Dagur - 06.05.1983, Blaðsíða 5
„Við viniuiin að framgangi
þessa máls með öllum ráðum“
— Rætt við Laufeyju Tryggvadóttur og Áma Bjamarson,
hjá Náttúrulækningafélagi Akureyrar
Þetta sögöu Laufey
Tryggvadóttir, formaöur Nátt-
úrulækningafélags Akureyrar
og Árni Bjarnarson bókaútgef-
andi í samtali við Dag, en þau
hafa ásamt öðrum virkum fé-
lögum í Náttúrulækningafél-
aginu verið aðal hvatamenn að
byggingu heilsuhælis Náttúru-
lækningafélagsins í Kjarna-
skógi. Samkvæmt teikningum
verður heilsuhælið rúmir tvö
þúsund fermetrar þegar það
verður fullbúið en fyrirhugað
er að byggja sex hundruð fer-
metra byggingu með sundlaug
í kjallara í fyrsta áfanga. Þeg-
ar er búið að byggja kjallarann
og eina hæð en sem stendur
skortir fjármagn til byggingar
þeirra tveggja hæða sem á
vantar til að ljúka þessum
áfanga.
Heilsuhæli á
Norðurlandi
Að sögn þeirra Laufeyjar og
Árna var Náttúrulækningfélag
Akureyrar endurvakið til lífs-
ins árið 1970, em þá hafði
starfsemin legið í dvala í
nokkuð mörg ár. Félagið var
upphaflega stofnað af Jónasi
Kristjánssyni lækni á Sauðár-
króki sem var brautryðjandi í
þessum málum á íslandi en
þegar félagið var endurvakið
var hugmyndin fyrst og fremst
sú að vinna ötullega að því að
byggt yrði heilsuhæli á
Norðurlandi í líkingu við það
hæli sem byggt hefur verið í
Hveragerði.
- Við ætluðum upphaflega
að byggja í Skjaldarvík, segir
Árni og bætir því við að félag-
ið hafi verið búið að fá þar lóð
og leggja veg þegar í ljós kom
að ekkert fékkst heita vatnið -
sem er forsenda slíkrar starf-
semi sem Náttúrulækningafé-
lagið hafði í huga.
- Þegar vatnið fannst
frammi á Laugalandi var ljóst
að það myndi kosta offjár að
leggja leiðslu í Skjaldarvík og
þá var okkur boðin lóð í
Kjarnaskógi, segir Laufey.
Eftir að þessi niðurstaða var
fengin hófust byggingarfram-
kvæmdir og í dag eru tæpar
2.5 milljónir króna komnar í
bygginguna sem er að rísa í
fögru umhverfi Kjarnaskógar.
Samkvæmt upplýsingum
þeirra Laufeyjar og Árna
verður pláss fyrir 70 manns í
þessum fyrsta áfanga hælisins
en hvenær hann verður tilbú-
inn treystu þau sér ekki til að
spá um.
- Við vinnum að framgangi
þessa máls með öllum þeim
ráðum sem eru tiltæk en allt
þetta starf er unnið af mann-
kærleika og í sjálfboðavinnu
félagsmanna, segir Laufey og
Árni bætir því við að þetta mál
hafi fyrst og fremst þokast
áfram vegna ódrepandi dugn-
aðar kvennanna í félaginu. -
Þær hafa verið alveg ótrúleg-
ar, sagði Árni.
- En hverjar eru aðalfjár-
öflunarleiðir félagins?
- Það eru fyrst og fremst
frjáls framlög, söfnunarfé og
ágóði af sölu fyrir jólin. Þá
hafa klúbbar og ýmis félaga-
samtök s.s. kvenfélögin stutt
vel við bakið á okkur og eiga
þessir aðilar þakkir skildar
fyrir. En betur má ef duga skal
og við vonum bara að söfnun-
in um helgina gangi vel, sögðu
þau Laufey Tryggvadóttir og
Árni Bjarnarson.
Laufey Tryggvadóttir og Árni Bjamarson - t baksýn er byggingarsvæðið og þar mun í framtíðinni rísa stórbygging
Náttúrulækningafélags Ákureyrar. Mynd: ESE
VISNAÞATTUR
Jón Bjamason
„Ef allt um þrýtur...
Þegar umsjármaður þáttarins
tók við embættinu var fátækt
hans sú að hann hlaut að sækja
um of í eigin syrpu. Á þessu
hefur orðið mikil breyting:
Nú berast vísur öllum áttum frá.
Það elska margirgamla bragarháttinn.
Mérsýnist helst það verði ofan á
að allur Dagur leggist undir þáttinn.
En hættið ekki að senda vísur samt
því seint mun skipið verða yfirhlaðið.
Frá hverjum einum eignast vil ég skammt.
Efallt um þrýturstækkarHermann blaðið.
Þá koma tvær vísur eftir Guð-
finnu Bjarnadóttur fyrrum hús-
freyju að Garðshorni á Þela-
mörk. Hún var ættuð frá Botni í
Mjóafirði. Sem sjá má eru
vísurnar ekki samstæðar:
Óska sérhin ungu víf
ást við karlmann rækja,
en eiga síðan allt sitt líf
undir högg að sækja.
Minnar ævisaga er svona,
þósémittbilaðfley:
Ég er sælli sextug kona
en sautján ára mey.
Pétur Steingrímsson að Laxár-
nesi í Aðaldal vann um skeið við
Kísiliðjuna í Mývatnssveit. Þar
henti mann nokkurn það óhapp
að hann slangraði út í móa á
vegum Bakkusar og týndi gervi-
tönnum sínum. Þá orti Pétur:
Stóðugt fennir úti enn.
Óðum grennist jörð til beitar.
Fella tennurfé ogmenn
í faðmi hennar Mývatnssveitar.
Pétur orti svo um vinnustaðinn,
en líklega ekki í fullri alvöru:
Kísiliðjukotið lágt
kringja fúnir viðir.
Amerískir eiga bágt
axarskaftasmiðir.
Aldreisá égæðsta mann
ölluminna virði.
Kísiliðjukanslarann
kölski sjálfur hirði.
Næstu vísurnar þrjár sendi Sig-
tryggur Símonarson þættinum
ásamt fleirum er birtast sfðar:
Stakan með sér birtu ber,
efbragorð snjöll við heyrum.
Ég á lítið undir mér
á þvísviði - ogfleirum.
Ort í vetrarhörku er olli sam-
göngutruflunum:
Fýkurmjöllum freðinn völl,
fremur spjöll að vanda.
Hátt ífjöllum hrímguð öll
hamratröllin standa.
Vorkoma:
Eftir vetur vorið ber
í vinarfaðmi gróðurmitt.
Hvar sem helst um fold ég fer
finn ég lífsins andardrátt.
Einhverju sinni voru nokkrar
frúr í Köldukinn á skemmtiferð.
Hlýtt var veðurs og kom fram
ósk um að rúður væru skrúfaðar
niður, svo loft næði að leika um
bílinn. Þá mælti Svanhvít Ing-
varsdóttir á Syðri-Skál:
Þetta skeður ekki oft,
aumt er slíkt að heyra
að Þingeyinga þrjóti loft
og þuifi að biðja um meira.
Þá kemur skammdegisvísa eftir
Steingrím Baldvinsson í Nesi:
Styttist skeið hins skamma dags.
Skuggar á leiðum flakka.
Vindur greiðir fannafax
fram af heiðar makka.
Guðni Þorsteinsson er bjó á
Skuggabjörgum, Hálsi og víðar,
orti svo á efri árum:
Ég vil lifa ífriði og fró.
-Flesternútilbaka-.
Yndi mitt er alltaf þó
ung og fögur staka.
Er umsjármaður þáttarins sá í
Degi viðtal við Flosa Ólafsson
ásamt mörgum myndum orti
hann af hreinum prakkaraskap:
Sunnan berst úr súld og rosa
sitthvað dót er þarf að kynna.
En að gera guð úr Flosa
geturorðið tafsöm vinna.
Ég óska lesendum gleðilegs
sumars.
Jón Bjarnason.
... stækkar Hemiann blaðiðu
6. itraí 1983 - DAGUR - 5