Dagur - 27.01.1983, Page 8
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Sauðárkrókur:,
Fjármagn
verði útvegað
til íþrótta-
hússins
Á sameiginlegum fundi skóla-
nefndar, bygginganefndar
íþróttahúss og skólastjóra á
Sauðárkróki 12. janúar s.l. var
samþykkt að beina þeim til-
mælum til menntamálaráð-
herra, fjármálaráðherra og
stjórnenda Sauðárkróksbæjar
að útvega það fjármagn sem
þarf til að hægt sé á þessu ári að
standa við þann verksamning
sem gerður var á síðasta ári um
byggingu íþróttahúss. Stefnt
hefur verið að því að húsið
yrði fokhelt á þessu ári.
í samþykktinni segir á þessa
leið: „Bent er á að á Sauðárkróki
eru nú í Grunnskóla og Fjöl-
brautaskóla um 640 nemendur og
er reiknað með að á næstu árum
verði í þessum tveim skólum um
900 nemendur.
Sá íþróttasalur sem byggður
var við Barnaskólann 1949, í
stærðum 8x16 m, getur engan veg-
inn annað þeirri félagslegu þörf
sem skólahaldið og hinn ört vax-
andi bær kallar á. Við viljum einn-
ig benda á að ekkert íþróttahús er
í Skagafirði og verða því þau ung-
menni sem leggja stund á flestar
inniíþróttir að fara í aðrar sýslur
til æfinga og keppni.“
Dalvíkingar hafa
engan tannlækni
„Það hefur engin tannlækna-
þjónusta verið hér í bænum í
tæpt ár, en sá tannlæknir sem
hér var flutti sl. vor til Selfoss,“
sagði Snorri Finnlaugsson
bæjarritari á Dalvík í samtali
við Dag fyrir helgina.
Snorri sagði að Dalvíkurbær
hefði reynt að vinna að þessu
máli, m.a. með því að auglýsa í
tímariti Tannlæknafélagsins.
Tveir hefðu sýnt áhuga á starfinu
og skoðað aðstöðu á Dalvík
Annar hefði síðan ráðið sig annað
en hinn væri enn í námi.
Að sögn Snorra keypti bærinn
tæki þau af tannlækninum sem
hann átti er hann yfirgaf Dalvík
s.l. vor og eru það fullkomin tæki.
Þá væri húsakostur mjög góður
sem ætlaður væri fyrir þessa þjón-
ustu. Það má því segja að allt sé
fyrir hendi, en aðstaðan og tækin
koma auðvitað að litlu gagni
nema tannlæknir fáist til staðar-
ins.
Tannlæknastólarnir á Dalvík standa auðir.
Mynd: R.S.F.
140 skráðir
atvinnulausir
Alls voru 140 skráðir atvinnu-
lausir á Akureyri þann 31. des-
ember sl., 120 karlar og 20
konur.
í desember voru skráðir 1434
heilir atvinnuleysisdagar, sem
svarar til þess að 105 hafi verið
atvinnulausir allan mánuðinn.
Gefin voru út í desember 220
atvinnuleysisbótavottorð með
samtals 1918 heilum bótadögum.
Bændaklúbbs-
fundur
Bændaklúbbsfundur verður
haldinn að Hótel K.E.A.
mánudagskvöldið 31. jan. n.k.
og hefst kl. 21.00.
Frummælandi verður Þorsteinn
Ólafsson dýralæknir og ræðir
hann um frjósemi mjólkurkúa og
samstillingu gangmála hjá þeim.
Kynningafundur
Bandalags
jafnaðarmanna
Bandalag jafnaðarmanna gengst
fyrir almennum opnum kynning-
arfundi á Hótel KEA á fimmtu-
dagskvöld klukkan 20.30.
Framsögumenn verða Loftur
Þorsteinsson, verkfræðingur, og
Vilmundur Gylfason, alþingis-
maður.
Skip verði leigt
í stað Hegraness
Sem kunnugt er er nú unnið að
endurbótum og stækkun á
Hegranesi, skuttogara Útgerð-
arfélags Skagfirðinga, í Slipp-
stöðinni á Akureyri. Þetta hef-
ur m.a. haft áhrif á ástand
atvinnumála í fiskvinnslu á
Sauðárkróki og málið verið
tekið til umræðu í bæjarstjórn.
í framhaldi af umræðum bæjar-
stjórnar var atvinnumálanefnd
falið að kanna málið og 20. janúar
gerði nefndin samþykkt, þar sem
lýst er áhyggjum vegna atvinnu-
ástandsins í fiskvinnslu á Sauð-
árkróki sem er tilkomið vegna
endurbóta á einu skipa útgerðar-
félagsins.
„Nefndin leggur þunga áherslu
á að stjórn ÚS og forráðamenn
frystihúsanna bregðist við þeim
vanda sem hér hefur skapast með
því að taka á leigu skip fram á vor-
ið eða fái skip til landana hér,
þannig að nægur afli berist á land
til að stöðug vinna haldist í frysti-
húsunum.“
Á fundi nefndarinnar kom fram
hjá Bjarka Tryggvasyni, forstjóra
útgerðarfélagsins, að reynt hefði
verið að fá togskip til löndunar,
en lítill möguleiki væri á að það
tækist. Hugsanlegt væri hinsvegar
að leigja skip frá Reykjavík, til að
brúa þetta tímabil, en gert er ráð
fyrir að Hegranesið verði í slipp til
maí- júnf.
63 hlutu verðlaun í
umferðargetrauninni
Eins og undanfarin ár stóð um-
ferðarráð og lögregla fyrir um-
ferðargetraun skólabarna á
aldrinum 6-12 ára. Tóku allir
skólarnir á Akureyri þátt í þess-
ari getraun. Veitt voru alls 63
verðlaun sem skiptust milli
skólanna eftir nemendafjölda.
Verðlaunin voru í formi bóka
og penna, gefin af tryggingafélög-
unum á Akureyri.
Fjöldi réttra úrlausna barst og
var dregið úr þeim á lögreglustöð-
inni á Akureyri skömmu fyrir jól.
Vinningshafar fengu síðan verð-
laun sín afhent á aðfangadag jóla
og var verðlaununum ekið heim
til hvers og eins af lögreglunni.
Erlingur Pálmason, yfirlögregluþjónn, dregur úr réttum svörum að viðstödd-
um skólastjórum skólanna á Akureyri og Bimi Mikaelssyni, lögreglumanni.
Ljósm: Dan. Sn.
# Er hann hún
eða hann?
Dvöl rostungsins í Rifshöfn
að undanförnu hefur valdið
mörgum manninum heila-
brotum. Koma hans þangað
var sunnlenskum blaða-
mönnum kærkomin í „gúrku-
tíðinni" og þeir hafa verið iðn-
ir við að segja frá því hvar í
höfninni hann sé hverju sinni
o.s.frv. Og skyndilega vakn-
aði spurning: Er rostungurinn
karl- eða kvendýr? Ruku
menn nú upp til handa og
fóta, leitað var til færustu sér-
fræðinga og einn þeirra sagði
að allt benti til þess að hér
væri um karldýr að ræða því
kvendýr færu ekki i svona
ferðalög ein á báti. En það
hvernig rostungurinn brást
við er mynda átti hann i fjör-
unni við Rifshöfn styður ekki
þá skoðun. Hann hélt nefni-
lega hreyfunum sem fastast
fyrir þann hluta skrokksins
sem sjá þurfti til að hægt væri
að skera úr þessu mikla máli.
Minntu tilburðir hans óneitan-
lega á konu sem skýlir brjóst-
um sínum, og þvi verður að
álykta að rostungurinn sé
ekki hinn frægi Valli víðförli
heldur Valgerður víðförla.
• Svört strik á
gólfinu
Vandamál hefur komið upp i
nýju íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Einhverjir sem þar hafa
mætt til æfinga hafa sloppið
inn á skóm með svörtum
botni og auk þess örsmáum
gúmmítökkum. Skildu þessir
skór eftir sig svartar rákir á
gólfinu og þvottavélin mikla,
sem kostaði 250 þúsund
krónur og ekið er um gólfið
eins og bifreið þegar verið er
að nota hana, nær þessum
strikum ekki. Nú er þannig að
flestum þykir nóg um strikin á
gólfinu sem afmarka hina
ýmsu keppnisvelli. Vonandi
tekst að finna lausn sem leiðir
til þess að hægt verði að afmá
aukastrikin svörtu.
• Alltfulltí
kvenna-
athvarfi
Svo virðist af fréttum að ekki
hafi verið vanþörf á að setja á
laggirnar svokailað kvennaat-
hvarf í höfuðborginni, athvarf
fyrir konur sem m.a. sæta
misþyrmingum heimafyrirog
þurfa húsaskjól. Virðist meira
um það en menn héldu að höf-
uðborgarbúar leggi hendur á
konur sínar. Hinsvegar hefur
enn ekki heyrt neitt um það
hvort konur annarsstaðar á
landinu, t.d. á Akureyri, hafi
þörf fyrir athvarf af þessu
tagi. Vonandi er ástæðan sú
að Akureyringar séu svona
góðir við konurnar sínar.