Dagur - 25.03.1983, Síða 5
„Akureyringar eru
famir að fara á
skíði út á Dalvík“
-segir Vilhelm Jónsson
stíðakemari
Mjög umfangsmikil skíðakennsla hefur farið fram í Hlíðar-
fjalli undanfarin ár og þeir eru ófáir sem stigið hafa í fyrsta sinn
á skíði undir handleiðslu skíðakennaranna sem starfa við Sldða-
staði. Til að forvitnást lítillega um starf skíðakennaranna hafði
undirritaður mælt sér mót við Vilhelm Jónsson, yfirskíða-
kennara, en svo vel vildi til að þá var staddur í Fjallinu stór
hópur frá íþróttakennaraháskólanum á Laugarvatni. Eru
nemendur skólans á viku skíðanámskeiði í Hlíðarfjalli á hverj-
um vetri og það fór því vel á því að ræða einnig við fulltrúa
nemendanna. Til þess völdust Baldur Þorsteinsson, frá
Reykjavík, Katrín Björnsdóttir, frá ísafirði, Haukur Geir-
mundsson, af Seltjarnarnesi og Kristín Gísladóttir, frá
Patreksfirði.
Fjórmenningamir úr íþróttaskólanum, Baldur Þorsteinsson, Katrin Bjöms-
dóttir, Kristin Gísladóttir og Haukur Geirmundsson.
- Þetta eru frábærir hópar sem
hafa komið frá íþróttakennara-
skólanum, námsfúsir nemendur
sem hafa staðið sig virkilega vel
og það hefur verið reglulega gam-
an að hafa þau hérna, sagði Vil-
helm og það er greinilegt að
„skíðakennaraefnunum“ finnst
nóg um lofið.
Að sögn Vilhelms þá eru nem-
endurnir á fyrra árinu í íþrótta-
kennaraskólanum og því margir í
hópnum sem aldrei höfðu á skíði
stigið áður en komið var í Hlíðar-
fjall.
- Við byrjum að skipta hópn-
um upp í fjóra flokka eftir getu,
segir Vilhelm, en þess má geta að
nemendurnir sem þátt tóku í
þessu spjalli voru einmitt fulltrúar
þessara flokka.
- En hve margir kunnu ekkert
fyrir sér í skíðaíþróttinni fyrir
námskeiðið?
- Það hafa líklega verið um 15
manns, segir Haukur, en hann er
einmitt einn þeirra. Að sögn Vil-
helms þá er markmiðið með þess-
ari kennslu að nemendurnir verði
þokkalegir skíðamenn og þeir
geti í framtíðinni leiðbeint nem-
endum sínum í skólunum í undir-
stöðuatriðum skíðaíþróttarinnar.
- Ég held að okkur hafi tekist
að ná þessu markmiði undanfarin
ár og mér sýnist sem svo að það
ætli ekki að ganga síður að þessu
sinni. Það er býsna mikið sem þau
hafa lært á þessum fjórum dögum
sem liðnir eru af námskeiðinu en
það ber líka að hafa það í huga að
þessi hópur er mjög vel á sig kom-
inn íþróttalega séð, segir Vilhelm
og er greinilega hinn ánægðasti
með þær framfarir sem nemendur
hans og hinna skíðakennaranna
hafa sýnt í brekkum Hlíðarfjalls.
Baldur skýtur nú inn orði og
segir að honum finnist ótrúlegt
hvað vel kennslan hefur gengið.
- Ég hef fylgst með svona
kennslu áður en framfarirnar
hérna eru með ólíkindum.
- Já, við reynum að hafa
kennsluna sem fjölbreytilegasta,
segir Vilhelm en tekur þó fram að
ekkert sé farið inn á svið skíða-
göngunnar. Jafnframt sé kennd
meðferð skíða og hvernig hægt sé
að halda þeim í góðu horfi þrátt
fyrir mikla notkun.
Það er varla hægt að segja að
nemendurnir úr íþróttakennara-
skólanum hafa verið heppnir með
veður en þau láta það ekkert á sig
fá og reyna bara að sjá björtu hlið-
arnar á málinu.
- Við höfum a.m.k. fengið að
prófa allar gerðir af skíðafæri,
segir Katrín og félagar hennar
taka heilshugar undir. Kristín
bætir því svo við að þessi ferð hafi
tekist í alla staði mjög vel og
a.m.k. orðið til þess að þau hafi
fengið áhuga á skíðaíþróttinni.
- Það er mjög gott að vera hér
á skíðahótelinu og það má gjárn-
an koma fram að maturinn er
mjög góður, segir Haukur og
Baldur er alveg hjartanlega sam-
mála. Allt væri eins og best yrði á
kosið.
Þess má geta að nemendur
íþróttakennaraskólans borga
sjálfir hiuta af ferðakostnaði og all-
an mat þannig að um umtalsverð-
ar upphæðir er að ræða. Það hefur
þó ekki dregið úr þeim karkinn og
öll eru þau staðráðin í að nota
þessa viku sem best.
En hvað segir Vilhelm Jónsson,
skíðakennari, sjálfur um aðstöð-
una í Hlíðarfjalli?
- Aðstaðan er að mörgu leyti
góð en það er þó ýmislegt sem
okkur bráðvantar. Það er t.d.
nauðsynlegt að fá lengri lyftu upp
í Stromp því að þá gætum við flutt
þá lyftu sem þar er fyrir í Hjalla-
brekku. Það er geysigóð kennslu-
brekka og reyndar má segja að
möguleikarnir hér séu ótæmandi.
Endalausar brekkur af öllum
stærðum og gerðum en alltof fáar
lyftur. Það lýsir því kannski best
hvað við erum farnir að dragast
langt aftur úr að Akureyringar
eru farnir að fara út á Dalvík til að
fara á skíði, sagði Vilhelm Jóns-
son að lokum.
Verðandi íþróttakennarar úr íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni voru á skíðanámskeiði í Hlíðarfjalli.
IVlvnclir og texti: ESE
• 25. mabS l 983 DAGUR- 5