sannréynum á slíkum stundum,
er hve undra fljótt sandi tímans fenn-
ir í farna slóð og ekki síður hitt að
slík upprifjun vekur oftast fleiri
spurningar en hún svarar. Þó skal á
50 ára afmæli F.V.S.A. reynt að
draga saman nokkur atriði úr sögu
þess“. Síðan skýrir hann frá hve hart
var barist um hvert fastlaunað starf á
þessum fyrstu árum félagsins en þá
ríkti mikið óvissuástand í atvinnulífi
hins almenna borgara.
Hann heldur áfram að fylgjast
með af áhuga á hinum ýmsu fram-
faramálum félagsins, þegar það eign-
ast sitt eigið húsnæði 1964 og sitt
fyrsta orlofshús eignast félagið 1973,
síðan annað 1977 og var Baldur við-
staddur þá víxlu. Vegna þessa alls
vildi félagið minnast þessa góða fé-
laga og þakka honum vel unnin störf
og drengskapar í hvívetna.
Hvaðerhel?
Öllum líkn, sem lifa
engill, sem til lífsins leiðir
Ijósmóðir, sem hvílu breiðir.
Sólarbros, er birta él
heitirhel.
Eilíftlíf,-
ver oss huggun, vörn og hlíf
lifí oss, svo ávallt eygjum
æðra lífið, þó að deyjum.
Hvað er allt, þá endar kif?
Eilíftlíf.
Úr leik í 2. flokki. Sókn KA bítur á vörn Þórsara.
Ljósmynd: KGA.
Akureyrarmót í innanhúsknattspyrnu:
KA með 6 titla
Þórsarar með 3
Nú á milli jóla og nýárs var
haldið í nýju íþróttahöllinni
Akureyrarmót í innanhúss-
knattspyrnu. Það var KRA
sem sá um þetta mót sem fór í
alla staði ágætlega fram. Alls
var keppt í níu flokkum og
fóru leikar þannig að KA sigr-
aði í sex flokkum en Þór í
þremur. Vaskur tók þátt í
meistaraflokki og fyrsta en
þeim tókst ekki að vinna sigur
í sínum leikjum. í sumum
flokkum var keppt I B- og C-
flokkum en það er aðeins A-
liðið sem telst meistaria. Úrs-
lit einstakra leikja urðu þessi:
6. flokkur c-lið: Þór2-KA0
6. flokkur b-lið: Þór6-KA2
6. flokkur a-lið: Þór 3 - KA 4
5. flokkur c-lið: Þór 2 - KA 0
5. flokkur b-lið: Þór 5 - KA 1
5. flokkur a-lið: Þórl-KA2
4. flokkur b-lið: Þórl-KA3
4. flokkur a-lið
3. flokkur b-lið
3. flokkur a-lið
2. flokkur a-lið
Kvennaflokkur
Eldri flokkur:
1. flokkur:
1. flokkur:
1. flokkur:
Meistarafl.:
Meistarafl.:
Meistarafl.:
Þór 1 - KA 5
Þór 3 - KA 1
Þór 1 - KA 2
Þór 5 - KA 1
Þór 2 - KA 1
Þór 7 - KA 4
KA 8 - Vaskur 1
Þór 6 - Vaskur 2
Þór 4 - KA 7
KA 9 - Vaskur 2
Þór 7 - Vaskur 3
Þór 3 - KA 5
Handknattleikur:
Þórsarar ólöglegir
Rétt fyrir jólin var leikin önn-
ur umferð í keppni annars
flokks, en sú fyrsta var leikin
hér á Akureyri í nóvember.
Að þessu sinni var leikið fyrir
sunnan. í fyrstu umferð sigr-
aði KA mjög óvænt en í ann-
arri umferð fengu þeir sex
stig.
Lið Þórs í þessum leikjum var
kært af þeim liðum sem Þór sigr-
aði á þeim forsendum að í liðinu
væru of margir leikmenn þriðja
flokks. Kæran féll á þann veg að
allir sigrar Þórs voru taldir
þeim tapaðir.
Að loknum tveimur umferð-
um er KA í fjórða sæti, en Þór
að sjálfsögðu í því neðsta með
ekkert stig eftir að af þeim hafa
verið dæmd öll stigin. Það er
nokkuð furðulegt að ekki megi
hafa unga leikmenn í liðunum,
en þrátt fyrir það virðist þriðji
flokkur Þórs nokkuð sterkur því
þeir leikmenn unnu marga sigra
yfir piltum úr öðrum flokki.
Þorsteinn kemur
norður fljótlega
„Já, það er frágengið að hann
leikur með okkur næsta
sumar“, sagði Guðmundur
Sigurbjörnsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs, þeg-
ar hann var að því spurður
hvað liði viðræðum við Þor-
stein Ólafsson.
Þorsteinn er fyrrverandi
markmaður hjá Keflvíkingum,
en undanfarin ár hefur hann
leikið í Gautaborg í Svíþjóð.
Hann hefur einnig leikið í ís-
lenska landsliðinu, eða alls 16
sinnum. Þórsarar fá þarna mjög
reyndan markmann, en hann er
einnig þekktur að því að stjórna
vörninni röggsamiega.
Guðmundur var að því spurð-
ur hvort Sigurður Lárusson léki
með Þór í sumar, en hann sagði
það allt óákveðið.
Þorsteinn, sem er efnaverk-
fræðingur, kemur hingað um
mánaðarmótin janúar-febrúar,
en hann mun hefja störf hjá
Sjöfn.
4. janúar 1983 - DAGUR - 7