Dagur - 06.01.1983, Síða 2

Dagur - 06.01.1983, Síða 2
Fuglatalning á Akureyri Almennur fuglatalningardagur var að þessu sinni 26. desember 1982. Veður var ágætt, logn all- an daginn, frost 2 stig, léttskýj- að og skyggni ágætt. Pollurinn var ófrosinn og íslaus, svo og fjörur. Færi um bæinn var ágætt, háir snjóruðningar með- fram götum, því mikið snjóaði í desember. Þeir sem töldu fugla voru hinir sömu og undanfarin ár: Árni Björn Árnason, Gunnlaugur Pét- ursson, Jón Sigurjónsson og Por- steinn Þorsteinssön. Athugunarsvæðiö var ströndin frá flugvelli og út í Skjaldarvík ásamt görðum bæjarins. Þessar fuglategundir sáust: Auðnutittlingur 1, gráþrestir 8, skógarþrestir 7, svartþrestir 3, glóbrystingur 1, snjótittlingar 1624, bjartmáfar 93, silfurmáfar 124, svartbakar 319, hvítmáfar 164, hettumáfar 224, stormmáfur 1, sendlingar 25, hrafnar 71, gul- endur 10, stokkendur 280, topp- endur 11, rauðhöfðaönd 1, há- vellur72, teistur 18, æðarfugl711, ógreindir máfar 610. Alls voru fuglategundir21. Þótt einungis sæjust 7 skógar- þrestir á fuglatalningardaginn munu a.m.k. 20 skógarþrestir vera í bænum um áramótin 1982- 1983. Auk þeirra fugla sem sáust í fuglatálningunni var eftirtaldra fugia vart á árinu 1982 á Akur- eyri: Gráþrestir, sem verptu tvisvar og komu upp ungum í bæði skiptin. Sáust ungar í byrjun júlí og aftur í ágústmánuði. Um miðj- an nóvember kom til Akureyrar mikið af gráþröstum og fór þeim síðan fækkandi. Gráþröstur verpti á Akureyri 1980. Stari sást hér í október. Tveir hettusöngv- arar sáust í byrjun nóvember. í byrjun nóvember sást einnig lítill söngvari, laufsöngvari eða grá- söngvari en þeir eru fremur tor- greindir hvor frá öðrum. Byggið im yóar eigió ÖRYGCIS HÓLF ogþaóheima istofu Hver þekkir ekki vandamál viö geymslu pappira og muna heima????? Nú er komin ódýr og örugg lausn t.d. tyrir: ♦Verðbrét, afsöl og samninga * Bankabækurnar * Peninga, innlenda og erlenda * Frlmerkja- og myntsötn * Heimilisbókhaldið * Skartgripi * Ættar- og verðlaunagripi * Skattapappira * Meðul og annað sem getur verið hættulegt börnum * Leyndarmálin ★ Eldtraust og þjófheld ★ 4mismunandistæröiroggeröir öseyri 6, Akureyri . Póslhólf 432 . Sfml 24223 . . Leikklúbburinn Saga: Lísa í Undralandi Vetrarstarf Leikklúbbsins Sögu er nú hafíð af fullum krafti. í september hófst starf- semin með leiklistarnámskeiði fyrir nýja félaga og nú eru hafn- ar æfíngar á næsta verkefni klúbbsins, sem er Lísa i Undra- landi eftir Klaus Hagerup. Þetta er nútímaútfærsla hins gamla ævintýris Lewis Carrolls og sniðið handá unglingum jafnt sem fullorðnum. Þýðinguna gerði Sigurður Snævarr, en söngtexta þýddi Þorsteinn Eggertsson. Fjöldi söngva og dansa eru í leik- ritinu og við flutning söngvanna nýtur klúbburinn aðstoðar rokk- hljómsveitar. Leikstjóri sýningarinnar er Viðar Eggertsson leikari hjá L. A- Stefnt er að frumsýningu í mars- byrjun og líklegt að verkið verði sýnt víðar en á Akureyri. Félagar í Leikklúbbnum Sögu eru nú nálega 40 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Þeir eru á aldrinum 13-23 ára, en formað- ur klúbbsins er Helgi Már Barða- son. 230 á stofnfundi Stofnfundur minningarsjóðs um Jón Júlíus Þorsteinsson, kennara, var haldinn að Hótel Varðborg sunnudaginn 28. nóvember sl. Skráðir stofnfé- lagar eru 230. Tilgangur sjóðsins er að gefa út kennslugögn fyrir hljóðlestrar-, tal- og söngkennslu. Stofnfé sjóðsins er 25 þúsund krónur. Sjóðurinn veitir viðtöku minning- argjöfum og öðrum gjöfum. Stjórn sjóðsins vill beina því til þeirra sem enn eiga eftir að skila heimsendum gíróseðlum að gera það vinsamlegast sem fyrst, en frestur til að skila þeim er til 15. janúar 1983 (gíróreikningsnúmar 18973-1). í aðalstjórn félagsins eru Erla Kristjánsdóttir, formaður, Guðmundur Víðir Gunnlaugs- son, varaformaður, Sigurður Flosason, gjaldkeri, Vilberg Alexandersson og Atli Guðlaugs- son, meðstjórnendur. f vara- stjórn eru Gunnar Jóhannsson, Margrét Albertsdóttir og Rósa Árnadóttir. (Fréttatilkynning) AKUREYRARBÆR H Félagsstarfi aldraðra á vegum Félagsmálastofnunar Akureyrar verður hagað sem hér segir síðari hluta vetrar 1982/83. Skemmtanir í Sjallanum verða með sama hætti og verið hefur sunnudagana 16. jan., 20. febr., 13. mars, 17. apríl, 15. maí. Þeir sem óska eftir akstri heiman og heim hringi í síma 22770 kl. 13-14 samdægurs. Handíðahóparnir munu fyrst koma saman laugar- daginn 8. janúar og miðvikudaginn 12. janúar. Óskum um þátttöku og akstur skal koma á fram- færi við Félagsmálastofnun í síma 25880 næstu daga. Starfsemi leikf imihopsins, sem verið hefur í Laxa- götu 5, verður auglýst síðar. 2 - DAGUR -6. janúar 1983 /N /N /N ✓N /N m m m m m m /N ^N .XTn /N xN /N /N m /N m ✓N EIGNAMIÐSTOÐIN SKIPAGOTU 1 - SIMI 24606 Opið allan daginn SELJAHLÍÐ: 4ra herb. raðhúsaíbúð, ca. 105 fm. Búið að steypa plötu undir bílskúr. Laus eftir samkomulagi. RÁNARGATA: 4ra herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi, töluvert endurnýjuð. Laus eftir samkomulagi. HAFNARSTRÆTI: ^ 4ra herb. íbúð á efstu hæð í þríbýlishúsi, mikið m endurnýjuð. Laus strax. BREKKUGATA: 3ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi, mikið endurnýjuð. ^j. Laus eftir samkomulagi. GRUNDARGATA: 4ra herb. íbúð, ca. 80 fm í tvíbýlishúsi. Laus eftir samkomulagi. KEILUSÍÐA: 2ja herb. íbúð, ca. 60 fm í fjölbýlishúsi. Skipti á rti 4ra herb. raðhúsaíbúð í byggingu æskileg. Laus eftir samkomulagi. m KRINGLUMÝRI: 140 fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bilskúr. Ýmis skipti koma til greina. Laust eftir rn samkomulagi. m TJARNARLUNDUR: pn 2ja herb. íbúð á 4. hæð í fjölbýlishusi, ca. 50 fm. ✓ts Laus eftir samkomulagi. ”frT AKURGERÐI: 5-6 herb. endaraðhúsaíbúð. Stærð ca. 150 fm. 'rn Mjög vel gerð eign. Saunabað á neðri hæð. Laus eftir samkomulagi. LANGHOLT: 5 herb. einbýlishús a tveim hæðum, á góðum stað. Lítij íbúð í kjallara. Möguleiki að gera þar bílskúr. Ýmis skipti koma til greina. Laust eftir samkomulagi. fpr STAPASÍÐA: 168 fm endaraöhúsaíbúð á tveim hæðum með ^ bílskúr. Skipti á minni raðhúsaíbúð æskileg. ^ TJARNARLUNDUR: m 2ja herb. íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi, ca. 50 fm. Laus strax. fn BYGGÐAVEGUR: 3ja herb. íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi, ca. 80 fm. Laus fljótlega. AÐALSTRÆTI: m Lítið einbýlishús. Hæð, kjallari og ris. Mikið fn endurnýjuð. Laust eftir samkomulagi. m TJARNARLUNDUR: 2ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi, ca. 40 fm. Laus strax. STAPASIÐA: 1,1 125 fm raðhúsaíbúð á tveim hæðum. Rúmgóð og fft snyrtileg eign. Skipti á íbúð í Reykjavík koma til -pTv, greina. Laus eftir samkomulagi. fFT EINHOLT: 140 fm raðhúsaíbúð á tveim hæðum. Snyrtileg eign. Laus eftir samkomulagi. HJARÐARHOLT: 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Mikið endurnýjuð eign. Laus eftir samkomulagi. SÓLVELLIR: ffþ 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Laus eftir samkomulagi. EIKARLUNDUR: 5-6 herb. einbýlishús á einni hæð, ca. 140 fm. TtT Stór bílskúr. Úrvals eign á góðum stað í bænum. m Vantar á skrá 3ja og 4ra herb. blokkaríbúðir. Sklpagötu 1 - sími 24606 Sölustjóri: Björn Kristjánsson. Heimasími: 21776. Lögmaður: Ólafur Birgir Árnason. /N /N /^N /Ns /N /"N /Ns /N /N /N xN I /N m ✓N 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3; 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.