Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 3

Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 3
Leikfélag Húsavíkur: „Gullna hliðið“ fékk góðar undirtektir Leikfélag Húsavíkur frumsýndi „Gullna hliöiö“ Davíðs Stef- ánssonar sl. miðvikudag við húsfylli og góðar undirtektir. Það er Einar Þorbergsson sem leikstýrir verkinu, uppsetning er hefðbundin og að sjálfsögðu við tónlist Páls ísólfssonar. Með aðalhlutverk fara Bjarni Sigurjónsson sem leikur Jón bónda, Herdís Birgisdóttir kerl- ingu, Margrét Halldórsdóttir Vil- borgu grasakonu, Helgi Bjarna- son Lykla-Pétur, Svavar Jónsson Pál postula. Og eins og svo oft áður er það leikstjórinn sem leik- ur óvininn. Alls koma 22 leikarar fram í sýningunni og leika sumir tvö hlutverk. Leikmynd er eftir Sverri Jónsson, Sigurð Hjálmarsson og fleiri. Tónlistarflutningur í leikrit- inu er í höndum Úlriks Óla- sonar sem leikur á píanó og orgel. Auk hans koma fram trompet- leikararnir Steingrímur Hall- grímsson og Helgi P. Svavarsson. Þ.B. Akureyri: Rólegir páskar hjá lögreglu Slökkviliðið á Akureyri var tvívegis kvatt út um páskana. í bæði skiptin var um smáelds- voða að ræða og engin hætta á ferðum. Annað útkallið var vegna þess að eldur kom upp í hlöðu og úti- húsi á Hrafnabjörgum. Haft var samband við eigandann og vildi hann ekki láta slökkva eldinn því áformað hafði verið að rífa þessi hús. Þá kom upp eldur í „Las Vegas“, í gamla Eimskipafélags- húsinu, en hann var óverulegur og olli ekki skemmdum. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri var rólegt hjá henni um pásk- ana. Pó var nokkuð um árekstra en þeir voru flestir smávægilegir og í sumum tilfellum ekki einu sinni farið út í skýrslutöku til tryggingafélaga. Hagstætt verí í Hrísalundi í síðasta hefti Fréttabréfs Neyt- endasamtakanna á Akureyri og nágrenni er birt niðurstaða verðkönnunar sem samtökin gerðu á Akureyri og Svalbarðs- eyri 23. mars sl. í fréttabréfínu kemur fram að mikill munur hafí verið á hæsta og lægsta KEA Vara: Maqn: llagkaup Hrtsal. verði hverrar tegundar, eða alls á 26 tegundum kr. 177,85. Það þýðir að hæsta samanlagða verðið var 29,8% hærra en lægsta samanlagða verðið. Hér fylgir Ijósmynd af könnuninni eins og hún birtist í fréttabréfí NAN. KEA H.aínar- KEA KSb Búrió Sunnuhl. búðin Strandqötu Svalb.oi Molasykur mokka 5oo g 9,55 8, lo 13,95 Sykur 2 kq 12,75 1 L kg 22,5o 28,75 Borösalt 75o g 15,4o 14.45 17.3o ilvoitl 10 lbs 74,40 77,15 75,lo Hrisgrjóii Rlver 434 g 15.55 12,25 16,95 Ma<j<ji blómkál ssúpa lo, 85 8,45 U,5o Mtólkuikex Erón 21,55 21, lo 24,7o llaíracjr.ión OTA 95o g 32,9o 31,7o 33,35 Ritz saltkex 21,9o 2o, 75 24,lo Oi. baontr Ora 1/2 13,65 13, Bc. 16 ,oS Gr. baunir KJ 1/2 13,55 12,95 13,65 Rauókál Orn l/l 3o, 65 3o,o5 34,75 Acp.safi Floridana 1/4 1 8,25 7,oo 8,25 App.safi Troþicana 1/4 l 8,3o 7,8o 11,25 Tómat.sósa Libbýs 34o g 18,6o 1 7,7o 19,05 Majónes Gunnars 25o ml — 17,55 17,6o Egg 1 kg 57,oo 57,oo 68,75 App.marmel. Flóra Soo g — 19,45 — WC pappir Sorla 2 i pk 18,9o 16,65 — Eldhúsrl. Sorla 2 i pk 26,2o 25,9o — Þvottaduft VEX 3 kg 92, lo 87,2o — Uppþv.l. Ilrcinól 5oo g lo,3o 12, o5 — Uppþv.i. Palmollvc Soo g 28,75 25,7c Tannkrem Colgate 14o g 27,95 2o, 75 — Handsápa Lux 9o g 6,75 5,25 Kgtd t grill krydd 1 bréf 16, Xo — 14,5o Juvel Hveitl 2 kg — 18,6o — 12,95 9,85 27,jo 28,6o X 3 . oo 1 , 5o 81.20 4l,5o 51bs 14,4o 16,85 9,95 ---- 24,8o 25,00 17.3o 31,35 26,lo ----- 16,25 16,2í 15.20 15,2o 35,35 38,70 H,25 9,lo 9,15 --- 20.85 19,25 2o,65 --- 57,oo 27,9o 18.85 18,95 33.50 33,oo lo2,6o llo,8o r— 14,45 29.50 21.85 — 6,2o 7,3o 17,7o 16,95 21.50 13,45 2 7,3o 3 5,5o 13,00 'I6.60 81.20 97,6o 14.40 15,65 12.25 9,95 2'í,8o 24,8o 24,oo 3 3,9o 26,lo 24,90 16.25 16,lc 15.20 --- 23.40 1/2 ds 35,o5 8,25 8,25 10.25 --- 22,8o 2o,65 56,oo 66,oo 27.90 --- 19,6o 3 3,5o lo2,6o llo,8o ---- lo, 45 2J,o5 —- 21,85 —— 6,2o 7,35 17,7o 12,85 21.90 Ingvar Gíslason, menntamálaráöherra: Samvinnustarf og einstaklingsframtak Við framsóknarmenn viljum láta einstaklingsframtak njóta sín á sem flestum sviðum. því að eigið framtak og sjálfsbjargar- vilji er einn mesti aflgjafi fram- fara og hagsældar í þjóðfélag- inu. Þess vegna á að örva ein- staklingsframtak og sjálfs- bjargarviija og gera framtaks- mönnum kleift að njóta krafta sinna og dugnaðar. Slíkt fram- tak hefur Framsóknarflokkur- inn ætíð stutt bæði hvað varðar búrekstur í sveit, bátaútgerð og rekstur iðnfyrirtækja. Fram- sóknarmenn berjast fyrir því að bændur og fjölskyldur þeirra eigi sín bú og útgerðarmenn og sjómenn eigi báta sína, að iðn- aðarmenn reki sín eigin fyrir- tæki í framleiðslu og þjónustu. Þetta teljum við vera undirstöðuatriði varöandi smærri atvinnurekstur í landinu. Þar nýtur framtak einstaklings- ins sín vel og þjóðfélagið hefur hag af framtaki hans. Vmis rekstrarform. Hitt er annað mál að einstakl- ingsframtaki eru settar skorður næstum að segja af sjálfu sér. Einstaklingur ræður ekki við hvaða verkefni sem er og þá á hann ekki að sækjast eftir sltku. Þegar um þess háttar verkefni er að ræða verður að lcysa þau á félagslegum grundvelli að áliti okkar framsóknarmenna. Spurning kann að vera um það, hvers konar félagsskapur komi þá til greina. í því sambandi eru ýmis félagsleg úrræði kunn. s.s. ríkisrekstur, bæjarfyrirtæki. hlutafélög og samvinnuiélög. Framsóknarmenn hafa t ýms- um tilfellum stuðlað að ríkis- reknum fyrirtækjum og afneita ekki því fornti félagslegs rekstrar. ef það kann að henta betur en annað. Framsóknar- menn eru ekki andvígir bæjar- rekstri að vissu marki og hluta- félög um stórrekstur er fullkom- lega eðlilegt rekstrarform að okkar dómi. Framsóknarmenn gera því enga kröfu til þess og vilja heldur ekki þola ásökun fyrir það að sýna þröngsýni hvað varðar eignarhald og rekstrar- form atvinnufyrirtækja. Við viðurkennum að þar koma ýms- ar aðferðir til greina og við stuðl- um að því að þær séu notaðar jöfnum höndum eftir því sem við á. Ingvar Gíslason Samvinnurekstur. En það sem markar okkar sér- stööu í þessu efni er vissa okkar um það að samvinnustefnan sé rcttlátasta félagsformið hvort sem um er að ræða verslun og viðskipti eða rekstur stórra fyrir- tækja í framleiðslu og þjónustu- starfsemi. Við bendum á að samvinnufyrirtæki, kaupfélög og samvinnuverksmiðjur hafi reynst traustasti grundvöllur atvinnulífs og verklegra fram- kvæmda í landinu, þegar á heild- ina er litið. Sérstaklega hefur samvinnuhreyfingin verið bak- hjarl landsbyggðárinnar, sú brjóstvörn landsbyggöafólks sem aldrei hefur bilaö. Ef litið er á Akureyri sérstak- lega dylst ekki aö samvinnu- hreyfingin hefur verið þar burð- arás í atvinnulífi og verklegum framförum. Án hennarværi Ak- ureyri ekki svipur hjá sjón. Vafamál er að önnur félags- málahreyfing hafi verið áhrifa- meiri í íslensku þjóðlífi á þessari öld en samvinnuhreyfingin. Áhrif hennar hafa gengið í eina átt: Að stuöla að efnahagsleg- um framförum, atvinnuöryggi, bættum lífskjörum almennings og réttlátu þjóðfélagi. Alls þessa hafa norðlenskar byggðir notið, ekki sfst Akureyri. Sambúð rekstrarforma Þegar til þess kemur að ræða sambúö einstaklingsframtaks og samvinnustarfs, þá er Ijóst að þar styður hvort átakið annað. Samvinnufélögin eru frjáis sam- tök einstaklinga og markmið þeirra að búa þeim sem í þeim eru og viö þau starfa efnahags- legt öryggi. forða fjöldanum frá neyð og skorti. Og samvinnuté- lögin styðja sem verða má heil- brigt framtak og sjálfsbjargar- vilja einstaklinga. Þareru bænd- ur gleggsta dæmið og báta- útvegsmenn annað og reyndar fjöldinn allur, sem stendur í ýmsum smærri atvinnurekstri. Með þessum hætti m.a. vinnur samvinnuhreyfingin fyrir ein- staklingsframtakið. Við framsóknarmenn teljum að samvinnuhreyfingin og heil- brigt einstaklingsframtak eigi að starfa saman og styðja hvort annað. í Stóru-Tjarnarskóla Listavaka Árleg listavaka Lionsklúbbsins Sigurðar Lúthers verður í Stóru- Tjarnarskóla föstudag- inn 8. aprfl nk. og hefst hún klukkan 21. Guðlaugur Arason, rithöfund- ur les úr óbirtum verkum sínum og Sigríður Schiöth les upp. Söngv- ararnir Þuríður Baldursdóttir og Michael Clarke syngja við undir- leik Kristins Arnar Kristinssonar og Soffíu Guðmundsdóttur. Guðmundur Norðdahl og John Robert Redford leika saman á klarinett og píanó og bræðurnir Úlrik og Björn Ólasynir leika fjórhent á píanó. Myndlistarsýning verður á staðnum og er það myndhópur Hin vinsæla fírmakeppni SRA fer fram laugardaginn 16. aprfl. Keppt verður í svigi og skíða- göngu. Hvert fyrirtæki sendir þriggja manna sveit og má fyrir- áhugamanna á Akureyri sem sýnir. Aðgangur er ókeypis en veit- ingar verða seldar á staðnum. tækið senda fleiri en eina sveit í hvorri grein. Þátttökutilkynning þarf að hafa borist fyrir 12. apríl í síma 23248 (Magnús). SRA Firmakeppni SRA Sparisjóður Glæsi- bæjarhrepps í nýtt húsnæði Sparisjóður Glæsibæjarhrepps hefur flutt í nýtt húsnæði. Sjóð- Fróii flytur Verslunin Fróði verður flutt að Gránufélagsgötu 4 í hús JMJ um næstu helgi og opnuð þar að nýju í næstu viku. Þar verða, auk 5-6 þúsund bókatitla, á boðstólum fjölmargar myndir íslenskra listamanna - olíumyndir, vatnslitamyndir, teikningar, pastelmyndir og graf- ík í öllum verðflokkum - eða allt frá kr. 500 til 100.000. urinn var stofnaður árið 1908 og verður því 75 ára um þessar mundir. Afgreiðsla sjóðsins var lengi að Hlöðum og Moldhaugum í Glæsi- bæjarhreppi en hefur nú um ára- tugaskeið verið á Akureyri. Lengi vel var hann í leiguhúsnæði á ýms- um stöðum í bænum allt til ársins 1968 að hann flutti í eigið húsnæði að Brekkugötu 7, en þar hefur hann starfað síðan. Nú var þetta húsnæði orðið of þröngt og ákvað stjórn sjóðsins því að kaupa jarðhæð í húseign- inni Brekkugötu 9, Akureyri. HORSMA snjóblásarar til tengingar á dráttarvélar fýrirliggjandi ■^VEIADEILD sími 21400 og 22997 £liTr,=ff,'ÍW?Simu-Rs-3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.