Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 4

Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 120 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 15 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON, ÓLAFUR JÓHANNSSON (SAUÐÁRKRÓKI) OG PORKELL BJÖRNSSON (HÚSAVlK) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Nauðsyn samstöðu gegn verðbólguvandanum Ríkisstjórnin verður að glíma við margs konar vanda en augljóst er að efnahags- málin skipta þar langmestu. Vandi efna- hagslífsins er margþættur og að vísu leyti gamalkunnugur þar sem er óheillavænleg verðþróun sem hefur verið viðvarandi ástand í marga áratugi. Til viðbótar koma svo önnur vandamál sem atvinnulífið á við að stríða m.a. vegna aflarýrnunar og ým- iskonar samdráttar sem ævinlega fylgir í kjölfar versnandi ástands í sjávarútvegi og læsir sig um allt þjóðfélagið. Ekki fer milli mála að ýmislegt í efnahags vanda okkar er sjálfskaparvíti. Á það fyrst og fremst við um verðbólguna sem er að langmestu leyti heimatilbúið vandamál og hefur magnast ár eftir ár vegna samstöðu leysis ráðamanna og skorts á þjóðarvilja tii þess að vinna á henni bug. Skammsýni og ábyrgðarleysi þrýstihópa, bæði af hálfu ýmissa atvinnurekenda og forystumanna launafólks, hefur sí og æ komið í veg fyrir að stjórnvaldsaðgerðir í efnahagsmálum næðu að skila árangri. Þetta kom berlega í ljós á árunum 1976-1978, aftur 1978 og 1979 og mjög skýrt á síðustu misserum stjórnartímabils ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen. Sá siður er landlægur að dæma efnahagsaðgerðir fyrirfram og vekja tortryggni almennings gegn þeim að ekki sé minnst á virkar mótaðgerðir sem vissu- lega eru alþekktar fyrr og síðar. Vonandi kemur ekki til þess að hafðar verði í frammi virkar mótaðgerðir gegn ráð- stöfunum núverandi ríkisstjórnar því að svo mikið er í húfi að takast megi að hemja þá óðaverðbólgu sem geysar í landinu. Atvinnurekendur og launþegar verða að leggjast á eitt um að styðja ríkisstjórnina í viðleitni hennar til þess að draga úr verð- bólgu þ.e. kostnaðarhækkunum og dýrtíð sem sligar jafnt atvinnurekstur sem afkomu einstaklinga og heimila. Það er ekkert efamál að með þjóðarsam- stöðu er unnt að ráða niðurlögum verð- bólgunnar með mjög skaplegum hætti á til- teknu árabili. Skilyrði þess að það megi takast er að Alþingi og ríkisstjórn fái traust til að framkvæma stefnu sína þ.e. fái frið til að stjórna meðan starfstími hennar varir. Með þjóðarsamstöðu hafa íslendingar unn- ið afrek í ýmsum málum má þar nefna sjálf- stæðismál þjóðarinnar, landhelgismálið, ýmis heilbrigðismál og margt fleira. Nú er kominn tími til að mynda þjóðarsamstöðu um að vinna á verðbólgunni enda ekki seinna vænna. I.G. VISNAÞATTUR Jón Bjarnason „Skerða firið með skolladans skændiðar andskotans" Maöur á Húsavík, er ekki lætur nafns síns getið að svo stöddu, sendi þættinum tvær vísur ortar í kosningaslagnum síðasta: Vítt um landid glatt það gcngur. Grcppar öðlast vanga rjóða. Einir búa ekki lengur, ákaft konur fram sig bjóða. Árni Gunnarsson kvaðst ætla að berjast eins og hundur í kosningastríðinu. Fögur leystist fylking sundur. Flótti brast í krata-lið þóttÁrni „ berðist eins og hundur“ andstæðinga sína við. Næstu vísurnar þrjár eru eftir Benedikt Ingimarsson, á Hálsi í Saurbæjarhreppi, og eru um breytingar í tímans rás: Áhugi fólks á ýmsa hlið er umbreytingum háður. Nú sitja allir við sjónvarpið svipað og messur áður. Og þá er það kvenfólkið: Tálbeitur og tfskufár tíminn bar til eyjar. Hafa breyst i hundrað ár hugmyndir um meyjar. Áður þurfti ást að tjá ungfrúnum af sálarmætti. Nú byrja þeir neðan frá. Þær nást ekki með öðrum hætti. Héðinn fertugur nefnist næsta vísa. Höfundur ekki nafn- greindur: Draumur hjartans ennþá er æskubjartur, fagur. Nóttin svarta á flótta fer, fríður skartar dagur. Næstu vísurnar þrjár eru eftir Sigtrygg Símonarson. Nefnir hann þá fyrstu Staðreynd: Stundum er í straumi lífs stefjaþrunginn kliður. Öls við nautn og ástir vífs örvast blóðsins niður. Verkfall. (Að nauðsynjalausu): Dansar um sviðið djöflafans, drýgir bið til sæluranns. Skerða frið, með skolladans skæruliðar andskotans. Ort er alþingiskosningar stóðu fyrir dyrum: Enn eru bentir bogar og beitt er hvössum skeytum. Andrúmsloftið logar af- lognum fyrirheitum. Iðunn Ágústsdóttir orti, kannski fyrir sömu kosningar: Nú er fjör á ferðum í frónskum stjórnargerðum. Brátt munu allir alla „elsku vin“ sinn kalla. Og enn orti Iðunn: Pólitík er pesti lík. Pólitík í dag er slík: Eins og rifin úrgangsflfk. Til afsláttar, sem gömul tík. Iðunn yrkir einnig margar fal- legar vísur. Hér er ein um kær- leiksböndin: Höndin mín og höndin þín helgust styrkja böndin. Undrabirta ofan skín á andans rósalöndin. Þættinum lýkur með vísu eftir Guðna Þorsteinsson: Efei vantar vit né þor verður fátt að meinum. Þá er alltaf indælt vor innst í hjartans leynum. A SJONSKIFU Kristján frá Djúpalæk Viðbrögð Ég fékk myndarlegt svar frá Valdimar Gunnarssyni vegna hugleiðinga minna um endur- nýtingu hráefna, þ.á.m. um- búða utan um mjólkurvörur. Um þetta mál mætti vissulega rita meira en ég Iæt því lokið að sinni. Hins vegar vil ég and- mæla því að farið sé lítilsvirð- andi orðum um lauftré, þau tal- in „annars flokks". Ég tel þau trjáa fegurst og fegurð vera dýrmætari en notagildi. Pá hreinsa þau loftið fyrir okkur og endurnýja. Enn hafa þau afger- andi áhrif á veðráttu þar sem þau fá að dafna. Aldrei skal því trúað að sóun verðmæta sé nokkrum manni óviðkomandi ellegar þau óþrif sem fylgja nú- tímaumbúðum. Endurnýting, sparsemi og hóflegur íburður getur vart talist úrelt þing. Þá fékk ég ágætt símtal vegna skrifanna um ofvöxt orða. Áhugamaður um málið vildi bæta þar ýmsu við. Hann kvaðst t.d. ofurþreyttur á stagli stjó/n- málamanna um að „skoða“. Allt átti að skoða, þetta og þetta væri „í skoðun“. Næg orð væru þarna til skipta; athuga, rann- saka, hugleiða o.s.frv. Þá þótti honum orðið „þróun“ misnotað þegar það væri notað neikvætt; þróun niður á við. Þar ættu að koma önnur orð - þróun þýddi vöxt og viðgang, því væru til andstæðuorðin vanþróun og öf- ugþróun. Pá leiddist honum mjög orðið „pössun“, sagði að barnagæsla væri aldrei kölluð annað en að „passa“. Hann sagðist kvíða mjög orðinu „pössuvöllur" í kjölfarið. Það gæti orðið óskemmtilegt hjá hljóðvilltum manni! Að síðustu undraðist hann auglýsingar ferðaprangara um að „fara í sólina“, taldi að þar myndi ein- um of heitt að dvelja; aftur á móti nægði sér sólskin. Öllu þessu er ég hjartanlega sam- mála. Kuldi Um miðja áttundu viku sumars gerði vetrartíð og varð ósæl ævi bænda, fé enn á gjöf, hey á þrotum, gróður enginn - og það sem voðalegast var: að ær sem búið var að sleppa króknuðu ásamt lömbum sínum. Pá vaknar sú spurning hvort vetrarrúningur sé ekki sprottinn af landfræðilegri áttavillu. Ær áttu það til að krókna í áfellum hér áður þó ekki væri rúið fyrr én í júlíbyrjun. Við megum aldrei gleyma hnattstöðu ís- lands og sögu liðinna alda. Þrátt fyrir allar framfarir í húsakosti og fóðrun er veðráttan söm við sig og ekkert kemur í stað vorsins, bregðist það. En við ættum að vita að það hefur gerst og mun gerast. Borgarbúar þurfa svo sem ekki að kvarta né barma sér en maður þreytist þegar ekki er nema snittuhlé í sinfóníu Norðra konungs og lóðin okkar ber hvítan lit í stað- inn fyrir grænan f júnímánuði. Veiði Nýlega bárust okkur þær fréttir að Færeyingar drægju handóð- an þorsk heima hjá sér. Þar með fékkst nokkur skýring á aflaleysi hér: Vegna kólnandi sjávar leitar átan suður í haf, þorskurinn eltir. Eins er trúlega með laxinn frá norðurhluta landsins. Þetta eru raunar góðar fréttir með þorskinn. Hann er þá vonandi ekki ofveiðinni of- urseldur, blessaður. Bleikjan er aftur á móti ekki mótfallin svalanum. Henni mun hafa fækkað hér á hlýju árunum en er nú að ná sér aftur. Hér í Eyjafirði var góð bleikjuveiði sl. sumar. Hún gekk snemma og fór á fremstu slóðir vegna vaxt- ar og aurs í ánum, t.d. veiddi einn snillingurinn 140-50 bleikj- ur á 4. svæði í Eyjafjarðará á vikutíma. Seint í ágúst kom kraftganga af fallegum fiski og veiddist m.a. á 3. svæði. Úr Hörgá sýndu endurheimt veiðikort rúmlega 1.200 bleikj- ur sem skiptust svipað á svæði. Það er mjög gott. Þó heimtist ekki nema helmingur veiðikort- anna og má því tala veiddra fiska hafa verið mikið hærri. En hér var lítið um lax. Það er mjög nauðsynlegt að veiðimenn útfylli veiðikort og skili þeim (þeir fá enda greitt fyrir það) svo að hægt sé að sjá búskap ánna. í vor hefur verið reytingsafli í Eyjafjarðará og mikið um bleikju hér við ósana og í Poll- inum. Þess má geta að breyting- ar hafa verið gerðar á veiði- svæðum Hörgár og Öxnadalsár. 4. og 5. svæðum hefur verið skipt í tvennt: 4a (frá Steðja að ármótum), 4b (frá ármótum að Básfossi), 5a (frá ármótum, Öxnadalsá að Jónasarlundi) og 5b (frá Jónasarlundi og allt að Bakkaseli). Á hverju þessara svæða eru tvær stengur. Þetta er gert svo að fleiri komist að enda voru þessi svæði of löng til að vera nytjuð á einum veiðidegi. Þá verður leyft að veiða í Ás- láksstaðakíl með 1. svæði en þar fæst oft smábleikja síðari hluta sumars. En snjórinn í bakgrunni ánna er líklegur til að geta angrað veiðimenn nema hlákan komi og hreinsi snarlega til. Og um miðjan júní kom hún blessuð. 4-DAGUR-1. júlí 1983

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.