Dagur - 06.05.1983, Blaðsíða 7
AKUREYRI - KAUPMANNAHÖFN
í fjölskylduferðunum verður gist I sveitakrám víðsvegar um Danmörku.
endurskoðað hvort þessu verði
fram haldið yfirleitt.
Fyrsta ferðin verður farin
fimmtudaginn 16. júní og verður
síðan farið vikulega á fimmtu-
dögum til 30. ágúst. Boeing-þota
Flugleiða kemur til Akureyrar
frá Kaupmannahöfn kl. 16.45 og
heldur síðan út aftur eftir
klukkustundar viðdvöl.
— sérstaklega hugsað fyrir því að börnin hafl nóg að gera
„Þessar tveggja vikna ferðir,
sem farnar verða bæði um
miðjan júlí og í byrjun ágúst,
eru fyrst og fremst hugsaðar
sem ferðir fyrir alla Qölskyld-
una og það er sérstaklega
hugsað fyrir því að bömin fái
mikið út úr þessum ferðum
þótt auðvitað geti allir fundið
margt við sitt hæfi,“ sagði Gísli
Jónsson, forstjóri Ferðaskrif-
stofu Akureyrar, er hann
kynnti blaðamönnum hálfs-
mánaðar ferðir til Danmerkur
sem fyrirtæki hans bíður upp
á í sumar.
Þessar ferðir hefjast á Akur-
eyrarflugvelli síðdegis á fimmtu-
dögum, eins og aðrar ferðir í
beina fluginu Akureyri -
Kaupmannahöfn í sumar, og er
komið til Kaupmannahafnar
síðla kvölds. Næstu þrjá daga er
skipulögð dagskrá í Kaupmann-
ahöfn, farið í skoðunarferðir á
merka staði og forvitnilega, farið
í Tívolí, á Dyrehavnsbakken, í
sirkus Benneweiss og í dýragarð-
inn, svo eitthvað sé nefnt. Og að
sjálfsögðu geta þátttakendur eytt
þessum dögum á hvern annan
þann hátt er þeir kjósa.
Fimmta dag ferðarinnar verður
ekið suður Sjáland og þann dag
m.a. skoðað hið fræga safn í
Girselfeldhöll og hið sérstaka
náttúrufyrirbrigði, Manarklettur.
Næsta dag beinist athyglin
aðallega að Knuthenborg safari
park, dýragarðinum sem er
stærsti dýragarður Evrópu, og
þar ganga nær öll dýrin laus og er
ekið um garðinn. Fleira er þarna
athyglisvert en dýrin, sem þó
munu sennilega fanga hugi
margra, og má nefna í því sam-
bandi að möguleikar fyrir börn
að skemmta sér á þessum stað
eru' ótæmandi. Nefna má ýmis
leiktæki sem þau geta skemmt sér
í, s.s. báta af ýmsum gerðum,
bíla sem þau aka sjálf að öllu
leyti og sérhönnuð járnbrautalest
fyrir börn, gufuknúin. Og á með-
an börnin gleyma sér yfir öllu
þessu geta foreldrarnir notið veit-
inga í skemmtilegum og sérstæð-
um veitingahúsum á svæðinu.
Næst liggur leiðin til Svend-
borgar á Fjóni og þaðan til Óðins-
véa þar sem stoppað verður í tvo
daga og m.a. skoðað hið fræga
H.C. Andersen safn. Á 9. degi er
hápunkturinn er farið verður í
Billund „Lególand“ og drjúgum
tíma eytt þar, enda margt for-
vitnilegt að sjá.
Á 10. degi ferðarinnar verður
m.a. gengið á Himmelbjerget -
hæsta fjall Danmerkur - sem
sennilega mun ekki reynast þátt-
takendum erfitt því það er ekki
nema 172 metrar á hæð. Þann
dag verður einnig ekið um Silki-
borgarsvæðið og skoðaðir ýmsir
markverðir staðir þar.
Næsta dag liggur leiðin til
Randers, vinabæjar Akureyrar,
og verður m.a. siglt á Randers-
firði. Daginn eftir verður svo
vinabær Húsavíkur, Álaborg,
heimsóttur. Þar verður farið í
Tívolíland, komið við í Djurs-
sommerland, sem er leikgarður
fyrir börn, og er allt ókeypis þar,
sama hvort um er að ræða hesta-
ferðir, bátsferðir lestarferðir,
róður eða eitthvað annað.
Nú fer að síga á síðari hluta
ferðarinnar og næsta dag liggur
leiðin til baðstrandarbæjarins,
Ebeltoft, og þaðan til Hróars-
keldu, þar sem m.a. gefst kostur
á a skoða dómkirkjuna og Vík-
ingasafnið. í Víkingasafninu eru
mörg víkingaskip sem grafin hafa
verið upp undanfarna áratugi og
er mikil upplifun að líta þar inn.
Dómkirkjan er einnig afar sér-
stök og mikil bygging og er hún
aðallega fræg fyrir það að þar
hvílir allt kóngafólk Dana. Er
margt þeirra grafið undir kirkju-
gólfinu þar sem gengið er um
kirkjuna og einnig standa kistur
þess þar uppi um alla kirkju. Að
þessu loknu liggur leiðin síðan til
Kaupmannahafnar.
Síðasta dag ferðarinnar hafa
þátttakendur svo frjálsan tíma til
kl. 14.30 en þá verður haldið
heim á leið og lent á Akureyrar-
flugvelli síðdegis.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu hér að framan, sem þó
er langt frá því að vera tæmandi,
er margt forvitnilegt sem bera
mun fyrir augu í þessari ferð.
Áhersla er lögð á að þreyta fólk
ekki með löngum ferðalögum í
einu og eru aldrei eknir yfir 200
km á einum degi.
Yfirleitt verður gist á vinarleg-
um sveitahótelum með hálfu fæði
en annað innifalið í verði ferðar-
innar er flug, akstur, fararstjórn
og gisting og morgunverður þann
tíma er dvalið verður í Kaup-
mannahöfn.
Þaö að fljúga beint frá Akur-
eyri sparar að sjálfsögðu bæði
tíma, fé og fyrirhöfn. Kostnaður-
inn við að fljúga til Reykjavíkur
og aftur til Akureyrar frá
Reykjavík í ferðarlok fellur að
sjálfsögðu niður. Þá fellur niður
hótelkostnaður í Reykjavík og
greiðsla vegna aksturs og þess
háttar. Og þannig hefur það ver-
ið að tveir aukadagar hafa farið í
þetta „transport" innanlands er
Norðlendingar hafa brugðið sér
til útlanda. Nú þarf þess ekki
„Við lítum svo á að hér sé sér-
staklega verið að koma til móts
við hinn mikla mannfjölda sem
býr á Norðurlandi og gefa
þessu fólki kost á hentugri
ferðamáta til útlanda en það
hefur búið við áður,“ sagði
Gísli Jónsson forstjóri Ferða-
skrifstofu Akureyrar um beina
flug Flugleiða frá Akureyri til
Kaupmannahafnar í sumar.
Það hefur lengi verið ofarlega
á óskalista Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar að þetta beina flug gæti
orðið að veruleika og vissulega
hafa ýmis ljón verið í veginum.
En þegar lenging flugbrautarinn-
ar á Akureyri var komin til og
hafði verið malbikuð sl. haust
má segja að fátt hafi verið því til
fyrirstöðu að gera þetta flug að
veruleika.
Vissulega er hér um tilraun að
ræða og áframhaidið fer eftir því
hvernig undirtektir þetta beina
flug fær. Ef Norðlendingar og
jafnvel fólk af Austurlandi notar
þennan ferðamáta umfram annan
er ekki ólíklegt að þessum ferð-
um muni fjölga áður en langt um
líður og þá gæti opnast möguleiki
á flugi til annarra borga erlendis.
En ef sætanýting verður léleg er
allt eins liklegt að það mál verði
Úr aðalsal Víkingasafnsins í Hróarskeldu.
lengur og þar kemur beinn frá-
dráttur á vinnutapi.
Ferðaskrifstofa Akureyrar hef-
ur ýmislegt á prjónunum fyrir þá
sem hyggjast notfæra sér þetta
beina flug. Ferðaskrifstofa Ákur-
eyrar hefur samið við Hótel
Westend í Helgolandsgade um
gistingu fyrir mjög viðráðanlegt
verð en Hótel Westend er mjög
vel staðsett í hjarta borgarinnar.
Þaðan er örstutt í allar helstu
verslunargötur miðborgarinnar,
Tivolí er örstutt frá og segja má
að hótelið sé á besta stað.
Farþegar í beina fluginu geta
valið um það hvort þeir dvelja í
eina viku eða fleiri í Kaupmanna-
höfn. Þá býður Ferðaskrifstofa
f
Akureyrar einnig upp á hálfs-
mánaðarferðir, fjölskylduferðir
um Danmörk sem getið er um
annarsstaðar hér á síðunni.
Þá má nefna flug og bíl en sá
ferðamáti færist nú óðum í auk-
ana og Ferðaskrifstofa Akureyr-
ar hefur gert samninga við
danska aðila um afnot af sumar-
húsum víðsvegar um landið á
margvíslegu verði.
Það er því óhætt að segja að
þeir sem fljúga beint frá Ákur-
eyri til Kaupmannahafnar geti
valið úr ýmsum möguleikum er
út er komið og er full ástæða til
þess að hvetja fólk til að notfæra
sér þessa nýjung sem svo lengi
hefur verið barist fyrir að Norð-
lendingar ættu kost á.
Dómkirkjan í Hrósarskeldu er mikið mannvirki og fagurt. Þar er allt kóngafólk Danmerkur
ýmist grafið undir gólfum eða í kistum víðsvegar um bygginguna.
Draumaferðlr fyrir
aHa Qölskylduna
IVorðlendingar spara
tíma, fé og fyrirliöfn
— beint flug Akureyri — Kaupmannahöfn hvern fimmtudag í sumar
- AKUREYRI
Henning Bjamason, flugstjóri.
Henning Bjarnason, flugstjóri:
aðstoðarflugmaður var Gísli
Þorsteinsson. Þá var enn einn
maður í stjórnklefanum, Örlyg-
ur Þorsteinsson úr flugumsjón
Flugleiða sem var í kynnisferð.
„Mér líst vel á að fljúga beint
á Akureyri frá Kaupmannahöfn
í sumar,“ sagði Henning Bjarna-
son flugstjóri er við ræddum við
hann. „Það er ekkert vandamál
að lenda þar, brautin góð eftir
malbikun framlengingarinnar
og varla að óttast veður nema ef
hann blæs hraustlega af vestan,
þá getur verið strembið að eiga
við þetta."
Henning sagði að á fyrstu
árunum sem flogið var á Boeing
þotum milli íslands og annarra
landa hafi verið flogið frá
Reykjavík af styttri brautum en
nú er á Akureyri. Það væru því
engin vandamál við að fljúga
þangað og þaðan og var ekki
annað að heyra á „flugliðinu"
en þeim litist vel á beina
Akureyrarflugið í sumar.
Þaö var þröng á þingi í
stjórnklefa Boeing þotu
Flugleiða á dögunum er
blaöamenn voru á ferðalagi
til Danmerkur í boði Flug-
leiða og Ferðaskrifstofu Ak-
ureyrar.
Flugstjóri var Henning
Bjarnason, við hlið hans sat
Tryggvi Baldursson sem var í
sinni síðustu „æfigaferð" áður
en hann yrði fuilgildur flug-
maður á Boeing þotu, Einar
Sigurvinsson var véístjóri og
Eins og kunnugt er var lokið við að malbika lengingu flugbrautarinnar á
Akureyrarflugvelli sl. haust. Þessi mynd var tekin er nokkrir yfirmenn
flugmála skoðuðu flugbrautina að því loknu. Lengst til hægri er Agnar
Kofod Hansen þáverandi flugmálastjóri sem nú er látinn, en af öðrum
mönnum á myndinni má nefna Rúnar Sigmundsson flugvallarstjóra á
Akureyri og Hauk Helgason núverandi aðstoðarflugmálastjóra.
„Líst vel á að fljúga
befnt frá Akureyriu
Fríhöfnln á Kastrup
leysir „vandamálið66
Óánægjuraddir hafa heyrst
vegna þess að fríhöfn mun
ekki verða starfrækt á Akur-
eyrarflugvelli í sumar fyrir þá
sem taka þátt í beina fluginu
til Danmerkur, hvorki við
brottför eða heimkomu.
Full ástæða er því til þess að
benda fólki á að fríhöfnin í
Keflavík er ekki sú eina sem til
er. Á Kastrup-flugvelli er geysi-
stór fríhöfn þar sem kaupa má
allt milli himins og jarðar og það
sem ferðamenn kaupa t.d. aðal-
lega við heimkomuna til íslands,
áfengi, tóbak og sælgæti er þar á
sambærilegu verði. Auk þess
má nefna fjölbreytilegt úrval af
ostum og öðru slíku. Það er því
engin ástæða fyrir fólk að hafa
af þessu áhyggjur því á móti
kemur að það losnar við að
hristast í rútu frá Keflavík til
Reykjavíkur, jafnvel eyða nótt
á hóteli í Reykjavík og komast
síðan til síns heima næsta dag ef
„gamli“ ferðamátinn væri við-
hafður. Þess í stað er gengið frá
borði á Akureyri þremur stund-
um eftir að lagt er upp frá
Kaupamannahöfn.
6-DAGUR-6. maí 1983
6. maí 1983 - DAGUR - 7