Dagur - 13.06.1983, Qupperneq 5
c
ÞRU M USKALLI
Guðjóns tryggði Þór annað stigið
- Það var sannarlega ánægju-
leg tilfínning að sjá boltann í
netinu. Það var allt opið og
óvaldað þegar boltinn kom
fyrir markið og ég náði að
skalla hann í jörðina og efst í
markhornið fjær, sagði Guð-
jón Guðmundsson, miðvallar-
leikmaður Þórs eftir leikinn
gegn ÍBV en Guðjón skoraði
hið þýðingarmikla jöfnunar-
mark Þórsara í leiknum.
Vegna stórrigningarinnar að-
faranótt laugardagsins var ekki
hægt að leika leik Þórs og ÍBV á
grasi og um tíma leit út fyrir að
fresta þyrfti leiknum að nýju, en
upphaflega átti hann að fara fram
á föstudagskvöldið. Þá komust
Eyjamenn ekki norður og því var
leikið á laugardegi.
Það voru Eyjamenn sem hófu
leikinn heldur betur en smátt og
smátt komu Þórsararnir meira
inn í myndina og það voru þeir
sem áttu fyrsta hættulega mark-
tækifærið. Helgi Bentsson komst
þá inn fyrir vörn ÍBV og lagði
boltann fyrir Bjarna Sveinbjörns-
son sem skaut rétt framhjá.
Næsta marktækifærið féll svo
Eyjamönnum í skaut. Kári Þor-
leifsson „stal“ boltanum af varn-
armönnum Þórs og gaf langa
sendingu fyrir markið, þar sem
Ómar Jóhannsson var einn og
óvaldaður á hægri kantinum og
gott skot hans fór undir Þorstein
Ólafsson, markvörð og í markið.
1-0 fyrir ÍBV og 23 mínútur bún-
ar af leiknum.
Það sem eftir var hálfleiksins
sóttu Þórsarar heldur meira en
Vestmannaeyingarnir áttu einnig
sín tækifæri. T.d. komst Tómas
Pálsson einn inn fyrir Þórsvörn-
ina, lék á Þorstein en laust skot
hans rataði ekki rétta leið. Hin-
um megin á vellinum komst Hall-
dór Áskelsson svo í dauðafæri á
35. mínútu en Aðalsteinn varði
gott skot hans í horn.
í síðari hálfleiknum léku Þórs-
arar undan norðanstrekkingnum
og voru öllu meira með boltann.
Jöfnunarmark Þórsara kom svo
á 67. mínútu leiksins en þá tók
Bjarni eina af sínum mörgu horn-
spyrnum í leiknum. Er boltinn
kom fyrir markið, stökk Guðjón
Guðmundsson hæst og þrumu-
skalli hans skall í jörðinni og
þeyttist síðan efst í markhornið,
gjörsamlega óverjandi fyrir
Áðalsteinn í ÍBV-markinu.
Eftir markið þyngdist sókn
Þórsara en þeir höfðu santt ekki
árangur sem erfiði upp við mark
andstæðinganna. Hættulegustu
marktækifæri Vestmannaeying-
anna komu svo eftir slæm mistök
í Þórsvörninni. Fyrst missti Árni
Stefánsson boltann klaufalega til
Kára Þorleifssonar sem skaut að
marki en Þorsteinn varði og á 84.
mínútu var markaskorarinn
Guðjón Guðmundsson svo næst-
um búinn að gera sjálfsmark en
boltinn hafnaði beint í fanginu á
Þorsteini markverði.
Þessi leikur er tvímælalaust
besti leikur Þórsliðsins það sem
af er sumrinu en betur má ef
duga skal. Að þessu sinni var það
baráttan sem sat í fyrirrúmi með
þá Helga Bentsson og Halldór
Áskelsson sem frískustu menn en
ekki var knattspyrnan sem liðið
sýndi upp á marga fiskana. Mikið
um kýlingar en lítið samspil.
Um Vestmannaeyjaliðið er
það að segja að það hlýtur að
hafa valdið öllum þeim sem
komu til að sjá góða knattspyrnu
frá efsta liði deildarinnar, mikl-
um vonbrigðum. Liðið átti í vök
að verjast lengst af en það er
greinilega skipað mjög jöfnum
einstaklingum og heimavöllurinn
virðist vera þeirra uppáhald,
a.m.k. ef marka má úrslitin fram
að þessu.
Dómari var Magnús Theódórs-
son og hafði hann góða stjórn á
leiknum. -ESE
Halldór Áskelsson sýndi loks hvað I honum býr og barðist vel í leiknum gegn
ÍBV. Hér er hann í baráttu um boltann gegn einum af vamarmönnum Vest-
mannaeyinga. Mynd: KGA
1. deildin:
Þrjú lið efst og jöfn
Skagamenn heppnir
í a - KR 1-1
Skagamenn voru heppnir að
hreppa annað stigið í þessum
leik. Eftir nokkuð jafnan fyrri
hálfleik, þá tóku KR-ingar öll
völd á vellinum í sínar hendur og
áttu þá fjölda dauðatækifæra.
Eina mark hálfleiksins kom á 55.
mínútu og var Sigurður Indriða-
son þar að verki. Nafni hans Lár-
usson skoraði fyrir íA með skalla
eftir aukaspyrnu á 33. mínútu
fyrri hálfleiks og úrslitin því jafn-
tefli.
Jafnt í Kópavogi
UBK - ÍBÍ 1-1
ísfirðingar urðu fyrri til að skora
og var þar að verki Kristinn
Kristjánsson. Breiðabliksmenn
gáfu sig þó ekki og undir lok fyrri
hálfleiksins náði Trausti Ómars-
son að jafna fyrir Blikana. Leik-
urinn var vel leikinn og sköpuðu
leikmenn sér aragrúa marktæki-
færa en mörkin urðu samt aðeins
tvö. Áhorfendur voru 608.
Dýrmæt stig til
Þróttara
Þróttur 3 - Valur 2
Þróttarar byrjuðu leikinn mun
betur og komust í 3-0 með mörk-
um Kristjáns Jónssonar, Sverris
Péturssonar og Bjarna Harðar-
sonar. Eftir að þessari forystu var
náð drógu Þróttarar sig meira í
vörnina en Valsmenn sóttu þvi
meira. Ingi Björn Albertsson
skoraði fyrra mark Vals undir lok
fyrri hálfleiks og bætti svo öðru
við í síðari hálfleik. Þrátt fyrir
sterka sókn Valsmanna tókst
þeim ekki að bæta við mörkum
og Þróttarar bættu því tveim
dýrmætum stigum í safnið.
Frestað
Leik Víkings og ÍBK hefur verið
frestað til 29. júlí að ósk Víkinga
vegna leiks „Stjörnuliðsins" og
Stuttgart.
Coca cola golfmótið:
Þórhallur Pálsson varð sig-
urvegari í Coca Cola golf-
mótinu sem fram fór á Jað-
arsvelli á Akureyri um helg-
ina. Þórhallur lék á 163
höggum, eða jafn mörgura
og þeir Jón Þór Gunnarsson
og Magnús Birgisson. En ár-
angur Þórhalls á þremur síð-
ustu holunum var betri en
hjá hinum og það nægði
honum til sigurs.
Nokkrar sviftingar voru í
keppninni. Þeir Jón Þór og
Kristján Hjálmarsson, frá
Húsavík, voru bestir eftir 18
holur, Magnús Birgisson hafði
tekið þriggja högga forustu
eftir 27 holur en undir lokin
lék Þórhallur best allra.
Með forgjöf sigraði Guð-
mundur Finnsson á 147
höggum, Bessi Gunnarsson
var á sama skori og Sverrir
Þorvaldsson þriðji á 150
höggum.
Fjögur Akureyrar-
met á afmælismóti
Akureyrskir kraftlyftingamenn
eru iðnir við kolann og nú líður
vart sú vika að þeir haldi ekki
mót af einhverju tagi.
Nýjasta mótið sem við höfum
frétt af er áfmælismót Kára
Elísonar, en hann varð þrítugur
á laugardag. Á mótinu voru sett
fjögur ný Akureyrarmet og setti
afmælisbarnið tvö þeirra. Flosi
Jónsson setti hin metin og hafa
þeir Kári og Flosi nú sett ein 15
Akureyrarmet samanlagt á
nokkrum dögum.
Stigamót í golfi:
Björgvin sigraði
með yfirburðum
Björgvin Þorsteinsson, GA,
varð yfirburðasigurvegari í
stigamótum Golfsambandsins
en fjórða og síðasta stigamótið
sem gaf stig til landsliðs fór
fram á Grafarholtsvellinum
um helgina.
Björgvin varð í þriðja sæti á
þessu móti með 316 högg samtals
en sigurvegari varð Sigurður Pét-
ursson, GR, með 310 högg.
Hannes Eyvindsson varð annar
með 315 högg.
Kjartan L. Pálsson, landsliðs-
einvaldur í golfi, valdi í gær
landsliðið sem keppa á á Evrópu-
mótunum og tók í því sambandi
mið af stigamótunum. Að sögn
Kjartans þá skipa eftirtaldir
karlalandsliðið sem keppir í
París: Björgvin Þorsteinsson,
GA, Sigurður Pétursson, GR,
Sveinn Sigurbergsson, GK,
Ragnar Ólafsson, GR, Gylfi
Kristinsson, GS og Hannes Ey-
vindsson, Gr. Varamenn eru Sig-
urður Sigurðsson, GS og Gylfi
Garðarsson, GV. ESE
Sagt
eftir
leikinn
Björn Árnason:
- Ég verð að segja að það er ansi
skítt að við skuluin puða í 90
mínútur og vera mun betri aðil-
inn í leiknum og ná svo bara í
annað stigið, sagði Björn Árna-
son, þjálfari Þórs í samtali við
Dag eftir leik Þórs og ÍBV.
- Þetta er annars allt á uppleiö
hjá okkur og það er greinileg
framþróun með hverjum leik,
sagði Björn og bætti því við að
ÍBV-liðið hefði komið honum á
óvart.
- Ég átti von á þeim mun
sterkari miðað við þessa sigra
sem þeir hal'a verið að vinna að
undanförnu en nú voru þeir mun
lakari en við, sagði Björn.
•
Jóhannes Atlason:
- Þeir komu mér svo sannar-
lega á óvart Eyjainennimir í
þessunt leik, sagði Jóhannes
Atlason, lundsliösþjálfari,
sem fylgdist með leik Þórs og
ÍBV á iaugardaginn.
- Þetta er daufasta Eyjalið
sem ég hef séð um dagana og ég
hef þó séð þau mörg, sagði Jó-
hannes og bætti því við að
Þórsliðið hefði ekki komið hon-
um á óvart og hvorki verið
betra eða verra en hann átti von
á.
- Voru það framlínumenn
ÍBV sent þú komst til að sjá í
þessum leik?
- Nei, ekkert frekar. Ég er
hérna á yfirreið og stefnan er
sú að reyna að sjá eins marga
leiki utan Reykjavíkursvæðisins
og kostur er, sagði Jóhannes
Atlason. ESE
í 13. júní1903 - DAGUR-5