Dagur - 06.01.1983, Side 1

Dagur - 06.01.1983, Side 1
GULLSMIÐIH SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66.árgangur Akureyri, fímmtudagur 6. janúar 1983 2. tölublað Sólbakur til sverðfiskveiða? „Ég get lítið um þetta mál sagt á þessu stigi nema að það hefur ekki verið frá því gengið eða endanlega ákveðið hvort ég kaupi togarann,“ sagði Sigurð- ur Þorsteinsson, sem búsettur er í Bandaríkjunum, er Dagur ræddi við hann. Sigurður, sem hefur áður keypt notuð skip hér á landi, hefur verið staddur á Akureyri undanfarna daga og rætt við forráðamenn Útgerð- arfélags Akureyringa hf. um kaup á togaranum Sólbak sem lagt hafði verið. „Pað kom fyrst til tals í desem- ber að ég myndi kaupa Sólbak en eins og ég sagði áðan er málið ófrágengið en það mun sennilega skýrast á næstu dögum hvort af kaupunum verður," sagði Sigurð- ur. Samkvæmt heimildum Dags, sem telja má áreiðanlegar, hyggst Sigurður staðsetja Sólbak við Ba- hamaeyjar - ef af kaupunum verður - og verður skipið þar sem einhverskonar bækistöð fyrir sverðfiskveiðimenn sem stunda þar veiðar sínar. Þá segj a heimild- ir Dags að Bergþór Arngrímsson, vélstjóri frá Akureyri, muni fara með skipinu utan og starfa á því í þrjá mánuði. „Það er ekki búið að selja Sól- bak og það hefur ekkert verið að gerast í því máli,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf., er Dagur spurði hann um þetta mál. „Það er hins vegar til athug- unar að selja skipið og hefur verið lengi,“ sagði Vilhelm. Eins og menn hafa séð hefur Sólbakur legið við bryggju í Ak- ureyrarhöfn undanfarið. Sl. mánudag var togarinn færður þaðan og í slipp hjá Slippstöðinni á Akureyrik þar sem hann hefur verið botnhreinsaður og botn skipsins málaður. Sólbakur EA 5. Hegranes frá Sauðárkróki er nú í gagngerri endurbyggingu hjá Slippstöðinni á Akureyri. Meðal annars verður skipið lengt og hefur það verið tekið í sundur í þeim tilgangi. Sólbakur á efri myndinni og Hegranes munu vera fyrstu skuttog- ararnir sem ganga úr sér. Annað hvort er að leggja þeim og setja í brotajárn eða endurbyggja. Mynd: H.Sv. Innheimta opinberra gjalda á Akureyri: „Sæmilega ánægður“ - segir Valgarður Baldvinsson bæjarritari Ekiðá stúlku á gang- braut við Þing- valla- stræti Umferðarslys varð á Akureyri I gær en þá var ekið á stúlku sem var að fara yfír gangbraut á Þingvallastræti á móts við spennistöðina sem þar er. Stúlkan var flutt á sjúkrahús til rannsóknar. Hún reyndist óbrotin og fékk að fara heim að rannsókn lokinni. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni í morgun liggur ekki fyrir hver afstaða ljósanna við gang- brautina var er slysið átti sér stað og ber þeim sem yfirheyrðir hafa verið ekki saman um hvort grænt eða rautt Ijós hafi logað er óhapp- ið varð. Gangbrautarslys eru sem betur fer ekki algeng hér í bænum en þó full ástæða til að að vara bæði ökumenn og gangandi vegfarend- ur um að sýna aðgát við gang- brautirnar. Alls voru 46 á atvinnuleysisskrá á Dalvík um áramótin, en þeim hafði fjölgað og voru um 100 talsins s.l. þriðjudag er við ræddum við Snorra Finnlaugs- son bæjarritara. „Það liggur ekki fyrir endan- lega hvernig innheimta opin- berra gjalda gekk á síðasta ári, en þó er Ijóst að hún er eitthvað lakari en á árinu 1981,“ sagði Elías I. Elíasson, bæjarfógeti á Akureyri og Dalvík og sýslu- maður í Eyjafjarðarsýslu, í samtali við Dag í gær. Meira gat Elías ekki sagt um Snorri sagði að um 60 manns af þessu fólki væri starfandi hjá frystihúsi KEA á staðnum, en þvi hefði verið sagt upp kauptrygg- ingu um hátíðarnar. Hann sagðist reikna með að þetta fólk hæfi vinnu mjög fljótlega, og reyndar málið á þessu stigi og hafði ekki handbærar tölur um það hvort það væru fremur fyrirtæki en ein- staklingar sem skulduðu enn op- inber gjöld frá síðasta ári. „Miðað við hvernig verið hefur undanfarin ár getum við verið sæmilega ánægðir með innheimt- una,“ sagði Valgarður Baldvins- son, áskrifstofu Akureyrarbæjar. hinir sem væru á atvinnuleysis- skrá. „Þetta er nær allt fólk sem hefur unnið í fiskverkunarhúsun- um, og ég vonast til að um miðjan mánuðinn verði hjólin farin að snúast af eðlilegum hraða og ekk- „Við innheimtum um 91% af álögðum gjöldum og eldri gjöld- um sem voru hér til innheimtu sem er ágætt hlutfall. Að vísu er þetta lakara en 1981 en það ár var óvenjulega gott og þá innheimtust um 93%. Þar sem oft er talað um 90% sem meðal innheimtuflutfall hlýtur þetta að teljast ágætt,“ sagði Valgarður. ert atvinnuleysi verði þá hér“, sagði Snorri. Þess má að lokum geta að inn- heimta opinberra gjalda á Dalvík á s.l. ári nam um 86% af álögðum gjöldum ársins. Ping- menn sitja fyrir svörum Næstkomandí sunnudag klukk- an þrjú e.h. verður abnennur fundur haldinn með þingmönn- um Norðurlandskjördæmis eystra í gildaskálanum á Hótel KEA. Fundurinn verður með nokkuð óvenjulegu sniði en þar gefst mönnum kostur á að leggja fram skriflegar spurningar fyrir þingmennina auk þess sem tveir spyrjendur munu stjóma fundin- um og sjá til þess að ekki verði óþarfa málalengingar. „Það hefur komið í ljós hjá okk- ur í Framsóknarfélagi Akureyrar, eins og vafalaust í öðrum félögum, að þetta venjulega fundarform virðist ekki eiga við lengur þar sem haldnar eru langar framsöguræður og síðan koma mismunandi vel undirbúnar fyrirspurnir. Því ákváðum við að breyta forminu, reyna að ná upp meiri hraða ef svo má segja og jafnframt reyna að laða fram fyrirspumir, gjaman svolítið hvassar. Margir hafa vafal- aust löngun til að spyrja þingmenn- ina um eitt og annað varðandi bæði það sem liðið er og einnig og, ekki síður, hvað framundan sé. Ef menn vilja ekki láta nafn síns getið þá er frjálst að leggja spurningam- ar fram án þess,“ sagði Jóhann Sig- urðsson, formaður Framsóknarfé- lags Akureyrar. Hann gat þess að allir framsóknarmenn og aðrir áhugamenn um stefnu Framsókn- arflokksins væm velkomnir á fund- inn kl. 15 á sunnudag. Kvaðst hann ætla að fundurinn gæti orðið mjög skemmtilegur og líflegur. Spurn- ingum geta menn komið til fund- arstjóra annað hvort fyrir eða á sjálfum fundinum. Fundarstjórar verða Hermann Sveinbjörnsson og Valur Arnþórsson. DALVIK: Um 100 eru án atvinnu

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.