Dagur - 03.03.1983, Blaðsíða 8
Akureyri, fímmtudagur 3. mars 1983
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUD VINNA
Ofnakaup vegna tveggja fjöibýlishúsa á Akureyri:
Undirboð frá
Byggingarfyrirtækið Aðalgeir
og Viðar hefur tekið tilboði
Birgis Þorvaldssonar um að
kaupa af honum VEHA ofna í
tvö fjölbýlishús sem Aðalgeir
og Viðar eru að byggja fyrir
Akureyrarbæ við Keilusíðu.
Alls bárust fimm tilboð í ofna í
þessi hús. Þau voru frá Birgi Þor-
valdssyni og hljóðaði hans tilboð
upp á 127.567 krónur, Panelofnar
í Kópavogi með 174.000 krónur,
Vélsmiðjan Oddi á Akureyri
231.064 krónur, Funaofnar í
Hveragerði 234.748 krónur og
Ofnasmiðja Norðurlands með
244.530 krónur.
VEHA-ofnarnir sem Birgir
Þorvaldsson bíður eru belgískir,
og þegar litið er á tilboðin hér að
framan vaknar sú spurning hvort
ekki sé um undirtilboð að ræða
hjá honum, og jafnvel einnig hjá
Panelofnum.
„Það er talið að tilboð Panel-
ofna í Kópavogi sé undirboð og
varðandi tilboð Birgis er talið að
þar sé bæði um að ræða undirboð
auk þess sem þeir ofnar eru minni
heldur en þeir íslensku, og ástæð-
an sé sú að þeir eru sagðir með svo
góða varmanýtni" sagði Páll
Hlöðversson sem á sæti í atvinnu-
málanefnd Akureyrarbæjar, en
nefndin fékk þetta mál til umfjöll-
unar.
„Ég get vissulega skilið Aðal-
Belgíu?
geir að taka þessu tilboði sem er
áberandi lægst. Iðntæknistofnun
hefur samþykkt þessa ofna og ég
sé ekki annað en að bygginga-
nefnd muni gera það einnig. En
það má líka segja að það sé hættu-
legt fyrir Aðalgeir að hugsa
svona, sérstaklega út frá ásökun-
inni um undirboð. Aðalgeir rekur
hér glerverksmiðju og ætli belgísk
glerverksmiðja sem beitti undir-
boðinu gæti ekki eyðilagt mark-
aðinn hér á hálfu til einu ári.
Það er auðvitað ólöglegt sam-
kvæmt okkar fríverslunarsamn-
ingi við EFTA ef það sannast að
hér sé um hreint undirboð að
ræða. Það höfum við ekki getað
staðfest en vitaskuld lyktar þetta
af því. Við munum reyna að fylgj-
ast með þessu máli eftir því sem
kostur er en það hefur ekkert
komið skriflegt um afgreiðslu
Iðntæknistofnunar til okkar
ennþá.“
Ljósbrot í klaka.
Mynd: KGA.
Margir vilja í
loðdýrarækt
Hluti þaksins fauk
af björgunarstöðinni
Vídeólundur:
„Ætlum
að
halda
áfram“
„Viö viljum helst líta á þessa
lokun hjá Videóson sem próf-
mál og ef það á að kæra aðra
aðila sem hafa verið með kapal-
sjónvarp þá reikna ég með að
við fáum kæru hvort sem við
lokum núna eða ekki,“ sagði
Magnús Jónsson í samtali við
Dag, en hann á sæti í stjórn
Videólundar á Akureyri.
„Ég sé því ekki hvaða tilgang
lokun hjá okkur hefði á þessu stigi
og við ætlum að halda áfram og
sjá hver framvinda málsins
verður. Okkur dettur helst í hug
að þessar aðgerðir gegn Videóson
séu til þess að fá úr því skorið
hvoru megin rétturinn er og hvort
Ríkisútvarpið ætlar að ganga í
hart í þessu máli.“
Arabaturog
síldartunnur
í Sjallanum
„Kútmagakvöldið er fjáröflun-
arleið fyrir Lionsklúbbinn
Huginn, sem lætur féð renna til
líknarmála eins og kunnugt er.
Þetta er opið öllum köllum og
enginn ætti að verða svikinn því
þarna verða á boðstólum 50
sjávarréttir og skreytingar
hússins verða allar tengdar
sjónum, árabátur, síldartunnur
og net“, sagði Sigurður Sig-
urðsson í Sjallanum í viðtali við
Dag.
Kútmagakvöldið verður á
föstudag og hefst hátíðin kl. 20
með móttöku og lystauka. Þarna
verða skemmtiatriði, söngur,
glens og bögglauppboð og heið-
ursgestur kvöldsins verður engin
önnur en Bryndís Schram sem er
á góðri leið með að gera alla karl-
menn landsins að börnum.
Um klukkan ellefu verður hús-
ið opnað almenningi af hinu veik-
ara kyni óg dansinn dunar svo
fram á nótt.
„Það er mikill áhugi hjá mönn-
um að fara í loðdýrarækt og
það byrjuðu sjö nýjir aðiiar í
þeirri grein á svæði Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar í haust,“
sagði Ævarr Hjartarson, ráðu-
nautur, í samtali við Dag. „Sex
af þessum aðilum fóru í refa-
rækt og byrjuðu með um 350
dýr og einn fór í minkarækt.“
„Þá liggja hjá okkur nokkrar
umsóknir frá mönnum sem vilja
hefja loðdýrarækt á þessu ári og
þó nokkrir hafa sýnt því áhuga að
hefja búskap með kanínur. Það er
greinilegt að menn álíta framtíð í
loðdýraræktinni og eins er hitt að
það er ekki bjart framundan hvað
varðar hinar hefðbundnu bú-
greinar.
Það er óhætt að segj a það að út-
litið í þessum greinum sé fremur
gott ef menn fara ekki út í allt of
mikla fjárfestingu í því sambandi
og það eru margir semm nýta hús
sem hafa losnað vegna samdráttar
á öðrum sviðum. Miðað við það
þá á þetta að geta gengið og von-
andi vel.
Að vísu lækkaði verðið talsvert
á refaskinnum í vetur miðað við í
fyrra. Verðlækkunin hefur senni-
lega numið um 40% miðað við
pund. En það er talið að verðið
muni stíga aftur. Við eigum að
geta staðið af okkur svona sveiflur
því við búum t.d. við mun minni
fóðurkostnað en gerist víðast
annarsstaðar. En það er ljóst að ef
menn eru með miklar fjárfesting-
ar og fá svo verðfall þá er útlitið
ekki bjart hjá þeim,“ sagði Ævar.
„Þetta byrjaði um klukkan hálf
níu á mánudagskvöldið og var
ansi mikill hvellur á meðan það
stóð yfír en það fór að lægja
undir miðnættið,“ sagði Gunn-
ar Sigurðsson, formaður Björg-
unarsveitarinnar Blöndu á
Blönduósi, er við ræddum við
hann. Mikið rok og ofsaveður
skall á Blönduósi þá um kvöld-
ið og voru um 30 björgunar-
menn að störfum á Blönduósi
um kvöldið.
Björgunarsveitarmennirnir í
Blöndu þurftu ekki alltaf að fara
langt til bjargar verðmætum. Þak
björgunarstöðvarinnar, þar sem
sveitin hefur aðsetur, slapp ekki
heilt frá veðurofsanum, þar fuku
af bæði tré og járn í heilu lagi, alls
um 40 fermetrar.
Þá tók hluta þaks af Iðngörðum
á Blönduósi og einnig af bifreiða-
verkstæði í bænum. Járnplötur
fuku um loftið enda var veður-
hæðin mikil. Sem fyrr sagði stóð
veðurofsinn ekki lengi en
skemmdimar urðu talsverðar og
hafa borist fréttir um nokkrar
vegaskemmdir þegar bundið slit-
lag hreinlega flettist af veginum.
m
W Skilja ekkert í
íslendingum
Morgunblaðið segir frá því að
Færeyingar séu mjög ánægð-
ir með hversu vel hafi gengið
hjá þeim að undanförnu við
að moka upp laxi austur af ís-
landi, og að þeir skilji ekkert í
íslenskum sjómönnum að
taka ekki tíl hendi við þessar
velðar. - Já, þeir slá ekkí
slöku við rányrkjuna Færey-
ingarnir og ætla grelnilega
ekki að láta sér nægja að vera
hálfbúnir að gera útaf við ís-
lenska laxastofninn, það á að
ganga frá honum alveg.
# „Vimmi“ varð
að gefa sig
Það varð frægt hér á árum
áður þegar Vilmundur Gylfa-
son núverandi alþingismaður
kallaði athæfi nokkurra
manna „löglegt en siðlaust“.
og hefur þessi „farsi“ af og til
skotið upp kollinum síðan. Nú
síðast á Alþingi þar sem Eiður
Guðnason fyrrum samflokks-
maöur Vflmundar kallaði það
athæfi hans „löglegt en sið-
laust“ að sitja enn í nefndum
fyrir Alþýðuflokkinn eftir að
hafa yfirgeftið fiokkinn. Varð
Vilmundur fljótur tll og sagði
af sér nefndarstörfum. Enn
stendur hlns vegar að hann
var kosfnn á þing af
stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins.
• Ófarirí
Hollandi?
Ekki fór það svo að hand-
knattleikslandsliðsmenn okk-
ar hefðu það af að komast í
hóp 6 bestu liða í B-keppni
Heimsmeistarakeppninnar
sem fram fer í Hollandi um
þessar mundir. Var það mikill
skellur og virtist koma mönn-
um í opna skjöldu. En hafa
einhver úrslit leikja í Hollandi
sem snerta íslenska Ifðið orð-
ið mjög óvænt? Skrlfari þess-
ara lína heldur ekki nema
helst að menn hafi ekki átt
von á sigri íslands gegn
Sviss. Þessi grátur núna
minnir óneitanlega á það er
landsliðið tók þátt í A-keppni
HM i Danmörku 1979. Þangað
fóru lefkmenn fullír sigur-
vissu og sumlr þeirra gengu
meira að segja svo langt að
spá íslandi heimsmeistaratitil
í fjölmiðli einum fyrir
keppnina. Allfr ættu að muna
útkomuna í keppninni þá.
Sumir sem fengust við
íþróttaskrif á þessum tíma
muna einnig er einn leik-
maður sem hafði spáð íslandi
efsta sætinu ásakað blaða-
menn eftir keppnina fyrir að
hafa byggt upp skýjaborgir
varðandi getu liðsins. Er nú
ekki komínn tímf til að koma
niður á jörðina?