Dagur - 25.03.1983, Qupperneq 11
Opinn fundur
um
kvennaathvarf
Laugardaginn 26. mars
gengst Jafnréttishreyfing-
in fyrir opnum fundi um
kvennaathvarf og ofbeldi
á heimilum. Fundurinn
verður haldinn að Hótel
KEA, gildaskála og hefst
kl. 14.00. Þar munu tveir
af aðstandendum kvenna-
athvarfsins í Reykjavík
kynna starfsemina og
sýna kvikmynd. Á eftir
verða umræður. í þeim
taka meðal annars þátt
nokkrir sem kunnugir eru
þessum málum hér á Ak-
ureyri.
Síðastliðna
mánuði
hefur umræða um þessi
mál farið vaxandi, ekki
síst síðan kvennaathvarf-
ið í Reykjavík var sett á
stofn. Sú reynsla sem þar
hefur fengist sýnir að
þörfin er mikil. Það er því
tími til kominn að íhuga
málið í alvöru. Á fundin-
um er ætlunin að kanna
áhuga og þörf á stofnun
kvennaathvarfs hér á
Norðurlandi.
J afnréttishreyfingin
hvetur fólk til að sýna
þessu mikilvæga máli
áhuga og mæta á fundinn.
Akuri syrar-
mótí alpa-
greinum
Akureyrarmótinu í alpa-
greinum skíðaíþrótta og í
skíðagöngu verður fram-
haldið um helgina. Nú
liefur verið keppt í flokk-
um 12 ára og yngri en um
helgina keppa þeir sem
eldri eru.
Mótið hefst kl. 11 f.h. á
morgun með keppni í
alpagreinum. Keppt
verður í flokkum 13-14
ára, 15-16 ára, karla-
flokki og kvennaflokki.
Mótinu verður framhald-
ið á sunnudag á sama
tíma.
Keppnin í skíðagöngu
hefst kl. 14 á sunnudag og
verður keppt í þremur
flokkum. í flokki 12 ára
og yngri verða gengnir 2,5
km, í unglingaflokki 10
km og í flokki 17 ára og
eldri verða gengnir 15
km. Öll verðlaun í Akur-
eyrarmótið eru gefin af
Slippstöðinni á Akureyri.
HVAÐ ER AÐ GERAST?
25. mars 1983 - DAGUR -11
„Húsið“ frumsýnd á Akureyri:
Þessi mynd
erað
slá í gegn
- segir Bjöm Björnsson, hjá Saga Film
- Það hefur verið geysilega góð aðsókn að
myndinni og það er greiniiegt að hún er að slá í
gegn núna, sagði Bjöm Björnsson einn aðstand-
enda hinnar nýju íslensku kvikmyndar, „Húsið“
(Trúnaðarmál) í samtali við Dag en myndin
verður frumsýnd á Akureyri á morgun.
stjóri myndarinnar koma
norður og verða viðstadd-
ur sýninguna.
Björn sagði að fyrstu
sýningarvikuna hefðu tíu
þúsund manns séð mynd-
ina sem væri mjög gott og
myndin hefði alltaf verið
sýnd fyrir fullu húsi áhorf-
enda. 60 þúsund áhorf-
endur þarf til að endar nái
saman.
Vegna frumsýningar-
innar á Akureyri mun
Egill Eðvarðsson, leik-
Húsið - Trúnaðarmál
er gerð eftir handriti Egils
Eðvarðssonar, Snorra
Þórissónar og Björns
Björnssonar og framleið-
andi er Saga Film. Leik-
stjóri er Egill Eðvarðs-
son, kvikmyndatökumað-
Lilja Þórisdóttir og Jóhann Sigurðsson ■ hlutverkum sínum.
ur Snorri Þórisson, leik-
myndir gerir Bjöm
Bjömsson og fram-
kvæmdastjóri er Jón Þór
Hannesson. Tónlist
samdi Þórir Baldursson
og áðalhlutverk myndar-
innar leika Lilja Þóris-
dóttir og Jóhann Sigurðs-
son, Auk þeirra koma
margir þekktir leikarar
fram f myndinni, m.a.
Helgi Skúlason, Þóra
Borg, Róbert Arnfinns-
son, Bríet Héðinsdóttir,
Baldvin Halldórsson,
Margrét Ólafsdóttir,
Kristín Bjarnadóttir,
Árni Tryggvason, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir,
Borgar Garðarsson og
fleiri.
Klippingu myndarinn-
ar önnuðst Egill Eðvarðs-
son og Snorri Þórisson,
hljóðstjórn Sigfús Guð-
mundsson, búninga gerði
Dóra Einarsdóttir og
förðun Ragnheiður Harv-
ey. Gunnlaugur Jónasson
útvegaði leikmuni og
Þorgeir Gunnarsson hafði
umsjón með þeim.
Aðstoðarkvikmyndatöku-
maður var Sigmundur
Arthúrsson, aðstoðar-
maður hljóðstjóra Jón
Kjartansson og aðstoð-
artæknimaður Ágúst
Baldursson. Aðstoðar-
maður leikstjóra var Ingi-
björg Briem. Auk þessara
lögðu margir hönd á plóg-
inn t.d. við gerð leik-
myndar en stór hluti
myndarinnar er tekinn í
upptökusal í Reykjavík.
Auk þess fóru upptökur
fram í Keflavík, á Húsa-
vík og síðast en ekki síst í
Vínarborg, þar sem hluti
myndarinnar gerist.
Paul Weeden.
Jazzað
í Sjallanum
í kvöld
Fjórar jazzhljómsveitir
og 18 manna Big-Band
koma fram á hljómleikum
í Sjallanum í kvöld. Það
eru þátttakendur á jazz-
námskeiði sem Banda-
ríkjamaðurinn Paul
Weeden hefur leiðbeint á
sem skipa hljómsveitirnar
og að sögn Atla Guð-
laugssonar hjá Tónlistar-
skólanum mega gestir
Sjallans búast við öllum
tegundum jazztónlistar á
hljómleikunum.
- Það hefur verið
geysilegur áhugi í mönn-
um á þessu námskeiði og
þátttakendur eru á öllum
aldri, frá 11 ára upp í
sextugt. Einn kemur aust-
an úr Mývatnssveit til að
taka þátt í hljómleikun-
um og annar frá Grenivík
þannig að við þurfum
ekki að kvarta yfir áhuga-
leysi, sagði Atli.
Þess má geta að skipað
er í jazzhljómsveitirnar
fjórar eftir getu þannig að
fróðlegt verður að sjá
hvernig þeir yngri og
óreyndari standa sig í
samkeppninni við gömlu
jazznaglana.
Hljómleikarnir í Sjall-
anum hefjast líklega um
kl. 22.
Cellótónleikar
N.k. sunnudag, þann 27.
mars verða cellótónleikar
í Rauða húsinu. Oliver
Kentish mun flytja frum-
samin verk og í tengslum
við tónleikana gefur for-
lag Rauða hússins út tón-
verk eftir téðan Oliver
Kentish.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 15 og er aðgangs-
eyrir enginn.
Síðasta mynd-
listarsýningin
í Rauða húsinu
Raufta húsið verður flutt innan skamms.
N.k. laugardag, þann 26.
mars opnar Jón Gunnar
Árnason sýningu á verk-
um sínum í Rauða hús-
inu. Jón Gunnar er Reyk-
víkingur og hefur haldið
margar sýningar hérlend-
is sem og annarsstaðar í
heiminum. Þetta verður
síðasta myndlistarsýning
á Akureyri þar sem
myndlistadeild Rauða
hússins neyðist til að
hætta starfsemi sinni
vegna húsnæðisleysis frá
og með 1. apríl.
Sýning Jóns stendur til
31. mars og verður opin
daglega frá kl. 16-20.