Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 8

Dagur - 01.07.1983, Blaðsíða 8
Nýkomið: Beitukrokar sjálflýsandi stærð 9. Beitugúmmí í metratali. Plötukrókar 6 stærðir. Pilkar frá 7 grömmum og upp í 1000 gr. Handfærarúllur með og án stangar. Deildarstjóri Óskum eftir aö ráöa deildarstjóra yfir plastiöju okkar. Starfiö er fólgið í daglegri framleiðslu- stjórnun, útvegun og þróun verkefna, sölu- og kynningarstarfi. Skriflegar umsóknir meö upplýs- ingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar okkur fyrir 15. júlí nk. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra Bugðusíðu 1, pósthólf 610, 602 Akureyri. -t Móöir mín og tengdamóöir, SIGURLÍNA GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð, andaðist á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 28. júní. Jarð- arförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 6. júlí kl. 1.30 e.h. Þóra Björnsdóttir, Aðalsteinn Halldórsson. Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, HELGI JAKOB KRISTJÁNSSON, Ásbyrgi, Glerárhverfi, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 28. júní verður jarðsettur að Lögmannshlíð þriðjudaginn 5. júlí kl. 13.30. Lilja Sigurjónsdóttir og börn, Inga Larsen. Innilegar þakkir til allra nær og fjær sem heiðrað hafa minn- ingu, MARGRÉTAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Birkilundi 15, Akureyri og auðsýnt okkur samúð við andlát og jarðarför hennar. Kristín Tómasdóttir, Árni Árnason, Ólafur Tómasson, Stefanía M. Pétursdóttir og fjölskyldur. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, GUÐMUNDAR BALDVINSSONAR, Fjólugötu 15, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Jónína Magnúsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Arnkell B. Guðmundsson, Svanfríður Guðmundsdóttir, Tryggvi Sæmundsson, Skarphéðinn Guðmundsson.Kristjana Jónsdóttir og barnabörn. 8 - PAGUR- 1.júlU983 , , »'• * f'VSi'WV '*•*.*': > • •' STÆLT OG STOLIÐ Nafn: Laurence Hagman. Fæðingardagur: 21. september 1930. Fæðingarstaður: Fort Worth, Texas. Heimiii: Á strönd Malibu. Sambýlingar: Maj konan mín, Preston sonur minn, dóttirin Heidi býr í Los Angeles. Þyngd: 10 kílóum þyngri en ég ætti að vera. Ég þarf í strangan megrunarkúr og það strax. Augu: Græn. Hár: Steingrátt - en ég segi ekki hversu mikið af því er mitt eigið. Fannst þér gaman í skóla? Ég fór í 16 mismun- andi skóla. Líklega þótti mér herskólinn skárstur. Fyrsta opinbera framkoma: Ég man það ekki alveg, þegar ég var krakki stóð ég alltaf fyrir hinum og þessum sýningum. Uppáhaldsleikari: Þeir eru margir. Ein uppá- haldsleikkona mín er Barbara Bell Geddes - að fá að leika á móti henni var ein af ástæðum þess að ég tók hlutverki f Dallas. Dppáhaldstónlist: Bach og Scarlatti. Uppáhaldssjónvarpsefni: Dallas, auðvitað. Uppáhaldspersóna: Maj konan mín. Hvaða eiginleikum þurfa góðir vinar að vera gæddir? Trúmennsku og skopskyni. Uppáhaldsmatur: Gott salat. Ég ergrænmetis- æta. . , - Uppáhaldsdrykkur: Kampavín. Aðaltómstundastarf: Að safna höttum, ég á rúmlega tvö hundruð. Hvað er það besta sem fyrir þig hefur komið? Fæðing barnanna minna. En það versta? Að gleyma textanum þegar ég söng fyrir móður drottningarinnar. Hvað fer í taugamar á þér? Ekki margt. En brjálæðisleg bréf sem ég fæ frá sumu kvenfólki fara ekki fjarri. Hvaða ávani manna líkar þér verst? Sígarettu- reykingar. Ég reykti 60 á dag þar til mér var sagt að ég myndi deyja ef ég hætti ekki. Mestu vonbrigði: Að ég skyldi vera orðinn 28 ára þegar ég og móðir mín skildum hvort ann- að og urðum vinir. Markmið: Að muna textann næst þegar ég syng íyrir rnöður drottningarinnar. „Hvalúðlegria drápsaðferð Hjá Raufoss skotfæraverksmiðjunum í Noregi hefur nú verið hannaður nýr sprengiskutull til hvalveiða og er það ætlun manna að þarna sé komið mun „hvalúðlegra*4 (mannúðlegra) drápstæki en áður hefur þekkst. Þessi nýi skutull er nú notaður til reynslu á hvalamiðunum í Barentshafi úti fyrir ströndum Finnmerkur og telja hönnuðir og fræðingar að full reynsla muni fást á þessari vertíð. Öll gögn og niðurstöður verða send vísindanefnd Al- þjóðahvaiveiðiráðsins en spurningin er bara sú: Til hvers þar sem búið er að banna hval- veiðar frá og með 1986. Þess má geta að nýi skutullinn er frábrugð- inn venjulegum sprengiskutlum að verulegu leyti en mörg ár eru nú síðan „kaldi skutullinn“ svokallaði var bannaður. Þá er eitt af síðustu vfgjunum fallið. Nú hafa norskir vísindamenn nefnilega komist að þvf að samband er á milli mikillar kaffidrykkju og kólesterols (fitu) í blóði. Sem kunnugt er þá veldur hátt kólesterol aukinni hættu á æða- og hjartasjúkdómum og samkvæmt könnun Norðmannanna sem gerð var á vegum Háskólans í Tromsö þá er 14% meira magn af kólesterol í blóði þeirra sem drekka níu bolla af kaffi á dag eða meira, en í blóði þeirra sem drekka lítið kaffi eða láta kaffidrykkjuna vera. Líklega á það sama við um Kóka kóla og það er því orðið fátt eftir sem fólk má láta í sig án þess að eiga á hættu að stytta sér leið í gröfina. Vísindamennirnir í Tromsö benda þá á að könnun þeirra og þær niðurstöður sem fengust séu þó ekki algildar og kólesterolið fari auðvit- að eftir þýi hvernig kaffið er. T.d. drekki Bandaríkjamenn mikið af „skyndikaffi" og koffein-fríu kaffi én þessar tegundir eru ekki eins hættulegar og gamla góða Brasilíukaffið. Þá sé hættan heldur ekki eins mikil í löndum eins og t.d. Danmörku þar sem menn úði í sig vínarbrauðum og ýmsum óhollum tertum með kaffinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.