Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 9

Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 9
ISKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI Ik| 111 ----------1------------------------------------------------ SKÍÐI - SKÍOI — SKÍÐI - SKÍÐI - SKÍÐI — SKÍÐI - SKÍÐI Ð K K í |Ð I |S Ik í |Ð I |S Ik í i |s Ik í i |s Ik í i |s Ik í i |s Ik í i |s Ik í i |s Ik í i |S Ik í i |s Ik í i |s Ik í HMj Andrésar-Andar- leikarnir 1983 Nú eru páskar nýafstaðnir en þeir marka tímamót fyrir ýmsa, þ.e. fyrir þá sem verða fermd ir og teljast þar með fullorðnir, fyrir aðra þá eru páskar tímar rólegheitanna og þægind- anna. Fyrir enn annan hóp eru páskar hápunktur vetrarins, þ.e. fyrir skíðamenn. Fyrir þá eru páskar sá tími sem er hvað erilsamastur. Stórmót þau sem stefnt hefur verið að yfir vet- urinn eru þá haldin. Þeir er komnir eru í fullorðinsflokk keppa á íslandsmeistaramóti, hinir yngri, þ.e. þeir sem eru á aldrinum 13-16, ára keppa á Unglingameistaramóti og fyrir hina yngstu eru And- résar Andar-leikar haldnir. Það er ekki einungis hugsað um keppnisfólk yfir páskana held- ur og hina sem hafa hlotið nafnið trimmarar en fyrir þá var svokallað páskatrimm. Dagana 20.-24. apríl vcrður haldið eitt umfangsmesta skíða- mót sem haldið er hér á landi. Mót þetta er nefnt Andrésar Andar-lcikar og er fyrir aldurs- hóp 12 ára og yngri. Er það hald- ið árlega í Hlíðarfjalli við Akur- eyri. Fyrirniynd þcssa móts er sótt til Norðurlandanna Noregs og Svíþjóðar, einnig er mót sem þetta haldið í Tronto á ftalíu ár- lega. Fyrst voru leikar þessir hugsaðir til þess að vcita börn- um á þessum aldri er stunda skíði reglulega möguleika til þess að hittast og gefa þeim kost á innbyrðis keppni. Nú er þetta mót orðið óopinbert landsmót í þessum flokkum. Andrésar Andar-leíkar voru fyrst haldnir hér á landi árið 1976. Keppendur voru þá 148 en síðan þá hefur umfang þessa móts aukist jafnt og þétt og er nú svo komið að þátttakcndafjöldi er orðinn 450. Fólk getur því gert sér í hugarlund alla þá undirbúnings- og skipulags- vinnu er liggur að baki slíks móts sem þessa þegar fjöldi utanbæj- arbarna er orðinn 350. Þá þarf að huga að ýmsu svo sem mötu- neyti, akstri og því að hafa ofan af fyrir slíkum fjölda barna og síðast en ekki síst skíðamótinu sjálfu. Allir utanaðkomandi þátttakendur gista í Lundar- skóla og er það að þakka velvilja Harðar Ólafssonar, skólastjóra þess skóla. Þó svo að öll sú vinna sem innt er af hendi sé sjálfboða- vinna harðduglegs fólks þá eru vitanlega ýmsir kostnaðarliðir sem fylgja móti sem þessu. Til að kljúfa þá hliö hefurfyrirtækið Sanitas í Reykjavík tekið að sér að styrkja þessa leika. Dagskrá mótsins er þessi: Leikarnir verða settir miðviku- daginn 20. apríl kl. 20.00 í Akur- eyrarkirkju. Fimmtudaginn 21. apríl: Kl. 10.00, stórsvig 7, 8 og 9 ára. Kl. 10.00, svig 11 ára. Kl. 12.00, svig 12 ára. Kl. 15.00, stökk, allir flokkar. Kl. 20.00, verðlaunaaf- hending. Föstudaginn 22. apríl: Kl. 10.00, svig 10 ára. Kl. 12.00, stórsvigll ára. Kl. 14.00, ganga, allir flokkar. Kl. 20.00, verð- launaafhending. Laugardaginn 23. apríl: Kl. 10.00, stórsvig 12 ára. Kl. 10.00, svig 7,8 og 9 ára. K1. 12.00, stór- svig 10 ára. KI. 16.00, verð- launaafhending og mótsslit. Akureyringar ættu því nú sem oftar að fjölmenna upp í Hlíðar- fjall og fylgjast með stórmóti barna þar sem leikgleðin og ánægjan fyrir því að fá að vera með situr í fyrirrúmi. Fab. Skíðagangan æ vinsælli Segja má að hinn aukni áhugi al- mennings hér á Akureyri á skiðagöngu sé nú farinn að ávaxta sig í eöalmálmum á skíðamótum. Eftir nokkurra ára hlé hefur Skíðaráð Akureyrar nú á að skipa nokkrum keppnismönnum í skíðagöngu. Vaxandi skilningur er á þörfum skíðagöngufólks og eru nú troönar brautir í Kjarna og við Skíðastaði allan veturinn, þegar aðstæður leyfa. Aðstöðu þespa hafa „trimmarar1- og keppnis- fólk notfært sér í ríkum mæli. Innanhéraðsmót hafa verið haldin og sum þeirra orðin árviss viðburður. Nægir þar að nefna Páskatrimmið með 150 þátttak- endum að meðaltali. Ekki er ólíklegt að úr þessum jarðvegi spretti ungt og efnilegt göngu- fólk af báðum kynjum. Skíðaráð Akureyrar hefur gert stórátak til þess að efla skíðagöngu innan sinna vé- banda en það tekur hins vegar mörg ár að byggja upp gott keppnislið í þessari grein. Feng- inn var þjálfari til bæjarins í vetur, en svo óheppilega vikli til að stormar og snjóleysi gerðu starf hans næstum að engu. Reynt hefur verið að fjölga göngumótum og aðstoða fólk sem æfa vill skíðagöngu eftir föngum. SRA mun fá göngu- þjálfara aftur næsta vetur og er öllum þeim sem áhuga hafa á að æfa gönguna sem keppnisgrein bent á að hafa samband við SRA. Einnig er ætlunin að standa fyrir almennum nám- skeiðum í skíðagöngu, en fræðsla af því tagi hefur verið af skornum skammti. I Nanna Leifsdþttir skíðadrottning íslands íslandsmeistaramót skíðamanna var haldið í Seljalandsdal á ísa- firði dagana 30. mars til 3. apríl. Var keppt þar í norrænum grein- um, þ.e. í göngu og stökki og í alpagreinum, svigi og stórsvigi. Fimmtudag 31. mars var keppt í stórsvigi í alpagreinum. í kvennaflokki sigraði Nanna Leifsdóttir, hún hafði bestan brautartíma í báðum umferðum og sigraði því nokkuð örugglega. Önnur varð Hrefna Magnúsdótt- ir, þriðja Signe Viðarsdóttir, fjórða Guðrún J. Magnúsdóttir og fimmta Ásta Ásmundsdóttir, en keppnin milli þessara fjögurra stúlkna var mjög jöfn og spenn- andi. Þessar stúlkur eru allar frá Akureyri. f stórsvigi karla sigraði Guð- mundur Jóhannsson Isafirði, en hann náði bestum brautartíma í báðum ferðum. Annar varð Björn Víkingsson Akureyri og þriðji Daníel Hilmarsson Dalvík. f fjórða og fimmta sæti komu síð- an Akureyringarnir Elías Bjarna- son og Ólafur Harðarson. Laugardaginn 2. apríl var keppt í svigi. í karlaflokki sigraði Árni Þ. Árnason Reykjavík nokkuð örugglega, hann sigraði og í alpatvíkeppni sem er saman- lagður árangur í svigi og stórsvigi. Annar varð Húsvíkingur Stefán Geir Jónsson, sem kom nokkuð á óvart með virkilega góðri frammi- stöðu. Guðmundur Jóhannsson Nanna Leifsdóttir. ísafirði varð síðan þriðji, hann náði einnig öðru sæti í alpatví- keppni. í fjórða og fimmta sæti komu síðan Akureyringar, þeir Eggert Bragason og Ólafur Harð- arson, þeir urðu og í fjórða og fimmta sæti í alpatvíkeppninni. Elías Bjarnason varð í þriðja sæti í alpatvíkeppni. í svigi kvenna varð Nanna Leifsdóttir íslandsmeistari, hún hafði bestan brautartíma í báðum umferðum. Hún hlaut því einnig íslandsmeistaratitil í alpatví- keppninni. í öðru sæti varð ung og efnileg skíðakona, Guðrún H. Kristjánsdóttir, hún hafnaði í þriðja sæti í alpatvíkeppni. Þriðja sæti í sviginu kom í hlut Ástu Ásmundsdóttur og hlaut hún einnig annað sætið í alpa- tvíkeppninni. Fjórða og fimmta sæti hlutu Anna M. Malmquist, en hún hafði annan bestan braut- artíma í fyrri ferð, og Tinna Traustadóttir. Sunnudagurinn 3. apríl var síð- asti dagur mótsins. Var þá keppt í flokkasvigi karla og kvenna. Er fyrirkomulag keppninnar þannig að hvert hérað sendir frá sér eina sveit með fjórum þátttakendum í karlaflokki og þremur í kvenna- flokki. f kvennaflokki sigraði sveit Ak- ureyrar örugglega. Sveitina skip- uðu þær Nanna Leifsdóttir, sem bætti þar við sínu fjórða gulli á þessu landsmóti, Guðrún H. Kristjánsdóttir og Ásta Ásmunds- dóttir. f karlaflokki var keppnin aftur á móti meira spennandi. Eftir fyrri ferð hafði sveit ísfirðinga nauma forystu á sveit Akureyrar og síðan kom sveit Húsvíkinga í þriðja sæti. f seinni ferð tóku Ak- ureyringar á honum stóra sínum og náðu að sigra. Önnur varð sveit Húsvíkinga og þriðja sætið hlaut sveit ísfirðinga. Sveit Akur- eyrar var skipuð eftirtöldum: Birni Víkingssyni, Ólafi Harðar- syni, Elíasi Bjarnasyni og Erling Ingvasyni. Eftir landsmótið er óhætt að segja að Nanna Leifsdóttir sé ókrýnd skíðadrottning þessa vetrar. Nanna hafði bestan braut- artíma í öllum ferðum og sýndi það og sannaði að hún átti fjögur gull svo sannarlega skilið. Við óskum henni til hamingju með stórglæsilegan árangur. Landsmótið á ísafirði fór í alla staði frábærlega fram. Er mótið ísfirðingum og aðstandendum þess til mikils sóma. Hafi ísfirð- ingar þökk fyrir. Fab. ORRÆNU GREINARNAR Fimmtudaginn 31. mars var keppt í 15 km göngu 20 ára eldri og 10 km göngu 17-19 ára en Akureyringar áttu fulltrúa í báðum greinunum. Sigurvegari í 15 km göngunni varð hinn ungi afreksmaður Einar Ólafsson, frá ísafirði. Ingþór Eiríksson, sem keppti fyrir Akureyri, varð sjö- undi af 16 keppendum. Sigurður Aðalsteinsson, Akureyri, varð nr. 13. Árangur Ingþórs er mjög athyglisverður þar sem hann hefur aðeins æft gönguna í 2 ár en gefur allra bestu göngumönn- um landsins lítið eftir. í 10 km göngunni sigraði Finnur V. Gunnarsson, frá Ólafsfirði, en Haukur Eiríksson, Akureyri, varð þriðji af 9 keppendum. Föstudaginn 1. apríl var keppt í 3x10 km boðgöngu karla. Sveit Akureyrar skipuðu bræðurnir Haukur og Ingþór Eiríkssynir og Sigurður Aðalsteinsson. Allir áttu þeir fremur slæmar göngur. Átti laus braut og fremur lélegt færi sinn þátt í því en sveitin hafnaði í 4. sæti. Sunnudaginn 3. apríl var keppt í 30 km göngu karla, 20 ára og eldri og 15 km göngu 17- 19 ára. Sigraði Einar Ólafsson, ísafirði, í 30 km göngunni en Ing- þór Eiríksson varð nú sjötti. Það vakti athygli að HaukurSigurðs- son, Ólafsfirði, og Ingólfur Jónsson, Reykjavík, báðir fyrr- verandi íslandsmeistarar, hættu keppni. í 15 km göngunni sigraði Finnur V. Gunnarsson, Ólafs- firði, en Egill Rögnvaldsson, Siglufirði, og Haukur Eiríksson, Akureyri, skiptu með sér silf- urverðiaununum eftir mjög spennandi sekúndustríð. Jafnframt var keppt í skíða- göngu kvenna, bæði einstak- lingskeppni og boðgöngu. Guð- rún Pálsdóttir, frá Siglufirði, Guðrún Ó. Pálsdóttír, Siglufirði. margfaldur íslandsmeistari í göngu sigraði í flokki fullorð- inna en Stella Hjaltadóttir í göngu stúlkna 16-18 ára. Stella, sem raunar er aðeins 15 ára, náði langbestum tima í boð- göngu kvenna en sveit hennar varð önnur á eftir sveit Siglfirð- inga. í göngutvíkeppni 17-19 ára á þessu landsmóti varð Haukur Eiríksson í þriðja sæti, næstur á eftir þeim Finni V. Gunnars- syni, Ólafsfirði, og Agli Rögn- valdssyni, Siglufirði. Göngutvíkeppni Karlar 20 ára og eldrí: 1. Einar Ólafsson, I 2. Gottlieb Konráðsson, Ó 3. Þröstur Jóhannesson, f 4. Jón Konráðsson, Ó 5. Magnús Eiríksson, S 6. IngþórEiríksson, A Konur 19 ára og eldrí: 1. Guðrún Pálsdóttir, S 2. María Jóhannsdóttir, S 3. Guðbjörg Haraldsdóttir, R 4. Anna Gunnlaugsdóttir, f 5. Guðný Ágústsdóttir, Ó 6. Sigurbjörg Helgadóttir, R Piltar 17-19 ára: 1. Finnur V. Gunnarsson, Ó 2. Egill Rögnvaldsson, S 3. HaukurEiríksson, A 4. Einar Yngvason, í Stúlkur 16-18 ára: 1. Stella Hjaltadóttir, í 2. Svanfríður Jóhannsdóttir, S 3. Svanhildur Garðarsdóttir, í 4. Björg Traustadóttir, Ó. Norræn tvíkeppni: Karlar 20 ára og eldrí: 1. Þorvaldur Jónsson, Ó 2. ' Róbert Gunnarsson, R 3. Björn Þór Ólafsson, Ó 4. Ásgrímur Konráðsson, Ó Piltar 17-19 ára: 1. Sigurður Sigurgeirsson, Ó 2. ÓlafurBjörnsson, Ó 3. Randver Sigurðsson, Ó Stökk: 17-19 ára: 1. Helgi Hannesson, S 2. Hjalti Hafþórsson, S 3. SigurðurSigurgeirsson, Ó 4. Randver Sigurðsson, Ó 5. Ólafur Björnsson, Ó Stökk: og eldri: 1. Þorvaldur Jónsson, Ó 2. Haukur Hilmarsson, Ó 3. Ásgrímur Konráðsson, Ó 4. Björn Þór Ólafsson, Ó 5. Róbert Gunnarsson, R 6. Viðar Konráðsson, í 15 km ganga: Karlar 20 ára og eldri: 1. Einar Ólafsson, í 2. Þröstur Jóhannesson, f 3. Gottlieb Konráðsson, Ó 10 km ganga: Piltar 17-19 ára: 1. Finnur V. Gunnarsson, Ó 2. Egill Rögnvaldsson, S 3. Haukur Eiríksson, A 30 km ganga: 20 ára og eldri: 1. EinarÓlafsson, f 2. Gottlieb Konráðsson, Ó 3. Þröstur Jóhannesson, í 4. Jón Konráðsson, Ó 5. Magnús Eiríksson, S 6. Ingþór Eiríksson, A 15 km ganga: 17-19 ára: 1. Finnur V. Gunnarsson, Ó 2. Egill Rögnvaldsson, S 3. Haukur Eiríksson, A Boðganga karla 3x10 km: 1. Sveit Ólafsfjarðar 2. Sveit ísafjarðar 3. Sveit Reykjavíkur 4. Sveit Akureyrar Mikið er á sig lagt Það er alkunna að til að ná góð- um árangri í keppnisíþróttum í dag þurfa menn að leggja mikið á sig. Kröfurnar verða æ meiri og til að vera meðal þeirra bestu þurfa menn að leggja óhemju mikið á sig við æfingar og þjálfun. íþróttamenn á íslandi sækja nú í auknum mæli til út- landa til æfinga og keppni. Þrír skíðamenn frá Akureyri. þeir Elías Bjarnason, Ólafur Harðarson og Björn Víkingsson hafa tvívegis lagt land undir fót það sem af er vetri og eru nú á næstu dögum að leggja af stað í sína þriðju ferð. í viðtali við Dag sögðust þeir félagar hafa haldið til Noregs þann 16. nóvember ásamt þeim Guðmundi Jóhanns- syni ísafirði, Árna Þór Árnasyni Reykjavík og Daníel Hilmars- syni frá Dalvík. f Noregi héldu þeir til í þrjár vikur í Geilo og dvöldust þar við æfingar undir handleiðslu tveggja norskra þjálfara í hálfan mánuð, síðan tók við keppni á fjórum alþjóð- legum mótum sem haldin voru þar. Eftir þriggja vikna veru á ís- landi héldu þcir félagar þann 28. des. á ný til Noregs. Kepptu þeir á tveimur mótum í Osló og héldu síðan niður í Mið-Evrópu til keppni, Elías Bjarnason skildi þá við félaga sína og kom til íslands. Þar tóku þeir þátt t samtals ellefu mótum í Austur- ríki, Ítalíu og Frakklandi. Var fjöldi keppenda á þessum mót- um frá eitt hundrað til eitt hund- rað og áttatíu. Meðal þátttak- enda á nokkrum þessara móta voru allir bestu sklðamenn heims, svo sem sænska stirniö Ingemar Stenmark og Banda- ríkjamennirnir . Steve og Phil Mhare. Félagarnir sögðu að með því að fara út þá fengju þeir tækifæri til að sjá þá bestu og spreyta sig gegn þeim, einnig kæmust þeir í aðstöðu sem ekki væri sambæri- leg við það sem hér er. Það helsta sögðu þeir að væri veðrið, hér á landi stæðu þeir frammi fyrir því að veðráttan sæi til þess að kannski fengjust ekki nema 10-15 skíðadagar í mánuði. Til að ná árangri meðal þeirra 50 bestu í heiminum, nefndu þeir að æfinga og keppnistímabil á skíðum þyrfti að vera miklu lengra en það sem hér væri, en það stendur yfir í tæpa fjóra mánuði hérá landi. Einniggerði peningaleysi mönnum erfitt fyrir viö æfingar, en allar sfnar ferðir hafa drengirnir borgað nær al- veg úr eigin vasa. Ólafur Harð- arson nefndi það að fá því að æfingar hófust í miðjum júní í fyrrasumar og með þeirri ferð sem þeir væru að fara núna þá væri útlagður kostnaður um 100 þúsund úr eigin vasa, að sjálf- sögðu er vinnutap drengjanna gífurlegt. Þó svo að kostnaðarhliðin sé mikil hjá þessum drengjum þá er engan bilbug á þeim að finna. Sögðu þeir að skíðaíþróttin sem slík væri mjög skemmtileg og „mórallinn" í henni mjöggóður. Svo væri spennan nú ekki minni sökum þess að möguleiki væri á ólympíusæti á næsta ári. Fab. Unglingameistara- mót íslands haldið á Akureyri um helgina Unglingameistaramót lslands verður í ár haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 7. til 10. apríl. Keppt verður í fjórum flokkum, þ.e. í tveimurflokkum stúlkna, 13-14 ára og 15-16 ára, sama flokkaskipting er hjá drengjum. Keppt verður í nor- rænum- og alpagreinum, þátt- takendafjöldi verður því nálægt tvö hundruð. íslandsmeistaramót er há- punktur í skíðavertíð keppnis- fólks. Allar æfingar og þau mót sem keppendur hafa tekið þátt í hafa miðast við það að vera í sem bestu formi á landsmóti. Það er og lokapunktur þeirra punkta- og bikarmóta er haldin eru á veturna, en fyrirkomulag þeirra er þannig að fyrir hvert mót fá keppendur gefin stig og punkta. Fer það síðan eftir því í hvaða sæti þeir lenda hversu marga punkta og mörg stig þeir fá. Fást því færri punktar eftir þvf sem árangur er betri. Núll- punktur fæst fyrir fyrsta sætið, fer sfðan punktafjöldi næstu manna eftir því hversu langt á cftir þeim er fyrsta sætið hlýtur, þeir eru. Einnig fá keppendur gefin stig eftir árangri til s.k. ís- landsbikars. Eru 25 stig veitt fyrir fyrsta sæti, 20 fyrir annað og 15 fyrir það þriðja. Gefin eru stig fyrir 10 fyrstu sætin. Það er því oft ekki einungis keppt um titilinn fslandsmeistari heldurog uni titilinn bikarmeistari, því oft ráðast úrslitin í bikarnum ekki fyrr en á síðasta móti, sem er landsmót. Þaðerþvítilmikils að vinna fyrir unglingana að standa sig vel dagana 7.-10. aprfl. Á Akureyri verða allir bestu skíðamenn ( unglingaflokkun- um mættir til leiks og það er víst að margir þeirra munu ætla sér fyrstu sætin. Það verður því vafalítið hart barist og ekkert gefið eftir. Við óskum keppend- um góðs gengis og vonum að all- ir standi sig vel og hafi gaman af annars mikilli keppni. Akureyringar ættu því að fjöl- menna í Hlíðarfjall dagana 7.- 10. apríl og fylgjast með skíða- mönnum framtíðarinnar í vafa- lítið mjög svo skemmtilegu móti. Fab. í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð 1 S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K í Ð I S K| í Ð| I S K í Ð| I S K í SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI — SKÍÐI 8 - DAGUR - 7. apríl 1983 7. apríl 1983 - DAGUR - 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.