Dagur - 18.02.1983, Qupperneq 3
„Þegar maður kyssir verður
maður þá ekki hjón. . . ?“
Bjamþór (Daníel Behrend) t.h. kennir Cesari vinnumanni (Kristján
Guðmundsson) að reykja með tilheyrandi grettum og giennum.
Þessi ágæta setning ásamt mörgum
öðrum góðum er úr leikritinu
Hreppstjórinn á Hraunhamri eftir
Loft Guðmundsson.
Þetta leikrit hefur víða verið tek-
ið til sýninga, og vafalaust eru þeir
margir orðnir sem hafa brugðið sér
í hlutverk úr þessu leikriti. Þessa
dagana er Ungmennafélag Möðru-
vallasóknar að sýna Hreppstjórann
á Hraunhamri í Freyjulundi í Arn-
arneshreppi.
Ég varð þess aðnjótandi að sjá
þessa uppsetningu þeirra í Möðru-
vallasókninni verða að veruleika
og vissulega horfir maður öðruvísi
á slíkar leiksýningar en aðrar. Að
vera vitni að „hægfara þroska“ einn
ar uppsetningar er í sjálfu sér
merkilegt, ekki síst þegar allar að-
stæður eru fremur fátæklegar og
aðstandendur gæddir meiri áhuga
en kunnáttu. Þess vegna er mér
ljúft að rita örlitla klausu um sýn-
ingu leikhópsins í Freyjulundi, -
ekki sem leikgagnrýnandi, heldur
sem einn úr áhorfendahópnum.
Leikurinn á að gerast í sláttar-
byrjun sumarið 1943 og fer fyrsti
þáttur fram á laugardagskvöldi en
hinir tveir á sunnudaginn þar á
eftir. Leiksviðið er í öll skiptin
stofa hreppstjórans á Hraunhamri.
Þess vegna er afar heppilegt fyrir
„fátæk og fákunnandi" leikfélög að
taka þetta leikrit fyrir. Leikbún-
aður er mjög einfaldur og ódýr. En
samt þarf leiksviðið ætíð að gefa
mynd leiksins ákveðinn ramma með
sínum leikbúnaði. Þetta hefurtek-
ist þokkalega hjá þeim í Freyju-
lundi. Að vísu virkaði sviðið svolít-
ið opið og tómlegt í fyrstu en þetta
vandist vel og féll vel utan um
persónur leiksins.
Þeir aðilar sem koma fram í þess-
ari sýningu eru allir áhugamenn og
að mestu óvanir sviðsframkomu.
En leikstjóranum Ara Jósavins-
syni, bónda á Auðnum í Öxnadal
tekst að fá fram nokuð eðlileg við-
brögð og takta hjá leikendum.
Hreppstjórann Ambrosius Am-
brosiusson leikur Jósavin Arason.
Túlkun Jósavins hefur lagast mikið
á æfingatímanum og verður hrepp-
stjórinn mjög sannfærandi í allri
framkomu og töktum. Ráðskonu
hans Þorbjörgu leikur ektakvinna
Jósavins Eygló Jóhannesdóttir. Frá
fyrstu tíð (þ.e.a.s. er leikæfingar
hófust) passaði Eygló vel í hlutverk
ráðskonunnar, - raddblær og fas
allt hæfir vel, en e.t.v. er ráðskon-
an gerð nokkuð ungleg, með fag-
lega uppsett hár og tískulega
máluð. Að vísu kemur fram í leik-
ritinu að ráðskonan haldi sér vel, sé
ungleg miðað við aldur, en samt
hefði ég óskað að gervi Eyglóar
væri í meira samræmi við rödd og
hreyfingar.
Dóttur hreppstjórans Eyrúnu
leikur kornung búandkona Gyða
Árnadóttir sem tekur hér sín fyrstu
skref á leiksviði. Það væri ósann-
gjarnt að ætlast til þess að Gyða
skilaði hlutverki sínu eins og þaul-
vanur leikari en óþarfi er fyrir hana
að vera hrædd við „bernsku sína,“
- Það sýnir hún vel í þriðja þætti.
Og gott væri ef hún næði sömu tök-
um á hlutverkinu í hinum tveimur
þáttunum, en þá var hún all óstyrk
og hikandi.
Fósturson hreppstjórans, gal-
gopann og heimsmanninn Bjarn-
þór leikur Daniel Behrend. Greini-
legt er að Daniel hefur stigið áður
fæti á leiksvið, því ieikur hans er
allur yfirvegaður og frjáls. Að öðr-
um ólöstuðum var leikur Daniels sá
besti og vissulega gefur persónan
Bjarnþór leikaranum tækifæri til
að slá um sig og það tekst Daniel
mjög vel.
Cesar fjósamaður er sú persóna
sem vekur mesta kátínu með sínum
heimsku spurningum og svörum.
En túlkun Kristjáns Guðmunds-
sonar er afbragð og ágætlega áber-
andi ýkt.
Son nágrannabóndans, kaupa-
mann hjá hreppstjóranum leikur
Reynir Ólgeirsson. Bergur kaupa-
maður er heldur dauf persóna og
erfitt að leika slíkt hlutverk í gam-
anleikriti. Það er því ekki sann-
gjarnt að áfellast Reyni fyrir
tilþrifaleysi og dauf svör. Hins veg-
ar rnætti hann tala örlítið hærra.
Unnusta Eyrúnar, svindlarann
Herbert Holt leikur Magnús Jó-
hannesson. Magnús var ekki sann-
færandi í þessu hlutverki þegar
leikæfingar hófust, en nú væri erfitt
að finna leikara sem hæfði betur í
þetta hlutverk. Magnús hefur því
náð að vaxa inn í persónuna og
túlkun hans er ágætlega eðlileg og
skýr.
Hafdís Bjarnadóttir leikur unn-
ustu Bjarnþórs, nokkuð brokk-
gengan kvenmann sem örlögin
hafa leikið býsna grátt. Hafdís er
sýnilega sviðsvön og fer vel með
smeðjulega framkomu fyrrverandi
gleðikonu.
Þessi uppsetning Ungmennafé-
lags Möðruvallasóknar er ágæt og
þess virði að henni sé gaumur
gefinn. Sýningin er eðlileg og blátt
áfram, - hláturinn fær óspart að
njóta sín hjá áhorfandanum, því
þetta leikrit er efnislega létturgam-
anleikur sem hæfir hvaða aldurs-
flokk sem er. Ég þakka vinum mín-
um hér í Arnarneshreppnum fyrir
dugnaðinn að koma þessu leikriti á
svið hér og óska þess að ekki skorti
áhorfendur til að samgleðjast yfir
velunnu verki. Akureyringar sem
aðrir ættu því að skreppa eina
kvöldstund í Freyjulund og láta
hláturinn njóta sín.
P.Þ.
Með mörg tæki í takinu?
E8SOLUBE XD*3 isw/40
Qölþykktarolían
á allan tækjaflotann,
alltárið!
Nýkynslóðafolíu
ESSOLUBE XD-3 15W/40 er íraun
ný kynslóð af alhliða mótorolíu. Hún er
kjörin fyrir nær allar díesel- og 4-gengis
bensínmótora og þolir öll vinnuskilyrði
sumar sem vetur, í hita sem frosti.
ESSOLUBE XD-3 15W/40 hefur að
í miklum kuldum og ekki síður örugga
smurhæfni við hátt hitastig og mikið álag.
Þannig helst smurolíu- og eldsneytis-
eyðsla í lágmarki, en öryggið í hámarki.
Hveijir nota ESSOLJUBE XD315W/40?
ESSOLUBE XD-3 15W/40 hentar
■■
geyma ný bæti- og hreinsiefni sem gera
það að verkum að mótorinn helst hreinn
og slit í lágmarki. Eiginleikar ESSO-
LUBE XD-3 15W/40 felast og m.a. í
því að hún verður fyrir litlum þykktar-
breytingum vegna hita og kulda.
Þetta tryggir auðvelda gangsetningu
þeim sérlega vel sem eru með blandaðan
tækjaflota s.s. fyrirtækjum, verktökum
og þeim sem reka langferðabíla t.d.
Ein smurolía, ESSOLUBE XD-3
15W/40 allt árið gefur aukið rekstrar-
öryggi og sparnað.
tsso
ESSOLUBE XD-3 HIULTIGRADE
SA£ I5W/W
Enirn fluttir
aöóseyril
★
Opnum laugardaginn
19. feb. kl. 9.00 í
nýju húsnæði að
Óseyri 1
★
Full búð
af nýjum vörum
★
Vörubifreiðar fyrir öll verk.
Kranabifreiðar að 6 tonna
lyftigetu. Sími 22620
★
Vöruflutningar
Sími22624
★
Komid og reynið
viðskiptin
BFREBASTODIN SIEFNR
Vörubifreiðar 22620
Vöruflutningar 22624
Skrifstofa 22622
Bílstjórar 24218
18. febrúár 1983 - DAGUR - 3