Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 7

Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 7
psst IPHI itip p . " « ' ' Melgerðismelum Fjórðungsmótið á Melgerðismelum • Fjórðungsmótið á Melgerðismelum • Fjórðungsmótið á Melgerðismelum Fjórðungsmótið á Melgerð „Engfnn þarf að svelta á Melgeroismelum - segja þeir Ingvi Guðmundsson, Jens Ólafsson og Valdimar Valdimarsson 44 rt mót“ hátt dagana sem mótið stæði. - Það verða kvöldvökur hér á hverju kvöldi og böll verða í Sólgarði þar sem Geirmundur sér um fjörið og í Laugaborg þar sem Gautar frá Siglufirði sjá um hófa- taktinn. Allur útreikningur á mótinu varðandi dóma og annað verður unninn með tölvum og úrslit verða sýnd jafnóðum á sjónvarpsskermum, sagði Rafn Arnbjörnsson, mótsstjóri. Eitthvað verður að láta í sig á fjórðungsmótum og þeir sem koma á Melgerðismela þurfa ekki að óttast að þeir verði hungurmorða. Veitingasala verður á staðnum, nýlendu- vöruverslun og svo má ekki gleyma blessuðum pylsunum sem seldar verða í sjoppunni á staðnum. Það eru þeir Ingvi Guðmunds- son og Jens Ólafsson sem sjá um nýlenduvöruverslunina á Mel- gerðismelum og er blaðamaður Dags hitti þá að máli þá voru þeir nýbúnir að gefa versluninni nafn en hún heitir því fróma nafni Melabúðin. - Hér á fólk að geta fengið all- ar almennar matvörur og þ.á.m. allt á grillið þannig að fólk ætti ekki að þurfa að leita út fyrir svæðið. Við verðum einnig með mjólkurvörur, að vísu ekki Húsa- víkurjógúrt og það er stefnt að því að búðin verði opin myrkr- Ingvi Guðmundsson í gættinni á kæligámnum en þar er allt góðgætið geymt. anna á milli þannig að það verði a.m.k. opið á meðan fólk er al- mennt á ferli, sögðu þeir Ingvi og Jens og þar með voru þeir roknir í að opna gáma og kæligáma og farnir að koma vörunum fyrir á viðeigandi stöðum í verslunar- tjaldinu sem nú heitir Melabúð- in. Valdimar Valdimarsson. Fimm þúsund pylsur Það er Valdimar Valdimarsson sem sjá mun um að „ein með öllu“ verði alltaf við hendina en í samtali við Dag sagðist Valdimar reikna með að selja a.m.k. fimm þúsund pylsur á mótinu. - Við verðum með 61 vakt hér á mótinu átta tíma í senn og það verður opið frá kl. 8-24. Ætli það verði ekki um fimmtíu manns sem vinna hér á þessum vöktum en auk þess sem við verðum með pylsur og sælgæti þá verðum við með íssölu og ég stefni að því að selja eina fimm hundruð lítra, sagði Valdimar og auðvitað sagð- ist hann vera hestamaður. - Ég er í Létti og á fjóra hesta en mér líst ekki á að ég komist mikið á hestbak á meðan á mót- inu stendur. 55 - segir Jónas Vigfússon, framkvæmdastjóri verklegra framkvæmda á Melgerðismelum Það var ekki hlaupið að því að fá Jónas Vigfússon, fram- kvæmdastjóra verklegra fram- kvæmda fyrir Fjórðungsmótið á Melgerðismelum, til þess að setjast niður smástund og svara nokkrum spurningum varðandi mótið. Jónas var á þönum um allt svæðið og Jónas Vigfússon, framkvæmdastjórí, í smá pásu. þurfti í þúsund hom að líta en loksins þegar hann hafði leyst öll vandamál augnabliksins gaf hann sér smástund, settist niður í fyrsta skipti í langan tíma og fékk sér mjólkursopa. - Hvenær hófst undirbúningur hér á svæðinu fyrir þetta mót? - Ég var ráðinn í þetta starf í byrjun maí og þá voru þessar framkvæmdir hér ekkert farnar af stað. Síðan þá hefur verið stíg- andi í þessu og fyrst í stað var aðallega um kvöld- og helgar- vinnu að ræða. Síðustu dagana höfum við hins vegar unnið frá því snemma á morgnana fram á nótt og flestir þeir sem hér hafa unnið hafa gert það í sjálfboða- vinnu. - Er vitað hvað þetta hefur kostað á þessu stigi? - Ætli útlagður kostnaður sé ekki hátt í hálfa milljón króna, sagði Jónas en hann treysti sér alls ekki til að meta alla þá miklu sjálfboðavinnu sem unnin hefur verið. Það eru hestamannafélögin í Eyjafirði, Funi, Léttir og Þráinn sem eiga Melgerðismelasvæðið en sú nýbreytni var tekin upp að þessu sinni að hestamannafélögin tóku sjálf að sér að koma svæð- inu í lag fyrir mótið en síðan átti að afhenda framkvæmdanefnd mótsins svæðið í fúllkomnu ástandi. - Þetta er framtíðin í þessum málum og raunverulega er ekki hægt að vinna þetta öðruvísi. Það verða minni árekstrar og þetta er hagkvæmara að öllu leyti, sagði Jónas Vigfússon sem bjóst við því að á milli þrjú og fimm þús- und manns myndu koma á mótið. Fjórðungsmótið á Melgerðismelum * Fjórðungsmótið á Melgerðismeh 1. júlí 1983 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.