Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 16

Dagur - 07.04.1983, Blaðsíða 16
Pakkningaefni korkur og skinn sími 96-22700 að húsgögn tíl þessa skóla skuli vera innflutt. „Það er ekki til að tala um að það sé erfitt að verja þessa ákvörðun,“ sagði Haukur. „Það á að fara vel með almannafé og þetta er ódýrast. Það má segja að það sem keypt hefur verið séu prufur, tvær gerðir af borðum og stólum frá Finnlandi og Svíþjóð. Það verður ekki farið út í það að hanna sérstaklega húsgögn í skólann, heldur reynt að velja af því sem markaðurinn býður upp á og íslenskir húsgagnaframleið- endur verða bara að standa sig.“ - Eru ekki allar líkur á því að framhald á húsgagnakaupum til skólans verði í sama dúr, að keypt verði innflutt húsgögn fremur en íslensk? „Það má búast við því þótt það sé ekki ákveðið. Ég veit ekki til þess að það sé neinn aðili hérlend- is með framleiðsu á þessum hús- gögnum sem er neitt nálægt því að vera sambærileg við þetta. Þessi húsgögn eru framleidd í tugum eða hundruðum þúsunda erlendis í verksmiðjum sem eru einungis í þessari ákveðnu framleiðslu. Þeirri hugmynd hefur aðeins skotið upp hvort ástæða væri til þess að skólinn smíðaði sjálfur sín húsgögn. Þá þarf að hanna þau húsgögn sérstaklega og kaupa vél- ar sem henta þeirri framleiðslu. En íslenskur húsgagnaiðnaður þarf að tileinka sér þá tækni sem þarna er á ferðinni en er ekki not- uð á íslandi. Þrengingar hús- gagnaiðnaðarins hérlendis eru ekki vegna innflutnings, heldur vegna smæðar markaðarins og vegna þess að ekki hefur verið fylgst með tímanum.“ ..Ég er ekki tilbúinn að sam- þykkja það að í Verkmenntaskól- ann sé verið að kaupa þau bestu húsgögn sem völ er á,“ sagði Ing- ólfur Hermannsson einn af eig- endum Kótó s.f. húsgagnaverk- stæðisins á Akureyri er Dagur bar þetta mál undir hann. „Það er sjálfsagt að fara vel með almanna- fé en er þetta ekki bruðl með gjaldeyri? Því voru ekki hönnuð húsgögn og verkið síðan boðið út? Það hefði að mínu mati verið rétta leiðin og þá hefði komið í ljós hvort íslenskir aðilar væru sam- keppnisfærir hvað varðar þetta verk eða ekki. Mér vitanlega hef- ur ekki verið leitað til neins ís- lensks aðila sem framleiðir hús- gögn og kannað hvort hann gæti tekið þetta verk að sér eða upplýs- inga aflað um gæði þeirrar vöru sem íslenskir aðilar gætu hugsan- lega boðið upp á,“ sagði Ingólfur. „Ástæðan fyrir því að þessi húsgögn eru keypt erlendis frá er einfaldlega sú að þau eru ódýrust og best af því sem er á markaðnum,“ sagði Haukur Árnason formaður bygginga- nefndar Verkmenntaskólans á Akureyri í samtali við Dag, en það hefur vakið nokkra athygli Innfluttu húsgögnin í Verkmenntaskólanum. Mvnd: H.Sv. Finnsk og sænsk húsgögn keypt í Verkmenntaskólann Las Vegas verði lokað Alltá kafiá Húsavík Mikið illskuveður gerði á Húsavík að kvöldi 2. dags páska og stendur enn þegar þetta er skrifað. Allar götur bæjarins eru á kafi í snjó og fólk sem leið hefur átt um um þær hefur átt í miklu basli með að komast áfram. Þrátt fyrir að það sé vísinda- lega sannað að Norðlendingar séu hinir mestu snillingar að aka bílum sínum í snjó, og þá sér- staklega Húsvíkingar, hefur lítil umferð verið í bænum enda margi bílar í bílaflota bæjarbúa á kafi í snó. Dæmi eru um það að menn hafi þurft að moka sig út úr húsum sínum. Verra er þó ástandið hjá blessuðum smáfuglunum sem flögra nú um í stórum hópum í leit að æti. Er ástæða til að hvetja Húsvíkinga til að gefa þeim eitthvað í gogginn. Þ.B. 16 vilja aka með kísilgúr Nýlega auglýsti Kísiliðjan h.f. eftir tilboðum í flutninga á kísil- gúr frá verksmiðjunni til Húsa- víkur en þennan flutning hefur verksmiðjan annast tii þessa á eigin bílum. Að sögn Hákonar Björns- sonar framkvæmdastjóra bárust 16 tilboð í flutningana og er frekari ákvörðunar í málinu að vænta fljótlega. Þ.B. „Við skrifuðum eigendum Las Vegas og í því bréfi sagði að sú starfsemi sem þar er rekin skyldi lögð niður samkvæmt bókunum bygginganefndar og heilbrigðisnefndar,“ sagði Jón Geir Ágústsson, byggingafull- trúi á Akureyri, ■ samtali við Dag í gær. Eins og skýrt hefur verið frá hafði leiktækjasalur- inn Las Vegas „þegjandi sam- þykki“ bæjaryfirvalda tíl að fá að starfa til 1. mars sl. Það varummiðjan sl. mánuð er Með síhækkandi bensínverði virðist sem ný tegund þjófnað- armála sé að skjóta upp kollin- um. Þannig var tilkynnt um tvö þjófnaðartilfelli á bensíni um páskana. eigendum Las Vegas var skrifað og þeim tilkynnt að þeim bæri að leggja niður starfsemi. Það næsta sem gerðist í málinu var að eig- endur Las Vegas sendu inn annað erindi þar sem þeir óskuðu eftir heimild til þess að fá að halda áfram. „Það bréf kom til afgreiðslu á sfðasta fundi bygginganefndar og var erindinu synjað þar. Það bíð- ur því afgreiðslu bæjarstjórnar og verður tekið fyrir á næsta fundi hennar,“ sagði Jón Geir Ágústs- son. í Annað skiptið var stolið ben- síni af bifreið í Norðurgötu á Ak- ureyri. í hinu tilfellinu var farið í heimilistank á bæ utan Akureyrar og stolið af honum en rannsókn- arlögreglan hefur upplýst það mál. Bensíni stolið # Fjölmiðlar og Alþingi Fólki sem ekki þekkir til starfa á Alþingi f innst það oft skrýtið sem þaðan heyrist og sést í útvarpi og sjónvarpi. Sem betur fer er þar meira og ann- að unnið en það sem fram kemur ( fjölmiðlum Stundum virðist sem sumir þingmenn séu bara á þlngi fyrir fjölmiðl- ana og er þekktasta dæmið vafalaust Ólafur Ragnar Grfmsson. Raunar er VII- mundur Gylfason lítill eftir- bátur hans í þessum efnum, enda kann hann inn á f jölmiðl- ana, fyrrum rannsóknablaða- maður. # Magnaði upp tortryggni En það er nú með það starf Vilmundar að tæpast verða það sögulegar heimildir fram- tíðarkynslóðum til uppbygg- ingar og fróðleiks sem hann lét eftir sér hafa á þrykki og í fjölmiðlum Ijósvakans á árun- um 1976-1978. Honum tókst að magna upp slíkan draug tortryggni f garð einstakra manna að fólk var almennt farið að trúa því að þarna færu stórglæpamenn sem hylmdu yfir með morðingjum og öðr- um stórglæpamönnum. Voru árásirnar á Ólaf Jóhannesson gott dæmi um þann málflutn- ing. Þessari sögu eru hins- vegar margir búnir að gleyma og ungt fólk þekkir hana ekki. Nýlega hafa þó gengið hæsta- réttardómar sem sýknuðu þá sem ranglega voru ákærðir og bættu þeim miskann. Ekkf varð rfkissjóður feitarl við það. # Dramatík og rómantík Nú velta menn fyrir sér hvort málflutningur Vilmundar eða öllu heldur Bandalags jafnað- armannsins sé á svipuðum nótum og hinar röngu ásak- anir forðum. Það var vissu- lega ákveðin dramatík yfir rannsóknarbiaðamennsku hans og sjfafur hefur hann viðurkennt að hugsjónir hans og Bandalagsins séu að nokkru leyti rómantík. Á hinn bóginn er hætt við því að róm- antík bæti ekki þær mein- semdir sem við er að glíma í þjóðfélaginu, efnahagslegar, stjórnarfarslegar og aðrar. Tákn kratanna er rós í hendi. Hvernig væri að hægra krata- bandalagið hefði sem tákn hjarta með ör f gegn um sem tákn rómantfkureinnar sem þar ræður rfkjum?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.