Dagur - 08.06.1983, Síða 2

Dagur - 08.06.1983, Síða 2
„Hjálparstofnun kirkjunnar mætti ef til vill kalla nútíma trúboö“ - segir Ottó A. Michelsen, stjórnarformaður Hjálparstofnunarinnar Hjálparstofnun kirkjunnar hélt aðalfund sinn á Akureyri í síðustu viku, þar sem komu saman fulltrúar prófastsdæmum Stjórnarformaður úr öllum landsins. Hjálpar- Ottó A. Michelsen: „Kristilegur kærleiksboðskapur hlýtur að vera aðal- hornsteinninn í uppbyggingu þjóðfélagsins. Mynd: KGA stofnunarinnar er Ottó A. Michelsen, en hann hefur haft afskipti af stofnuninni frá upphafí og verið í stjórn þau 13 ár sem hún hefur verið starf- starfrækt. „Ég er af Hvassafellsættinni segir Ottó um uppruna sinn. „Annars er ég ekki sterkur í ættfræði. Móðir mín er Guðrún Pálsdóttir úr Eyjafirði - eitt systkina hennar er Jón Pálsson sem ásamt fleiri þekktum köpp- um sýndi íslenska glímu á Ólympíuleikunum 1920. Og faðir minn er danskur. Hann fluttist tvítugur til íslands og settist að á Sauðárkróki, þar sem hann kvæntist og þau hjónin eignuðust 12 böm.“ - Svo þú ert af Króknum? „Já, en þaðan fór ég 1938 til náms í Þýskalandi og er þaðan útlærður skriftvélameistari. Eftir að ég kom heim 1946 settist ég að í Reykjavík og stofnaði þar fyrirtækið Skrifstofuvélar hf. og var í stjóm þess þangað til á síðasta ári að ég fór á eftirlaun.“ - Hvernig komu til afskipti þín af Hjálparstofnun kirkjunn- ar? „Eg hef alla tíð frá unglingsár- unum haft áhuga á kirkjulegu starfi og haft ábyrgðarstöðum að gegna í minni sókn -Bústaðasókn í Reykjavík - verið safnaðarfull- trúi og var formaður byggingar- nefndar. Auk þess hef ég gegnt trúnaðarstörfum í prófastsdæm- inu, aðallega á fjármálasviðinu. Þegar ég var ellefu ára henti lítið atvik sem hefur ef til vill öðru fremur orðið til að kveikja hjá mér kirkjulegan áhuga. Þannig var að ég var í sveitakirkju á Flugumýri og áttu að hafa sam- fylgd fermingarbarna milli kirkna, því veður var vont. Og prestur beindi þá til mín spurn- ingu sem ég ekki gat svarað. Það þótti mér sárt og upp úr því fór ég að lesa meira og betur um trúna og sannfærðist um að kristilegur kærleiksboðskapur hlýtur að vera aðalhornsteinninn í uppbyggingu þjóðfélagsins.“ - Hvað um trúaráhuga íslend- inga almennt? „Trúaráhugi íslendinga hefur aukist verulega á seinni árum. Kirkjan hefur meðbyr í þjóðfé- laginu og það er mikið undir henni komið að hún nýti þennan byr. Og þar þarf fyrst og fremst að koma til bætt innra skipulag og stjórnun kirkjunnar. Þó að kirkj- an sé í eðli sínu íhaldssöm og eigi að vera það, tel ég að breyttar aðferðir við boðunina séu nauð- synlegar. Og stofnun eins og Hjálparstofnunina mætti ef til vill kalla nútíma trúboð þar sem kærleikur er sýndur í verki. Þá má einnig nefna að samstarf milli kirkjudeilda fer vaxandi og það er mjög þýðingarmikið að það verði sem best. Ég hef ferðast víða, búið í mörgum löndum og í mínum huga er ekki vafi á að Islendingur- inn hefur miklu meiri trúaráhuga heldur en nokkur önnur þjóð sem ég hef kynnst." - Hvernig heldur þú að þessi trúaráhugi okkar sé til kominn? „Ég held að trúaráhuginn með- al íslensku þjóðarinnar sé gömul erfð frá því þegar einangrunin var meiri og bókhneigð Islend- inga á líka sinn þátt. Þá komu almennir fjölmiðlar seinna til okkar en margra annarra og tóku því ekki tíma frá fólkinu.“ - Nú hefur þú starfað við stjórn fyrirtækis þar sem ef til vill er hætta á að einstaklingurinn týnist í hraða tæknivæðingar; hvernig fer sá starfi saman við kirkjustarfið þar sem einstakl- ingurinn situr í fyrirrúmi? „Þetta fer ákaflega vel saman. Því að stórfyrirtæki byggja á einstaklingnum. Hann afkastar ekki nema hann sé í góðu umhverfi - við góðan aðbúnað. Og inn á borð stjórnenda kemur því iðulega margslungin sál- gæsla.“ - Er það eitthvað í lífi þínu öðru fremur sem hefur sannfært þig í trúnni? „Ég hef orðið fyrir þeim atvikum sem hafa sannfært mig og tvisvar bjargað lífi mínu er ég viss um. Þar að auki hef ég séð framliðna og það var ekki glýja í mér, því þegar ég seinna sagði frá því var mér sagt að fleiri hefðu séð framliðna í sama herbergi." - Trúirðu á annað líf? „Ég er sannfærður um annað líf. Og það finnst mér ákaflega notaleg tilfinning.“ Ernst Ingólfsson: - Mér finnst það ekkert merkilegt. Mér finnst það sjálfsagt. Elísa Ingólfsdóttir: - Það er góð tilfinning. Það er gott að vera innan um þá. Hvað er svona merkilegt við það að vera Þingeying- ur? (Spurt á Grenivík) „Taka þarf völlinn upp“ Knattspymuáhugamaður skrifar: Þá á að heita að knattspyrnuver- tíðin svokallaða sé hafin, a.m.k. að nafninu til. Fyrir suma er það þó ekki, en ég er í hópi þeirra sem tel ekki að knattspyrna sé leikin á öðrum völlum en gras- völlum, þessi eltingaleikur á mal- arvöllum fram eftir sumri á að mínu mati ekkert skylt við þá íþrótt. Það er aldeilis furðulegt að ekkert skuli vera gert til að koma þessum málum í betra horf, t.d. á Akureyri. Að vísu hafa bæði KA og Þór unnið að uppbygg- ingu grasvalla á svæðum sínum, mikið í sjálfboðavinnu, enda er svo komið að þeir vellir eru orðn- ir mun betri en vandræðabarnið við Glerárgötu. Ef ég man rétt sagði vallar- stjórinn þar í blaðaviðtali í fyrra að grasið á þeim velli væri einært og sáði sér sjálft á haustin. Þetta leiðir af sér að völlurinn er mjög seinn til á vorin og er oft komið fram á mitt sumar þegar farið er að spila þar. Ekki er það álagið á vellinum sem hefur eyðilagt hann undan- farin ár, svo mikið er víst. En er hægt að horfa endalaust á þessa vitleysu án þess að nokkuð verði að gert? Mér finnst ekki. Það þarf að taka völlinn upp og tyrfa að nýju, en þó ekki fyrr en búið er að setja hitaleiðslur undir við loksins alvöruvöll eins og Ak- hann. Verði það gert, þá eigum ureyri hlýtur að stefna að. Steinþór Stefánsson: - Ég þekki lítið annað en Þingeyinga. Þeir eru gott fólk. Jón Ásgeir Pétursson: - Þeireru höfðinu hærri. Höskuldur Haraldsson: - Þeir geta synt lengur í kafi, það er svo mikið loft í þeim. 2 - DAGUR - 8. júní 1983

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.