Dagur - 31.10.1983, Síða 6
Gústaf þjálfar og
leikur með KA!
„Mér líst mjög vel á að fá
Gústaf sem þjálfara og leik-
mann með meistaraflokki okk-
ar næsta sumar og bind miklar
vonir við hans störf hjá
okkur,“ sagði Stefán Gunn-
laugsson formaður knatt-
spyrnudeildar KA um helgina,
en þá var gengið frá ráðningu
Gústafs Baldvinssonar og mun
hann hefja störf hjá KA 1.
febrúar nk.
Gústaf ætti að vera óþarfi að
kynna fyrir knattspyrnuáhuga-
mönnum. Hann hefur um árabil
verið fastur leikmaður liðs ÍBV
og vitað er að ÍBV sýndi áhuga á
að því að fá hann til þess að
þjálfa meistaraflokk næsta
sumar.
Jafnframt því að leika með liði
ÍBV sá Gústaf um þjálfun ung-
lingaliða í Eyjum í mörg ár, en
árið 1982 hélt hann til ísafjarðar
og lék með liði ÍBÍ í 1. deildinni
það ár. í sumar var hann hins
vegar á Vopnafirði og þjálfaði lið
Einherja í 2. deild og lék með lið-
inu sem náði mjög góðum árangri
og kom á óvart með frammistöðu
sinni.
Gústaf mun einnig leika með
KA-liðinu eins og fram kom hér
að framan. Hann er mjög fjöl-
hæfur leikmaður og getur leikið
nánast hvaða stöðu sem er á vell-
inum. Steinþór Þórarinsson mun
að öllum líkindum verða aðstoð-
armaður Gústafs og Iiðsstjóri
næsta sumar.
Metaregn" í Lundarskóla
Kári Elíson stóð sig vel að venju.
Mynd: KGA.
33
Fjöldi Akureyrarmeta var
settur á undirbúningsmóti akur-
eyrskra kraftlyftingamanna nú
um helgina. Fimni keppendur
voru á mótinu og stóðu þeir sig
allir með mikilli prýði.
Kári Elíson úr KA var nálægt
því að setja íslandsmet í bekk-
pressu. Átti mjög góðar tilraunir
'við bæði 164 og 165 kg en herslu-
muninn vantaði að þessu sinni.
íslandsmetið fær því gálgafrest
um sinn en öruggt má telja að
Kári eigi eftir að bæta metið 163
kg, sem hann á sjálfur, á þessu
Nauðsynlegt að hafa tvö
jjiiuuug|m^i cau iiciica ivu
knattspyrnulið hér í bænum
cí
segir
Þótt vetur sé genginn í garð og
þeir séu ekki margir sem eru að
hugsa um íslenska knattspyrnu
þessa dagana, er nokkur hópur
manna sem getur ekki leyft sér
þann munað að sitja aðgerðar-
laus. Þetta eru þeir sem hafa tek-
ið það verkefni að sér að sjá um
rekstur hinna ýmsu knattspyrnu-
deilda, og þessa dagana eru þeir
að huga að komandi keppnis-
tímabili. Það þarf að fara í fjár-
málin og vinna upp misjafnlega
langa skuldahala, það þarf að
ráða þjálfara fyrir komandi
keppnistímabil og áfram mætti
telja.
Á dögunum var haldinn aðal-
fundur knattspyrnudeildar KA, og
þar tók Stefán Gunnlaugsson við
formennsku af Gunnari Kárasyni.
Af því tilefni höfðum við samband
við Stefán og ræddum ýmis mál
sem ofarlega eru á baugi. Og hvað
er eðlilegra en að spyrja fyrst um
fjármálin.
Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður knattspyrnudeildar KA
„Fjárhags-
staðan slæm“
„Því er ekki að leyna að fjárhags-
staða okkar er mjög slæm, við
erum með skuldir upp á nokkur
hundruð þúsund krónur sem við
þurfum að greiða niður og við
stefnum að því að vera búnir að
koma þessum skuldahala niður á
núllið fyrir áramót.“
- Hvaða leiðir eru til í þessu
efni, ekki er hægt að leysa þetta
með einu „pennastriki“?
„Við erum með ýmsar fjáröflun-
arleiðir til áramóta og ber þar einna
hæst útgáfa á almanaki sem gefið
verður út í desember. Þar verða
myndir af öllum okkar keppnislið-
um í öllum flokkum. Þarna verða
einnig auglýsingar sem munu færa
okkur tekjur en hugmyndin er að
selja þetta almanak á kostnaðar-
verði. Þarna verður einnig happ-
drætti innifalið og því má segja að
þetta sé í senn kynningarbæklingur,
auglýsingabæklingur, almanak og
happdrætti.
Þá er að koma út auglýsingablað
nú næstu daga þar sem í eru greinar
og annað efni sem tengist knatt-
spyrnunni hjá KA. Við verðum
með skemmtun og fjáröflun í Sjall-
anum sunnudaginn 20. nóvember
og áfram mætti telja.
síður verið erfitt fjárhagslega en
þar þarf auðvitað sömu forsendur
til að starfið geti verið með eðlileg-
um hætti, að ekki sé verið að elta
sífellt langa skuldahala."
Við ætlum okkur ekki að sækja
um aukna styrki frá bæjaryfirvöld-
um, við teljum að bærinn hafi gert
vel við okkur og sýnt mikinn áhuga
á að styðja okkur sem best, beint
og óbeint. Hins vegar munum við
leita til þess harðsnúna Iiðs stuðn-
ingsmanna sem við teljum okkur
eiga og fara fram á þeirra aðstoð
við að ná niður skuldahalanum.
Við treystum því að menn bregðist
vel við, enda er það vitað mál að
við getum ekki starfað af þrótti
nema vera lausir við þessar skuldir.
Það má koma því hér að, að ég
hef ásamt nokkrum öðrum mönn-
um og aðalstjórn KA gengið í það
verk að koma niður stórum skulda-
hala handknattleiksdeildar KA og
við erum komnir í það verk af full-
um krafti. Þar hefur starfið ekki
Frá aðalfundi knattspyrnudeildar KA.
„Nauðsynlegt
að hafa tvö liðu
- Nú heyrast þær raddir af og til
sem telja lítið vit í því að það sé
verið að halda úti tveimur meist-
araflokksliðum í knattspyrnu og
handknattleik í ekki stærri bæ.
Þessar raddir segja að þetta sé allt-
of kostnaðarsamt og þeim fáu
mönnum ofviða sem sjá um þennan
rekstur. Hvert er þitt álit á þessu?
„Ég tel alveg nauðsynlegt að við
sérum með tvö knattspyrnulið hérna
í bænum og ég tel að knattspyrnan
myndi setja mikið niður ef hér yrði
aðeins eitt lið. Mér hefur virst að
það hafi ekki gengið alltof vel að
fá menn til að starfa fyrir þessi tvö
lið, en ég held að ég geti fullyrt að
það hafi gengið enn verr að fá
menn til að starfa á meðan sameig-
inlegu liði undir merki ÍBA var teflt
fram. En hvort þetta gæti orðið
lausn í handboltanum veit ég ekki
en tel það þó vel þess virði að það
verði skoðað. Það eru mun færri
áhorfendur á knattspyrnu, en
kostnaðurinn ekki svo mikið minni
við að halda úti handboltaliði."
Rígurinn
- Víkjum að öðru. Nú er það
staðreynd að talsverður rígur er
ávallt á milli KA og Þórs og birtist
hann á ýmsum sviðum. Nærtækt
dæmi er þegar þið voruð í við-
ræðum við Þorstein Ólafsson mark-
vörð Þórs um að hann yrði þjálfari
hjá ykkur næsta keppnistímabil og
Þórsarar tóku því mjög illa. Þurfa
alltaf að koma upp -svona mál eða
er möguleiki að í stað þessa rígs
geti komið til aukið samstarf félag-
anna, báðum til hagsbóta?
„Samstarf ætti að geta verið á
mörgum sviðum ef allt væri með
felldu, en við skulum alveg gera
okkur grein fyrir því að þessi rígur
sem talað er um að sé til staðar og
eigi ekki að vera, orsakast af þeirri
keppni sem er á milli félaganna við
að halda úti sem þróttmestu starfi
og sem bestum liðum. Þessi rígur er
viss hvati að því að jafn vel hefur
tekist til og raun ber vitni þótt auð-
vitað geti rígurinn farið út fyrir þau
mörk sem æskilegt má telja.
Það að við megum ekki ræða við
einn leikmann Þórs sem við berum
fyllsta traust til um að taka að sér
þjálfun hjá okkur get ég ekki skilið
og ég held að Þórsarar ættu að
heyra hans hlið á málinu.
ÖII beiskja Þórsara beinist gegn
mér, en auðvitað hefðum við ekki
rætt við Þorstein nema af því að
hann sýndi þessu áhuga. Það er
ekkert nýtt hér að annað félagið
ræði við leikmann hjá hinu, þetta
hefur talsvert verið gert í yngri
flokkunum og það er ekki nema um
ár síðan forráðamenn Þórs ræddu
við einn af leikmönnum meistara-
flokks KA um að hann kæmi yfir til
þeirra. Við teljum okkur enga
engla í þessum málum og setjum
okkur í samband við menn ef okk-
ur þykir ástæða til og teljum að þeir
gætu styrkt okkar lið. Við vitum
það og Þórsarar vita það að þetta er
stundað, hvort sem menn vilja
viðurkenna það eða ekki.
„Köld kveðja“
Þótt við séum ekkert síður að
keppa við Þór en önnur félög þá er
ég alveg tilbúinn til þess að hafa
visst samstarf við Þór. Ég fékk hins
vegar þá kveðju frá formanni
knattspyrnudeildar Þórs að það
væri mesta áfall fyrir knattspyrnuna
á Akureyri í mörg ár að ég skuli
vera orðinn formaður knattspyrnu-
deildar KA og eftir svona kveðju
veit ég ekki hvort samstarfið getur
orðið mjög náið. Hins vegar lít ég
ekki á þessa yfirlýsingu sem niður-
lægingu, heldur hrós fyrir mín störf
hjá KA og þegar þessi maður verð-
ur orðinn ánægður með þau störf
og ég veit að hann meinar það, þá
segi ég af mér.“
Félagssvæðið
- Þið KA-menn hafið undanfarin
ár verið að vinna að uppbyggingu
á félagssvæði ykkar í Lundahverfi.
Hvernig hefur það gengið?
„Við erum stöðugt að bæta alla
aðstöðu okkar þar. Nýi grasvöllur-
inn kom mjög þokkalega út, mal-
arvöllur okkar er orðinn mjög
frambærilegur og nú höfum við haf-
ið vinnu við 8 þúsund fermetra
grassvæði sem við vonumst eftir að
þekja næsta sumar. Þá eigum við
tvo grasvelli og þessi nýi völlui
verður fyrst og fremst æfingavöllur,
ekki neinn sparivöllur þótt við gæt-
um þess auðvitað að eyðileggja
hann ekki strax á fyrsta ári. Það
má segja að það sem við horfum
næst til sé að fá betri búningsað-
stöðu á svæðið en við gerum okkui
grein fyrir því að það er ekki hægt
að gera allt f einu. Það má vel
koma fram að samstarf okkar við
starfsmenn og forráðamenn bæjar-
ins varðandi uppbygginguna á fé-
lagssvæði okkar hefur verið mjög
ánægjulegt og gott að leita til
þeirra.“
- Það hefur talsvert verið um
það skrifað opinberlega að undan-
förnu að íþróttafélögin KA og Þór
hafi fengið einokunaraðstöðu á
rekstri leiktækjasala á Akureyri,
hvert er þitt álit á því máli?
„Mín persónulega skoðun er sú
að þetta sé ekki rétt leið. Ég veit
um einkaaðila hér í bænum sem
hefur áhuga á að setja upp svona
leiktækjastofu og þar geta félögin
fengið að hafa sín leiktæki. Þessi
aðili myndi sjá um reksturinn en
félögin myndu hirða afraksturinn.
Þetta tel ég miklu betri leið en að
veita einum eða öðrum einokun á
þessu sviði. Þetta er mín persónu-
lega skoðun og ég veit að það eru
ekki allir innan KA sammála mér.“
ári.
Flosi Jónsson úr KA sem fer
með Kára á heimsmeistaramótið
í Gautaborg í byrjun næsta mán-
aðar setti fimm Akureyrarmet
á mótinu en að öðrum ólöstuðum
stóð Freyr Aðalsteinsson sig
einna best. Bætti sitt eigið Akur-
eyrarmet um hvorki meira né
minna en 37,5 kg í samanlögðu
og setti sex Akureyrarmet í
einstökum greinum.
Mesta keppnin var í 110 kg
flokki á milli þeirra Jóhannesar
Hjálmarssonar og Konráðs Jó-
hannssonar sem keppti þarna á
sínu fyrsta móti. Eftir hnébeygj-
una hafði Konráð örugga forystu
sem Jóhannes vann léttilega upp
í bekkpressunni og Jóhannes iyfti
svo 285 kg í réttstöðulyftunni,
samtals 635 kg og vann Konráð
með 45 kg mun.
Það sem líklega vakti mesta at-
hygli á mótinu var að áhorfendur
voru fjölmennir, á milli 40 og 50
talsins og er það góðs viti.
- ESE,
Úr leik KA og Völsungs í 1. deild kvenna.
99
Reynisvík“ vann
Geysileg barátta var í viður-
eign RD (Reynisvík) og KA í
2. deildinni í blaki um helgina,
en leikurinn var háður á
Dalvík. Leikið var af krafti í
nærri tvær klukkustundir og
þá loksins fengust úrslit, 3:2
fyrir „Reynisvík“, en það lið
er sem kunnugt er skipað Ieik-
mönnum úr Reyni Arskógs-
strönd og frá Dalvík.
Heimaliðið vann fyrstu hrinu
15:13, en KA aðra hrinuna með
sama mun. Þá vann RD þriðju
hrinuna 16:14 en KA-menn gáf-
ust ekki upp og unnu þá næstu
15:6. Var því komið að útslita-
hrinunni og hana vann RD 15:10
og leikinn þar með. Þótti þessi
viðureign fjörleg og oft þokka-
lega spiluð.
Fyrsti leikurinn í 1. deild
kvenna var um helgina er KA
fékk Völsung í heimsókn. Þar var
um ójafnan leik að ræða því
Völsungs-stúlkurnar sem allar
eru þrautreyndar höfðu yfirburði
og unnu 3:0, 15:5, 15:4 og 15:1.
Þótt Völsungur sé nýliði í deild-
inni eru leikmenn liðsins það
ekki, og hafa þær flestar komið
nálægt landsliði okkar í íþrótt-
inni.
Þá var annar leikur í 2. deild
karla, en þar vann lið Skautafé-
lags Akureyrar lið KA-b með
3:1, og fóru hrinurnar 15:4,
12:15, 15:2 og 15:4.
1-X-2
Úrtslitaröðin í íslenskum getraunum
um helgina varð sem hér segir:
A.Villa - Arsenal 2
Leicester - Everton 1
Liverpool - Luton 1
Norwich - QPR 2
Southampton - Ipswich 1
Stoke - Coventry 2
Tottenham - Notts C. 1
WBA - Birmingham 2
Cambridge - Brighton 2
Leeds - Pourtsmouth 1
Newcastle - Man.City 1
Swansea - Blackbum 2
Þrefalt
hjá Brodda
og Kristni
Kristinn Jónsson TBA vann þrenn guUverðlaun.
Um 60 keppendur tóku þátt í
opnu móti í badminton sem
fram fór í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri um helgina, en þar var
keppt í meistaraflokki og A-
flokki. Keppendur I meistara-
flokki voru af höfuðborgar-
svæðinu og allt besta badmin-
tonfólk landsins með, en í A-
flokki voru keppendur að
sunnan og einnig frá Akureyri.
Broddi Kristjánsson TBR sigr-
aði þrefalt í meistaraflokknum.
Hann vann Þorstein P. Hængsson
TBR í einliðaleik í úrslitum 15:11
og 17:15. í tvíliðaleik unnu þeir
Broddi og Þorsteinn þá Sigfús
Ægi Árnason TBR og Víði
Bragason ÍA 15:5 og 15:12 og í
tvenndarleik unnu Broddi og
Þórdís Eðvald TBR þau Þor-
stein Hængsson og Kristínu
Magnúsdóttur TBR 15:5 og
15:12.
Kristín Magnúsdóttir vann
Þórdísi Eðvald í úrslitum einliða-
leiks kvenna 12:11 og 11:2, þær
Kristín og Þórdís unnu svo Lov-
ísu Sigurðardóttur TBR og Elísa-
betu Þórðardóttur TBR í úrslit-
um í tvenndarleik 15:12 og 15:1.
Þrefalt hjá Kristni
Kristinn Jónsson TBA vann einn-
ig þrefalt í A-flokki. Hann sigr-
aði Erling Bergþórsson ÍA í ein-
liðaleik 15:2, 10:15 og 15:6. í tví-
liðaleik vann hann ásamt Kára
Árnasyni TBA þá Hauk Jó-
hannsson og Tómas Leifsson
TBA með 14:18, 15:2 og 18:15,
hörkukeppni þar. Þriðja sigrin-
um bætti Kristinn við í tvenndar-
leik en þar vann hann ásamt
Jakobínu Reynisdóttur TBA þau
Þórð Pálmason TBA og Guð-
rúnu Erlendsdóttur 15:4 og 15:5.
í einliðaleik kvenna sigraði
Guðrún Erlendsdóttir TBA en
hún vann Jakobínu Reynisdóttur
TBA 11:8 og 11:5, í tvíliðaleik
kvenna unnu þær Jakobína og
Guðrún þær Ragnhildi Haralds-
dóttur og Margréti Eyfells TBA
með 15:9 og 15:6.
Mótstjóri var Ragnar Ragnars-
son og þótti öll framkvæmd móts-
ins sem var í höndum TBA til
fyrirmyndar.
6 - DAGUR - 31. október 1983
31. október 1983 - DAGUR - 7